Alþýðublaðið - 24.12.1969, Blaðsíða 34

Alþýðublaðið - 24.12.1969, Blaðsíða 34
34 JOLABLAÐ 1969 Meðan mamma bakar MEÐAN mamma er önnum .kafin við bakstur og annan jóla undirbúning, verða yngri fjöl- skyldumeðlimirnir að hafa eitt hvað fyrir stafni til að eyða tímanum. Og því ekki að fá leyfi mömmu að skoða í pokana hennar með garn og efnisaf- göngum, verða ykkur úti um lím, skæri, blýanta og pappír, nokkra eggjabakka eða öskjur utan af osti eða döðlum og hefj ast handa við að búa til jóla- gjafir. Ef þið eigið mislitan gljá- pappír og biðjið mömmu ykkar að gefa ykkur eina af köku- servíettunum sínum, þá getið þið gert fallegan jólaengil til að hengja á jóltréð. Uppskrift ina er að finna hér á eftir. Þá er hér fyrst: NÆLUGEYMSLA. I hana þarf efnisbút í skær- um lit, frauðgúmmí, sömu stærð og efnið. Ullargarn, mjótt flauelsband og 5 litla hringi, t. d. gluggatjaldahringi. í búkinn er gúmmíið klippt ca. 5x8 cm. Utan um það lím- ist efnið. Höfuðið er hringlaga gert úr sama efni á sama hátt og saumað við búkinn með litl um sporum. Ullargarnið er límt á sem hár. Munnur og augu annað hvort klippt úr efni og límt, eða saumað í með ísaums garni. Hálsklúturinn er 20x1 Vz cm úr efni. Flauelsböndin skipt ast niður í hand- og fótleggi, tvö stykki 12 cm og 2 stk. 14 cm. Einn gluggatjaldahringur er festur á hvern enda og sá fimmti er festur aftan á höfuð ið, svo að hægt sé að hengja upp. KISU-STRENGUR. í hann þarf svart filt, 18x20 notað í kisurnar, rautt filt not að í hjörtun. 75 cm grænn bóm- ullarrenningur, en ef til vill má breyta til og hafa hessían- striga í renninginn, en þá þarf hann að vera breiðari. 3 bjöll ur, rautt ullargarn og lím. Kisurnar eru teiknaðar á pappa og klipptar út í filtið. Þá eru hjörtun klippt út. Síðan eru kisur og hjörtu límd á strenginn til skiptis, þannig að efsti og neðsti kötturinn (sá neðsti er stærstur) snúa skott unum til hægri, en sá í miðið snýr til viristri. Með rauðu ull argarni er bjalla bundin um háls kattanna og hringur saum aður efst á renninginn. GULLI GÁFNALJÓS. 24x35 cm hessíanstrigi. Filt, efnisbútur, ullargarn, 2 trélist- ar og filtlím. Hessíanstriginn er brotinn 1 Frli. á 46. síöu. SITT AF HVERJU BÖKUÐ EPLAKAKA 1 kg. epli er soðið í mauk með sykri eftir smekk. Gott er að láta svolítið smjör saman yið. Eplamaukið er látið í botn- ipn á eldföstu fati. Því næst hrært saman 100 gr. smjör með 100 gr. sykri miklu af hökkuð- um hnetukjörnum eða möndlu- Um og fjórum eggjarauðum. Þá er stífþeyttum hvítunum bland •áð í deigið og það breitt yfir eplamaukið. Bakað í % úr kL' tíma. Borið fram með þeyttum rjóma. FYLLTUR KJÚKLINGUR . Kjúklingurinn er fylltur með kj úklingalifrinni, sem hrærð er upp með kryddi, eins og hver óskar. Þá er hann penslaður með smjöri eða olíu og grillað- ur eða steiktur í ca. 45 mín. Borðaður með brauði og salati. SALAT Salatolía er blönduð með salti, pipar, hvítlaukssalti og frönzku sinnepi. Þá er smátt skdrið hvítkál eða grænt salat látið í, ásamt gúrkusneiðum eða bitum. HEITT ALASKA (bakaður ís) Stór tertubotn er vættur með { Frh. á 47. síðu. igtöl : ': . ivivviv .■úviv" . f■'- y ' 5 iliiiliiilllliill . ■. V. T ■ ‘j tP''”'.' -1 f ■ I;' ÍllliliÍ iiliil v'-’ iliiipii & V m ; ■ v ;V:< / i ^ '1? / J /'' i I J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.