Alþýðublaðið - 22.06.1969, Page 4
k
Viðdvöl á Akureyrarflugvelli.
aldrei séð flugvél lyfta sér til flugs áour
og það hefur einkennileg áhrif á jarð-
bundnar verur. Ekki aðeins mennina. Hest-
arnir á næsta túni við flugvöllinn gláptu
á þetta furðuverk og voru steinhissa. Og
einn hundur ætlaði að tryllast." — Óetað
verður ekki komizt nær stemmningu stund-
arinnar en með þessari skemmtilegu sam-
tímafrásögn IVIorgunblaðsins daginn eftir.
Og áfram !heldur Moggi: „Kveldstundin
3. september 1919 mun lengi verða mörg-
um minnistæð. Fólkið var í einhverri al-
veg nýrri „stemning," er það horfði upp
í himinblámann og sá nýjasta „galdraverk"
nútímans svífa loftsins vegu, laugað geisl-
um sólarinnar, sem ekki náðu lengur til
þeirra, sem niðri voru." — Já, jafnvel
Morgunblaðsmennirnir gleymdu sér um
stund í rómantískri hrifningu og fengu
snortið tagl skáldfáksins Pegasusar!
FYRSTA FLUGSLYSIÐ
Tæpu ári síðar — eða nánar tiltekið '
júnímánuði 1920 — varð svo fyrsta flug-
slysið á Islandi á svonefndu Briemstúni,
sem kennt var við Eggert bónda Briem í
Viðey og áður er á minnzt. Bandarískur flug
maður af íslenzkum ættum hafði verið
fenginn til að stjórna einu flugvélinni,
sem til var í landinu, og var raunar leigu-
flugvél, 'og þennan fyrrnefnda sunnudag
var ætlunin að sýna reykvískum áhorferid-
um listflug í fyrsta sinn. Veður var gott,
„norðvestan andvari, en skýjað loft," eins
og segir í frásögn um atburðinn, og múgur
manns, yrrgri sem eldri, þyrptist suður í
Vatnsmýri til að horfa á undrið mikla: flug-
vél, er hefði sig á loft og léki síðan kúnst-
ir í loftinu. Þetta var mikill dagur, spenn-
andi tilbreyting í fásinni smáborgarinnar
við Faxaflóa! Það var bæði ánægja og á-
hugi í andrúmsloftinu — en allt átti þetta
eftir að snúast upp í sára sorg.
HRAPALLEG MISTÖK
Meðal áhorfendanna voru lítil systkin,
tíu ára gömul telpa og fjögurra ára snáði
börn hjónanna Gísla trésmiðs Gíslasonar
og Kristbjargar Helgadóttur, Reykholti við
Laufásveg. Er flugmaðurinn var að hefja
flugvél sína til flugs öðru ’sinni, vildi svo
hrapallega til, að hann varð að breyta
hann sér góðn tíma til þess að mða á síð-
Famhald á bls. 14.
Komið við í Keflavík.
4 Alþýðublaðið — Helgarblað
í