Helgarpósturinn - 13.10.1994, Page 10

Helgarpósturinn - 13.10.1994, Page 10
10 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 Eitt best geymda leyndarmál samfélagsins „Ég veit að það gangast margar mikið þmskaheftar konur undir ófrjósemisaðgenðir á ári hverju, “ segir Lára Bjömsdóttir, félagsmálastjóri í Reykjavík, sem hefur í mörg ár unnið með fullorðna þroskahefta einstaklinga. „Þetta er ekki nein vitleysa sem þessar stúlkur hjá Átaki hafa verið að segja. Það er hins vegar erfítt að nálgast vísindi í þessu máli. “ Þótt töluvert hafi verið rætt og ritað um ófrjósemisaðgerðir á fötl- uðum síðustu daga, í kjölfar þess er tvær þroskaheftar stúlkur María Hreiðarsdóttir og ína Valsdóttir vöktu athygli á málinu, reyndist ekki auðsótt mál að nálgast upplýs- ingar um hve margir sem heyra undir það að vera andlega fatlaðir gangast undir ófrjósemisaðgerðir á ári hverju. Miðað við hve margir vildu lítið um málið segja, sem þó má geta sér til að þekki vel til, má ætla að þetta sé eitt best geymda leyndarmál sanrfélagsins. Fyrir ári var stofnað réttindafélag fatlaðra, Átak, sem hefur meðal annars það að markmiði að verja þennan rétt til barneigna. Opinberar tölur, í þeim tilfellum þar sem þarf að skipa sérstaka tíma- bundna lögráðamenn hjá sýslu- manni, eru einu áþreifanlegu stað- reyndirnar. En um þrjú til fimm slík tilfelli koma upp á ári á landinu öllu. Aðeins þarf að skipa tíma- bundna lögráðamenn í tilfellum þar sem einstaklingar eru ósjálf- ráða. Lögráðmennirnir eru venju fremur þeir sem þekkja málið, því oft úr fjölskyldunni eða fagfólk. Alls gangast tæplega sex hundruð Islendingar undir ófrjósemisað- gerðir á ári hverju. Þar sem þessar tölur hafa ekki verið flokkaðar nið- ur heyra allir, jafnt þroskaheftir sem heilbrigðir einstaklingar, undir sama hatt. Fóstureyðingar á þroskaheftum stúlkum er svo önn- ur hlið þessara mála. En í slíkum tilfellum, ef stúlkan er ekki lögráða, er það mál lögráðamanns, sent í þessu tilfelli er oftast foreldri. Þegar um fóstureyðingar á fötluðu fólki er að ræða heyrir það undir læknis- fræðilegar ástæður, ekki félagslegar, eins og þegar heilbrigt fólk á í hlut. Nánar tiltekið segir um læknis- fræðilegar ástæður; þegar sjúkdóm- ur sem er alvarlegur eða geðrænn dregur úr getu konu eða manns til að annast og ala upp barn. Sam- kvæmt upplýsingum félagsráðgjafa á Landspítalanum eru þó mun færri fóstureyðingar framkvæmdar á þroskaheftum stúlkum á ári en ófrjósemisaðgerðir. Mannréttindabrot Umræðan undanfarin dægur hefur að miklu leyti snúist um ófrjósemisaðgerðir sem hafa verið framkvæmdar á þroskaheftum konum að þeim forspurðum. „Séu slíkar aðgerðir hugsanlega gerðar án leyfis viðkomandi, eða ekki rétt staðið að málunum, á tvímælalaust að láta Landlæknisembættið vita. Þau mál verða rannsökuð með við- eigandi hætti,“ sagði Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir í samtali við MORGUNPÓSTINN. „Það geta þó verið tilfelli þar sem þarf að framkvæma þessar aðgerðir án þess að viðkomandi vilji, en í langflestum tilfellum er ekki svo. Það eru ekkert annað en brot á mannréttindum." Trúnaðarmenn fatlaðra er að finna um land allt. í Reykjavík starfar séra Guðný Hallgrímsdótt- ir, sem einnig er prestur fatlaðra, að réttindamálum fatlaðra. Hún segist aldrei í sinni tíð hafa fengið kvört- un vegna ófrjósemisaðgerða. „Ég veit heldur ekki til þess að nokkur trúnaðarmaður úti á landi hafi haft svona mál til meðferðar. En þó má geta þess að til minna kasta koma aðeins þau mál fatlaðra sem búa ut- an heimilis. Maður getur ekki vaðið inn á heimiii fatlaðra frekar en önnur heimili. Þar gilda jafnt reglur um friðhelgi einkalífsins.“ Mannleg reisn I nýlegri samþykkt Sameinuðu þjóðanna, sem María Hreiðarsdótt- ir vitnaði til í fyrirlestri sínum á Landsamtökum fatlaðra á Akureyri fyrr í þessum mánuði, en sá fyrir- lestur má segja að hafi verið kveikj- an að umfjöliun fjölmiðla, stendur nteðal annars að...“aðildarríkjun- urn sé skylt að stuðla að því að fölt- Vilhjálmur Árnasson heimspekingur Ekki skýlaus réttur allra að eioa böm „Mér finnst það ekki sjálfsagður réttur hvers einstaklings að fá að ákveða um það hvort hann eignist börn eða ekki. Oft er það nú þannig að náttúran sjálf grípur inn í þar sem fólk á við ákveðnar tegundir fötlunar að stríða með þeim hætti að þeir einstaklingar eru ófrjóir frá náttúrunnar hendi. Á hinn bóginn getur einstaklingur verið þannig andlega fatlaður að það getur bein- línis verið rangt að hafa kynmök við hann og hvað þá að leggja á þann einstakling að eignast barn. Ég er þó ekki að mæla með því að að það verði stundaðar einhverjar ófrjósemisaðgerðir gegn vilja eða samþykkis þessa fólks. Það verður að virða þeirra vilja eins og kostur er. En það err ekki skýlaus réttur allra að eiga börn, jafnvel burtséð frá hæfileikum þeirra til þess að sjá um börn.“ En er einstaklingunum ekki eitt- hvað heilagt í lífinu? „Frelsi okkar til allra hluta er allt- af takmarkað af hagsmunum ann- arra, að það ógni ekki hagsmunum annarra. Tii dæmis eru margir með ákveðna líkamlega sjúkdóma sem varast að eiga börn vegna þess að það vill ekki bera ákveðna arfgenga sjúkdóma í börnin sín. Út af fyrir sig er sá réttur að eiga barn ekki heilagur. Ég held að það sé miklu fremur helgi yfir því að hver ein- staklingur geti lifað þroskavænlegu lífi.“ Hvernig horfir það við siðfrœðinni þegar heilbrigt barn er alið upp hjá þroskaheftu foreldri? „Ég vil ekkert alhæfa. Ég er ekki að segja að þroskaheftir eigi ekki að eignast börn. Undir þann hóp heyrir svo breiður hópur. En ég tel að það þurfi að veita þroskaheftum sem eignast barn einhvern stuðn- ing, hvort sem hann er frá hinu op- inbera eða foreldrum þess þroska- hefta. Þarna geta líka verið tilvik þar sem rétt er að reyna að leiða uðum sé kleift að taka virkan þátt í fjölskyldulífi. Þau skyldu tryggja réttindi fatlaðra til mannlegrar reisnar og tryggja að fötluðum sé ekki mismunað með lögum hvað varðar kynferðissambönd hjóna- bönd og barneignir.“ Á öðrum stað stendur: „Ekki má neita fötluðum tæki- færi til að njóta kynlífs og verða foreldrar, þar eð fatlaðir kunna að eiga erfitt með að giftast og stofna fjölskyldu, að stuðla að því að við- eigandi ráðgjöf sé fyrir hendi. Fötl- uðum skyldi veittur sams konar að- gangur að fjölskylduáætlun, svo og upplýsingum varðandi kynlíf á að- gengilegu formi. Aðildaríkjunum er skyldugt að stuðla að ráðstöfun- um í því skyni að breyta neikvæðri afstöðu gangvart giftingu, kynlífi og barneignum fatlaðra sem enn er við lýði í samfélaginu, einkum hvað varðar stúlkur og konur sem búa við fötlun.“ Umræðan að breytast Mikið hefur einmitt verið rætt og ritað urn réttindamál fatlaðra í er- lendum fagritum að undanförnu með söntu fornterkjum og yfirlýs- ing Sameinuðu þjóðanna ber vitni um. Nýlega birtist einmitt grein eft- ir konu að nafni Fiona Wilhalms undir yfirskriftinni Wotnen with le- þeirri manneskju fyrir sjónir eins og mögulegt er og sjá til þess með einhverjum ráðum að hún myndi ekki eignast barn. Innan þessa hóps geta verið skýr tilvik á báða vegu, einn getur verið alveg hæfur til að ala upp barn á meðan hinn er óhæfur. Réttinum til að eiga börn fylgir ábyrgð og skylda sem við- komandi verður að vera fær um að axla, og það fyrst og fremst gagn- vart sjálfum sér áður en hann fer að axla ábyrgð á öðrum. Hins vegar tel ég mikilvægt að verja réttinn til að vera ekki gerður ófrjósamur. Það er alveg aðskilið réttinum til að eiga börn. Það má til arning difficulties are women foo, eða Konur með námsörðugleika eru líka konur, þar sem átt er við þroskaheftar konur. En þar er unn- ið grimmt í því að breyta ímynd þroskaheftra. En hvernig er þessum málum háttað á íslandi, geta þroskaheftir höndlað það að eignast börn? „Greindarvísitala segir ekki allt, fremur en hjá hinum sem ekki telj- ast þroskaheftir. Þættir eins og per- sónuleiki, aðstæður, andlegt jafn- vægi og félagsleg aðlögun skipta miklu máli þegar það er metið. Þroskaheftir er mjög breiður hópur sem við eigum kannski eftir að læra að meðhöndla betur, kannski þekkjum við þarfir þessa fólks ekki nógu vel, segir Lára Björnsdóttir. Anní Haugen er stallsystir henn- ar á félagsmálastofnun, en hún hef- ur með barnaverndarmál að gera, hvernig snúa þessi mál gagnvart barnaverndarnefnd? „Við vinnurn eftir lögum um vernd barna og ungmenna sem ná yfir öll börn, þar er ekkert sérstakt tekið fram urn fatlaða eða þroska- hefta. Mikið hefur verið rætt um þenn- an rétt. Að mínu mati ber ekki að sýna þroskaheftum ofbeldi eða gera á þeini ófrjósemisaðgerðir án þess að þau viti. En í öllu þessu tali urn Vilhjálmur Árnason „Ég held að það sé miklu fremur helgi yfir því að hver einstaklingur geti lifað þroskavænlegu lífi.“ dæmis koma í veg fyrir getnað með getnaðarvarnarlyfjum." ■ réttindi finnst mér oft gleymast réttur barnsins til öruggrar um- önnunar og öruggra uppeldiskil- yrða. Barnaverndarlögin eru mjög almenn og þar er reynt að tryggja viðunandi uppeldisaðstæður barna. I barnaverndarlögum er skýrt kveðið á um skyldu barna- verndarnefndar eða starfsmanna til að kanna aðstæður barna ef að ber- ast tilkynningar um að umönnun sé ábótavant. Ef það kemur í ljós að svo er þá ber að reyna ákveðnar stuðningsaðgerðir og veita foreldr- um leiðbeiningar, tilsögn, eftirlit og svo framvegis; allan tiltækan stuðn- ing sem reyndar sveitarfélög eru mjög mismunandi í stakk búin að veita. Ef það kemur i ljós að þessi stuðningur er ekki nægjanlegur, umönnun barnsins er ekki nógu örugg né góð, er síðasta skrefið for- sjársvipting. Það er oft langur „pró- sess“ þar til kemur að forsjársvipt- ingu. Við höfum afskipti af fólki í margs' konar vanda, líka af málum þar sem greind foreldranna er lítil. Hluti af því sem þá skiptir mjög miklu máli og við skoðun ef að við erurn inni í málinu á annað borð, er hvaða annar stuðningur er til taks. Það virðist því vera þar sem þroskaheftir eiga börn - sem eru misvel eða illa á vegi staddir - þá skiptir miklu máli hvaða annan stuðning þessi börn hafa. Eru til dæmis amma og afi þarna? Eru aðr- ir foreldrar í reynd? Þetta eru hlutir sem þarf að meta út frá hverju til- viki. Þetta gildir í öllurn málum sem við komurn að, ekki bara hjá þroskaheftum. Lög um barnavernd eru almenn á meðan lög um aðstoð við fatlaða eru sérstök lög um fatl- aða.“ Þurfið þið að hafa mikil afskipti þar sem þroskaheftir eiga í hlut? „Það kemur fýrir. Þau mál eru skoðuð á þann hátt sem ég lýsti áð- an, eins og önnur mál sem til okkar koma. En allir hafa tilkynningar- skyldu til barnaverndarnefndar, ef þeir halda að barn búi ekki við nógu góðar aðstæður. Við fáum til- kynningar jafnvel áður en barn fæðist, þar sem er ljóst að það þurfi að fylgjast með. En það gildir ekki fyrir alla þroskahefta. Það ríkir ekki sú stefna að þroskaheftir eigi ekki að eiga börn, en þetta er kannski einn áhættuþáttur sem verður að taka inn í.“ Guðrún Kristjánsdóttir

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.