Alþýðublaðið - 24.12.1969, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 24.12.1969, Blaðsíða 5
JOLABLAÐ 1969 5 úr nöfnum karla, og átti hver í orði kveðnu að eiga þann, sem sem hann dró. Varð það eink- um að gamni, er kostir þóttu af lakara tagi. Lusifersnótt var þriðja nótt fyrir jól. Var þá margt óhreint á ferð og öllum hentast að halda sig við heimili sitt. Jólasveina var von af fjöll- ‘ um, er leið að jólum. Um tölu þeirra hefur leikið á tveimur tungum, en um upplag þeirra og útlit virðast sagnir nokkuð ' sammála. Jón Jónsson skáldi, einnig nefndur Torfabróðir (d. 1846), lýsir sjálfum sér m. a. 1 á þessa leið í sjálfslýsingarljóði: I ! f Ofanstuttur, augnastór, ' eins og jólasveinar. r i Allþekkt jólasveinalýsing er í gömlum húsgangi; i ~ Jólasveinar sýnast mér " sigla heim á bæinn minn, ' belgi bera á baki sér, ' biksvartir á hár og skinn. r ' Mörg h'eimili áttu vart til skipt- anna ígangsklæði og rúmföt, en allir urðu að fagna jólum með hreinum líkama og hreinum fötum. Það var til líknar fá- tæktinni, að jafnan var vís fata þurrkur fyrir jólaþvottinn. 'Niefndist hann fátækraþerrir. Varast mátti fólk þó að vera með föt sín í þvotti á sól’stöðu- stundinni. Á því augnabliki dröfnuðu öll föt sundur í þvotti og öll horn voru þá laus á nautgripum og sauðfé. Maður, sem fjálgraði þá óvart við horn á kú eða kind, átti þá eins víst að gefa því allt aðra stöðu á slónni ef það hreinlega losnaði ekki alveg. Langt fram á þessa öld slát.r , uðu bændur undir Eyjafjöllum jólaá, — gott ef al.Iir eru hætt- ir því enn. Var því trúað, að ekki þýddi að skjóta sér und- an þeirri venju; jólaærin var feig og betra að leggja hana undir hnífinn en missa hana úr einhverri ótjálgu, kannski eng- um til nota. Jólaánni var slátr- að daginn fyrir Þorláksmessu, og slátrið úr henni var haft til matar- á Þorláksmessukvöld. Jólahangikjötið var soðið- á • Þorláksmessu. Bóndinn fór þá í rótina og tók vel í pottinn. Vandlega var fleytt ofan af pottinum við suðuna og hangi- 'ketsflotið. gef ið til matar með jólaketinu að kvöldi jóladags. Gömul venja var að leggja hörð fisktálkn ofan í hangiketssoðið og borða þau samdægurs, en ' hætt var því, er kom fram und i ir lok Ii9. aldar. Jólahangikjöt- ið var fært upp í trog og geymt í búrinu fram á jóladag. Aðfangadagur jóla var dag- ur mikilla anna á heimilinu. Bærinn var fágaður og prýddur svo sem föng voru á, búið um rúm, spariföt tekin upp og allt ‘ búið í haginn fyrir hátíðina. Þvottastampur var víða borinn út í fjós, og þar laugaði fólk sig úr volgu vatni. Kvöldgegn- ingum var flýtt, og ýmsir bænd 1 ur gáfu skepnum sínum ögn betra fóður undir nóttina helgu en ella var venja. í eldhúsinu setti eldakonan upp súpupottinn að kvöldi og eldaði súpu af ketinu af jóla- ánni. Var það föst venja að hafa ketsúpu til matar á að- fangadagskvöld, og halda enn margir þann sið í heiðri. Önnur eldamennska þá var að baka jólalummurnar úr fínmöluðu bankabyggi, yfir hlóðaeldinum; Fyrstu jólakökurnar undir Eyja fjöllum bakaði líklega Þóra Torfadóttir húsfreyja í Varma- hlíð á níunda tugi síðustu ald- ar fyrir sig og vinkonur sín- ar, með líkri aðferð og pott- brauð, er bökuð voru undir potti yfir byrgðri glóð. Þóra hafði verið nemandi í Kvenna- skólanum í Reykjavík. Jólahátíðin gekk í garð um miðaftan á aðfangadagskvöld, og á því andartaki var eins og lífið breytti um svip. „Nú er orðið heilagt“ var viðkvæði fólksins, og guðsfriður tók heima í hverju húsi. Bærinn var prýddur ljósum eftir föng- um. Hver maður fékk sitt kerti, og Ijós loguðu hjá hverju rúmi, ýmist á stjökum eða rúmörm- Þórbur Tómasson safn- urn. Á kirkjustöðum var farið út í kirkju og hátíðin hringd inn með samhringingu kirkju- klukkna. Safnaðist heimafólk og fólk af næStu bæjum þar stundum saman og hlýddi á guðsorð, er lesið var upp af bók, og söng jólasálm. Fyrir kom líka, að haldinn var aft- ansöngur, einkum ef vel stóð á tungli um jólin og gott var veð vörður að Skógum hefur ritað jbesso grein um jóla- hald á fyrri tímum að beiðni Alþýðublaðsins ur. Inni í baðstofunni safnaðist heimilisfólkið saman í baðstof unni, prúðbúið og með hátíða- brag. Nú mátti aðeins lesa gott orð; lestrarefni kvöldsins var fengið í Biblíunni, hugvekjum og sálmabókum. Undir lok 19. aldar fór fyrst að verða vart við heimasmíðuð jólatré á sveitaheimilum. Heimili heldri manna höfðu þar forystu, hin komu á eftir. Vel man ég jóla- tréð, sem faðir minn smiðaði rétt eftir 1920 og prýddi öll æskujól mín með marglitum jólakertum. Kvöldverður var etinn um klukkan sjö, og litlu seinna var húslesturinn lesinn. Jólasálmur var sunginn á und- an og eftir honum. Seinna um kvöldið var veitt kaffi með lummum. Nú fór jólanóttin — nóttin helga — í hönd. Spá var fólgin í veðrinu á jólanótt. Eftir því fór veðrið á næstu vetrarvertíð. Alltaf var ljós látið loga í bað- stofunni til jóladagsmorguns. Þótti mein, ef ,lj ósið dó um nóttina og boðaði feigð ein- hvers heimilismanns. Ljós var líka látið loga í kirkjum á jóla- nótt. Var það tendrað á vænu kerti, sem víst var, að entist til morguns, og kertið látið standa í vatnstrogi inni í kórn um, svo öruggt væri, að eng- in hætta stæði af Ijósinu. Þetta var síðast gert í Keldnakirkju á Rangárvöllum í tíð Guðmund ar Brynjólfssonar (d. 18831. Jóladagur rann upp. Þá var vaknað fyrir allar aldir, ef svo mætti segja, fótaferð klukkan sex að morgni. Húsbændur risu fyrst úr rekkju, gengu út, litu til veðurs og gengu síðan til baðstofu, þar sem þeir buðu góðan dag og gleðileg jól. Þessu næst las húsbóndinn jóladags- lesturinn, og jólasálmar voru sungnir á undan og eftir. Kaffi með lummum var veitt þegar eftir lesturinn og síðan snúið að morgunverkum, gegningum og mjöltum. Jólagrauturinn var etinn upp úr dagmálum, hnausþykkur bankabyggs- eða grjónagraut- ur með rúsínum. Upp úr því tók fólk að tygja sig til kirkju, ef veður leyfði. Var þá alltaf tekið til messu um hádegi og margir áttu langa leið til kirkju. Jólin hafa verið nefnd hátíð ljósanna, og þau voru það engu síður í fátækt liðinnar aldar, sem sparaði allan ársins hring, en lagði sig alla fram og átti ekkert of gott til að fagna með jólum sínum. Á ljósahjálmi kirkjunnar var aðeins kveikt við jóla- og nýársmessuna. Ljós voru á öllum kertastæðum með veggjum, og í gömlu kirkjun- um voru kertaljós á bitum og kórgrindum. Kertin brunnu ekki út í jólamessunni, og eft- ir messuna söfnuðu kirkjuhald- arar við sumar kirkjur kerta- stubbunum saman og gáfu þau börnunum, sem voru við mess- una. Að kvöldi jóladags var jóla- maturinn skammtaður, hrokað ir diskar af hangiketi, brauði, kökum og öðru því góðgæti, sem búið átti bezt til. Jólamat- urinn var alltaf svo vel úti iát- inn, að drjúgur hluti hans fór í pallkistilinn eða aðra hirzlu, þar sem hann var geymdur til málsbóta fyrir næstu daga. Á jólakvöldið undi heimafólk við spil, bóklestur eða aðra skemmt un, er til féllst. Raffi og lumm ur var veitt, er leið á vöku, og ekki var kannski örgrannt um, að bóndinn ætti ögn af brenni- víni á kútholunni eða jóla- pelanum til að dreypa út í boll ana hjá þeim, er meta kunnu. Á annan í jólum fóru ýmsir í heimsókn til frænda og vina, og dæmi voru þess, ef veður var þá gott, að börn og ungl- ingar hópuðust saman til leikja heima við bæ eða úti á svell- um. Fljótt leið tíminn fram að nýári. Gamlársdegi svipaði um margt til aðfangadags. Hátíðin gékk líka í garð klukkan sex, og henni var fagnað með því að tendra ljósin hrein og hafa urn hönd guðsorð og góða siði. Húsfreyjan prýddi og sópaði bæ sinn út úr dyrum, bar Ijós v hvert bæjarhús og gekk að lok- um út í bæjardyr, þar sem húiv ávarpaði huldufólkið: Komi þeir, sem koma vi'lja, . veri þeir, sem vera velja, > fari þeir, sem fara vilj-a, mér og mínum að meinaleiusu. I ’ Á nýársnótt hafði huldufdlkið fardaga. Margir kannast við söguna af Flosa, sem sat úti á krossgötum á nýársnótt til a<5 hamla för álfanna og eignast auðæfi þeirra. Hann sat þar á kálfsskinni, hafði öxi í hendi og einblíndi í eggina. Á höfði bar hann skotthúfu og hafði komið krossmarki fyrir í húfu- snóknum. Huldufólkið þyrptist að honum og bauð fram gull og gersemar svo það gæti komizt leiðar sinnar. Flosi sat öll boð af sér, þar til honum þótti móð- ir sín koma að sér með stóran flotskjöld og rétta sér. Hann hætti þá að blína í eggina og sagði: „Sjaldan hef ég nú flot- inu neitað.“ Það hefði hann þó betur látið ósagt, því þetta var huldukona, og nú missti' Flosi auðsvonina og vitið í þokkabót. Frá þessu er málshátturinn: „Sjaldan hef ég nú flótinu neitað, sagði Flosi.“ Kirkjuklukkum var hringt á gamlárskvöld, líkt og á að- fangadagskvöld. Gamla árið var brennt út á hæð í grennd. við bæinn, ef veður leyfði. , Oft voru margir bæir um sömu brennuna. Hún var geymd til þrettánda dags jóla, ef illyeð- ur var á gamlárskvöld. Veitingar voru hinar sömu á gamlárskvöld og á aðfanga- dagskvöld, og Ijós var lífca lát- ið loga í baðstofunni á nýárs- nótt. Söm var líka spáin, sem fólst í því, ef Ijósið drapst um nóttina. Miklu máli skipti fyrir: ár- vekni manna og dugnað á úýju ári, að snemma væri risið úr rekkju á nýársmorgun. Vel reyndu ýmsir þá að muna til drauma sinna að morgni, 1 þvi nóttin var ein af fjórum draumanóttum ársins. 1 Nýársskammturinn var1 að jafnaði vel útilátinn ekki síður en jólaskammturinn og gat sá matarforði hjá einstaka ráð- deildarmanni enzt allt fratn á Frh. á 44. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.