Alþýðublaðið - 13.12.1969, Síða 3

Alþýðublaðið - 13.12.1969, Síða 3
Alþýðublaðið 13. desömber 1969 19 Um daginn og veginn, Jón Eyþórsson. Jón Eyþórsson veðurfræðingur hóf að flytja samnefndan þátt í útvarpið árið 1936 og flutti hann um langa hríð. Jón Eyþórsson varðaði þættinum veginn og naut hann mikilla vinsælda í umsjón hans. Un<)ii> leiðsögn Jóns stíga menn og viðburðir fram á, sjónarsviðið ijóslifandi í annað sinn. Ummii. útíiájiimar annaSist, Eiríkiu' llfcinn Finn'boQason,. Félagsmannaverð kr. 395.00. ALNIEKNA BOKAFELAGIÐ AUSTDRSTRÆTI18 SÍHIII9 Óboðinn gestur öæHur Svava Jakobsdóttir; Leigjandinn, skáldsaga, 127 bls. Helgafell 1969. 1 Svava Jakobsdóttir hefur í tveimur fyrri bókum sínum beint athygli sinni að konunni og vandamálum hennar. Smá- ‘ sagnasafnið „Veizla undir grjót vegg“ (1967) birtir hvassari á- deilu á stöðu konunnar og eig- ' in afskiptaleysi en áður hefur sézt í íslenzkum bókmenntum, jafnframt því sem miskunnar- laust er hæðzt að taumlausri : húsdekrun og lífsþæginda- frekju íslendinga. Veizla undir " grjótvegg hristi óneitanlega burt töluvert af því sleni sem einkennt hefur íslenzkar smá- sögur um sinn. 1 f fyrstu skáldsögu sinni, „Leigjandanum“, birtir Svava í rauninni rökrétt framhald ’ fyrri umræðu sinnar, en jafn- framt víkkar sýn hennar og á- deilan beinist að fleiri þáttum þjóðfélagsins þótt sjónarhóll- inn sé enn hinn sami. Á ytra borði er þessi saga fjarskalega einföld. Söguþráðinn má rekja í örfáum orðum. Einn 1 góðan veðurdag vindur sér ó- boðinn gestur inn um dyrnar á leiguíbúð hjóna, án þess að drepa á dyr. Konan er ein 4 heima og veit ekki hvað hún á að gera. Þegar eiginmaðurinn kemur heim telur hann. af gest risni sö'kum ekki fært að vísa ókunna manninum út. Ókunni maðurinn sezt upp á heimili þeirra hjóna og verður fyrst ‘ snar en síðan óaðskiljanlegur þáttur í Íífi þeirra. Auðvitað eru þau að byggja eins og flest ; ir íslendingar. í nýja húsinu munu þau verða fullkomlega 1 sjálfs sín ráðandi og þá munu þau einnig losna við gestinn óboðna. En þau hafa ekki held- " ur ráð á því að byggja fremur en flestir íslendingar. Gestur- ' inn hleypur undir bagga- og styrkir þau fjárhagslega tii' þess að verða sjálfs sín ráð- andi í eigin húsi en sviptir þau ’ þar með möguleikanum til sjálf ræðis með styrk sínum. Hann verður samgróinn fjölskyld- ' unni í bókstaflegum skilningi. Jafnframt ber nýjan gest að ' garði. Verður honum úthýst? ' Ekki kæmi mér á óvart þótt einhverjir yrðu til þess að af greiða þessa sögu snarlega með því að benda á hversu fáran- legt þetta sé að ókunnur mað- ur geti vaðið inn á heimili fólks (ég hef sjálfur reynslu af slíkum vanskilningi). Jafn- framt myndi þvílík túlkun trú lega leiða til gagnrýni á ófull- burða persónulýsingum auk ó- 1' þarfra fjarstæðulýsinga í raun- i ; særri frásögn. En málið er ekki V alveg svona einfalt. !| Grundvöllur þess að skilja ’ Bkáldverk er vitaskuld að ját- ast í upphafi undir samfylgd höfundar. Hugmynd höfundar verður þá að vísu að fela í sér eitthvað sem laðar til sam- fylgdar. Ég held að erfitt sé að lesa lengi i Leigjandanum án þess að koma auga á ,að sagsn er táknræn, þ. e. í frásögninni fer raunar tvennum sögum fram ,annars vegar raunsæ at- burðarrás hins vegar sá veru- leiki (ímyndaður eða sannur) sem frásögnin miðlar. Hin ytri frásögn slíkrar sögu er aðeins yfirskin til að miðla öðrum og óft geigvænlegri hlut. Flestir íslendingar munu sennilega fljótlega túlka söguna sem við vörun gegn erlendum áhrifupi á íslandi. Gildir þá einu hvern ig lesið er úr táknum sögunn- ar í einstökurri atriðum. Gestur inn í upphafi gæti t. d. verið hernám breta, nýja húsið sjálf- stæði, seinni gesturinn banda- ríski herinn. Gesturinn getur einnig frá byrjun verið banda- ríski herinn, seinni gesturinn EFTA eða Efnahagsbandalag EVrópu. Þessi skjlningur skipt ir raunar engu máii frá bók- menntalegu sjónarmiði. Ég ímynda mér til að mynda að tékkar og víetnamar gætu fundið nægar hliðstæður í eig- in þjóðarreynslu til að skilja tákn sögunnar, sömuleiðis marg ir norðmenn danir eða guate- malar. Táknrænar sögur ber ekki að oftúlka. Aðalatriðið er að lesandinn finni viðmiðun sem reynist honum sjálfum haldbær. Ég skil Leigjandann tákn- rænum skilningi sem viðvörun, ekki sem ádeilu, beinlínis. En sagan birtir einnig ádeilu. Hún deilir á lífsviðhorf sem skapar grundvöll aðstæðna sem reyn ast .varhugaverðar; í þessu Ijósi birtist Leigjandinn mér sem nokkurs konar framhald þeirr- ar ‘uinræðu sem fór fram í Veizlu undir grjótvegg. E:kki virðist unnt að sjá; annan til- gang í lifi hjónanna en að koma sér upp húsi. Og óneitanlega virðist það helzti snar þáttur í lífi margra íslendinga að eign- ast hluti; hús, bíl, sjónvarp: einn hlutur leiðir síðan til ann ars ennþá flottari og dýrari. Þetta- er vitaskuld engan veg- inn einskorðað við ísland held- ur kemiur manni fyrir sjónir ;sem helzta keppikefli vest- rænna iífsviðhorfa á okkar tímum. Spurningin er þá hvert slík lífsstefna muni leiða ein- stakar þjóðir og vestræna menn ingu f heild. Jafnframt miðlar sagan öðrum íslenzkum (eðá ættum við að segja smáborg- aralegum) sjónarmiðum sem koma fram í samskiptum kon- unnar við umhverfið sem sum staðar örlar á: ég á þá fyrst og fremst við hversu háð hún er Framh. á bls. 24. JOLABÆKURNAR FAST I Bóka- og ritfangaverzlunlnni HOLMGARÐI 34. JÓLABÆKURNAR FAST I Bóka- og ritfangaverzluninni VEDA Digranesvegi 12. ÍSLENZKAR OG ERLENDAR JÓLABÆKUR FÁST HJÁ BÓKAVERZLUN ; Snæbjarnar Jónssonar & Co Hafnarstræti 9. JÓLABÆKURNAR FÁST HJÁ Bókabúð NORÐRA Hafnarstræti 4.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.