Alþýðublaðið - 16.05.1970, Side 9
Laugardagur 16. maí 1970 9
voru enn ógerðir við lífeyrissjóð
ina en segir svo í næstu setningu
á eftir, að þeir hafi viljað fresta
því ef samningar næðust um
það að lífeyrissjóðirnir létu eitt
hvert fé af höndum. I raun og
veru staðfestir iþví forsætisróð-
herra frásögn Alþðublaðsins í
öllum meginatriðum.
Með frumvarpi þessu er gert
ráð fyrir gagngerri endurskipu-
iagningu á aðstoð 'hins opinbera
við húsbyggjendur. Ýmsir þætt
ir þess eru mjög mikijyægir,
ekki sízt áikvæðin um hið nýja
verkamannabústaðakerfi. Slíka
lagasetningu, sem samræmir að
stoð hins opinbera við húshv^pi
endur og felur í sér eflingu
verkamannabústaðakerfisins,
hefur lengi verið þörf fyrir.
Því skipti það miklu máli, að
slíik lög næðu fram að ganga á
alþingi í vetur.
Það er staðreynd, að sjálfstæð
ismenn vildu fresta afgrei^slu
frumvarpsins alis fram á haust
gegn því, að húsnæðislánakerf-
ið fengið eitíhvert fjármagn frá
lífeyrissjóðunum. Þeir vildu því
slá á frest allri raunverulegri
afgreiðslu máisins.
Við Alþýðuflokksmenn neituð
um harðlega að fallast á þessar
tillögur sjálfstæðismanna. Að
Qkkar mati kom ekki tiil mála
að -fresta afgreiðslu frumvarps-
ins. Með því móti hefðu t. d.
hin nýju ákvæði um verka-
mannabústaðina. ekki komizt til
framkvæmda fyrr en seint og
um.síðir og slíkt gátum við ekki
samþykkt.
Þessi afstaða okkar varð svo
til þess að samningar um málið
voru þrautreyndir. Þeir náðust
á endanum og frumvarpið varð
að lögum. Ég tel, að bæði við
Alþýðuflokksmenn og þá ekki
síður húsbyggjendur á íslandi,
sem hin nýju lög koma að ó-
metanlegu gagni, getum vel við
þær málalyktir unað.
Að lokum Emil Jónsson. Morg
unblaðið og Vísir hafa lagt ykk
ur Alþýðuflokksþingmenn og
ráðherra í einelti undanfarna
mánuði. Þessi blöð hafa aftur og
aftur ráðizt aftan að ykkur og
funðið sér til þess ýmis tilefni.
Hvað vilt þú segja um þessi
árásarskrif?
—• Bæði Morgunblaðið og
Vísir hafa stundað slíkar árás-
ir á okkur samstarfsmenn Sjálf
stæðisflokksins í ríkisstjórn und
anfarna mánuði. Þessi skrif eru
bæði ódrengileg og ósanngjörn
í fyllsta máta.
Morgunblaðið og Vísir hafa
reynt að notfæra sér öll mögu-
leg og ómöguleg tækifæri til
árása á okkur. Hafa þau oft
gengið feti framar málgögnum
stjórnarandstöðunnar að þessu
leyti og sjást hvergi fyrir. Það
er eins og þessum blöðum sé
það ekki ljóst, að báðir stjórn-
arflokkarnir eru ábyrgir fyrir
stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki
einvörðungu þessi eða hinn ráð
herrann. Þegar blöðin ráðast
þvi með svívirðingum á okkur
Alþýðuflokksmenn fyrir ein-
stakt atriði í þeirri stefnu, þá
eru þau ekki síður að ráðast
aftan að ráðherrum sjálfstæðis
flokksins, sem vitaskuld bera
jafnmikla ábyrgð og við á sam
eiginlegum stefnumálum ríkis-
stjórnarinnar.
Það hefur oft verið á orði
haft, hversu núverandi stjórn-
arsamstarf hafi einkennzt af
miklum heiðarleik stjórnarflokk
anna í garð hvors annars. Þess-
ir ólíku flokkar hafa borið
fulla virðingu fyrir sjón-
armiði hvors aninars og
jafnan reynt að sýna hvor öðr-
um fulla sanngirni og trúnað í
stjórnarsamstarfinu. Framferði
Morgunblaðsins og Vísis undan-
farna mánuði í garð okkar Al-
þýðuflokksmanna er hins vegar
ekki í nokkru samræmi við þau
atriði, sem samskipti stjórnar-
flokkanna hafa mótazt af til
þessa. Málgögn Sjálfstæðis-
flokksins hafa því að fyrra
bragði lagt út á braut, sem ég
tel í fyllsta máta ódrengileg og
fæ ekki séð hver er ástæðan
fyrir. Slík) skrif geta heldur
ekki stuðlað að öðru en spilla
því samstarfi stjórnarflokkanna,
sem tryggt hefur þjóðinni stöð-
ugt og traust stjórnarfar í rúm-
an áratug. —
Þá er
hægt að
byggja!
□ A síðasta borgarráðsfundi,
sem haldinn var á þriðjudag,
sýndi ráðið þá reisn að sam-
þykkja heimild til að hefja und
irbúning að byggingu I. áfanga
skóla í Fossvogi, sem yrði fyrir
yngstu aldursflokkana í hverf-
inu.
Hundruð bamaf jölskyldna
hafa flutzt inn í nýjar íbúðir í
Ftv vogshveríi á s. I. árum, en
borgarstjcrnarrreirihlutinn hef-
ur ekki fyrr en nú séð ástæðu
til að hefja byggingu barnaskóla
í hverfinu. Til þessa hafa börn-
in, sem heima eiga í hinu nýja
Fossvogshverfi, þurft að sækja
skóla langan veg, eða í Breiða
gerðisskólann, en af þessum sök
um hafa vandræði skapazt þar
í skólanum vegna þrengsla, enda
er hann staðsettur í stóru barna
hverfi.
Það hlýtur að gegna furðu,
að barnaskóli skuli ekki þegar
hafa verið reistur í Fossvogin-
um. Eðlilegast hefði verið, að
barnaskólinn hefði verið tilbú-
inn um svipað leyti og fólk tók
að flytja inn I íbúðir sínar f
hverfinu. En borgarstjórnar-
meirihluti Sjálfstæðisflokksins
og starfsmenn meirihlutans hjá
Reykjavíkurborg hafa sýnt and
varaleysi og skort nægilega
skipulagshyggju varðandi fleiri
framkvæmdir í þessu nýja
hverfi en skólabygginguna.
Fyrir alllöngu síðan lofaðl
borgarstjóri því, að reistur yrði
leikskóli fyrir smábörn í Foss-
vogshverfi, en ekki bólar á efnd
unum. Haft er á orði, að hætt
hafi verið við leikskólabygging-
una sökum þess, að Fossvogs-
hverfið hefði ekki byggzt upp
eins ört og ráð hafði verið fyr
ir gert áður. Slíkar afsakanir
duga auðvitað skammt. þegar
augljóst er, að borgarstjóri lof-
aði upp í ermina strax í upphafi.
Renault 12.
Enginn kaupir Renault
eingöngu til þess að sýnast
....þó fallegur sé
Fyrir íslenzkar Stærri hjól
aðstæður Sterkara rafkerfi
sérstaklega Hliðarpanná á undirvagni
Öryggi 60 hestafla vél
Skemmtilegir framhjóladrif
aksiurshæfileikar 4 girar alsamhæfðir
Þægindi gölfskipting
sjálfstæð tjöðrun (gormur) á
hverju hjóli,
tveggja hraða rúðuþurrkur
fótstigin rúðusprauta
ný gerð af baksýnisspegli
jafnt fyrir nótt sem dag.
Öskubakkar f afturhurðum o.fl.
Þessi atriði hér að ofan eru 12, þau hefði
verið hægt áð hafa 24, jafnvel enn fleiri.
Þess gerist ekki þorf, eftir áratuga reynslu
af Renault. Leitið frekari upplýsinga.
RENAULT
[KG
KRISTINN
GUÐNASON
KLAPPARSTÍG 23-27,
SíMI 22673
í skeiðveHinum annann Hvítasunnudag kl. 2 e.h.
Hestamannafélagið FAKUR