Helgarpósturinn - 22.12.1994, Side 20
20
MORGUNPÓSTURINN BÆKUR
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
Stiörnuaiöf
Hallgrímur Helgason
Þetta er allt að koma
★ ★★★★
„Eitt skemmtilegasta skáld-
saga sem hér hefur verið
skrifuð í mörg ár. Þetta er sú
jólabók sem ég muti tregust
til að látia af ótta við að
hetini verði ekki skilað aftur.
Á skáldsagnasviðittu er
húmoristi fceddur. “
í BARNDÓMI
JAKOBÍNA SlGURÐARDÓTTIR
★ ★★★
„Ákaflega falleg og stundum
hjartnœm kveðja Jakobínu
Sigurðardóttur til bernsk-
unttar. Síðasta verk höfundar
reynist lítil perla.“
SjÓN
AUGU ÞÍN SÁU MÍG
★ ★★★
„Hugmyndarík og vel skrifuð
saga. Ein afbestu skáldsögum
ársins, besta verk höfundar
til þessa.“
Deborah Tannen
Þú MISSKILUR mig
★★★★
„Skemmtileg og áhugaverð
bók um mismunandi hugs-
anahátt kynjanna. Varast ber
að taka henni sem algildum
sannleika en hún er umhugs-
unarverð ogþað er töluvert
vit í henni.“
Thor Vilhjálmsson
Tvílýsi
★ ★★★
„ Thor er á skáldlegu flugi í
einstaklega góðu verki. Aðdá-
ettdur hans eiga eftir að
hrópa húrra.“
Vigdís Grímsdóttir
Grandavegur 7
★ ★★★
„Áhrifamikil og falleg bók
sem cetti aðfanga ófá hjörtu.
Bókin er langtfrá því að vera
gallalaus en kostir hennar
gera að verkum að auðvelt er
aðfyrirgefa þá galla. Bók sem
á örugglega eftir aðfjölga í
aðdáendahóp Vigdísar. “
Þorvaldur Kristinsson
Veistu ef þú vin Att — Minning-
ar Aðalheiðar Hólm Spans
★★★★
„Ákaflega vel skrifuð cevisaga
sem á sínum tíma stóðfram-
arlega í verkalýðsbaráttunni
hérálandi en fluttist síðan
til Hollands. Sterkar þjóðlífs-
myndir og Ijóslifandi persón-
ur birtast á síðum bókarinn-
ar.“
Árni Þórarinsson
Krummi — Hrafns saga Gunn-
LAUGSSONAR
★ ★★★
„Vandrceðabarn íslensks list-
heims sannar hér að penninn
er beittasta sverðið. Hann
réttir hlut sinn ogsinna og
sallar niður atidstceðinga
sína í bráðskemmtilegri og
oft hortugri bók. “
Einar Kárason
Kvikasilfur
★★★
„Samanburðuritin við
Heimskra mantia ráð er
Kvikasilfri í óhag. Fyrir utatt
síðasta hluta verksins er þessi
bók tnutt bragðdaufari.“
„Víst er að Hrafn Gunnlaugsson er sigurvegari þessarar bókar. Það skiptir engu þótt
þið hafið lagt margra ára fæð á manninn. Ekkert af því mun sitja eftir að lestri lokn-
um. Það er einfaldlega ekki hægt að láta sér líka illa við mann sem er svona skemmti-
nti.“ : HP18P®
Krummi áflugi
Árni Þórarinsson: Krummi -
Hrafns saga Gunnlaugssonar
335 BLS.
Fróði hf. 1994
★★★★
1 Islendingasagnastíl befur þessi
bók undirtitilinn Hrafns saga
Gunnlaugssonar og kápan dregur
heldur ekki úr hetjuímyndinni,
sýnir skeggjaðan, hárprúðan mann
með greindarleg en heldur tor-
tryggnisleg augu. Það er líkt og
hann eigi von á árás úr launsátri.
Hann sýnist ekki vopnaður öðru en
hörkulegum munnsvip, en sá svip-
ur gefur einnig til kynna að hann
ætli sér sigur.
Víst er að Hrafn Gunnlaugsson
er sigurvegari þessarar bókar. Það
skiptir engu þótt þið hafið lagt
margra ára fæð á manninn. Ekkert
af því mun sitja eftir að Iestri lokn-
um. Það er einfaldlega ekki hægt að
láta sér líka illa við mann sem er
svona skemmtilegur á prenti.
Ég veit ekki alveg hvernig Árni og
Hrafn hafa farið að þessu, líklega er
það bara eins og Hrafn segir á ein-
um stað: „Ef maður er nógu sann-
færður sjálfur getur maður sann-
fært aðra, annars ekki.“ Það er
sannfæringarkraftur þessarar bókar
sem skilar sér til lesandans. Hann
situr eftir með hlýja tilfmningu í
hjarta. Honum þykir vænt um
Krumma og vini hans og frnnur illa
lykt af andstæðingum hans, enda
virðist ýmislegt benda til að þeir
séu fremur óáhugaverðir menn.
Hrafn gerir sér grein fyrir því að
sókn er hesta vörnin og þar sem
hann er bæði orðheppinn og orð-
hvass þarf hann ekki ýkja margar
línur til að fella andstæð-
inga sína eða aðra þá sem
honum er ekki of hlýtt til.
Örnólfi Árnasyni
(kallaður Dúlli) sem var
yfirmaður hans við gerð
Rauðu skikkjunnar lýsir
hann svo: „Dúlli gekk
jafnan um hátíðlegur í
fasi, lítill en hnarreistur
og hélt á skjalatösku sér til
aukinnar virðingar. Þótt
hann væri lágvaxinn hafði
hann æft sig í að tala nið-
ur til okkar.“ Og um fund
þeirra einhverjum árum
seinna: Hann var fýndið
kríli! Ég hef alltaf haft
gaman af honum. Hann
var þá orðinn einn af
þessum stóru rithöfundum sem
ekki höfðu gefið neitt út. Mér skilst
að hann hafi haldið því áfram.“
Um Ólaf M. Jóhannesson fjöl-
miðlagagnrýnanda segir Hrafn: „-
Þessi Ólafur skrifar um fjölmiðla af
yfirgripsmestu vanþekkingu sem
einn maður getur búið yfir.“
Og fjármálastjóri útvarps fær
þessa lýsingu: „Hörður er verðugur
andstæðingur og að mörgu leyti
sterkur maður, fastur fyrir og beitir
málþófi og málalengingum af meiri
dugnaði en aðrir menn; ef þú spyrð
hann hvað ldukkan sé og bann vill
ekki svara þér flytur hann fyrirlest-
ur um úrsmíði þar til þú gefst upp á
að hlusta.“
Þessi dæmi eru reyndar með
þeim meinlausari í bókinni. Það
MJONA*
m u n
vafalaust
fara í
taugarn-
ar á andstæðingum Hrafns hversu
auðvelt hann á með að draga upp af
þeim kátlega og/eða hæðnislega
mynd. En honum tekst ekki síður
upp þegar hann lýsir fólki sem
hann hefur haft ánægju af að kynn-
ast. Þarna eru til dæmis lýsingar á
Vilmundi Gylfasyni sem lýsa mikl-
um næmleika Hrafns. Og aðrar
svipaðar má nefna, til dæmis af
Jaqueline, ekkju Picassos og
Ingmar Bergman. Þar tekst hon-
um í fremur stuttum frásögnum að
draga upp sterkar karaktermyndir.
En albestu kaflar bókarinnar
snerta barnæsku Hrafns og upp-
eldi. Mér virðist hann þar ganga
mjög nærri sjálfum sér, kryfur og
opinberar viðkvæma hluti en gerir
það bæði smekklega og vel.
Bókin er á köflum bráðfyndin.
Ein kostulegasta frásögnin er af
Astrid Lindgren sem í boði hjá
forseta Islands trúði Hrafni fyrir
því hver væri áhirfamesti texti sem
hún hefði lesið, en sá snerist um
typpi. Við munum aldrei líta höf-
und Línu langsokks sömu augum
eftir lestur þess kafla.
I bókinni gerir Hrafn Hrafns-
málinu fræga, eða Heimismálinu
eins og hann vill kalla það, ítarleg
skil eins og það horfir við honum.
Það er eins konar þungamiðja bók-
arinnar en það er helst þar sem
Hrafn virðist skorta nægjanlega
fjarlægð. Það er enginn vælutónn í
Hrafni í þessari bók og enginn
skyldi halda að hann lægi hér í
sjálfsdekri og sjálfsupphafningu.
Hann virðist hafa mjög skemmti-
lega sýn á sjálfan sig, býr yfir gnægð
af sjálfsíróníu og einnig hæfilegum
skömmtum af viðkvæmni eins og
títt er um eldhuga. Það er líklega
þessi blanda sem skapar þessa sér-
stöku tegund af hetju sem Hrafn
verður óneitanlega á síðum bókar-
innar. Þar fæðist eins konar nú-
tímaútgáfa af Gretti Ásmundarsyni.
Viðkvæmur, örlyndur og hæfi-
leikaríkur gallagripur sem hefði
þurft örlítið meiri ást og öryggi en
hann naut í æsku. Vegna þessarar
vöntunar er hann í sífelldri leit en
brynjar sig með þvermóðsku og
töffaraskap og er því æði misskilinn
af samfélagi sem gerir hann útlæg-
an oftar en einu sinni. En ólíkt
fornhetjunni hefur Hrafn ætíð snú-
ið aftur.
Ifandræðabarn íslensks lista-
heims sannar hér að penninn
er beittasta sveröið. Hann
réttir hlut sinn og sinna og
sallar niður andstæðinga sína
í bráðskemmtilegri og oft
hortugri bók.
Gunnar Dal
heimspekingur
„Venjulega förum við í kirkju á aðfangadagskvöld en
í þetta sinn förum við þess í stað í heimsókn á
sjúkrahús. Ætli við förum ekki heim á eftir og eigum
hljóða stund áður en við setjumst að borðum. Það
er ekki ráðið hvort við verðum með gesti en ætli
það verði ekki hinn hefðbundni hamborgarhryggur
sem verður á boðstólum. Eftir matinn opnum við
jólagjafirnar og lesum jólakort, og ætli maður haldi
sig ekki á sinni hefðbundnu slóð og borði hangikjöt
á jóladag. Þá er afráðið að við verðum með gesti í
síðbúinn hádegismat. Ég hugsa að maður kíki í bók
líka og fari í Háteigskirkju á jóladag. Ég skipulegg
tímann yfirleitt ekki og get oftast ekki sagt fyrir um hvað gerist næsta dag. Ég geri
frekar það sem mig langar allt í einu að gera og er maður augnabliksins og kem sjálf-
um mér á óvart. Maður sér því bara til hvað maður gerir á annan í jólum. Þegar ég var
strákur norður í Svarfaðardal lenti maður oft í stórhríð þegar maður var á leið í kirkju
eða í jólaboð. Þetta gerðist næstum um hver einustu jól. Stundum var veðrið svo vont
að það var ekki hægt að fara út fyrir hússins dyr í viku í norðan stórhríðunum. Þær
voru verri í gamla daga. Menn fóru samt alltaf heim hvernig sem viðraði þannig að ég
þurfti aldrei að húka í kirkjunni yfir nótt.“
Einar Snorri
myndasmiður
„Ég ætla að liggja í leti
■ Kolbrún Bergþórsdóttir
Björgvin Gíslason
formaður
Alnæmissamtakanna
„Ég verð með bræðrum mínum
hjá móður minni á aðfangadags-
kvöld og við borðum ham-
borgarhrygg. Eftir matinn
tökum við upp jólagjafir
og síðan förum við og
heimsækjum frænd-
systkini mín. Á jóladag
verð ég líka hjá mömmu
í rólegheitunum og kíki
kannski í bók ef ég fæ
eitthvað að lesa í jóla-
gjöf. Síðan fer maður
aftur inn í rútínuna á
annan í jólum og fer á
22 og hristir af sér há-
tíðleikann."