Helgarpósturinn - 22.12.1994, Side 17

Helgarpósturinn - 22.12.1994, Side 17
kf' FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 M-' MORGUNPiQSTURINN FOLK 17 □ □□□□ Ketill Larsen Ef einhver er jólasveinn númer eitt 3á er það Ketill Larsen. Þetta gæða- slóð hefur allt til að bera sem prýða má einn góðan jólasvein og MORG- UNPÓSTURINN hefur áreiðanlegar leimildir fyrir því að það hafi komið til tals hjá ferðamálaráði að senda lann til finnlands til að gera skurk í jjófnaðarmálinu en eins og allir vita iá eru þessir finnar að reyna að bísa jólasveininum okkar! ÞjÓÐHAGSSTOfNUN Hér á landi hefur það verið til siðs að skjóta sendiboðann. Ef einhver topp- urinn delerar þá er það ekki aðalat- riðið, heldur: Hver lak? Það er stærsti glæpurinn í málinu. Veðurfræðingar hafa fengið að kenna á þessu sem og Þjóðhagsstofnun sem hefur verið á toppi óvinsældalistans. Nú kemur jákvæðari spá og þá siglir apparatið til vinstri, sé miðað við kvarðann. Laugavegur A ÞorlAksmessu Það er einhver þrjósk taug í þjóðar- sálinni sem veldur því að það eru engin jól nema slabbast upp og niður Laugaveginn rétt fyrir jól í örvænt- ingarfullri leit að jólagjöf. Þó að am- erikanseringin sé meiri hér en víðast annars staðar þá hafa kringlur eða „Shopping-Mall-ar“ alltaf verið úti í kuldanum. ? JÓLAGLÖGG Þessi sænski siður sem var í algleym- ingi hér fyrir um áratug hefur farið kólnandi með hverju árinu og ef fram fer sem horfir verður þetta búið um aldamótin. Það eru rúsínurnarsem fara svona illa í íslenska maga — rú- sínugubb uppi um alla veggi þar sem menn eru að glögga sig — sem er undarlegt í Ijósi þess að hér er löng hefð fyrir því að skófla I sig skyri I kílóavís. ÚTVARP Útvarp er með allra leiðinlegasta móti nú um stundir. Dagskráin snýst um auglýsingar, símaleiki og jólalög sem flest eru algjört drep. Alur óvinir Hraens Gunnlaugssonar Alveg er það makalaust hvað óvinir hans Krumma eru upp til hópa miklir skítbuxar op ómerkingar. Svavar Gests, Lárus Ymir og hvað þeir heita nú allir þessir moðhausar. Hins vegar eru Davíð og allir hans menn alveg frábærir. Sigurður Sigurjónsson sem Jörundur og Gísli Rúnar í hlutverki Sir Alexander Jones. Hefðbundinn subbuskapur í jólaleikriti Sjónvarpsins Ælur, hórur og dóna- skapur í jólaleikritinu Valgerður „súperstjarna" Guðnadóttir fer með hlutverk Dölu-Völu. KK og Þorleifur slá bítið á bak við. Myndir: Inga Lísa Middleton Helga Braga leikur hefðarfrú sem lendir uppi í bóli með Jörundi. Óskar Jónasson með sjóliðum. Oft hafa jólaleikrit Sjónvarpsins verið þungamiðjan í vandlætingar- samræðum fólks í jólaboðunum enda viðkvæmur tími ársins. Þið munið hann Jörund verður sýnt á jóladag og í ljósi þess að áhugaleikfé- lög landsins hafa verið dugleg við að dúndra því á svið með reglulegu millibili þá er engin ástæða til að ætía að þjóðin fái sjokk. Leikstjórinn Óskar Jónasson er samt ekkert allt of viss um það þegar hann var spurður hvort hann væri á taugum vegna sýningarinnar. „Maður hefur séð útreiðina sem þessi leikrit hafa fengið hingað til og fólk hefur elskað að rakka þetta nið- ur í jólaboðunum og ég get reyndar ekki svarið af mér alla sök í því máli — hef tekið undir það heilshugar. Þessi dónaskapur, sóðaskapur, ælur og óhreinindi á þessari heilögustu hátíð ársins hefur farið fyrir brjóstið á fólki.“ Bíddu. Ertu að segja mér að það sé eitthvað slíkt í Jörundi? „Já, ég er svolítið smeykur um að þetta sé með þessu hefðbundna ógeði. KK æfir tiltölulega snemma og fyrstu samræðurnar snúast um hórur og vændi. Svo eru allir íslend- ingarnir í leiknum eins og dregnir upp úr Þjóð í hiekkjum hugarfars- • il íns. Sem þýðir að það verður allt vit- laust, eða hvað? „Ég sé fram á það. Ég hef bara ekki efni á því að flýja til Austur- landa eins og er alltaf besta ráðið. Annars er ég svo óforskammaður að ég kviði ekki fyrr en eff ir á sem þýðir að þá er það ekki kvíði heldur hrein og klár skelfing. Annars er ég svo „bissí“ að kaupa jólagjafir, þrífa og gera hreint fýrir mínurn dyrum að það kemst ekkert annað að. Svo er líka eitt í þessu öllu saman, maður verður ónæmur fýrir ljótu málfari, blóti í verkum sem maður er að vinna í. Sjái ég eitthvað sem ég gerði í „denn“ fæ ég snefil af sjokk- inu sem fólk hefur upplifað sem áhorfendur. Maður gleymir þessu blóti og klámi þegar maður er á kafi í verkefninu — verður samdauna. Ég hef fengið upphringingar og læti fyrir Sódómu og SSL-25 vegna sóða- legs orðfæris. Skömmu eftir að Sód- óma var sýnd á Stöð 2 hringdi til dæmis í mig maður klukkan níu á laugardagsmorgni sem sagði: „Ég horfði á þessa mynd með börnun- um mínum og þegar ég sá í hvað stefndi sendi ég þau beina leið í ból- ið.“ Þá spurði ég hvort hann hefði ekki tekið eftir því hvort myndin væri bönnuð börnum. Þá sagði hann: „Það skiptir ekki neinu máli. Ég tók þessa mynd til að senda ætt- ingjurn niínurn í Svíþjóð en sú spóla fer í ruslið skal ég segja þér. Og með- ferðin á heyrnaskertri konu undir lokin var af allra síðustu sort.“ Svo skeliti hann á.“ Býstu við einhverjum slíkum við- brögðum núna? „Eiginlega ekki. En ég vil benda fólki á að hringja í Jónas Árnason ef það hefúr eitthvað upp á orðfærið að klaga.“ JBG

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.