Alþýðublaðið - 29.12.1969, Síða 3
Alþýðublaðið 29. d'esember 1969 3
Ekið á mann
□ Á laugardagsmorgun var
ekið á gangandi mann, sem var
að fara yfir Snorrabrautina á
gangbraut. Hlaut maðurinn höf
uðhögg og nokkurn áverka á
hnakka. Lögreglunni var ekki
tilkynnt um slysið.'er það varð.
Hins vegar ók ökumaður bif-
reiðarinnar, sem slysinu olli, hin
um slasaða á slysadeild Borgar-
spítalans. Slysið var ekki til-
kynnt lögreglunni fyrr en síðari
hluta dags á laugardag. —
Harður árekstnr
□ Um klukkan 19.30 á laugar
dag varð allharður árekstur á
Holtavegi og lenti bifreið þar á
Ijósastaur með þeim afleiðing-
um, að tvær stúlkur, sem í bif-
reiðinni voru, slösuðust. Voru
þær báðar fluttar á slysadeild
Borgarspítalans, en síðar lagðar
inn á sjálft sjúkrahúsið. Stúlk-
an, sem bifreiðinni ók, skarst
talsvert á enni og hlaut auk
þess önnur meiðsli. en hin stúlk
an hlaut áverka á andliti. —
Ekið á kyrrslæða
bíla
□ Á laugardagskvöld var ek-
ið á tvo hyrrstæða bíla við
Snorrabraut. Ók ökumaður bif
reiðarinnar, sem árekstrinum
olli, í burtu og kom bifreið sinni
í nokkurt var. En að því búnu
fór hann á lögi;eglustöðina og
lét að því liggja, að bifreið sinni
hefði verið stolið, en sennilega
mun lögreglan ekki hafa trúað
sögu mannsins, sem mun hafa
verið eitthvað rykaði|- í kollin-
um, og endaði méð því, að hann
játaði að hafa ekið á tvær kyrr-
stæðar bifreiðir og vísaði á eig-
in bíl. —
Ekið á Ijosastaur
□ Ekið var á ljósastaur við
Reykjanesbraut sunnan við
Litluhlíð skömmu eftir hádegi í
gær. Ekki varð slys á fólki. Um
kl. 22 í gærkvöldi var aftur ek-
ið á ljósastaur við gatnamót
Hafnarstrætis og Aðalstrætis, en
þar mun heldur ekki hafa orðið
slys á fólki. —
I
f
I
I
I
I
I
I
t
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
S
Gerum kjarna handritanna að
lifandi þætti í þjóðiífinu
Ræða menntamálaráðherra við vígslu Árnagarðs 21. desember.
Herra foi’seti íslands. Hátt-
virt samkoma.
Það er fagnaðarefni allri ís-
lenzkri þjóð, að þessi bygging,
Árnagarður, skuli risin hér í há-
skólahverfi. Hér mun verða íil
húsa ein merkust menningar-
stofnun íslendinga, Handrita-
stofnun fslands. Hér verður
varðveittur sá menningararf-
ur, sem íslendingum hefur ver-
ið og verður ætíð hjartfólgn-
astur, handritin, sem geyma
þær bókmenntir, er gert hafa
sögu smáþjóðar að merkum
þætti í menningarsögu heims-
ins. Hér verður einnig miðstöð
íslenzkra fræða við Háskóla
íslands, þeirra fræða, sem
æðsta menntastofnun íslend-
inga hefur við helgastar skyld-
ur. Hér á ekki aðeins að vera
miðstöð íslenzkra fræða innan
Háskóla fslands, heldur í heim-
inum öllum. íslendingar hafa
átt og eiga vísindamenn, sem
verið hafa í forystusveit á
þessu sviði á alþjóða mæli-
kvarða. Þegar handritin ís-
lenzku verða komin hingað í
þetta hús, verður þessi forysta
íslendinga enn að eflast og
treystast. Það er ekki aðeins
skylda okkar við sjálfa okkur,
við þjóðerni okkar og tungu,
við allt íslenzkt, það er einn-
ig skylda okkar við heimsmenn-
inguna. Við höfum ekki barizt
til sigurs fyrir sndurheimt
handritanna til þess eins að
eiga þau. Við fáum þau til þess
að gera anda þeirra og kjarna
að lifandi þætti í þjóðlífi okk-
ar, til þess að þau auðgi menn-
ingu heimsins framvegis enn
meir en hingað til. Ef þetta ger-
ist ekki, hefðu handritin mátt
vera áfram hvar sem er. Þegar
við fáum þau, erum við ekki
aðeins að eignast dýrgripi. Við
tökumst einnig á hendur helga
skyldu, gagnvart sjálfum okk-
ur, gagnvart heiminum.
Ég þakka öllum þeim, sem
að byggingu þessa húss hafa
unnið, byggingarnefnd, húsa-
meistara og öllum þeim, sem
unnið hafa högum höndum að
þessu fagra húsi. Fyrir hönd
íslenzka ríkisins tek ég með á-
nægju og bjartsýni við þessu
húsi og afhendi það til afnota
Háskóla íslands og Handrita-
stofnun íslands. Ég veit, að all-
ir íslendingar . óska þess, að
allt starf, sem í þessu húsi
verður stundað, megi verða
í senn menningu íslands og
menningu heimsins til bless-
unar.
I
Jólasteikin í hættu á nokkrum stöðum
, i
- en blessunarlega ræifísl úr og rahnagnlð sbemmdi ekki jólagleðina.
Reksíur Norðurflugs gengur bærilega
□ Hætt er við að húsmæðrum
í Revkjavík hafi brugðið í brún
á aðfangadag er rafmagn fór af
nokkrum götum í bænum vegna
mikils álags. Hafa þær væntan
lega horft örvæntingaraugum á
jólasteikina í ofninum með að-
stoð kertaljóss. Örvæntingin
hvarf þó og breyttist í sanna
jólagleði því rafmagnsleýsið
varð skammt.
Haukur Pálmason, yfirverk-
fræðingur hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur .sagði í morgun, að
á 9 stöðum í bænum hefði raf-
magn farið af einstökum hús-
um vegna oflestunar innanhúss
og í 6 tilvikum hefði r-afmagn
farið af heilum götum eða götu-
hlutum vegna yfirálags á götu-.
strengjum. Rafmagnsleysið varð
á tímabilinu frá kl. 17—18 á
aðfangadag, en á þeim tíma er
álag hvað mest.
i'
Haukur sagði að truflanir
þessar væru. mun minni en und-
anfarin ár qí; .iólin í ár og í fyrra
hefðu skorið sig úr hvað þetta
snerti; fólk virtist taka vel í
þær óskir rafmagnsveitunnar að
rafmagnsnotkun væri dreift
sem mest á aðfangadag og væru
þeir hjá rafmagnsveitunni þakk
látir fyrir þessar góðu urtdir-
tektir. —
Alþýðublaðið ræddi í morgun
við Tryggva Helgason flug-
mann á Akureyri og spurðist
tíðinda um starfsemi Norður-
flugs. Tryggvi sagði, að rekst-
urinn hefði gengið bærilega að
undanförnu, talsvert væri um
leigu- og sjúkraflug og hefði
hann síðast í gær flutt veikan
mann frá Vopnafirði og hefði
það verið 11. sjúkraflugið í
þessum mánuði.
Þegar síldin var fyrir Austur-
landi og athafnalífið í kringum
síldina í fullum gangi hafði
Norðurflug mikil verkefni en.
síðan hefur umsetningin verið
minni en jafnari. Tilraunin með
að gera Norðurflug að almenn-
ingshlutafélagi hefði eþ.ki tek-
izt, og hefði þeim, sem greiddu
hlutaféð, verið greitt til baka.
Þessi tilraun varð félaginu dýr,
en Tryggvi sagði að félagið
væri nú komið yfir þá erfið-
leika. ,
Norðurflug heldur uppi áætl-
unarflugi til Vopnafjarðar og
Grímseyj ar.