Helgarpósturinn - 22.12.1994, Side 37
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
37
F réttir hafa borist þess efnis að
hinir Ný dönsku Possibillies-bræð-
ur, Jón Ólafsson og StefAn Hiör-
leifsson, séu með nýja hljómsveit í
startholunum. Þetta þýðir líklega
það að Nýdönsk heyrir nú endanlega
fortíðinni til þó að hljómsveitin
starfi saman við Gauragang í Þjóð-
leikhúsinu en ráð er fýrir gert að sýn-
ingum verði fram haldið fram á vor.
Ólafur HóLM er starfandi með Twe-
ety og Björn Jörundur hefur fullan
hug á að halda áfram með Jdjóm-
sveitina sem hann setti saman til að
fylgja sólóplötu sinni eftir. Nýja
hljómsveitin heitir Fjallkonan og
aðrir meðlimir eru Margrét Sigurð-
ardóttir úr Yrju, hafnfisku hljóm-
sveitinni sálugu, en hún spilar á
fjölda hljóðfæra auk þess að syngja
og semja. Pétur Örn Guðmundsson
syngur einnig og grípur í fjölda
hljóðfæra meðal annars bassann
þegar þurfa þykir en það hefúr vald-
ið nokkru írafári meðal bassaleikara
sem telja á sig hallað þvi Fjallkonan
ætlar bassaleiknum lítið hlutverk.
Trymbill hljómsveitarinnar heitir
Jóhann Hiörleifsson. Stefán og Jón,
sem eru engir nýgræðingar í popp-
inu, ætla að yngja upp í kringum sig
sem getur orkað tvímælis þvi var það
ekki Mick Jagger sem lagði á það
höfuðáherslu þegar hann var að
finna mann fýrir Bii.l Wyman að
hann væri sem ellilegastur í útliti til
þess að hann sjálfur virkaði þokka-
legur í samanburðinum. Og þar fer
karl sem vert er að taka sér til eftir-
breytni, vilji menn endast í faginu...
Farið í bíó r\
með Aqli *f G„r nyndahúsanna með Agli
Bióborgin
— karlalegt.
í kiallaranum. Sigurjón Kjartansson
' v . ' # v
„Lokahnykkurinn í
kynningarbrjálæðinu“
Konungur Ijónanna The Lion King
★*** Fallegtáað horfa, stundum
mátulega væmið og stundum hæfilega
ógnvekjandi. Stjarna númer fjögur er
fyrir islensku talsetninguna.
Iblíðu og stríðu When a Man Loves a
Woman ** Nákvæm lýsing á alkó-
hólisma ívæmnum thirtysomething-
stil.
Fæddir morðingjar Natural Bom Kill-
ers ** Boðskapurínn eraðAmeríka
sé gegnsýrð af ofbeldi. En Oliver er
ekki siður hugfanginn og hinir.
Sérfræðingurinn The Specialist *
Gengur út á að sýna hkamsparta á
Stone og Stallone. Sólgleraugun em
samt best.
Bíóhöilin
Junior * Schwarzenegger er miklu
tmverðugri sem óléttur karlmaður en
sem háskólamaður með gleraugu.
Kraftaverk á jólum Miracle on 34th
Street ** Erjólasveinninn til eða er
hann bara klikkæingur? Endurgerð á
frægustu jólamynd allra tima, en varía
til bóta.
Sérfræðingurinn The Specialist *
James Woocfs ersvo góður sem vondi
karíinn að maðurkemst varía hjá þvíað
halda með honum.
Háskólabíó
Junior * Með þviað gera litið sem
ekki neitt er Schwarzenegger betri leik-
ari en Emma Thompson sem teikur
óþolandi meðvitaða kvenpersónu með
rykkjum og skrykkjum.
Konungur i álögum Kvitebjöm kong
Valemon * Norski álagaísbjöminn er
sauðmeinlaus og ævintýríð kauðskt.
Daens *** Gamaldags sósíalreal-
ismi en á köflum áhrífaríkur á að horfa.
Mynd sem hefði fengið fimm stjömur I
Prövdu.
Blown Away Iloft upp ** Spreng-
ingin i lokin er fín upphitun fyrír gaml-
árskvöld.
Þrirtitir. Hvitur Trois couleurs: Blanc
**** Mynd sem segir frá þvi hvað er
mikill vandi að vera maður, og vandar
sig við það.
Forrest Gump ***** Annað hvort
eru menn með eða á móti. Ég ermeð.
Næturvörðurinn Nattevagten ***
Mátulega ógeðsleg hrollvekja og á
skjön við huggulega skólann ídanskri
kvikmyndagerð.
Laugarásbío
Góðurgæi GoodMan ** Evrópu-
menn eru fullir, heimskirog spilltir, en
negrar hjátrúarfullir, heimskirog spilltir.
Griman The Mask *** Myndin er
bönnuð innan tólf ára og þvi telst það
lögbrot að þeir sjái hana sem skemmta
sér best — tiu ára drengir.
Regnboginn
Stjömuhliðið Stargate *** Guðimir
voru geimfarar og Jay Davidson er
einn afþeim. Ef maður gengur inn um
réttar dyr lendir maður i Egyptalandi
hinu forna.
Bakkabræður í Paradis Trapped in
Paradise * Jólamynd sem kemur
engum ijólaskap en eyðileggur það
varía heldur.
Reyfari Pulp Fiction ***** Tarant-
ino erséníog Travolta frábær.
Undirieikarinn L’accompagnatrice
** Aðaltilgangurinn erað láta leikar-
ann Richard Bohringer, hitta fallega og
svarteygða dóttursina, Romane. Ann-
ars erþetta dauft.
Lilli er týndur Baby's Day Out *
Óheppnu bakkabræðumir eru ekki vit-
und fyndnir.
Sagabíó
Skuggi The Shadow *★* Djengis-
kan er tekinn ofan úr skáp, vill leggja
undir sig heiminn en mætir Skuggan-
um, ofjarli sínum. Þeir hefðu samt átt
að sleppa aðalkvenpersónunni.
Leifturhraði Speed *** Keanu Ree-
ves er snaggaralegur og ansi sætur.
Stjörnubio
Einn, tveir, þrír Threesome *** Allt
gengurþetta út á uppáferðir og er
möst fyrir karia og konur á aldrinum 14
til 20.
í kvöld troða hljómsveitirnar
Jet Black Joe og Olympia upp
saman í Þjóðleikhúskjallaranum.
Báðar þessar hljómsveitir eru að
gefa út geisladiska fyrir þessi jól og
Sigurjón Kjartansson segir þetta
vera lokahnykkinn í kynningar-
brjálæðinu fyrir jólin. Það vekur
athygli að þessar hljómsveitir eru
hvor hjá sínu útgáfufyrirtækinu,
en Sigurjón segir að það káfi ekk-
ert upp á þau með tónleikana
heldur hljómsveitirnar sjálfar, en
það sé heilmikið batterí að standa
að konsert.
En hvernig lýst þér, þessum
dannaða manni sem þú ert, að
kotna fram með þessum villimönn-
um úr Hafnarfirði?
„Mér líst vel á það. Jet Black
Joe er ein besta hljómsveitin
sem við eigum og þetta segi
ég alveg kinnroðalaust. Og
ég held að það sé rétt að
það komi fram að þetta
eru engir villimenn þó
ímyndin sé önnur.
Undir niðri slá við-
kvæm hjörtu sem ekk-
ert aumt mega sjá. Ég
hef nú aldeilis kynnst
alvöruvillimennskunni
úr Hanfarfirði þannig að ég
þekki þetta allt og ekkert
kemur mér á óvart lengur.“
Er líf eftir jólin hjá
Olympiu?
„Já, ég hef fullan hug á því
og hef ekkert í hyggju að
hætta. Nú er maður búinn að
setja saman þetta fína band sem
,svíngar“ og „grúfar" vel þannig
að það verður vonandi eitthvert
framhald þar á.“
Meðfram því að vera popp-
stjarna og skríbent er Sigurjón
annar umsjónarmanna útvarps-
þáttarins „Heimsendis" og þeir
sem hafa farið á tónleika með
Olympiu hafa tekið eftir því að
samverkamaður hans,
Magga Stína, syngur
með honum lagið
„Singing". Sigurjón tekur undir
það að hún hafi gaman að því að
syngja, „hún slær ekki hendinni á
Dýr mega
The Lion King
SambIöin
★★★★
Þegar Mikki refur hafði verið
kveðinn í kútinn af Lilla klifurmús
og dýrunum í Hálsaskógi voru
settar nokkrar einfaldar reglur sem
skyldu gilda í skóginum um aldur
og ævi. Þær hljóðuðu svo, eins og
allir sem eru sæmilega að sér í bók-
menntum vita:
í. Ekkert dýr má borða annað
dýr. (Rétturinn til lífs.)
2. Ekkert dýr má taka matinn frá
öðru dýri. (Rétturinn til eigna.)
3. 011 dýrin í skóginum eiga að
vera vinir. (Rétturinn til ham-
ingjuleitar.)
Nokkuð ólík afstaða ríkir í öðr-
um skógi, suður í Afríku, þar sem
er veldi ljónakóngsins. (Er ekki
Hálsaskógur annars í Noregi?) Þar
aðhyllast góðu dýrin að vísu
ákveðið réttlæti, en taka þó annan
pól í hæðina. Þar eru efst á baugi
umhverfisverndarsjónarmið,
blandin austrænni fílósófíu um ei-
lífa hringrás lífsins; dýrin mega
semsagt éta hvort annað meðan
það er allt innan eðlilegra og skyn-
samlegra marka — undir vökulum
og skilningsríkum augum ljónsins
sem er hinn menntaði einvaldur.
Gráðugu dýrin, umhverfissóð-
arnir, sem ekki vilja hlíta þessari
einföldu meginreglu sækja á og ná
um tíma yfirhöndinni; landið
móti söngnum," og svo eru hæg
heimatökin að kalla hana til ef svo
ber undir. JBG
Bein ógnun Clearand Present
Danger 0 Fáránlega alvömgefið og
éta dýr í hófi
Blódagar *** Margt fallega gert en
það vantar þungamiðju.
breytist í svarta auðn þar sem alltaf
grúfir yfir annarlegt hálfrökkur.
Svo grípa góðu og hófsömu dýrin
til sinna ráða og aftur blómgast
jörðin og uppfyllist.
Allt er þetta geysifallegt á að
horfa. Maður grípur öndina á lofti
þegar teiknarar Disneys láta marg-
litar hjarðir hlaupa um með gresj-
una í bakgrunni, fuglar fljúga und-
ir himinhvelfingunni, músíkin
svellur; það er aðdáunarvert
hvernig tækninni er beitt til að
skipta sífellt um sjónarhorn.
Þarna eru allt það góða kits sem
maður vill fá í alvöru Disneymynd:
Svoleiðis bíó þarf náttúrlega að
vera mátulega væmið, góðu fígúr-
urnar eiga að vera mjög góðar og
vondu fígúrurnar mjög vondar, en
mitt á nrilli skringilegar skepnur
sem eru passlega gallaðar en þó
aldrei til vansa. Þær sjá um að
hleypa öllu upp í gamansemi þegar
tilfmningasemin ætlar að sprengja
alla kvarða. í ofanálag þarf þetta
auðvitað að vera hæfilega ógnvekj-
andi - - undirritaður kvikmynda-
gagnrýnandi býr enn að skelfing-
unni sem hann varð fyrir þegar
hann sá Gosa og Mjallhvíti barn og
sjálfsagt eiga litlir áhorfendur eftir
að upplifa einhverja slíka ógn. En
auðvitað hreinsar það kerfið, hvort
tveggja í saklausum börnum og
hörðnuðum foreldrum þeirra, og
það er bara hollt; annars værum
við öll að reyna að svæfa börnin
okkar með eilífum upplestri úr
Sigrím fer á sjúkrahús.
Helst má kannski finna að því
að sjálf sagan er heldur í rýrari
kantinum, að minnsta kosti fyrir
hina fullvaxnari áhorfendur; svo
maður noti frasa úr leikhúsinu má
segja að hinir dramatísku atburðir
séu ekki mjög vel undirbyggðir.
Á rnóti því vegur talsetningin
sem aldrei hefur tekist betur á ís-
landi. Hún er frábær og hreint
smellpassar við myndina. Ég get
ekki sett út á röddina í neinum ís-
lensku leikaranna og þarna er
meira að segja einn sem vinntir
leiksigur —- í talsetningu! — en
það er Jóhann Sigurðarson sem
talar fyrir munn vonda ljónsins,
Skara. - Egill Helgason.