Helgarpósturinn - 22.12.1994, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 22.12.1994, Qupperneq 6
6 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 Einar Valur Ingimundarson, formaður for- eldrafélags Austurbæjarskóla, gagnrýnir Al- freð Eyjólfsson skólastjóra harkalega Lætur hagsmuni fjöl- skyldunnar ganga fyrir Uppsögn Áslaugar Sigurðardóttur, sem neitaði að hylma yfir vinnusvik eiginkonu Alfreðs Eyjólfssonar, skólastjóra Austurbæjar- skóla, dregin til baka. Ákveðið að hefja stjórnsýsluúttekt að kröfu kennara og foreldrafélags skólans Uppsögnin dregin tiibaka Uppsögn Áslaugar Sigurðar- dóttur, starfskonu á skóladagheim- ili Austurbæjarskóla, hefur verið dregin til baka. MORGUNPÓST- URINN fékk það staðfest í gær að Viktor Guðlaugsson hefði fyrr um daginn tilkynnt Áslaugu að hún gæti hafið störf aftur ef hún óskaði eftir því. Þar með er ljóst að sá gjörningur Alfreðs Eyjólfssonar, skólastjóra, að víkja Áslaugu fyrir- varalaust úr starfi á meðan rann- sókn stóð yfir á meintum vinnu- svikum eiginkonu hans, Guðjóníu Bjarnadóttur, stóðst ekki. Eins og MORGUNPÓSTURINN upplýsti á mánudaginn neitaði Áslaug að hylma yfir með Guðjóníu og í kjöl- far þess að hún lét Sigrúnu Magn- úsdóttur, borgarfulltrúa, vita af vinnusvikunum, vék Alfreð henni frá störfum. Viktor Guðlaugsson sagði að það hefði komið í ljós við rannsókn skólaskrifstofunnar að nokkuð misræmi hefði verið á vinnuskýrsl- um og þeirri vinnu sem innt var af hendi í skóladagheimilinu. Hann vildi aftur á móti ekki segja til um hvaða ráðstafana yrði gripið til eða hver framtíð Guðjóníu yrði við skólann. „Ég mun láta forstöðumann rekstrardcildar Kristin Kristjáns- son og sérmenntaðan kennslu- fræðing, Hannes Björnsson, sem báðir vinna hér hjá mér, sjá um stjórnunarúttektina í Austurbæjar- skóla, sagði Áslaug Brynjólfsdótt- ir, fræðslustjóri í Reykjavík í sam- tali við MORGUNPÓSTINN í gær. „Til að byrja með munu þeir ræða við fulltrúa þeirra sem báðu um að hún yrði gerð, stjórn foreldrafélags og kennara, til þess að fá það fram um hvað er að ræða. Ef eitthvað kemur upp í þeim viðræðum mun ákvörðun um framhald málsins verða tekin út frá því. Ég á einnig effir að fá skýrslu frá Skólaskrif- stofu Reykjavíkur varðandi skóla- dagheimilið og annað sem er undir þeirra stjórn.“ I gærmorgun fór fram fundur sem Áslaug hafði boðað til með Al- freði Eyjólfssyni og Guðmundi Sighvatssyni, aðstoðarskólastjóra skólans. Auk þeirra sat Kristinn Kristjánsson fundinn. Áslaug segir að farið hafi verið yfir málin á fundinum og svör stjórnenda skól- ans svarað ýmsum spurningum. Foreldrafélag Austurbæjarskóla skrifaði menntamálaráðuneytinu bréf, sem dagsett var 15. nóvember, þar sem það óskaði eftir því að stjórnunarleg úttekt færi fram í skólanum. Áslaug fékk ekki afrit af þessu bréfi fyrr en síðastliðinn mánudag, rúmlega mánuði eftir að það var sent, sama dag og MORG- UNPÓSTURINN sagði frá því að foreldrafélagið hefði óskað eftir því skriflega við ráðuneytið að stjórn- unarhættir við skólann yrðu athug- aðir. Foreldrafélagið skrifaði annað bréf sama efnis sem sent var beint til Áslaugar í síðustu viku. Alfreð fékk afrit af því bréfi sent fyrir helgi. í samtali við blaðamann MORG- UNPÓSTSINS á sunnudag kann- aðist hann hins vegar ekki við að um neina óánægju væri að ræða meðal foreldra. Þar sem skólastjórar eru ævi- ráðnir getur verið erfitt að skipta þeim út nema þeir óski þess sjálfir. Alfreð er hins vegar búinn að vera svo lengi í starfi að samkvæmt svo- kallaðri 95 ára reglu, sem reiknuð er út frá samanlögðum starfsaldri og lífaldri, að hann getur farið á eftir- laun ef hann óskar þess. Þannig að hann hefur þá útgönguleið úr þeirri orrahríð sem stendur yfir í Austur- bæjarskólanum. Þegar opinberum starfsmanni er vikið úr starfi fyrir embættisafglöp er venjan sú að fyrst sé veitt skrifleg áminning. Það á ekki við í tilviki Alfreðs. „Ég hef aldrei fengið neitt til mín vegna Alfreðs sem hefur gefið til- efni til að veita slíka viðvörun, þrátt fyrir að ýmsir óánægðir foreldrar hafi haft samband við mig hefur aldrei komið neitt skriflegt frá þeim en það er grundvöllur þess að veita áminningu," segir Áslaug. jk „Skólastjórinn hefur einfaldlega látið hagsmuni fjölskyldu sinnar ganga fyrir hagsmunum nemenda og kennara skólans," segir Einar Valur Ingimundarson, formaður foreldrafélags Austurbæjarskóla, um þann styrr sem staðið hefur um Alfreð Eyjólfsson, skólastjóra skólans. Einar segir að hann og margir aðrir foreldrar nemenda við skól- ann hafi orðið varir við þann hags- munaárekstur sem fylgi því að ætt- ingjar skólastjórans starfa þar. „Þegar skólastjórinn réð dóttur sína til starfa fyrir um það bil tíu ár- um fór ákveðin ólga fljótlega að gera vart við sig. Eins og málið snýr að mér og mínum börnum lenti ég í fýrra í ákveðnum vandræðum í kringum þetta þar sem eitt barna minna var í bekk hjá dóttur skóla- stjórans. Það var fyrirséð að hún þurfti að hætta kennslu um miðjan vetur þar sem hún var ófrísk, og annar að taka við bekknum. Það fór allt í vitleysu hvernig skólastjórinn leysti þetta mál. Hann var sjálfur að grípa inn í kennsluna og fór síðan óvænt til útlanda. Að auki kom eitt og annað upp á sem óþarfi er að tína hér til. Þar sem ég kynntist þessu sjálfur prívat og persónulega veit ég að það fór alveg gríðarlega mikil orka foreldra í að reyna að lagfæra þetta. En til þess að gera langa sögu stutta er því ekki að leyna að ég hef, sem formaður for- eldrafélagsins, heyrt mjög margar kvartanir út af dóttur skólastjór- ans.“ Þegar Einar er spurður hvað hafi orðið til þess að foreldrafélagið tók af skarið í nóvember síðastliðnum og óskaði skriflega efitir stjórnunar- legri úttekt við menntamálaráðu- neytið svarar hann: „Ég hef átt börn í skólanum í tíu , ár. Síðustu þrjú ár hef ég verið for- maður foreldrafélagsins og hef jafnan reynt að þrýsta á lagfæringar eins og hægt er. Kornið sem fyllti mælinn var að núna í haust, á sama tíma og skólalóðin var í rúst og ým- islegt óklárt með hvernig skóla- starfið gæti hafist, gerði skólastjór- inn sér lítið fyrir og fór í mánaðar- frí til útlanda og mætti ekki í skól- ann fyrr en nokkrum dögurn áður en skólastarfið átti að hefjast. Þá átti eftir að ganga frá málefnum heilsdagsskólans og lóðamálin voru í klessu. Vegna þessa var mikið upplausnarástand fram eftir hausti og var haldinn fjölmennur for- eldrafundur til að þrýsta á um lausn á þessum málum. Stanslausar Einar Valur Ingimundarson, for- maður foreldrafélags Austurbæj- arskóla. „Skólastjórinn hefur ein- faldlega látið hagsmuni fjölskyldu sinnar ganga fyrir hagsmunum nemenda og kennara skólans." aðfínnslur buldu á skólastjóranum á þeim fundi. Það var fundin ákveðin lausn á þessum málum til bráðabirgða þegar komið var fram í október. Þegar liðið var á nóvemb- er var það samdóma álit fólks að margt af því sem var búið að lofa að endurbæta og laga hafði ekki verið staðið við og aftur væri farið að síga á ógæfuhliðina. Var þá ákveðið að fara fram á umrædda úttekt. Það sem við viljum að verði skoðað, og kennarafélagið hefur nú tekið und- ir með okkur, er einfaldlega hvort stjórnun skólans sé með eðliiegum hætti. Við í foreldrafélaginu erum mjög ánægð með að þessari beiðni okkar hefur verið sinnt og teljum að málið sé komið í eðlilegan far- veg. Lærdóminn sem má draga af þessu er í fyrsta lagi sá að menn skulu forðast það að hafa sína nán- ustu sem undirmenn og í öðru lagi held ég að af þessu megi draga þann lærdóm að það eigi ekki að æviráða skólastjóra. Það er eðlileg krafa, nú þegar á að fara skipa málefnum grunnsólans á nýjan máta, að hafa ráðningaformið lýðræðislegra svo að það fólk sem er á vinnustaðnum fái einhverju að ráða um stjórnend- ur sína og hafi leiðir til að koma gagnrýni sinni á framfæri. Mér er kunnugt um að það eru hópar kennara sem hafa gagnrýnt mjög það sem Alfreð hefur verið að gera en þeir hafa bara fengið að kenna mjög harkalega á því.“ -JK Stjórnunarleg úttekt mun fara fram á Austurbæjarskólanum eftir eindregnar óskir kennara og foreldra nemenda. Brottrekstur Áslaugar Sigurðardóttur var kornið sem fyllti mælinn. Sigurgeir Sigurðsson hefur kært starfsmann barnaverndarnefndar og félagsmálastjóra Hafnarfjarðar til ríkissaksóknara íyrir brot í starfi, þar á meðal skjalafals „Skáka Hinn 19. desember síðastliðinn sendi Sigurgeir Sigurðsson ríkis- saksóknara og rannsóknarlögregl- unni bréf, þar sem hann kærir þær Hörpu Ágústsdóttur, starfsmann barnaverndarnefndar Hafnarfjarð- ar og Mörtu Bergmann, félags- málastjóra Hafnarfjarðarbæjar, fýr- ir „refsiverðjaj háttsemi s.s. brot í opinberu starfi, rangar skýrslur til opinberra aðila þ.á.m. úrskurðar- aðila, skjalafals svo og brot á ákvæðum laga um félagsráðgjöf.. Sigurgeir, sem hefur staðið í stappi vegna umgengnisréttar við dóttur sína, leggur áherslu á að Hrönn hafi hvorki menntun sem félagsráðgjafi, né heldur leyfi frá heilbrigðisráðu- neytinu til að titla sig sem slíkan, en það gerði hún í bréfi til hans árið 1991. 1 kærunni segir hann að Hrönn hafi aldrei lokið prófi í fé- lagsráðgjöf og sé „algjör fúskari í faginu." Telur hann Hrönn ekki í skjóli hafa neina fagþekkingu sem réttlæti hlutverk hennar sem umsagnarað- ila í hans málum eða annarra. Sig- urgeir kærir Mörtu Bergmann, fé- lagsmálstjóra, á þeim forsendum að hún hafi tekið þátt í að „blekkja [fé- lagsmálajráðuneytið“ og lagt bless- un sína „yfir fölsunarathæfi Hörpu.“ Vísar Sigurgeir þar í bréf, sem Marta skrifaði ráðuneytinu ár- ið 1991, þar sem hún titlar Hrönn félags-og uppeldisráðgjafa. Falsanir eða misskiln- ingur? „Það er alveg ljóst að hér er um beinar falsanir að ræða,“ sagði Sig- urgeir í samtali við MORGUN- POSTINN, „og ég er að hugsa um að fara í skaðabótamál út af þessu, við Hrönn og Mörtu persónulega eða við Hafnarfjarðarbæ eða ríkið. Umgengnisréttur minn við dóttur mína er sama og enginn vegna um- fagmennsku sem engin er“ sagnar ófaglærðrar manneskju, sem þó er titluð sem félagsráðgjafi. Þetta er svipað og að vera skorinn upp af manni, sem einhvern tímann hefur byrjað í læknisfræði en aldrei lokið prófi, og klúðrar svo aðgerðinni. Og þegar maður leitar réttar síns og útskýringa er alltaf skákað í skjóli einhverjar fagmennsku, sem engin er. Aðalástæðan fýrir því að ég kæri er sú, að í hvert skipti sem ég reyni að gera eitthvað í mínum málurn endar málsmeðferðin hjá sýslu- mannsembættinu, og þar með hjá Hrönn, og ég kæri mig ekki um að hún komi nálægt þessu, enda ekki til þess hæf.“ Marta Bergmann vísar ásökun- um Sigurgeirs algjörlega á bug og segir þær á misskilningi byggðar. „- Hrönn er með próf í sosialpedagogi frá háskóla í Danmörku, og sú menntun er eitthvað frábrugðin fé- lagsráðgjafamenntun, það er rétt. Það er hins vegar langt síðan Hrönn hætti að kalla sig félagsráð- gjafa. Hún gerði það á sínum tíma, því hún gerði sér ekki grein fyrir að það væri lögverndað starfsheiti. En það er ekkert í lögurn um starfs- menn barnaverndarnefnda, sem segir að þeir verði að vera félagsráð- gjafar. Kæra Sigurgeirs er því ekki á rökum reist og byggir á einhverju titlatogi, sem er málinu alveg óvið- komandi og hefur þar að auki verið aflagt. Hrönn er mjög hæf í sínu starfi, hvað sem öllum titlum líður. Hún starfar hér sem sosialpedagog, og það er sama hvernig við þýðum það orð, hennar menntun er alveg í samræmi við þær kröfur sem til hennar eru gerðar.“ æöj Sigurgeir Sigurðsson: Segir starfsmann barnaverndarnefndar vera „algjöran fúskara".

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.