Helgarpósturinn - 13.10.1994, Síða 20
20
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994
r Öqeð
feJJaustu
fréttir vi k
unna
íslenskur íjölmiðlasigur
í Wasington
„Þið takið
enga mynd af
forsetunum
saman“
sagði fulltrúi Hvíta hússins við
íslensku blaðamennina nokkr-
utn mínútum áðuren myndin
var tekin.
Þessa fyrirsögn mátti sjá í DV á
mánudaginn en undir henni mátti lesa
afrakstur ferðar fréttastjóra blaðsins,
Guðmundar Magnússonar fyrrum
þjóðminjavarðar, til Washington ásamt
öðrum blaðamönnum í boði Flugleiða.
Ekki er kvittað fyrir „fréttina" en gera
verður ráð fyrir því að Guðmundur hafi
skrifað þetta sjálfur.
Greinin hefst á langri og leiðinlegri
frásögn af stælum íslenskra blaðamanna
við frilltrúa upplýsingaþjónustu Hvíta
hússins sem vildi ekki Íeyfa þeim að
mynda forsetana. Það dregur til tíðinda
þcgar Einar Sigurðsson kemur hrað-
skreiður út úr skrifstofu aðstoðarblaða-
fulltrúa Bandaríkjaforseta og tilkynnir
að einn ljósmyndari megi fara á fund-
inn. Greinilega var enginn íslenskur
Ijósmyndari með í för því einhverra
hluta vegna verður það Guðmundur
sem fer inn. Eitthvað bráir af greinar-
höfúndi í allri þessari sjálfhverfhi því
þegar þarna er kontið sögu segir: „Var
ekki laust við að hann væri óstyrkur
með myndavélina enda var þetta fyrsta
fféttamyndin sem hann var að taka á
blaðamannaferli sínum en við hlið hans
var þrautreyndur ljósmyndari Hvíta
hússins sem hélt að þarna væri kominn
starfsbróðir hans frá Islandi."
En Adam var ekki lengi í Paradís (þó
einhver gæti flokkað þetta sem upp-
gerðarhógværð) því nú kemur í ljós að
penni DV er hinn ánægðasti með út-
komuna:
„En út úr þessu komu ljómandi
myndir og var sú fyrsta birt á baksíðu
Morgunblaðsins á sunnudag, enda var
fyrirfram um það samið að ntyndirnar
væru til notkunar fyrir alla íslensku
blaðamennina. Mun það í fyrsta skipti
sent Morgunblaðið birtir myndir eftir
fréttastjóra DV.“
Kannski er þessi frétt langt á undan
sinni samtíð. Kannski eiga fjölmiðlar
einmitt að snúast um sjálfa sig og hvern-
ig fjölmiðlafólki líður við störf sín. Lík-
lega eru lesendur ógeðfelldi faktorinn í
þessu máli öllu: Þeir virðast ekki þola þá
sem eru sáttir við störf sín eins og DV og
Kristján Jóhannsson vita mæta vel. Þá er
einnig ógeðfellt að Mogginn skuli njóta
góðs af myndum Guðmundar —
myndum sem hvaða áhugamaður í Ijós-
ntyndun getur talist fullsæmdur af —
og sýnir það ekki einmitt drenglyndi
Guðntundar að hann telur það ekki eft-
ir sér að mynd eftir sig sé ílaggað á bak-
síðu Moggans? En það sem er ógeðfelld-
ast við þetta allt saman er að þessi 15
mínútna fúndur Vigdísar og Clintons
hefúr augljóslega ekki verið um neitt og
ekki er það Guðmundi að kenna, né
heldur Flugleiðamönnum ef því er að
skipta, sem voru svo rausnarlegir að
borga undir hópinn alla leið til Wasing-
ton. ■
Jóhann Guðjónsson fæddist með
sjaldgæfan hjartagalla sem uppgötvaðist
við fjögurra mánaða aldur. Níu mánaða
var hann sendur í aðgerð til London.
Aðgerðin heppnaðist vel en í kjölfarið
fékk hann hastarlega sýkingu og vegna
meintra mistaka læknanna úti var hann
ekki sendur í öndunarvél fyrr en of seint.
Súrefni barst því ekki til heilans sem
skemmdist mikið. f dag er Jóhann fimm
ára og fjölfatlaður. Foreldrarnir eru enn
að berjast fyrir að fá mistökin viður-
kennd og fá skaðann bættan.
33
í erfiðleikunum
lærir maður að meta
hve lífið er
„í öllum þessum erfiðleikum lær-
ir maður að meta hvað lífið er dýr-
mætt og heilsan mikilvæg,'1 segir
Svava Sigurðardóttir. Hún býr nú
á Selfossi ásamt eiginmanni sínum,
Guðjóni Jóhannssyni, og fimm
börnum þeirra; Sigvarði 15 ára,
Ellen 10 ára, Helgu 7 ára, Jóhanni
5 ára og Daníel sem er 3 ára.
Næstyngsta barnið, Jóhann Guð-
jónsson, er fæddur þann 12. maí
1989. í dag er hann fjölfatlaður,
andlega og líkamlega, vegna
meintra læknamistaka í London
fýrir nærri fimm árum. Þrátt fyrir
stöðuga baráttu hafa mistökin ekki
fengist viðurkennd og engar skaða-
bætur fengist greiddar.
Hefði látist fyrír
tveggja ára aldur
„Það fóru fyrst að heyrast tor-
kennileg hljóð í honum þegar hann
var tveggja mánaða gamall og þegar
hann var fjögurra mánaða var hann
sendur til öryggis suður til Reykja-
víkur í skoðun. Hann var það stór
og ekkert sást á honum svo að
menn héldu að ekkert væri að. Yfir-
leitt eru þessi börn mjög veik en það
...Davíð má halda
opinbera veislu á
Þingvöllum fyrir
Donovan, aukaleikara í
sjónvarpsmynd Hrafns, vinar síns...
...má Friðrik Sophusson fjármálaráðherra halda hanastél
fyrir vinkonur eiginkonu Hrafns úr saumaklúbbnum.
...má Ólafur G. Einarsson hlutast til um að sonur Hrafns
verði valinn í unglingalandsliðið ífótbolta.
...má Halldór Blöndal leggja bundið slitlagá heimdragann
að húsinu hans Hrafns á Laugarnesinu.
...má Þorsteinn Pálsson úthluta Hrafni kvóta efhann langaði
að róa sér til fiskjar snemma á morgnana.
var Jóhann ekki. Á Landspítalanum
var hann settur í hjartasónar og þá
kom í ljós mjög sjaldgæfur hjarta-
galli. Okkur var sagt að ef ekkert
væri að gert rnyndi hann í hæsta lagi
ná tveggja ára aldri,“ segir Svava
Sigurðardóttir um upphaf málsins.
I ljós kom að Jóhann var haldinn
mjög sjaldgæfum hjartagalla sem
samkvæmt heimildum MORGUN-
PÓSTSINS hefur ekki áður greinst
hér á landi. Sérfræðingur sem rætt
var við sagði að um væri að ræða
þrengsli undir ósæðarloku. í þessu
tiltekna tilviki var það lokan sem er
á milli vinstri gáttar og vinstri slegils
sem hafði fest vitlaust ofan í hjartað.
Lokan hafði fest undir ósæðarlok-
una og þannig ollið þrengingu frá
hjartanu og út til likamans.
Hér á landi var í raun lítið hægt
að gera og Ijóst að Jóhann þyrfti að
fara sem fyrst í aðgerð erlendis.
Ákveðið var að aðgerðin yrði fram-
kvæmd á Harley Street Clinic
sjúkrahúsinu í London. Jóhann
varð níu mánaða gamall, daginn
sem þau fóru utan og daginn eftir,
13. febrúar 1990, var aðgerðin fram-
kvæmd. Þetta var flókin aðgerð sem
tók rúma fjóra klukkutíma og tókst
mjög vel.
Heilaskemmdir
vegna súrefnisskorts
„Aðgerðin sjálf tókst mjög vel,“
segir Svava. „Það er í eftirmeðferð-
inni sem hann fær sýkingu og það
kemur í ljós tveimur sólarhringum
eftir aðgerð. Honum er strax geftn
sýklalyf og ýmsar rannsóknir gerð-
ar. Það sem fer hins vegar úrskeiðis
er að strax klukkan tíu um morgun-
inn blánar hann upp en hann var
hins vegar ekki settur í öndunarvél
fyrr en klulckan 18 um kvöldið.
Heilinn varð fyrir miklu áfalli,
nægilegt súrefni komst ekki til heil-
ans og hann verður fyrir miklum
heilaskemmdum á þessum átta
klukkutímum. Það er mat sérfræð-
inga, og Landlæknir hefur úrskurð-
Jóhann GUÐJÓNSSON Þessi mynd er tekin
daginn áður en hannfór utan í aðgerðina,
þegar Jóhann er níu mánaða gamall. Aðgerðin
heppnaðist vel en í kjölfarið fékk hann hastar-
lega sýkingu sem leiddi til þess að súrefni barst
ekki til heilans.
að, að það hefði mátt koma í veg
fyrir heilaskaðann ef það hefði verið
gripið inn í strax. Þeirra mat er að
læknarnir hafi vanmetið ástandið."
Svava segir að hann hafi þá verið
tengdur við alls kyns vélar, öndur-
vél og nýrnavél þar sem nýrun voru
hætt að starfa. „Það var bara reynt
að halda í honum lífi. Hann var á
milli heims og helju í nokkra daga
og meðvitundarlaus í 17 daga.
Ástæðan var að upphaflega þurftu
þeir að svæfa hann til þess að líkam-
inn myndi hægja á starfseminni á
meðan hann væri að reyna að jafna
sig. Þeir voru í raun mjög hissa að
hann skildi lifa þetta af.“
Fjölfatlaður vegna
meintra mistaka
„Það var ekkert hægt að gera eftir
að mistökin komu í ljós, þeir sögðu
bara fyrirgefið þið, við gerðum mis-
tök,“ segir Guðjón Jóhannsson, fað-
ir Jóhanns. Allt í allt var Jóhann í
fjórar vikur á spítalanum í London,
meðvitundarlaus mestan tímann.
Foreldrarnir og sérfræðingar eru
sammála um að nær engin hætta
hafi verið á mistökum af þessum
toga og hér hafi því verið um algjört
undantekningartilvik að ræða.
Þegar þau fengu að fara heint fór
Jóhann beint á Landspítalann og
var ekki útskrifaður fyrr en þann 18.
maí um vorið. „Okkur var sagt að
það væru litlar sem engar vonir um
bata. Hann var lamaður og sýndi
engin viðbrögð. Þessi heilaskemmd
gerði það að verkurn að hann er
fjölfatlaður,“ segir Svava. Jóhann er
nú fimm ára og hefur farið ótrúlega
mikið fram, að sögn foreldra og sér-
fræðinga. Fyrir tæpum tveimur ár-
um fór hann að reisa sig upp og fyr-
ir þremur mánuðum fór hann að
geta skriðið um. Hann getur sagt
einföld orð eins og mamma og
pabbi og nei og já en Svava segir að
hann skiiji töluvert það sem sagt sé
við hann. Það segir hún að sé ekki
síst að þakka mjög góðri umönnun.
Fjárhagsörðugleikar
og flutningar
Svava er frá Mosfellssveit og
Guðjón er frá Fáskrúðsfirði en þau
höfðu búið saman í Vestmannaeyj-
um. Vegna spítalavistar stráksins
þurftu þau að búa um fjögurra
mánaða skeið í Grindavík. Veikind-
in hafa eðlilega komið illa við fjár-
hag fjölskyldunnar. Guðjón var á
sjónum með góðar tekjur en varð
að hætta því vegna veikindanna. Að
auki fannst þeim þjónustan sem
boðið var upp á í Vestmannaeyjum
ekki nægileg og því fluttu þau til
Selfoss fyrir rúmu ári síðan. Þar eru
þau mjög ánægð og segja þjónust-
una þar til fyrirmyndar og líklega þá
bestu sem völ er á í landinu. Aðra
hvora viku er hann í vistun á ný-
opnuðu sambýli fyrir fjölfötluð
börn á Selfossi en annars er hann
heima hjá fjölskyldu sinni. Að auki
sækir hann leikskóla og aðra þjón-
ustu á Selfossi. Svava segir að ef bat-
inn haldi áffam, stefni þau að því að
hafa hann meira heima hjá sér. Hún
segir að þetta hafi verið erfiðara
fyrst, þegar hann var yfirleitt veikur,