Helgarpósturinn - 13.10.1994, Síða 22
22
MORGUNPÓSTURINN SPORT
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994
r
Skýringar á gröfum Gröfin sýna gengi tið-
anna á getraunaseðlinum það sem afer leiktimabilinu. i upp-
hafi timabils byrja öll lið með sama gildi og nýtt gildi er siðan
reiknað út eftir hvern leik liðsins. Þvi haerra gildi sem lið hefur,
þvi betra hefur gengi þess verið að undanförnu. Þegar gildin
eru reiknuð er tekið tillit til hvort liðið sé að leika gegn sterkara
eða lakara liði. Þannig að til dæmis jafntefli milli tveggja mis-
sterkra liða þýðir að gildi lakara liðsins hækkar og sterkara
liðsins lækkar. i öllum gröfunum erheimaliðið táknað með
svartri linu og liðið sem keppirá útivelli með grárri.U
1.
uDto V Gautaborg - Landskrona Gautaborg er í harðri bar- áttu um sænska meistara- titilinn og gefur því ekkert eftir í þessum leik. Liðið er
V enda mjög gott, 2:1 sigur á Barcelona segir allt sem segja þarf.
35 /0
2.
Halmstad - Fröiunda
Halmstad er sigurstrang-
legra í þessum leik en þó er
jafntefli allt eins líkleg úrslit.
Liðunum hefur vegnað
nokkuð svipað upp á síð-
kastið.
65%----------
50%-^--------
3.
Helsingborg - Öster
Getraunaspekingar blaðs-
ins eru ekki bjartsýnir fyrir
hönd heimamanna í þess-
um leik. Öster hefur verið á
nokkurri siglingu á sama
tima og leiðin hefur legið
niður á við fyrir Helsing-
borg. Þó eru liðin líklega
jöfn að styrkleika.
4.
Hacken - AIK
Eins og sést á grafinu eru
liðin nokkuð áþekk að getu
um þessar mundir. Hacken
er gömul íslendinganýlenda
en vegur hennar hefur legið
niður á við eftir brotthvarf
þeirra.
5.
Trelleboftj
- Norrköping
Trelleborg eru hátt uppi
þessa dagana. Gengi liðs-
ins er ágætt og bjart er
framundan fjárhagslega hjá
félaginu. Liðið hefur enda
verið að gera mjög góða
hluti í Evrópukeppninni, sló
meðal annars úr milljónalið-
ið Blackburn Rovers fyrir
tveimur vikum.
6.
Örebro - Degerfors
Það er ekki spurning með
hverjum á að halda í þess-
um leik. Hlynur Stefáns-
son og Arnór Guðjohn-
sen eru í Örebro og ef það
er ekki nóg þá veit ég ekki
hvað er nóg. Þar að auki
komu gestirnir illa fram við
Einar Pál Tómasson og
það gerir valið enn auð-
veldara.
Undradrengurinn Robbie Fowler
Arftaki lan
Rush hjá
Uverpool
Fyrir nákvæmlega einu ári og
tuttugu dögum betur kom geysi-
lega efnilegur leikmaður fram á
sjónarsviðið í Chelsea. Hann lék
sinn fyrsta leik með aðalliði Li-
verpool á Stamford Bridge þann
25. september í fyrra, þá átján ára
gamall, og stóð sig með afbrigðum
vel. Síðan hefur leiðin legið upp á
við hjá þessum leikmanni. Hér er
að sjálfsögðu átt við undradreng-
inn Robbie Fowler.
Það var ljóst strax í upphafi að
hér væri mikið efni á ferð. Dreng-
urinn þótti með afbrigðum mark-
heppinn og skoraði alls átján mörk
fyrir lið sitt á tímabilinu, þar af tólf
i deildinni. Til samanburðar skor-
aði gamli markahrókurinn lan
Rush nítján mörk á tímabilinu,
þar af fjórtán í deildinni. Það sem
af er þessu tímabili hefur Fowler
skorað níu mörk í deildinni og er í
sjöunda sæti yfir markahæstu
menn, hefur skorað þremur mörk-
um færra en Andy Cole, sem er
markahæstur. Hann á ellefu lands-
leiki fyrir England að baki, fimm
með undir 21 árs liðinu og sex með
unglingaliðinu. Alls hefur hann
skorað tíu mörk í þessum leikjum,
þar af átta með unglingaliðinu.
Nú, rúmu ári eftir að Fowler
steig sín fyrstu spor með aðalliði
Liverpool, hefur hann þroskast
mikið sem leikmaður og öðlast
dýrmæta reynslu. Hann hefur þeg-
ar skorað eina þrennu á tímabilinu
og um síðustu helgi lagði hann
grunninn að sigri liðs síns gegn As-
ton Villa, 3:2, er hann skoraði tvö
mörk. Hér er án efa kominn arf-
taki Ian Rush sem verður 33 ára á
fimmtudag næstkomandi. Rush er
búinn að vera lengi í boltanum og
einhvern tímann kemur að því að
hann leggur skóna á hilluna. Það er
ljóst að forráðamenn Liverpool
ætla Fowler, sem er fjórtán árum
yngri en Rush, að taka við krún-
unni af honum. ■
Robbie Fowler Undrabarnið í herbúðum Liverpool. Menn kalla hann
arftaka lan Rush og er þá ekki leiðum að líkjast.
ÍSLANDSMÓTIÐ í TIPPI 39. leikvika ® C O £ (0 «0 u. 'O a D OJ O Hörður Magnússon Kristinn Guðbrandsson Hörður Már Magnússon 4^ Salih Heimir Porca (^) Marteinn Geirsson Sighvatur Blöndahl Hlynur Birgisson <2} Baldur Þór Bjarnason 2
1 Gautaborg - Landskrona 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
2 Halmstad - Frölunda X X 1 X 1 X X 1 1 X 4 6 0
3 Helsingborg - Öster 2 1 2 2 X 1 2 X X 2 2 3 5
4 Hacken - AIK X 2 X 2 1 X X 2 2 2 1 4 5
5 Trelleborg - Norrköping 2 2 X X X 2 1 1 2 1 3 3 4
6 Örebro - Degerfors 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
7 Arsenal - Chelsea 1 1 1 1 1 1 X 2 1 1 8 1 1
8 Blackburn - Liverpool 2 2 1 2 X X 2 X X 2 1 4 5
9 C. Palace - Newcastle 2 X 2 2 2 2 2 2 2 2 0 1 9
10 Ipswich - Sheff. Wed. X 2 2 X 1 X X X 2 X 1 6 3
11 Leeds - Tottenham 2 X 1 2 2 1 1 1 1 2 5 1 4
12 Leicester - Southampton 2 2 2 1 X 2 2 2 X 2 1 2 7
13 QPR - Manchester City X 1 1 2 1 X 1 X 1 X 5 4 1
Árangur hingað til 4 4 5 6 4 5 5 4 3 7
7.
Arsenal - Chelsea
Heimamönnum gengur fátt
í haginn þessa dagana og
þær raddir gerast æ hávær-
ari sem segja að George
Graham, framkvæmda-
stjóri liðsins, verði að
stokka upp leik liðsins og
brydda upp á meiri sóknar-
leik. Öhelsea hefur verið að
sækja í sig veðrið.
65%
8.
Blackbum
- Lw»p«Krt
Þetta er stórleikur umferð-
arinnar og annar af þremur
stórleikjum sem Blackburn
leika á þremur vikum. Sá
fyrsti var við Newcastle og
sá þriðji verður við Manc-
hester United um næstu
helgi. Liverpool er á mikilli
uppleið og í raun er engin
leið að spá í þennan leik.
9.
C. Palace
- ffewcasöe
Staða liðanna er afskaplega
ólík. Heimamenn eru í þriðja
neðsta sæti deildarinnar og
hafa tapað sex leikjum en
gestirnir eru í efsta sæti
deildarinnar án taps. Með-
almennskan er allsráðandi
hjá Palace. Kannski Guðni
Bergs reddi máiunum.
10.
Ipswich - Sheff. Wéd. Þetta er botnleikur, báðum liðum hefur vegnað illa í upphafi móts og þurfa sár- lega að rétta úr kútnum. Sheffield-menn hafa verið
sterkari í undanförnum leikjum og verða að vinna, því framkvæmdastjóranum Trevor Francis hefur verið hótað uppsögn ella.
35/0
11.
Dö /0 Leeds - Tottenham Þetta gæti orðið mjög skemmtilegur leikur. Bæði lið eru góð en geta hitt á hræðilega leiki inn á milli. Leeds voru auðmýktir í vik-
V unni og féllu út fyrir 3. deild- arliði Mansfield á sama tíma og Tottenham töpuðu fyrir Watford sem leikur i 2. deild.
35%
12.
Leicester
- Southampton
í þessum leik er afar freist-
andi að setja táknið 2 án
nokkurar umhugsunar.
Southampton er í feikna
formi með snillinginn Matt-
hew LeTissier í broddi
fylkingar og vinnur nú hvern
leikinn á fætur öðrum.
13.
QPR - Man. CHy
QPR hefur átt í nokkrum
erfiðleikum í undanförnum
leikjum og þrátt fyrir góða
frammistöðu framherjans
Les Ferdinand er staða
liðsins slæm. Öity lifir enn í
skugga United en gerir
góða hiuti inn á milli.
t-