Alþýðublaðið - 26.06.1970, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 26.06.1970, Qupperneq 7
Föstiudagur 26. júní 1970 7 ICjl f Lj I g' ^hltí'dESI p 1 i!Í^S ijNy 1 • flí-'j á«í ,,u L.:,j „ POFLEIKURINN OLI: * i ♦ V i I i i orð er fjögurra stafa orö á& - og kærleikurinn hugsanleg lau ;n á vandanum , Jlfi jðT'. m'-iiö#;. □ Óli — fyrsti íslenzki popleikurinn, var frum- sýndúr í Tjarnarbæ í fyrrakvökl, sameiginlegt framlag Óðmanna, Litla leikfélagsins og höfunda biblíunnar, en í leikskrá er að finna ítarlegri skil- greiningu: — „Höfundar leiksins eru nafnlausir aðdáendur | Velvakanda, synir og dætur Jóns og Siggu úti í bæ.‘‘ □ HÁRÍÐ □ Óla svipar að’ allri gerð mjög til söngleiksins „Hárið“, og áhrif þaðan er að finna í sviðsmynfl, l.jósum, söngvum, talí og tón. Leikendur Óla eru 14 talsihs í hlutverkum 14 bama, 14 foreldra, 14 ættingja, 14 þátttakenda og 14 áhorf- enda. 14 þingmanna, útlend- inga, kellinga, auglýsinga, at- vika og stunda. □ UMHVERFIÐ Leikurinn virðist vera saga, þó án hefðbundins söguþráðs, og okkur er gefinn kostur á að fylgjast með Óla á ferð hans um umhverfið, viðskiptum hans við fjölskylduna og samfélag- ið, viðbrögðum hans við hinu borgaralega líferni og viðbrögð um hins borgaralega samfélags gagnvart Óla. U KERFIÐ Myndimar, sem dregnar eru upp, eru margar hverjar hrein snilld að gerð, háðið beitt og hittir vel flesta þætti þjóðlífs- ins. En í flestum tilvikum er markið „kerfið“. Og kerfið birt ist í mynd uppalenda, skoðana- mótandi fjölmiðla, einskónar alsherjarpabba, sem tekur við Óla nýfæddum og reynir að móta hann, með illu eða góðu, í mynd sína. Kerfið er líka sá hugsunarliáttur sem hinir mót- uðu hafa tileinkað sér og beita síðan sem lausn alls. □ KÆRLEIKUR Óðmönhum tekst frábiærlega vel að binda saman hinar ótölu légú, súndurlausu myndir með poptónlist, én flést lögin hafa óðniennirnir jóhann G. ’Jó- hannsson’og‘Finnur Tórfi Stef- ánsson samið. Textar við lögin eru sameiginleg smíði þeirra og leikhópsins. Leikurinn á sinn upphafssöng, eins og „Iíár- ið“, og af öðrum lögum leiks- ins ná sterkustum tökum á áhorfendum tvö lög, sem sung- in eru af Kristínu Ólafsdóttur: „Morð“ og „Kærleikur“. Þessi tvö iíög skapa skemmtilegar andstæður, annars vegar há- vær og hrikaleg Iýsing á mann- skepnunni og lieiminum, sem hún hefur búið sér, hins vegar blíð og þýð ósk um kærleika manna á meðal, textinn sam- inn af höfundum biblíunnar. Þama kemur skýrt í ljós, aö það er meðferðin, sem nær ,til fólksins. Presturinn, sem er innilokaður í plast.poka, hefur verið að segja þessi sömu orð um aldir, en það er plast á milli hans og fólksins. □ DEMANTAR Það er erfitt að gera upp á milli leikara, hlutverkaskipting er einnig svo ör, að það leika allir sín aðalhlutverk. Yfirnarr- ar, eða leikstjórar, eru Pétur Einarsson og Stefán Baldurs- son, og er ljóst að þeirra hlut- ur er ekki lítill, Svo vél tekst að sameina mörg óg sundur-' laus atriði, án þess að til komi deyður eða svipleysa — áð sjá acfa * .Rttun uiuíu.>ls!tt£!xte& * má að vel hefur verið æft þá sex mánuði, sem Óli hefur ver- ið í mótun, og flest atriði eru eins og vel slípaðir demantar: þar er allt sem þarf og ekkert umfram. □ LJOSALEIKUR 1 Sviðsmynd, eða leikgrind, er gerð af Jóni Þórissyni, og enn sjáum við sterk áhrif „Hárs- ins.“ ðleistari ljóss og skugga er Magnús Axelsson, og er það verk svo vel unnið (aftur áhrif frá ,,Hárinu“) að litir og ljós gæða leikinn nýrri vídd, víkka út sviöið og nálgast möguleika kvikmyndarinnar. í smáatriðum er leikurinn mismunandi góður og mörg at- riði frábær. í heild er liann mjög góður á þann hátt, sem sagt er um myndir Jacquis Tatis, — gildi lians eykst með upprifjuninni. — BS. Aðalfundur I Blindravinafélags íslands verður haldinn miðvikudaginn 1. júlí 1970 að Bjaikargötu 8 kl. 9 e.ih. r w , I Venju.ag’ aðalfundarstörf. ■■4 Stjórniii. Áskriflarsíminn er 14900

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.