Helgarpósturinn - 22.12.1994, Side 19
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN VIÐTAL
19
Eyþór Arnalds kom bakdyramegin inn í popptónlistina með
próf í tónsmíðum og sellóið að vopni. Með sambýliskonu sinni,
Móeiði Júníusdóttur, myndar hann dúettinn Bong sem
stefnir hátt með danstónlist sinni.
ln*it
É
Erþað Arnalds eða Arnaldsson?
„Amalds. Pabbi minn heitir Jón
Arnalds, afi minn Sigurður Arn-
alds og langafi minn Ari Arnalds.
Fleiri eru þeir ekki í karllegg."
Hvað þýðir Bong?
„Bong þýðir eitthvað allt annað
en það gerði í byrjun árs. I dag er
það hugmynd sem tekur á sig skýr-
ara form með hverjum degi, fagurt
nafn sem margir „reykingamenn“
nota sem gælunafn yfir vatnspípur
sínar. Sem þeim þykir bersýnilega
afar vænt um, samanber Iagið „Ó,
bong mín bong.“
Ákvaðstþú að verða tónlistarmað-
ur eða þróaðist það þér að óvörum?
„Ég ákvað það einhvern tímann
þegar ég var unglingur en sarnt ætl-
aði ég að verða lögfræðingur líka.
Ég vissi að Stravinski, Schumann
og einhverjir fleiri voru bæði tón-
listarmenn og lögfræðingar. Úr því
að þeir gátu þetta þá gat ég þetta al-
veg eins líka. Ég fór í Háskólann og
eftir eins árs nám í lögfræði ákvað
ég að það væri ágætt að vera lög-
fræðingur og að lögfræðin væri
skemmtileg en að laganám væri
mjög leiðinlegt. Og langt. Þannig §
að fimm árum væri líklegast betur <
varið í eitthvað annað. Ég sé ekkert <
eftir því.“ “
Þú lœrðir á sellóið. g
„}á, og tónsmíðar." <
Allt í Tóniistarskólanum? 2
„Já ég lauk burtfararprófi og |
lokaprófi í tónsmíðum þar sem ég j2
skrifaði verk fyrir Sinfóníuna. Sin- -o
fónískt verk í þremur þáttum sem
ber nafnið „Terta“v Helst væri hægt
að túlka nafnið þannig að það þýði
„þrír“, dregið af tertium á latínu.
Einnig var verkið lagskipt eins og
terta. Seinna var verkið flutt í Sví-
þjóð og fyrir mér blasti björt fram-
tíð sem „klassíker". Ég fór til Hol-
lands í framhaldsnám en dvaldi
stutt þar og ílentist í poppinu hér á
skerinu."
Tveir ólíkir farvegir svo ekki sé
meira sagt.
„Já, en ef við förum lengra aftur
þá var ég eini síðhærði pönkarinn
þannig að þá þótti það enn skrítn-
ara að ég færi út í klassíkina."
Þar byrjar þá skitsófrenían?
„Skitsófrenían byrjar þar. Ég ætl-
aði nú að verða vísindamaður þeg-
ar ég var lítill. Var algjör bókaorm-
ur sem endar svo sem pönkari."
Bíddu nú við. Bókaormur, klass-
íker, poppari, pönkari, lögfrœðinemi,
pródúsent...?
„Svo þegar ég var sæðisfruma
ætlaði ég að verða kona en hætti við
II
PIi
„Égfór í Háskólann
og eftir eins árs nám í
lögfrœði ákvað ég að
það vœri ágœtt að vera
lögfrœðingur og að
lögfrœðin vœri
skemmtileg en að
laganám vœri mjög
leiðinlegt. Og langt.
Þannig að fimm árum
vœri líklegast betur
varið í eitthvað annað.
Ég sé ekkert eftir því. “
og varð karl.“
Þú býrð hér í húsi Þórbergs Þórð-
arsonar — hefur það haft einhver
áhrif á þig?
„Þetta er yndislegt hús, hann bjó
hér á hæðinni fýrir ofan. Þetta er
hús með kúltúr, eitt elsta fjölbýlis-
hús Reykjavíkur. Það er til póstkort
frá 1946 með mynd af húsinu hér
umkringt melum og högum, og
undir stendur: „Highrises in the
outskirts of Reykjavík." Semsagt
háhýsi í útjaðri menningarinnar.
Húsið var reist af miklurn myndar-
brag, ég held að það haft ekki verið
búið að finna upp vinnusvikin á
þessum tíma.“
Er líf eftir Todmobile?
„Já, bæði fyrir og eftir og jafnvel
á meðan. Mér finnst best ef maður
ætlar að byrja á einhverju nýju að
byrja á núllinu. Með Bong ákváð-
um við að gera það bókstaflega og
fyrsta lag okkar kom út á diski
tímaritsins Núllsins.“
Nú hefurþú stundað það að miðla
þinni reynslu og þekkingu til ungra
og ekki svo ungra tónlistamanna,
sem pródúsent og hljóðblandari.
Hvað finnst þér mest gefandi við
það?
„Ég hef verið svo heppinn að geta
valið um með hverjum ég hef unn-
ið. Og hef unnið með mörgum
skemmtilegum aðilum. Vann til
dæmis með Jet Black Joe á tveimur
fyrstu plötunum þeirra og fannst
mjög gaman að byggja upp með
þeirn frá grunni. Nú til dæmis var
ég að vinna með Þór Eldon og Dr.
Gunna að plötu Ununar. Þar var
byrjað með hugmynd sem var held-
ur óljós í byrjun. Ekki búið að
ákveða söngvara, útsetningar eða
aukaspilara. Allt mjög opið og tókst
nokkuð vel. Það er mjög gaman að
geta unnið þannig. Vinna með
hluti sem eru ekki of mótaðir.“
Þessar hártoganir þínar og Bubba
nú undanfarið, ertu orðinn þreyttur
á því að tala utn þetta eða er hœgtað
kreista út úr þér ettdanlega útskýr-
ingti?
„Þetta var tvíþætt. Annars vegar
þurfti að svara manninum, hann
var dónalegur. Svo í öðru lagi var
hann að slá sig til riddara með því
að telja sig vera sverð og skjöld ís-
lensks máls. Annað hefur nú komið
á daginn þegar farið er niður í kjöl-
inn á hans eigin textum. Ég held að
þetta mál haft fengið næga umfjöll-
un en ég er alltaf hrifinn að því þeg-
ar fólk hefur þor til að segja skoðun
sína opinberlega, þá er þó hægt að
verja sig. Öðru máli gegnir um bak-
talið.“
Hvernig er að vera sonur dómara?
„Það fer eftir því hver dómarinn
er, í mínu tilfelli er það mjög fínt,
hann hefur enga fordóma og það er
kannski fyrir öllu.“
Eyþór beygir sig niður og tekur
upp bók úr tösku blaðamanns urn
neðanatómseðlisfræði og gefur
henni góða dóma, segist hafa feng-
ið eintak sem gjöf frá pabba sínum.
Við ræðum nýju eðlisfræðina um
stund ásamt bók Umberto Eco,
Focaults Pendulum og komumst
að því að hvorugur okkar þekkir
neinn sem hefur klárað það torf.
Svo við skjótum því inn í, Óáreið-
anleikaregla Heisenbergs segir í gróf-
uttt dráttum að enginn geti skoðað
hlut né atvik án þess að hafa áhrif á
viðkomattdi hlut eða atvik. Óhlut-
leysi er því ekki til í nýju eðlisfrœð-
inni.
„Þessi kenning er skemmtileg.“
Á hún við utn blaðamenn líka?
„Að sjálfsögðu. Þarna komurn
við aftur inn á fordómana. Þessi
kenning er grunnurinn að nútíma
eðlisfræði. Eðlisfræðingar sem
þóttu forpokaðastir allra hér áður
fyrr eru nú orðnir það opnir að þeir
taka þessari kenningu, blaðamenn
aftur á móti sem eiga að vera opn-
astir allra stétta fýrir upplýsingum
ættu að taka sig til og bekenna þetta
helst fyrir morgunverð.“
Eigutn við til að vera of tnikið tneð
puttatia í einkamálum fólks?
„Já, ég held það. Það er hætta á
því. Blaðamenn mótast af eigin
skoðunum og blöðin sem heild
ættu ekki að gera það. Þau ættu að
vera hlutlaus en geta aldrei orðið
það. Því dýpra sem farið er niður í
einkalíf fólks því varhugaverðara
verður það, það þarf varla að nefna
bresku pressuna. Það mætti hins
vegar fara mun dýpra í opinber
mál.“
Er ekki þversögn að segja „opinber
mál“?
„Jú, það vantar allt aðhald þegar
kemur að fólki í valdastöðum. Að
gefa fólki vald er hættulegt og það
þarf að fylgjast með því. Það er í
eðli valdsins að því sé misbeitt."
Stuttu eftir að við slökkvum á
diktafóninum lítur Sjón inn og það
kemur í ljós að hann er eini maður-
inn sem við þekkjum sem hefur
lokið Focaults Pendulum...
Baldur Bragason