Alþýðublaðið - 04.03.1970, Qupperneq 3
Miðvi!kiuda)gur 4. marz 1970 3
Ágæt loðnuveiði
i gær - Arni
Friðriksson
út í dag
[~j Ágætur loðnuafli var í gær
út af Ingóifshöfða og var vitað
um í morgun 16 báta á leið til
Vestmannaeyja með 3410 tonn.
í þeim hópi er ekki nema einn
Austf jarð'abátur, þannig að lík-
legt er að margir bátar hafi far
ið austur ti* löxidunar og er þá
ofangreind aflatala hvergi
nærri tæmandi.
Bátarnir, som voru á leið t:l
V.astmannaeyja voru þessir: —
'Þorsteinn með 150 tonn, Jón
Garðaír 250 tonn. Örn 300. Bára
SU 170. Helga II. 235, Höfrung-
ur II. 225, Ha'frún 180, Náttfari
150, Gígja 150, Akurev 270,
Bjarmi I. 200, Ólafur Magnús-
íon 200, Loftur Baldvinsson 300,
Sú'an 200, Óskar Magnússon
250 og Ólafur Sigurðsson 180
tonn.
Hsi'darioðnuaflinn í vetur
mun rni vera farinn að nálg-
a:t 30.000 tonn.
Árni Friðriksson fer út k’.
Í4 00 í da.g og verð'ur við loðnu
l?it og miun því mega vænta
nákvæmari frétta af aflanum í
nædu blöð 'm. Leiðangurssi.ióri
nú verður Jakob Jakobsson.
Hýr deildarstjóri
□ Stefán Örn Stefánsson
verkifræðiin.gur hefur tekið við
deild.arstjórastarfi hjá Flugfé-
laigi fslands sem yfirm.aður
Tæknideildair. Br Stefán fædd-
ur á Husavík 15. febrúar 1938.
Stefán er stúde'nt frá MA, var
í .þrjú ár í verkfræðidei'ld HÍ,
en stundaði framhaldsnám í
vélaverMræði í Kaupm.höfn
starfaði erlendfe um hríð, en tók
1966 vi'ð Starfi framkvæmda-
stjóra SR á Seyðisfirði. Tækni-
deiildin saman stendur af verk-
stæði, Skoðuniardeild og Skipu-
lagsdeild og í Tæknideild starfia
85 manns.
ÍBÖAR SIGTÖNS VIUA
EKKISTRÆTISVAGNA
□ Algengast mun vera að fólk
kvarti yfir því að strætisvagnar
aki of langt frá húsum þess, en
öllu óalgengara er að þessu sé
öfugt varið. Þó gerðist það, að
íbúar Sigíúns, austan Gullteigs,
sendu borgarráði bréf í síðustu
viku þar sem því var eindregið
m.ótmælt, að samkvæmt nýja
leiðakerfinu aki strætisvarnar í
báðar áttir um þennan hluta Sig
túns. Rökin eru þau. að fyrir
er mikiil átroðningur stórra
langferðabíla, sem flytja „stop-
over-farþega“ Loftleiða að lista
verkagarði Ásmundar Sveinsson
ar, og auk þeirra komi þangað
mikill fjöldi smærri bíla, bæði
leigubíla og einkabíla, með fólk
r Sömu erindagjörðum. Þá er
bent á þann átroðning sem íþú
ar götunnar verða fyrir umferð
vegna íþróttahátíða og -leikja,
en oft er bifreiðum lagt beggja
vegna Sigtúns, langt inneftir
götunni, er leikir eru háðir í
Laugardalnum. Að .lokum er
bent á, að íbúar Sigtúns noti
alls ekki strætisvagna og því sé
alls engin þörf að þeir aki um
þennan götuhelming.
Alþýðu.blaðið hafði samband
við Eirík Asgeirsson, forstjóra
SVR í morgun, og sagðist hann
ekki geta annað séð en að tvö
fyrrnefndu atriðin bentu til
þess, að mjög mikil þörf sé fyr-
ir. áð stræi'isvagnar aki einmitt
niður Sigtún og inn á Reykja-
veg. Sagði hann, að þetta sýni
sérstaklega sá mikli fjöldi einka
bíla sem þarna fer um við viss
tækifaéfi: —
REISA KORNTURNA VIÐ SUNDAHÖFN
□ Samþykki hefur nú feng-
izt hjá borgaryfirvöldum fyrir
byggingu kornturna við Sunda-
höfn. Teikningar og útboðslýs-
ingar eru tilbúnar, og er ætlun-
in að hefja framkvæmdir á
næstu vikum. Þrír aðilar, Sam-
band ísltenzkra samvinnufélaga,
Mjólkurfélag Revkjavíkur og
Fóðurblandan h.f. standa saman
að byggingu korntumanna o'g
hafa stofnað með sér fyrirtæki
í því skyni, Komhlöðuna hf.
Þessir aðilar hafa haft á
hendi megnið af fóðurkomsiinn-
flutningi lamdsins og kjamfóð-
urframleiðslu á undanförnum
áratugum. Tilgangurihn með
stofnun Kornhlöðunn'ar hf. er
að reka komgeymslurnar og
'annast losun, lestun o-g geymslu
á korni, ásamt innflutnihgi og
verzlun með komvörur til kjarn
fúðurframleiðenda.
Fyrsti áfangi komturnann|a
er fyrirhugaður fyrir 5340
tonn. Með gameiginleguin inn-
flutningi korsina í svo mildu
magni er hægt að ná hagstæð-
,ara innkaupsverði og lægii
flutningsgjöldum. Eirmig er
möguleiki á að kaupa kom til
landsins á þeim tíma sem verð
er hagstæðast, þegar svo mikl-
ai' geymslur eru fyrir hendi.
W
»Vor
undir vtengíum “
Vorltekkun
Til móts við vorið
Vorið er að koma suður í álfu og Loftleiðir
bregða ekki vana sínum en bjóða nú:
frá 15. marz til 15. maí
hin lækkuðu vorfargjöld til fjölmargra
staða í Evrópu.
Fljúgið með Loftleiðum til móts við vorið
og njótið hinnar rómuðu þjónustu um
borð í Loftleiðaflugvélunum.
Skrifstofur Loftleiða, ferðaskrifstofurnar og
umboðsmenri um land allt veita upplýsingar
og selja farseðla.
Fjöldi þeirra íslendinga, sem nota sér hin
lækkuðu vorfargjöld, eykst með ári hverju.
Loftleiðir fljúga til:
Oslóar - Kaupmannahafnar - Gautaborgar -
Glasgow - London og Luxemborgar,
en selja jafnframt framhaldsferðir með flug-
félögum á öllum flugleiðum heims.
Og enn sem fyrr geta farþegar notið hinna
hagkvæmu greiðslukjara Loftleiða:
FLUGFAR STRAX — FAR GREITT SÍÐAR