Helgarpósturinn - 13.10.1994, Síða 7

Helgarpósturinn - 13.10.1994, Síða 7
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 7 Dögg Pálsdóttir var 1985-1986 við nám á launum frá heilbrigðisráðuneytinu. Engar reglur voru til á þeim tíma um hverjir fengju að fara í launuð námsleyfi eða hve lengi. Það var alfarið metið af yfirmönnum viðkomandi ráðuneytis. Faðir Daggar er Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. „Námsleyfi er ekki réttur samkvæmt kjarasamningi“ Segir Birgir Bjöm Sigurjónsson, framkvæmdastjóri BHMR ^ Feðginin Páll Sigurðsson og Dögg Pálsdóttir eru umsvifamikil innan heilbrigðisráðuneytisins. Hann er ráðuneytisstjóri og hún skrifstofustjóri. Hér eru þau á fundi í ráðuneytinu í ráðherratíð Guðmundar Árna Stefánssonar. Frá vinstri Páll, Margrét Tómasdóttir, Guðmundur Árni og Dögg. „Þú munt fá staðfestingu á því að námsleyfi mitt og launagreiðslur sem ég fékk eru hundrað prósent í samræmi við reglur starfsmanna- skrifstofunnar,“ segir Dögg Páls- dóttir, dóttir Páls Sigurðssonar, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðu- neytinu, en eins og MORGUNPÓST- URINN hefur greint frá þáði hún laun frá heilbrigðisráðuneytinu í eitt ár á meðan hún var við nám í Bandaríkjunum. Birgir Björn Sigurjónsson, hagfræðingur og framkvæmda- stjóri BHMR, sem stéttarfélag Daggar heyrir undir, segir hins veg- ar að nefnd sem hafi átt að koma með tillögur um fyrirkomulag og reglur um námsleyfi ríkisstarfs- manna hafi aldrei verið skipuð heldur hafi yfirmenn ráðuneyta samið við starfsmenn um hvernig námsleyfum yrði háttað. Enn frem- ur segir Birgir að hann viti ekki til þess að reglur um laun í námsleyf- um hafi verið ákveðnar í samráði við stéttarfélagið. „Ég kannast alls ekki við að nein regla hafi verið búin til í samráði við félagið um launagreiðslur í námsleyfum, hvorki skrifleg né munnleg. Sá háttur hefur hins veg- ar verið hafður á að þegar viðkom- andi ráðuneyti eða stofnun hefur fallist á ósk starfsmanns um náms- leyfi, hafa viðkomandi yfirmenn samið við starfsmanninn um hvernig staðið yrði að því.“ Samkvæmt upplýsingum frá Birgi Guðjónssyni, skrifstofu- stjóra starfsmannaskrifstofu fjár- málaráðuneytisins, var á árum áður stuðst við óskrifaða reglu um launagreiðslur í námsleyfum en hann bendir á að þar hafi engar aðrar reglur verið að finna um námsleyfi. Til að mynda hafi ekkert verið um það hvenær starfsmenn ráðuneyta haft átt að fá námsleyfi eða hve lengi þau hafi átt að standa. Það hafi yfirmenn ráðuneytanna al- farið metið sjálfir. Greiðslan fyrir þýð- inguna ekki gefin upp í síðasta tölublaði MORGUN- PÓSTSINS er greint frá því að Dögg hafi verið á launum frá heilbrigðis- ráðuneytinu um eins árs skeið þeg- ar hún var við nám í Bandaríkjun- um. Eins og sagði í frétt blaðsins hóf Dögg nám þar í landi um miðj- an ágúst 1985 en tæplega mánuði síðar, þann 11. september, var stað- fest með bréfi innan ráðuneytisins að hún yrði á launum meðan á námi hennar stæði. Undir það bréf ritaði Jón Ingimarsson, þáverandi skrifstofústjóri ráðuneytisins, und- irmaður og staðgengilí Páls, föður Daggar. Á námstíma sínum var Dögg jafnframt á styrk til náms frá Alþjóða heilbrigðisstofnuninni sem starfsmaður heilbrigðisráðuneytis- ins hafði beitt sér fyrir að hún fengi. Dögg vildi í gær ekki gefa upp hvað þessi styrkur hefði verið hár. Launakjör Daggar á námstíman- um voru á þá leið að hún var á full- um deildarstjóralaunum í þrjá og hálfan mánuð 1985, frá 15. ágúst til 30. nóvember. En í átta og hálfan mánuð, frá 1. desember til 15. ágúst 1986, fékk hún 60 prósent af laun- um deildarstjóra. Dögg fullyrðir að annar starfsmaður ráðuneytisins hafi rúmlega áratug á undan henni farið í sambærilegt námsleyfi og hún hafi farið í, og segir að sama regla hafi gilt fyrir hann. Hún ítrek- ar að það hafi verið fullkomlega eðlilegt fyrirkomulag á námsleyfi hennar. „Ég fékk 60 prósent laun eins og reglur starfmannaskrifstofunnar kváðu á um en í þrjá og hálfan mánuð fékk ég 40 prósent umfram það, á meðan ég var að skrifa þessa skýrslu sem ég hafði tekið að mér að gera fyrir ráðuneytið.“ Skýrsla þessi var liður af námi Daggar í Bandaríkjunum. í frétt blaðsins á mánudag sagði að ráðu- neytið hefði keypt skýrsluna af Dögg en þar er um ónákvæmni að ræða, því hún fékk laun fyrir að þýða hana af ensku yfir á íslensku. Dögg segist ekki geta á þessari stundu látið það uppi hvað hún fékk greitt fyrir þýðinguna. „Ég er ekki búin að fletta því upp, en það verður gert. Ráðherra mun fá þær upplýsingar og hann mun ákveða hvort þeim verður dreift." Samkomulag um hvernig náms- leyfinu var háttað Þann 20. maí 1985 féli kjaradóm- ur um sérkjarasamning fjármála- ráðherra og Stéttarfélags lögfræð- inga í ríkisþjónustu, en undir þann samning féllu kjör Daggar á þessum tíma. Ákvæði um „viðhaldsmennt- un“ í samningum eru mjög lausleg: Þeir starfsmenn, sem starfs síns vegna hafa á því sérstaka þörf, skulu eftir föngum eiga kost á því að taka þátt í námskeiðum og annars konar menntun til að halda við og auka starfsþekkingu sína, enda séu satnn- ingsaðilar sammála um það hverju sinni. I samningnum er kveðið á um að nefnd verði sett á fót, skipuð einum fulltrúa hvors samningsaðila, til þess að gera tillögur um fyrirkomu- lag og reglur í þeim málum sem lúta að viðhaldsmenntun. Sú nefnd var hins vegar aldrei skipuð heldur var yfirmönnum ráðuneytanna lát- ið eftir að meta það sjálfir hvernig staðið væri að námsleyfum starfs- manna. Eða eins og Birgir Björn Sigurjónsson orðar þetta: „I þessum tiltekna kjarasamningi lögfræðinga í ríkisþjónustu eru ákvæðin á þá leið að vinnuveitand- anum er það algerlega í sjálfsvald sett hvort hann veiti námsleyfi eða ekki, og ef hann veitir leyfið, hvað það stendur lengi og hvað hann borgar háan hluta launa á meðan á því stendur. Þetta er í raun og veru galopið í þessu tilfelli og samkomu- lagsatriði milli viðkomandi starfs- manns og yfirmanns hans. Það eru hins vegar til samningar ýmissa annarra félaga innan BHMR þar sem eru skýrar reglur um iengd námsleyfis, laun, ferðakostnað og dagpeninga á meðan námsleyfi stendur. Eg vil taka það fram að námsleyfi er ekki réttur samkvæmt kjarasamningi heldur heimildar- ákvæði. Það er að segja, starfsmað- ur getur óskað eftir slíku leyfi en það er algerlega háð vilja yfirmanna viðkomandi ráðuneyta eða stoíh- ana hvort hann fái það nokkurn tímann.“ Er fótur fyrir námsleyfi, eins og um er að ræða í þessu tilfelli, í kjarasamningnum frá 1985? „Ég tel að ekki hafi verið fylgt eft- ir formreglum kjarasamníngsins um hvernig átti að gera þetta. Þar með má gera ráð fyrir að það hafi verið ráðningarsamningsatriði milli starfsmannsins og vinnuveit- andans hvernig átti að hátta náms- leyfinu.“ í þessu sambandi ítrekar Birgir að starfsmenn BHMR fýlgist fyrst og fremst með því að lágmarks ákvæði kjarasamninga séu haldin og það sé ekki þeirra mál þó eitt- hvað meira sé gert. Aðspurður hvort það sé ekki ótækt að ekki hafi verið skipað í nefnd til að íjalla unt námsleyfi, eins og kveðið er á um í kjarasamn- ingum, svarar Birgir að svo sé ekki. „Það eru einungis örfá tilvik til staðar um námsleyfi ríkisstarfs- manna að eigin ósk, og ég tel að þetta sé ékki stórt ágreiningsatriði milli stéttarfélaganna og viðsemj- enda þeirra.“ Birgir Guðjónsson, skrifstofustjóri starfsmannaskrif- stofu fjármálaráðuneytisins, tekur undir það með nafna sínum að það sé ekki algengt að starfsmenn ráðu- neytanna fari í launuð námsleyfi. „Eftir næstum því aldarfjórð- ungsdvöl mína hér í stjórnarráðinu þekki ég dæmi þess, en ég get ekki sagt að það sé almennt.“ Hætti tæplega þremur árum áðuren Dögg kom I Morgunblaðinu á þriðjudag seg- ir Dögg að það sé ekki rétt að deild- arstjórastaða í alþjóða- og lögfræði- deild hafi verið búin til fyrir sig. Orðrétt segir hún: „Þegar ég sneri heim eftir tveggja ára dvöl vestan- hafs hafði Almar Grímsson deild- arstjóri, sem fór með alþjóðamál, nýverið hætt störfum í ráðuneyt- inú. Það þótti eðlileg skipan mála að ég tæki við þeirn málaflokki, auk lögfræðilegra verkefna í ráðuneyt- inu og sá sem leysti mig af í öldrun- armálunum héldi áfram með þau verkefni." Þegar blaðamaður MORGUNPÓSTSINS hafði sambandi við Almar kom í ljós að þarna fer Dögg ekki að öllu leyti með rétt mál því Almar var hættur störfum fyrir ráðuneytið töluvert áður en Dögg sneri heim. Almar hóf störf í heilbrigðis- ráðuneytinu 1982. Ári seinna tók hann sæti í stjórn Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar. Norður- löndin skiptast á um að eiga full- trúa þar og situr fulltrúi hvers lands að jafnaði eitt kjörtímabil sem er þrjú ár. Að sögn Almars snerist verulegur hluti starfs hans í heil- brigðisráðuneytinu um þessa stjórnarsetu. „Ég sá um alþjóðaheilbrigðismál í ráðuneytinu en inn í því starfi var stjórnarseta hjá Alþjóða heilbrigð- isstofnuninni sem var verulegur hluti starfsins. Ég gegndi starfi hjá heilbrigðisráðuneytinu sem fastur starfsmaður fram til áramótanna 1984-1985. Eftir það var ég í hluta- starfi hjá ráðuneytinu þar til kjör- tímabil mitt í stjórn Álþjóða heil- brigðisstofnunarinnar rann út 1986.“ Almar segir að erfitt sé að meta hversu viðamikið þetta hlutastarf, sem hann ítrekar að hafi eingöngu verið bundið við Alþjóða heilbrigð- isstofnunina, hafi verið en hann segir það þó ekki hafa náð hálfri stöðu. Fram til ársins 1989 fór Al- mar á vegum ráðuneytisins á nokk- ur þing Alþjóða heilbrigðisstofnun- arinnar. Það var hins vegar ekki launað starf heldur fékk hann ein- göngu ferðakostnað greiddan. Dögg Pálsdóttir tók ekki við stjórnarsæti Almars hjá Alþjóða heilbrigðisstofnuninni. Stjórnar- kjörið var persónubundið og í næsta kjöri tók sæti hans fulltrúi Svíþjóðar. Þegar þetta var borið undir Dögg segir hún að það geti verið að hana hafi misminnt ártalið sem Almar hafi látið af störfum. Staðreyndin er hins vegar sú að Almar hafði ekki „nýverið“ hætt störfum þegar Dögg sneri heim um mitt sumar 1987. Hann hætti sem fastur starfsmaður í ráðuneytinu um það bil tveimur og hálfu ári áð- ur en Dögg sneri þangað aftur til starfa, eða rúmlega hálfu ári áður en hún fór í námsleyfið til Banda- ríkjanna. Þetta þýðir að í rúmlega tvö og hálft ár var enginn deildarstjóra- staða fyrir hendi í alþjóðamálum innan heilbrigðisráðuneytisins. Þegar Dögg sneri heim varð aítur á móti til deildin undir nafninu al- þjóða- og lögfræðideild. Jón Kaldal Yfirmenn ráðuneyta mega senda starfsmenn sína í eins löng námsleyfi á launum og þeim sýnist í kjarasamningi lögfræðinga í ríkisþjónustu frá 1985 eru ákvæði um viðhaldsmenntun þeirra ákaf- lega laus í reipum, eins og kemur fram í greininni hér að ofan. Ekki er kveðið á um eftir hve langan starfstíma starfsmenn megi óska heimildar fyrir námsleyfi og ekkert er sagt um hve lengi þessi leyfi skuli vera. I samningnum er sagt að skipa eigi nefnd, sem átti meðal annars að gera tillögu um fyrir- komulag og reglur um þessi atriði. Þessi nefnd var aldrei skipuð. I kjarasamningi háskólamennt- aðra starfsmanna stjórnarráðsins, en það var nýtt féíag sem fyrr- greindir lögfræðingar voru hluti af, frá því 1987, hafa þessi atriði verið iagfærð að ákveðnu leyti. Klásúlan um framhaldsnám starfsmanna hljóðar þar á þessa leið: Eftir fjögurra ára starf í þjónustu ríkisins er heimilt að veita háskóla- menntuðum starfsmönnum stjóm- arráðsins leyfi til framhaldsnáms er- lendis í grein er nýtist í starfi þeirra, alltað2 mánuði á 6 árafresti á fóst- um launutn skv. gr. 1.1.1, og skal ferða- og dvalarkostnaðtir þá greiddur eftir mati, þó þannig að að minnsta kosti þriðjungur af dvalar- tímanutu yrði greiddur með þjálf- unardagpcningum. Heimilt er að veita lengri eða skemmri námsleyft á lengra eða skcmmra árabili. Eins og í fyrrnefnda samningn- um, er kveðið á um að nefnd verði skipuð til að gera tillögur um fyrir- komulag og reglur um þessi mál. En eins og fyrr var aldrei nein nefnd skipuð. Þannig hafa þessi mál alfarið verið á könnu yfir- manna ráðuneytanna. Lokamáls- grein klásúlunnar hér að ofan heimilar auk þess yfirmönnum ráðuneytanna að senda menn í eins löng námsleyfi á fullum laun- um og þeim sjálfum sýnist. ■

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.