Helgarpósturinn - 22.12.1994, Qupperneq 29

Helgarpósturinn - 22.12.1994, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 MORGUNPÓSTURINN BÆKUR 29 Bréf til blaðsins Hugsanlega óréttlátur dómur en varla rœtinn „Myndir Eiðs Snorra minna helstá biblíumyndir, eða livern- ig biblíumyndir gcetu verið, upphaf alheimsins, frjóvgun og kraftur þegar persónurnar stökkva upp á ský eða mœtia uppleitar til Ijóssins, mjög vel gerthjá Eiði.“ íslenska X-kynslóðin Eiður Snorri og Einar Snorri Strákar og stelpur Fróði ★ ★★★ I desembermánuði, loksins, framkölluðu Snorrarnir, Eiður og Einar ljósmyndabókina Strákar og stelpur. Eftir bókinni hefur verið beðið með eftirvæntingu, allavega af þeim sem þekkja eldra myndefni Snorranna, en þeir hafa hingað til báðir kvittað undir myndirnar sem hafa birst á síðustu misserum í dag- blöðum; tímaritum og einnig hafa þeir hannað plötuumslög og aug- lýsingar. En myndir Snorranna marka tímamót í íslenskri ljós- myndun. Þeir mynda fólk og aftur fólk og aðallega eina kynslóð, sína eigin. Myndefni íslenskra Ijós- myndara hefur hingað til aðallega verið landslag, gamalt fólk og börn í ljósi og skugga. Snorra-dúóið hef- ur hins vegar átakalaust brotið upp þessa áþján og rnyndað meir og minna sína eigin kynslóð sem er vissulega full af fallegu ungu fólki. Lausir við allan skráargataeffekt eða íjarlægð vegna þess að mynd- efnið er þeirn fullkomlega eðlilegt, enda eru þeir fallegir sjálfír og birta eigin sjálfsportrett við hliðina á hinum. Þeir vinna vesenislaust úr eigin unrhverfi og stundum á við heimildarljósmyndara eins og sýn- ingin þeirra í gallerí einn einn. Það er þessi innvígsla í nýrri kyn- slóð sem hefur verið þeirra aðall og svo húmorinn: Snorrarnir haldandi um tólin og haf af yngismeyjum í sundbolum bak við þá, Einar Snorri með Domino’s-pizzu og niðurrigndir félagar afmyndaðir í gleiðlinsunni. Þetta eru myndir með Snorrahúmor. En í annars mjög yfirborðsfal- legri bók þeirra, Strákar og stelpur, sem er tviskipt, (kompaníið er ldof- ið þannig að þeir skipta bókinni á milli sín) glataðist húmorinn. Þetta eru „fallegar og fágaðar“ rnyndir af fólki en það er eitthvað sparsamt við bókina, kannski hafa þeir bara tekið hana of alvarlega en tapað einhverju í leiðinni. Allavega hafa þeir losað sig við kynslóðina nreð því að mynda fólkið nakið í tírna- leysinu og þéttu andlitsportrett Einars Snorra gætu alveg eins verið tekin á tímurp Kaldals gamla og með sömu nákvæmni og gamli virtúósinn, bravó. Myndir Eiðs Snorra minna helst á biblíumyndir, eða hvernig biblíumyndir gætu ver- ið, upphaf alheimsins, frjóvgun og kraftur þegar persónurnar stökkva upp á ský eða mæna uppleitar til ljóssins, mjög vel gert hjá Eiði og hann heldur alveg utan um þessa hugsun alla leið, sem er í anda Leni Riefenstahl, hirðljósmyndara þriðja ríkisins. Fín og fáguð bók, vantar að vísu húmorinn en samt sem áður nauðsynsleg heimild í ís- lenskri ljósmyndun þar sem Snorr- arnir eru einstakir og engum líkir. Alda Lóa Rœtni svarað Hr. ritstjóri. í blaði yðar 19. þ.m. er á lævísan hátt reynt að gera son minn, Hrafn Gunnlaugsson, tortryggi- legan í augum alþjóðar út af máli, sem honum er nánast óviðkomandi. Þetta mál hefur verið í mínum höndum vegna fyrirtækis hans FILM. í grein- inni segir orðrétt í fyrirsögn: „Hrafni Gunnlaugssyni stefnt í annað sinn vegna hests sem hann seldi en reyndist gallagripur." Ég sé mig því tilneyddan að birta leiðréttingu. Upphaf þessa hestsmáls, er að þeir Grétar Þórisson og Hjörtur Valdimarsson keyptu af Sigurði Marínussyni, fyrrv. starfsmanni FILM, hest sem Sigurður hafði keypt af FILM eftir að tökum á kvikmyndinni „I skugga hrafnsins" lauk. FILM hafði keypt hestinn af virtum hesteiganda. Ekki var gerður skriflegur samningur þegar FILM seldi Sigurði hestinn og eigi heldur þegar Sigurður seldi þeim félögum hrossið, en slíkt mun vera al- gengt háttalag í hrossaviðskiptum og það spillti málinu. Greiðslan fyrir hestinn, sem Sigurð- ur seldi þeim félögum, var tveir víxlar, sem greiddir skyldu hálfu ár síðar. Sig- urður Marínusson afhenti FILM víxl- ana sem greiðslu upp í skuld við FILM. Ég fékk víxlana síðan til innheimtu. Fyrst þegar málinu hafði verið stefnt til innheimtu víxlanna vegna vanskila þeirra, hafði annar skuldaranna sam- band við mig, er málið var þingfest. Bar hann fyrir sig að vlxlarnir væru ólöglegir, án þess að skýra það frekar. Ég gat ekki séð neinn galla á víxlunum, sem leiða ætti til ógildingar þeirra, en frestaði málinu til þess að maðurinn gæti kært málið til RLR, sem þeir gerðu ekki, síðan heyrði ég ekkert frá þeim og víxilmálið fór sína leið. Mér var þá alls ekk kunnugt hvernig víxlarnir væru til- komnir. Það kom ekki fullkomlega í Ijós fyrr en málið var komið á lokastig. Löngu seinna fóru þeir félagar í rift- unarmál út af hestinum og þá kom í ljós, að Sigurður Marínusson, vinur þeirra félaganna, hafði ekki skýrt frá galla á hestinum. Helti, sem kom fram seinna. Ég hefði strax látið kaupin ganga til baka ef mér hefði verið ljóst hvernig í málinu lá, en ég hef aldrei átt við svona mál og síst hrossakaupamál. Báðir kaupendur hestsins voru vanir hestamenn og jafnvel lærðir tamninga- menn að ég best veit. 1 framhaldi af því og þrátt fyrir upplýsingar mínar var FILM og Hrafn Gunnlaugsson per- sónulega látinn þola riftunardóm og gert að greiða rúmar 700 þúsund kr. í bætur með áföllnum vöxtum og máls- kostnaði. Mér þykir sá dómur fjar- stæða og fáheyrt að dæma mann til að bæta verk, sem hann hefur alls ekki komið nærri. Það atvikaðist svo, að félagarnir, sem eru hrossaræktarmenn, létu ekki fella hestinn fyrr en lögmaður þeirra hafði bent mér á þann möguleika, en að mati dýralæknis og hrossaræktar- ráðunauts var ástæðulaust að halda ónýtum hesti á lífi eins lengi og þeir höfðu gert. Dýralæknirinn, sem hafði skoðað hestinn, þegar gallinn kom í ljós, taldi að rétt hefði verið að fella hestinn strax. Þeir létu hann samt lifa og reiknuðu sér kostnað fyrir. Árum síðar skeði það, að þeir félagar kröfðust viðbótargreiðslna fyrir að hafa algjörlega að ástæðulausu haldið hestinum á lífi. Ég gerði mér vonir um að hægt væri að sansa málið og sagði Hrafni að ég myndi sjá um að leysa málið honum að kostnaðarlausu. Von mín um drengskap í þessu máli, hefur hins vegar brugðist og þannig horfir málið við. Fyrir mér er aðalatriði þess, að Hrafn hefur ekki komið nærri þessu máli og það veit lögmaður þeirra fé- laga. Málið er fýrir dómstólum. Hins vegar kemur mér ekkert á óvart að blað, sem er ritstýrt af Gunn- ari Smára Egilssyni, skuli reyna að sverta æru Hrafns Gunnlaugssonar með þessu ómerkilega dómsmáli. Er- indi þessa ógæfu ritstjóra þekkja þeir sem reynt hafa manninn. Gunnlaugur Þórðarson Dr. Gunnlaugur, leiðinlegt að þið feðgar skylduð ekki hafa erindi sem erfiði í þessu máli og fengið á ykkur dóm sem þið teljið óréttmætan. Þá er lítið annað að gera en áfrýja, sem þið hafið og gert. Gangi ykkur vel. Það er hins vegar of djúpt í árinni tekið að kalla dóminn rætinn. Annað hvort hefur þér ekki tekist að skýra málavöxtu nógu vel fyrir dómaranum eða hann hefur ekki haft vit til að skilja röksemdir þínar. Þá er betra að gera eins og lögmaðurinn forðum og þakka guði fyrir Hæstarétt. Það hefur reyndar dugað illa síðustu árin og hafa margir brugðið á það ráð að þakka guði frekar mannréttindadómstólinn í Haag en eignað fjandanum íslenska réttarkerfið eins og það leggur sig. Hins vegar get ég ekki stillt mig um að róa þig með því að óréttmætur dómur verður ekki rætinn fyrir það að við á MORGUNPÓSTINÚM segjurn frá honum. Ekki frekar en réttmætir dómar verði guðleg handleiðsla á síð- um blaðsins. Dómur er dómur. Og þótt við lékum að því að segja dómur er dómur er dómur, þá breytist ekki eðli hans nema við viljum horfa á alla hluti út frá listinni. Það getum við ekki leyft okkur, lögmaðurinn og blaða- maðurinn, þrátt fyrir að sonur þinn, listamaðurinn, geti það í sínum störf- um. Og láti það meira að segja eftir sér að reyna að flytja eitthvað af dramatí- kinni úr verkum sínum inn í réttarsal- ina, á síður blaðanna og víðar um ris- minni svið en maður er vanur að sjá hann leika um. Og úr því að ég er byrjaður að kveinka mér og umvanda við mér eldri mann get ég ekki annað en nöldrað að- eins yfir síðustu málsgreininni. Ég sé ekki betur en þú, doktorinn, sért fall- inn í þá gryfju að bera út slúður. Ég veit nefnilega ekki til að þú hafir reynt mig að einu eða neinu sem máli skiptir og síðustu setninguna get ég því ekki skilið öðruvísi en þú sért að hafa þetta eftir einhverju fólki. Ekki hefur þú spurt mig út í það sem ég á að hafa gert af mér, ekki einu sinni þegar þú komst hérna á þriðjudaginn með þetta bréf. En ef þér finnst að þú hafi reynt mig af einhverju illu, vil ég rifja upp tvö til- felli sem ég hef hitt þig um dagana. í fýrra skiptið var ég ellefu ára. Mamma hafði lent í því að leigubíl- stjóri var að flýta sér í næsta túr, mátti ekki vera að því að bíða eftir að meira færi út úr bílnum af hcnni en önnur löppin, og ók af stað með þeim afleið- ingum að annað afturhjólið fór yfir ökklann á mömmu og hann brotnaði. Hálf slysalegt, en ekki nóg til þess að mamma fengi einhverjar bætur mögl- unarlaust og þurfti því að fá sér lög- mann. Það varst þú. Það eina sem ég man af þeim viðskiptum var fyrst þeg- ar þú komst heim, gekkst inn án þess að banka, hlammaðir þér niður við eldhúsborðið og þegar mamma loks áttaði sig á hver þú varst og bauð þér kaffi, þá lamdir þú í borðið og sagðir: „Áttu ekki bjór?“ Ekki veit ég hvernig viðskipti ykkar mömmu enduðu en ég man að hún hló lengi að þessari inn- komu þinni, eins og svo mörgu öðru á þeim árum. Hitt skiptið sem ég rakst á þig var fyrir mörgum árum, allavega varst þú þá í för með Karli heitnum Kvaran að skoða myndlistarsýningu þar sem nú er einhver unglingatískubúð í kjallara á Vesturgötunni. Ég var þá nýbúinn að taka viðtal við Karl og átti við hann nokkur orð og mig minnir að þú hafir haft einhverjar skoðanir á því sem við vorum að segja. Þið voruð reffilegir karlar þarna í galleríinu og sláttur á ykkur. Meira var það nú ekki sem ég hef haft af þér að sælda og skilst mér af því sem ég hef heyrt af þér að ég eigi frekar að sýta það en prísa. Þökk fyrir bréfið og gleðileg jól Gunnar Smári Egilsson PAKK11 Shakespere flugusett Stöng, hjól, lína Verð: 4.600 PAKKI2 Shakespere flugusett Stöng, hjól, lína Verð: 7.690 PAKKI3 Mitchell stöng, hjól, lína undirlína Verð: 9.900 PAKKI4 9 f stöng-L 7-8, Daiwa hjól, lína, undirlína, taumur Heildarverð: 14.980 Pakkaverð: 12^700 'ikið úrval affa PAKKI 5 I f stöng-L 7-8, Young hjól lína, undirlína, taumur Heildarverð: 16.400 Pakkaverð: 13.980 W PAKKI6 9 f Thomas & Thomas stöng- L8, Young 1530 hjól, Cortland lína, undirlína, taumur ^ Heildarverð: 33.550 | Pakkaverð: 28.500 1 ■ Néópren vöðlur - Fluguhnýtingasett 3.890-6.400-6.900 Stangarsett - Gönguskór - íslensk fluguhnýtingaspóla - Ambassador veiðihjól o.m.fl. Neopren vöðlur X/riaik' 13.600 Vöðlujakkar LAUGAVEG1178 - SIM116770

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.