Alþýðublaðið - 09.10.1970, Síða 1
Sjómenn
þinga
□ í dag verður sett hér í
ileykjavík 7. þing Sjómannasam-
hands íslands. í tiiefni þess átti
Aiþýðublaðið viðtal við Jón Sig-
urðsson, formann sambandsins,
cg er það í opnu blaðsins í dag.
□ ÞAÐ þarf ekki að fara til
Kaupmannahafnar til að kom-
ast yfir klámrit af svæsnustu
tegund. Litprentuð tímarit með
nærmyndum af ótrúlegustu at-
höfnum eru fáanleg hér í sjálfri
Reykjavík, — og kosta litlar
350 krónur.
Blaðamaður Alþýðublaðsins
gerði sér ferð í eina af verzl-
unum borgarinnar í gær, til að
ganga úr skugga um sannleiks-
gildi orði-óms þess efnis að
klámrit þessi stæðu til boða
hverjum sem hafa vildi.
í þessari verzlun liggja
frammi margvíslegar bækur og
rit, í áberaudi meirihluta kyn-
ferðislegs eðlis. Einkum virtist
þessi varningur vera af
skandinavískum toga spunn-
inn, svo og þýzkprentuð mynda
blöð.
I sýningarglugga lágu saman-
heftaðir árgangar af sænsku
riti, TOP-HAT. Hálfur árgang-
ur ritsins, eða fjögur blöð, sem
samanlagt kosta kr. 11,00
danskar, var fáanlegur fyrir
225 krónur ísl. Tímarit þetta
birtir jöfnum höndum klám-
sögur, skrýtlur og myndir af
nöktu kvenfólki í mismunantli
stellingnm.
Er blm. hafði keypt eitt slikt
hefti bað hann um að fá a®
sjá djarfari blöð. Voru honum
þá afhent eintök rits, sem nefn-
ist COLOR CAVALCADE, sem
hvert um sig er 32 síður, ein-
vörðungu litmyndir. Er efni
þessara mynda slíkt, að óger-
legt er með öllu að birta sýn-
ishorn þeirra. Verð hvers heft-
is er 350 krónur, og fjalla þau
um ónáttúrulegustu tilbrigði
kynlífs, svo sem sadisma, kvala
losta, samfarir við dýr og kyn-
yillu.
Frh. á 3. síðu.
„Varla pása fyrir smók!"
□ í gær var bezti síldveiðidagurinn og var hssti báturinn rneS 1200
tunnur. VíSa var saltaS í verstöSvum sunnanlands. Fáir bátar voru á miS-
unum í nótt, enda komin bræla. Okkur er kunnugt um tvo báta, sem
væntanlegir voru til Grindavíkur í dag, en þaS eru Hrafn III. meS 50 tunn-
ur og Gísli Árni meS 150 tunnur.
Þessi ágæta mynd er að vísu ekki aiveg ný, en síldarstúlkurnar breytast
heidur ekki og andinn á shdarplönunum verSur alltaf sá sami. Þar er
unniS meSan staSiS er, og varla tekin „pása fyrir smók“. (Ljósm. Hdan).
lÍHvað er KLÁM?!
MUMMmiWmWMVMtMW
n sjónvarpsþáttur
Gylfa Baldurssonar um klám
hefur vakið talsverða athygli
og umræður — en í þeim þætti
kom fram, að fyrir sakadómi
Kópavogs er nú rekið mál, sem
höfðað er gegn útgefanda
skemmtirits fyrir birting'u rit-
aðs kláms.
Málið, sem um er að ræða,
er vegna bókarinnar Kynblend
I Ingsstúlkan, cn útgefandi er
skemmtiritaútgáfan Forum. —
Þegar bók þessi kom út í sum-
ar var útgáfa hennar kærð til
sakadóms Kópavogs. Málið hef-
ur enn ekki verið dómtekið, en
er á gagnasöfnunarstigi. Búast
má við að dómi sakadóms verði
áfryjað tU Hæstaréttar, þar
sem um eins konar prófmál er
að ræða.
Til þessa hafa hliðstæð mál
endað í flestum tilfellum með
dómssátt, viðkomandi greitt
sektir og málum verið lokið
þannig. En tii að unnt sé að
fá einhverja viðmiðnn í mál-
um, sem kunna að geta komiff
upp síðar meir, er æskilegt að
lokið sé prófmáli, þannig að
fyrir liggi úrskurffur um á-
kveðnar markalínur, svo sem
hvað teljist klám og hvað ekki,
og hver atriði kláms teljist var-
hugaverð eða jafnvel hættuleg.
jónatan Þórmundsson, pró-
fessor, elnn þtírra, er fram
komu í fyrrgreindum sjónvarps
þætti, skýrffi blaðinu frá því,
að einkum væri talin þörf á
að stemma stigu fyrir dreifingu
kláms, séim teljist hættulegt,
svo sem ritum er leggja áherzlu
á, í máli og myndum, hinar
afbrigðilegu hliðar kynlífsins,
svo og dreifingu slíkra rita til
óharðnaðra unglinga. Einnig
hljóti að teljast mnnnr á því
hvort menn háfi fyrir því að
útvega sér klámfengið efnl, effa
hvort því sé beinlínis otað að
fólki, með því að stilla þvl ót í
búðarglugga, hengja Upp
plaköt eða senda mönnnm ó-
umbeðið blámrit.
Taldi hann mlkið um sKbar
dreífingaraðferðir í nágranna-
löndum, en einnig væri "ntað
um slíki hérlendis. —