Alþýðublaðið - 13.12.1969, Síða 6
22 Alþýðublaðið 13. desember 1969
B eiffabóisstaður í Fljótshiíff
efiir Viglús Guðmundsson. — Höf-
u-ndur bókarinnar, Vigfús Guðmunds-
son, fæddist að Keldum á Rangár-
völlum 22. október 1868. Hann varð
búfræðingur frá Hvanneyri 1894 og
vannt alla tíð að búnaðarmálum. —
Bóndi var hann að Haga í Gnúpverja-
hreppi og í Engey á árunum 1896 til
1916.
Vigfús var greindur maður, ger-
hugull og nákvæm'ur rithöfundur. Eft
ir hann liggja meðal annars eftirtald
ar bækur: Saga Oddastaðar, Ævi Hall
gríms Péturssonar, Saga Eyrarbakka
og Keldur á Rangárvöllum.
í þessari bók fjallar Vigfús um
Breiðabólsstað í Fljótshlíð, gerir ná-
kvæma grein fyrir ábújerTdum' og
prestum þeim, sem staðinn hafa set
ið, rekur sögu kirkjunnar og eigna
hennar, og lýsir bæjarhúsum og hjá-
lendum. Kr. 350,00
Ritsafn Einars H. Kvarans
Þriðja og fjórða bindið eru nú
komin í bókaverzlanir. — Ekki þarf
að lýsa Einari H. Kvaran né ritsnilld
hans. Sögur hans eru kunnar hverj-
um' manni, sem kominn er til vits og
ára, og flest verk hans lesin upp til
agna. — Orðfæri Einars H. Kvaran
er lifandi tungutak hins talaða máls
og lætur jafn eðlilega í eyrum nú
og fyrir 85 árum, þegar fyrsta sagan
hans var rituð.
III. og IV. bindi kosta í vönduðu
bandi kr. 1107,00.
í svipmyndum II.
síðara bindi bókar frú Steinunnar S.
Briem, sem hún nefnir MYNDBROT.
1 bókinni eru viðtöl við 48 manns,
fólk lir öllum stéttum þjóðfélagsins.
1 þessum tveimur bókum eru því
viðtöl við meira en1 hundrað manns.
(í fyrri bókinni birtust 55
viðtöl). Hér eru ævisögubrot fólks
með hina fjöþættustu lífsreynslu og
ólík viðhorf. Stundum geta stutt við-
töl gefið dýpri innsýn í líf manna en
lörg ævisaga. — Þessa bók má geía
við öll tækifæri. Kr. 450,00
Stiá,
Ijóðabók eftir Steingerði Guð-
mimrisdóttur. Steingerður er dóttir
Guðmundar heitins skólaskálds, sem
af flestum er talinn einn mesti rím-
snillingur þjóðarinnar fyrr og síðar.
Ljöðaflokkur hans „Friður á jörðu"
er meðal þess fegursta, sem ort hef
ur verið á íslenzka tungu. — Ljóð
Steingerðar eru fáguð og fögur.
Kr. 370,00
Syndugur maffur segir frá
Sjálfsævisaga Magnúsar Magnússon-
ar, fyrv. ritstjóra Storms.
Magnús segir meðal annars í for
mála fyrir bókinni: Þrennt er það,
sem ég tel, að minningar manna eða
ævisögur þurfi að hafa til brunns að
bera öllu öðru framar:
Að' þær séu sannar.
Að þær hafi frá einhverju að segja.
Að þær séu skemmtilegar, eða að
minnsta kosti læsilegar.
Vísvitandi hef ég hvergi hallað
réttu máli og látið það ganga fyrir
öllu að segja satt frá og staðið gegn
þeirri freistingu að gera frásögnina
litrrkari og áhrifameiri með því að
ýkja eða jafnvel skálda inn í hana.
Margt hefur drifið á daga Magn
úsar, og mörgum hefur hann kynnzt.
Og ekki mun þeim leiðast, sem lesa
bókina. Kr. 450,00.
Gamantregi
Eftir Örn Snorrason.
Örn Snorrason hefur lagt gjörva
hönd á margt. Hann hefur ort mikið
af gamanvísum og skopkvæðum, frá
því hann fór úr skóla og fram til
þessa dags. Kínrnin er ríkur þáttur í
fari hans og bregzt honum ekki, þó
að alvara lífsins hafi löngum leitað
fast á huga hans, eins og títt er um
góða húmorista. Gaman og alvara
leikast á eins og skin og skuggar.
Þetta tvísæja viðhorf spegiast í því
úrvali af skáldskap Arnar Snorrason-
sem birtist í þessari bók, í bundnu
máli og óbundnu. Hirr léttstígu gam
ankvæði hafa margan hlátur vakið
og munu enn vekja, en alvaran er á
næsta leiti í öðrum þætti. Höfundur
á erindi við lesendur, hvora leiðina
sem1 hann kemur til móts við þá.
Kr. 370,00.
um líf þeirra manna og kvenna, sem
risið hafa úr hafi meðalmennskunn-
ar og verið áberandi með hverri kyn
slóð. Við fáum tækifæri til að leggja
okkar dóm á störf þeirra og heiðra
minningu þeirra, ef okkur finnst það
við eiga. — Við höldum á lofti nöfn
um þeirra manna, sem staðið hafa
í fararbroddi með hverri kynslóð og
segjum, að þjóðin eigi þeim gott
eða grátt að gjalda, eftir því sem
dómar okkar falla. í þessari
bók eru birtir nokkrir þættir úr þjóð
lífi voru — brot tekinr úr gullastokki
íslenzkrar alþýðu. Kr. 260,00.
Fremra Háls ætt.
Niðjatal Jóns bónda Árnasonar og
konu hans, Guðrúnar Magnúsdóttur,
er bjuggu að Fremra-Hálsi í Kjós
1733—1751. Þetta er annað bindi
og er þar með verkinu lokið. Fyrra
bindið er nú því nær uppselt.
kvenna og af því geta leitt hin
spaugilegustu atvik. — Frásognin
er létt og lipur og þó hispursiaus.
Kr. 260,00
islenzk-dönsk crffabók.
Að stofni til er þessi orðabók eft
ir Jakob Jóh. Smára. En fleiri hafa
lagt hönd á plóginn. Freysteinn
Gunnarsson, skólastjóri, bjó þessa
nýju útgáfu til prentunar. Kr. 175,00
Kim.
Þessi saga heitir: „Sá hlær bezt,
sem síðast hlær.“ Eins og vant er,
þá eru þau öll á ferðinni: Kim, Kata,
Eiríkur og Brilli og hafa í nógu að
vasast eins og í fyrri KIM-bókum.
Kr. 160,00.
Bob Mcran.
Tvær bækur um ævintýramanninn
og hetjuna Bob: Stálhákarlarnir og
Vin „K“ svarar ekki. Eins og lesend
Nýjar bækur frá LEIFTRI
1969
Verð bókanna er tilgreint án söluskatts.
Gréta
Eftir Kristínu M. J. Björnsson.
Gréta er ástarsaga. — Óli og
Gréta voru jafnaldrar, nema hvað
hann hafði bóndaárið fram yfir hana.
Snemma voru þau draumgestir hvort
hjá öðru, því að fjölskyldur þeirra
voru tengdar. — Bernskan leið bros
andi og draumfögur. — Gréta og
Óli voru svo ung og sæl, þau sáu
ekki nein vandkvæði á að vera glöð
og kát, enda var lífið þeim. leikur.
Kr. 330,00.
Víkngadætur
eftir Kristínu M. J. Björnsson.
Þetta er annað bindi af skáldsögu
frú Kristínar M. J. Björnsson. Gréta
er komin ti! útlanda og er bókin
skrifuð að nokkru í formi bréfa frá
Grétu til móður hennar og annarra
ættingja og vina heima á íslandi.
Kr. 330,00
Erginn fiskur á morgun
Þetta er önnur bók frú Unu Þ. Árna
dóttur. Fyrri bók hennar, „Bóndinn í
Þverárdal" fékk ágætar viðtökur og
urr.sagnir. — Þessi nýja saga gerist
bæði við sjó og í sveit.... Hógvær
lýsing á lífi unga fólksins, eins og
það gerist í dag við störf og skemmt
anir, ástum þess og amstri. Hún
lýsir líka kjörum þeirra, sem eldri
eru. — Þetta er saga dagsins í dag.
Kr. 260,00
Ég raka ekki í dag, góffi
Þættir úr þjóðlífinu
Þorsteinn Matthíason skrásetti.
i bókinni eru þrettán þættir úr
íslenzku þjóðlífi, viðtöl og frásagnir.
Þorsteinn segir meðal annars: —
Þegar við lesum sögu þjóðarinnar,
fáum við fyrst og fremst hugmynd
íslenzka þjóðin er yfirleitt ætt-
rækin og margir kunna nokkur skil
á ætt sinni. Rit, sem fjalla um mann
fræði og þjóðfegan fróðleik eru því
vinsæl hér á landi. — Hvort bindi
kostar kr. 450,00.
Austan blakar laufiff.
Höfundur bókarinnar, Þórður Tóm
asson safnvörður frá Vallnatúni seg-
ir í formála fyrr bókinni: Þessi bók
er helguð vinum mínum, sem lifðu
í fórn og kærleika, voru ríkir í fá-
tækt, glötuðu aldrei barninu og gátu
glaðzt yfír litlu. — Öld þeirra er lið
in og minningar hennar eru að
hverfa í skugga og gleymsku. Hér
er ekki sagt frá öðru en fábreyttu
lífi alþýðufólks, baráttu þess, sigrum1
og ósigrum, við aðstæður, sem okk-
ur hrýs oft hugur vð. Frásagnir þess
ar eru jafnframt dálítið framlag til
sögu Rangæinga á 19.öld. Kr. 370,00
Frá kcmmúnisma til Krists
Benedikt Arnkelsson þýddi. Höf-
undurinn sem er kona og skólastióri
í Englandi, gerir í riti þessu grein
íyrir því, hvernig skoðanir hennar
breytast, og hún laðast að þeirri
persónu, sem ein á svar við dýpstu
spurningum lífsins: Jesú Kristi.
Kr. 50,00.
Eldflugan dansar.
Guðjón Guðjónsson, skólastjóri
þýddi. Þetta er skemmtileg saga og
vel þýdd. Segir þar frá hæglátum
kaupmanni, sem sendur er til Japan
í verzlunarerindum. Og eins og að
líkum lætur kynnist hann þar einni af
þeim stúlkum (geisha), sem hafa
það að atvinnu að skemmta f§rða-
mönnum og viðskiptavinum stórra
Vérzlújl'arfyrirtaekja. En'''“'Fnörgum
hættir til að misskilja starf slíkra
um Bob Moran-bókanna er kunnugt
þá eru þær r.vo spennandi, að því
verður ekki með fáum orðum lýst.
Lesið þær og þið munuð sannfærast
að lestri loknum. Kr. 175,00 hvor
bók.
Frank cg Jói
Þriffja og fjórffa bókin um bræff-
urna Frank og Jóa: Leyndarmál
gömlu myllunnar og Týndu félagarn
ir. Hér komast þeir bræffurnir og fé
lagar þeirra á slóffir bófaflokks og
ræningja og tekst þeim meff snar-
ræffi sínu aff koma í veg fyrir hættu
legt ráffabrugg þeirra. Þeir þeysa
um á mótorhjólum, bílum og hraff-
bátum og hafa æriff nóg aff starfa
við mál sín. Kr. 175.00 hvor bók.
Nancy.
Tvær bækur: Nancy og gamfa eik
in og Nancy og draugahúsið. —
Þarna er Nancy á ferðinni með stöll
um sínum og lerrdir í hinum ótrúleg-
ustu ævintýrum eins og ávallt. —
Kr. 175,00 hvor bók.
Völuskrín l
Sögur handa börnum og ungling.
um. Hróðmar Sigurðsson valdi sög
urnar. Hróðmar segir-. Það vakti fyr
ir mér er ég tók sanran þessa litlu
bók að gefa yngstu kynslóðinni kost
á að kynnast nokkru af því lestrar-
efni, sem feður hennar og mæður,
afar og ömmur, glöddu sig við á
æskuárum sínum og höfðu að vega-
nesti út í lífið. Kr. 160.00.
Völuskrín II.
Efnið í þessa bók valdi Hróðmar
Sigurðsson einnig. Bækurnar eru
hvor annarri skemmtilegri og við
hæfi barna. — Ekki er ósennilegt,
að fleiri bækur komi með þessu
nafni. Kr .160,00.
Mús cg kisa.
Skömmu fyrir síðustu jól kom út
barnabók eftir Örn Snorrason. Bókin
hét Mús og kisa. — Á nokkrum
dögum seldist allt það af bóknni,
sem hægt var að koma í ,band — og
'svo hðu jólin. Nú er bókirr kcmin
aftur í verzlanir. — Örn Snorrason
hefur mikið fengizt við ritstörf og
er landskunnur fyrir barnabækur sín
at cg þýðingar á vinsælum bainabók
um. Kr. bO.fO.
Grýla gamla og jólasveinarnr.
■ N) og gamansöm bók handa börn
unum eftir Kristján Jóhannesson kenn
ara.
Fyrr á tímum voru margar sögur
á kjeiki um Grýlu gömiu og jólasvein
anj og sumar þeirra miður íallegar.
Nú er hætt að angra börn rne'ð s!ik-
um sögum1. En jólasveinarnir og
Givia eru í hugum barnanna okkai
orðrar að persónum. sem gleðja og
skcmmta. — Þessar nýju sögur eiu
lika ætlaðar til bess að gleðja og
skerrmta börnunum — Auk Grý.u
og jólasveinanna koma hér einnig
við “ögu tröllakennariinT Stó;i S:.rt-
ur. Sm-iður dvergavórigiir, Kuldabol)
Kári vindakóngur og síðasr en ekki
sírt Sprautu Trölli, sem er úrvals
læknir uppi í tröllabyggðum og mik-
ill vinur Grýlu gömlu. Kr. 160,00.
Moii litli II.
eftir Ragnar Lár.
Ragnar Lár samdi í fyrra litla
barnabók, sem hann kallaði Mola
litla. Bókin er með myndum á hverri
blaðsíðu, og segir þar frá litlum
flugustrák, honum Mola litla og vini
hans, Jóa járnsmið, og erjum þeirra
við þorparann Köngul könguló.
Nú er komin önnur bók um Mola
litla. Þessar bækur eru sérstaklega
góðar fyrir börn, sem eru að byrja að
lesa. Letrið er stórt og vel skýrt og
myndirnar við barna hæfi. Kr. 60,00.
Nýja heimiliff.
Höfundur Petra Flagstad-Larsen.
Hrólfur litli og Anna-Lísa eru syst
kin. Hejmili þeirra er í upplausn.
en þau fá að dveljast í sveit sumar-
langt. Þar bíða þeirra fjölda mörg
ævintýri í störfum' og leik. Og þar
kynnast þau líka húsdýrunum, sem
öllum börnum er nauðsynlegt. Faileg
bók og góður lestur handa drengjum
og stúlkum. — Kr. 160,00.
Stelpurnar, sem struku.
Þær voru tvíburar, litlar og fal-
legar stelpur, en höfðu alizt upp við
fullmikið eftirlæti. Faðir þeirra var
vel efnaður, en vegna atvinnu sinn-
ar var hann langdvölum erlendis og
gat því ekki litið til þeirra sem
skyldi. Þær áttu því erfitt meö að
sætta sig við aga, þegar lífið barði
að dyrum. — Bókin er fjörlega skrif
uð cg sagan skemmtileg og falleg.
Kr. 160,00.
Drengurinn frá Andesfjöllum.
Hann er lágvaxinn en hnellinn
strákur og elst upp hjá afa sínum.
Afi býr einsamall í kofa uppi í Andes
fjöllum og mannaferðir eru ekki tíð
ar þangað upp eftir. Múldýrarekinn
Ernesto kemur þó öðru hvoru. Þeir
eru aldavinir, gömlu mennirnir. —
Drengurinn á engan að nema afa
■sinn Og þó er mikil saga að bakj
hans. En henni kynnumst við, þegar
við lesum söguna um Drenginn frá
Andesfjöllum. Kr. 175,00.