Alþýðublaðið - 22.06.1969, Síða 9
Hvaða tvær myndir
eru eins
ÞiS sjáið veiðimanninn og Ijónið, sem
hann er nýbúinn að skjóta. Athugið nú
myndirnar vandlega, því að það eru að-
eins tvær þeirra nákvæmlega eins. Getið
þið fundið þær?
Hérna sjáið þið prest, skósmið, listmál-
ara og hermann ,en dótið þeirra hefur
eitthvað ruglazt á myndinni. Þið verðið
sjálf að reyna að finna, hver á hvaö.
1. Prófessor Greifingi ætlar að fara að mála mynd og biður Benna að sitja fyrir
hjá sér. Það finnst Benna voða spennandi.
2. En það er erfitt að sitja fyrir, þegar maður má alls ekki sitja, heldur verður að
standa í óþægilegri stellingu og halda á þungri stöng.
3. Benni leggur sig allan fram ,en á endanum er hann orðinn svo þeyttur, að hann
spyr prófessorinn, hvort hann megi hvíla sig dálitla stund.
4. Ekkert svar. Hvílíkt og annað eins! Prófessor Greifingi situr þar bara steinsofandi
og er ekki einu sinni byrjaður á myndinni!
Jú, þið sjáið það, þegar þið gætið betur að. Til vinstri er zebrahestur, en til hægri
gíraffi. En það vantar eitthvað á þá — rendurnar á zebrahestinn og flekkina á gír-
affann. Svo að þið verðið að ná í litakass ann ykkar og teikna þá sjálf á.
WþýðublaÖið — Hekgartilað 9