Alþýðublaðið - 17.02.1970, Side 16
Samlök ungs fólks gegn eilur iyfjanolkun:
SLEPPUM EKKI
NEMA SPYRNT
SÉ VIÐ FÓTUM
□ „Við ætlum ekki að 'láta einhverja glæpahringi
„dópa“ okkulr upp eins og einhverja kjúklinga. Eng-
in fjölskylda er lengur óhult fyrir eiturlyfjahætt-
unni og hún eykst dag frá degi. Þegar er hash- og
marihuananeyzla orðin miklu meiri en nokkurn
g'runar hér á landi. Eiturlyfjadreifingin í heimin-
um er í höndum glæpahringa. Og haldið þið, að við
sleppum? Nei, ekki nema okkur taléizt að spyrna við
fótum. Það er ekkert fínt að neyta eiturlyfja og við
erum sammála um, að það sé leiðinlegt að skemmta
og umgangast þá sem eru „uppdópaðir". Það er mis-
skilningur, að hash sé ekki hættulegt og þó að það
væri ekki hættulegt hreint, tír þess að gæta, að yfir
90% af öllu hashi, sem í umferð tír, er blandað cpí-
um. Þess vegna höfum við stofnað óformleg samtök
ungs fólks til að gera fólki ljóst, hvað eiturlyf eru
hættuleg, hverju nafni, sem þau nefnast. Við ætlum
ekíki tað heilaþvo fólk, heldur reyna að breyta al-
menningsálitinu, þannig að það verði gegn eitur-
lyfjanotkun.“
Þessi orð hefur Alþýðublaðið
eftir nokkrum stjörnum unga
fólksins, sem heimsóttu okkur
á blaðið í gær, en þau eru:
Björgvin Halldórsson, söngvari í
hljómsv. Ævintýri, Jónas Rúnar
Jónsson, söngvari í hljómsv,
Náttúra, og Henný Hermanns-
dóttir, danskennari.
Á sunnudag efndi hópur ungs
fólks, þ. á m. þekktir aðilar úr
pop-heiminum til fundar með
blaðamönnum, þar sem skýrt
var frá því, að þeir, sem þar
voru mættir og ýmsir fleiri,
hefðu bundizt óformlegum sam-
tökum um baráttu gegn sívax-
andi eiturlyfjaneyzlu ungs fólks
hér á landi.
90% ÓPÍUMBLANDAÐ
Á fundinum með blaðamönnum
sagði unga fólkið m. a., að hash-
og marihuananeyzla væri meiri
en nokkurn grunaði hér á landi,
að neyzlan breiðist ört út, en
sé þó enn bundin við vissa hópa.
Hélt unga fólkið því fram á
fundinum, að yfir 90% af öllu
hashi, sem á markaði væri hér
á landi, sé blandað ópíum, en
sú staðreynd ein væri skelfileg
og hlyti að hafa í för með sér
ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
FÁVÍST UNGT FÓLK
Unga fólkið segir, að þeir, sem
standi fyrir dreifingu eiturlyfja
hér á landi, séu að öllu jöfnu
fávíst ungt fólk, sem ekki vissi,
hvað það væri að gera, enda
væri það aðferð glæpahringa
þeirra, sem stjórnuðu eiturlyfja
sölu, að fá ávallt slíkt fólk sem
dreifingaraðila. Aðferðin væri
alla jafna sú, að viðkomandi
byðist til að útvega „eitthvað
spennandi" og þá á milli vina.
Ennfremur kpm fram á blaða-
mannafundinum, að mestur
hluti þeirra eiturlyfja, sem bær-
ust hingað til lands, kæmu frá
Bandaríkjunum og Danmörku
með pósti og í farangri ferða-
manna bæði með flugvélum og
skipum.
í GEGNUM
SKEMMTISTAÐINA
Þau Björgvin Halldórsson, Jón-
as Rúnar Jónsson og Henný
Hermannsdóttir svöruðu nokkr-
um spurningum blaðamanns Al-
þýðublaðsins um nýhafna bar-
áttu þeirra gegn þessu óhugn-
anlega vandamáli, sem margir
hafa viljað telja óþekkt hér á
jandi til þessa, en í nágranna-
löndunum er eiturlyfjavanda-
málið eitthvert stærsta félags-
legt vandamál samtíðarinnar.
—• Hvernig getið þið verið
viss um, að eiturlyfjaneyzla fari
í vöxt meðal ungs fólks hér á
landi?
— Við umgöngumst ungt fólk
svo að segja daglega. Við horf-
um upp á það, að eiturlyfja-
neyzla eykst viku frá viku á
skemmtistöðunum. Maður frétt-
ir um fleiri og fleiri, sem grobba
af því, að þeir séu byrjaðir og
hafi sambönd. Það er einmitt
hættulegt, að þetta skuli breið-
ast út í gegnum skemmtistað-
ina, þar sem fjöldinn er. „Vin-
ur“ kemur til þín og býður þér
„smoke“ og þér líkar vel. Síðan
kemstu í samband og færð þér
köggul og reykir hann á öðrum
skemmtistað. Þannig breiðist
þetta út.
ÞAÐ ER SKAMMAR
LEGT . . .
— Er hash hættulegt?
— Það er alltaf verið að
hamra á því, að hash sé ekki
hættulegt. Þetta er misskilning-
ur, því að hashið hefur áhrif
á heilann og hugsunin breytist.
Hash eykur tilhneigingu þeirra,
sem hafa komplexa, til að fram-
kvæma bæði gott og illt. Fólk
læknar sig ekki sjálft.
Annars er það voðalega við
þetta allt saman, að 70% allra
eiturlyfjasjúklinga í Bandaríkj-
unum byrja á marihuana, sem
menn segja, að sé ekki vana-
bundið, og ekki er hægt að
blanda með ópíum. Þeir leiðast
semsagt út í annað sterkara. Svo
að maður hlýtur að sjá það
glöggt, hvað hash, sem blandað
er ópíum, er hættulegt.
Við erum sannfærð um, að
yfir 90% af því hashi, sem not-
að er hér á landi, er blandað
ópíum, enda blandar Mafían,
sem stjórnar meirihluta allra eit
urlyfjasölu í heiminum, allt sitt
hash til að fá ódýrari fram-
leiðslu og til að fá fasta „kúna“.
Satt að segja ætlum við ekki að
láta einhverja glæpahringi
„dópa“ okkur upp eins og ein-
hverja kjúklinga. Það er skamm
arlegt að verða eiturlyfjum að
bráð.
SJÁ HÆTTUNA í
RÉTTU LJÓSI
— Hvernig komast eiturlyf hing
að til lands?
— Fyrst og fremst með pósti,
í tímaritum, bókum, holum
styttum o. s. frv. Ennfremur
smygla margir þessu inn í sæl-
gæti. Það fer ekkert fyrir einu
kg. af hashi. Það fer álíka fyrir
því og einni stórri coca-cola-
flösku og dugar í 3—4 mánuði
fyrir viðkomandi.
Jónas, Björgviii og Henný á ritstjórn Alþýðublaðs-
ins.
— Hvað viljið þið gera til að
koma í veg fyrir eiiurlyfja-
neyzlu?
—• Víð viljum breyta alm.enn
ingsálitinu, þannig að fólk snú-
ist gegn þessari hættu. Hér á
landi hefur engin fræðsla farið
fram um skaðsemi eiturlyfja,
Margt fullorðið fólk veit ekkert
um hash. Sumir halda, að það sé
hættulaust og jafnvel betra en
helv ... brennivínið, en aðrir
halda, að það sé eitthvað svip-
að og heróín eða kókaín. Við
ætlum ekki að heilaþvo fólk,
þannig að það snúisí gegn eit-
urlyfjahættunni þess vegna,
heldur viljum við, að fólk sjái
hættuna í réttu ljósi og snúist
þess vegna gegn henni.
„WAY OUT“
Það yfirgengilega er, að vald-
hafarnir vilja ekki kannast vjð
eiturlyfjavandamálið og lýsa því
jafnvel yfir við erlenda aðila,
að hér á landi sé ekkert eitur-
lyfjavandam.ál fýrir hendi.
— Er gaman að skemmta
fólki undir áhrifum eiturlyfja á
skemmtistöðunum?
— Nei, engan veginn. Þetta
fólk er „way out“. Það hvorki
hevrir né sér neitt í réttu ljósi.
Hljómlistarmaður undir áhrif-
um telur sig vera í ofsa stuði og
heldur, að hann lifi sig inn í
músíkina, en sá, sem hlustar
fær ekkert út úr músíkinni.
— Hvernig bregðist þið við,
ef ykkur er boðið upp á hash?
— Við afþökkum kurteislega.
— Af hverju?
— Við gerum okkur. grein fyr
ir þessari hættu og tökum þess
vegna þátt í herferð. gegn henni.
í öðru lagi viljum við ekki
verða eituríyfjunum að bráð.
HEH
□ Frá Brisbane í Ástralíu
berast þær fréttiir að tveir prest-
ar araglíkönsku kirkjunnar þrr
í landi, sem voru sviptúr kjóli
og kalli af erkibiekupnum í
BrisbEine, vegna þess að þeiir
neituðu að sksira hár sitt, hefa
nú fengið nokkra upprei-n æru
og nýjar stöður, sem prestair
■annars staðar.
i
Ekki er þess getið að bisikup-
inn hafi haldið fast við lað þeir
létu klippa sig.