Alþýðublaðið - 17.11.1969, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 17.11.1969, Blaðsíða 7
Al'þýðublaðið 17. nóvember 1969 7 talningu vantaði ljóshöfðaönd- ina, en Jón B. Sigurðsson 3á ljóshöfðastegg á Reykjaví'kur- tjörn dagana 13. og 14. nóv. 1967. Þessi steggur kom ekki erindisleysu á Tjörnina, hann var kvikmyndaður af sjónvarps ' mönnum, • auk þess sem Jón xnyndaði hann í bak og fyrir, svo sem verðugt var um svo sjaldséðan gest. Ljóshöfðaöndin er náskyld rauðhöfðaöndinni og útlits- munur sáralítill á þessum tveim tegundum. Hún hefur sézt hér á landi eitthvað 15 sinnum á ýmsum stöðum á landinu. Ljós höfðinn hefur nokkrum sinn- um sézt hér í slagtogi við ís- lenzkar rauðhöfðaendur, en Sumargestir Þér mi'klu ferðamenn, sem leggið yðar leið um lönd og útlhöf breið! Vér bjóðum yður velkomna einu sinni enn í yðar sumarfrí. Og fyrst þér eruð mættir, þá vitum vér, að senn mun vorið koma á ný. En löng var þessi leið, unz loks úr sænum skein vor eyja íturhrein. Hið hvíta jökulhótel, sem heilan vetur beið og stæði annars 'autt, með léttra linda hljómsveit og loftin safírheið og gólfið grænt og rautt. Hve upp til yðar fyr með aðdáun ég leit. Þér fluguð sveit úr sveit, og áttuð svör við öllu, sem unglingshjarta spyr og mæltuð ótal mál, og hélduð burt á haustin, en eg sat eftir kyr með söknuðinn í sál. Og samt? Það segir fátt þeim sumargesti frá, sem hvergi heima á. Hann flýgur land úr landi og leiðist sérhver átt og finnur aldrei frið, og hverfur út á hafið, sem hrynur kalt og grátt og á sér engin mið. Tórrias Guðmundsson. ekki er vitað til að neitt hreið ur hafi fundizt, og bendir allt til ,að aðeins hafi verið um flækinga að ræða. Þeir, sem kynnu að vilja fræð ast frekar um Ijóshöfðann, ættu að verða sér úti um Nátt- úrufræðinginn 1968, 3.—4. hefti, og fletta upp á bls. 165, þar er að finna grein eftir Arn- þór Garðarsson, dýrafræðing, sem nefnist Ljóshöfðaendur (Anas americana) á íslandi. Rjúpnaveiðin Lítil rjúpnaveiði hefur verið í haust. Hjá flestum hefur dags veiðin verið innan við tíu rjúp ur. Mesta veiðin hér syðra, sem frétzt hefur af, var á Holta- vörðuheiði, þar fékk Gunnar Guðmundsson, bóndi í Forna- hvammi, 60 rjúpur 21. okt. Er rjúpnaveiðin í haust mjög í sam ræmi við álit fuglafræðinga um stærð rjúpnastofnsins á þessu ári, svo sem áður hefur verið minnzt á hér í þættinum. Rjúpnaverð í verzlunum í Reykjavík mun vera um 75 kr. inn og 100 kr. út, sem er svip- að og í fyrra, kannski aðeins hærra. Dreki kemur úr amareggi Frá kóngstign össu kunna menn fátt að segja, en aftur nokkuð fleira af ungum henn- ar og eggjum. Ein sögn er það að ef látið er gull í arnarhreið- ur er hún hefur nýorpið komi úr öðru egginu lausnarsteinn, en úr hinu flúgdreki, og er þessi sagá sögð þar um'til sann indamerkis: Maður hét Jón; hann bjó í Lambhaga i Borgarfirði. Hann var ágætur skotmaður; það er sagt að hann hafi gert það til leiknis til að reyna hvort það Framhald á bls. 11. CAMEL FILTER CAMEL REGULAR AUÐVITAÐ CAMEL CAMEL CAMEL

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.