Helgarpósturinn - 02.03.1995, Side 4

Helgarpósturinn - 02.03.1995, Side 4
4 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995 Umræöan um trúna og trúfrelsið hefur oröiö sí- fellt meira áberandi undanfarin ár. Sértrúarsöfn- uðir hafa sprottiö upp og afleiðingin er sú aö upp hafa risið deilur um hlutverk kirkjunnar í dag. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna velta þessu fyrir sérog sitja fyrirsvörum i? Guðrún Helgadóttir Alþýðubandalagi „Nei, það held ég ekki. Út af fyrir sig hefur þetta allt farið fram í sátt og samlyndi hing- að til, við höfum sem betur fer lítið verið tröllriðin af trúarlegu ofstæki og ég er ekki búin að sjá að það sé neitt betra að aðskilja þetta, satt að segja. Þá væri hætta á að upp risu alls kyns hópar ofsatrúarfólks sem lítill fengur væri að í samfélaginu.“ Guðrún J. Halldórsdóttir Kvennalista „Það getur vel komið til mála. Ef af þessu yrði þyrfti auðvitað eitthvað að koma í staðinn fyrir hlutverk- ið sem kirkjan hefur í dag og móta þyrfti það eftir okkar þörfum.“ Egill Jónsson Sjálfstæðisflokki „Nei. Trúin hefúr ver- ið svo lengi ríkur og nauðsynlegur hluti af okkar samfélagi að ég sé enga ástæðu til að aðskilja kirkjuna frá ríkisvaldinu." Guðmundur Bjarnason Framsóknarflokki „Ég tel ekki að aðskilja eigi þetta fullkomn- lega þannig að hvor- ugt viti af hinu. Þótt kirkjan hafi sitt sjálf- stæði þá lýtur hún auðvitað okkar kirkjumálaráðuneyti og ég tel að samstarf ríkis og kirkju þurfi að vera gott.“ Gunnlaugur Stefánsson Alþýðuflokki „Kirkja og ríki eru í raun aðskilin í dag. Prestar eru hins vegar á taunum frá ríkinu og það er mjög mikilvægt til að tryggja sjálfstæði þeirra, auk þess sem þeir koma gjarnan fram opinberlega. Ástand mála í dag er ágætt að mínu mati, en ef eitthvað er fyndist mér mögu- legt að auka sjálfsforræði kirkjunn- ar í landinu." Mörður Árnason Þjóðvaka „Afstaða manna til þessa fer ekki eftir pól- ítískum línum. Ég sjálfur teldi einhvers konar aðskilnað æski- legan, bæði fyrir ríki og kirkju. En fyrst og fremst er þó inntakið það að verja rétt sérhvers manns til að hafa sínar skoðanir í trúarefnum eins og öðru. Ef þetta yrði gert er líka ljóst að fmna þarf aðila sem til- búnir eru til þess að taka við ýms- um hlutverkum sem kirkjan sér um á almannavegum.“ Guðrún Helgadóttir Alþýðubandalagi „Það er auðvitað frá- leitt að afnema hana. Elvort sem menn eru trúaðir eða ekki er þessi saga hluti af okk- ar menningu. Mér finnst alveg til í dæminu að taka fleiri trúarbrögð inn í þetta og fara meira inn á sagn- fræðihlutann í þessu. En það kem- ur ekki til greina af minni hálfu að leggja þetta niður.“ Guðrún J. Halldórsdóttir Kvennalista „Nei. Ég vildi frekar auka kennslu í sið- fræði kristinnar trúar en að leggja hana nið- ur. Því meira sem ég hef kynnst siðum og trúarbrögðum annarra þjóða hef ég orðið sannfærðari um að kristin trú sé sú sem boðar mesta mildi og mestan skilning á högum annarra. Jafnréttið í boðskap kristinnar trú- ar er nefnilega svo mikilvægt.“ Egill Jónsson Sjálfstæðisflokki „Nei. Það er allt í lagi að fræða börn um trú- arbrögð almennt, en ekki á kostnað kristin- fræðinnar." Guðmundur Bjarnason Framsóknarflokki „Nei, alls ekki. Ég er sjálfur trúaður og tel mjög mikilvægt að innræta börnum trúna. Það má auðvit- að gefa börnum meiri innsýn í aðrar trúarstefnur en ég tel að viðhalda eigi trúfræðslunni og leggja áherslu á þjóðtrúna okkar.“ Gunnlaugur Stefánsson Alþýðuflokki „Nei, alls ekki. íslensk börn hafa notið þess að læra um kristna trú og hafa búið að því seinna meir. Mér finnst hins vegar sjálf- sagt að auka kennslu í trúarbragða- fræðum almennt. Á meðan við höf- um krossmarkið í Jrjóðfánanum eigum við að leggja mikið upp úr trúnni.“ Mörður Arnason Þjóðvaka „Nei. Það á elcki að gera. Það má deila um hvernig á að kenna kristinfræði en það er fráleitt að afnema hana. Biblíusögurnar eru eins og íslendingasögurnar og gríska goða- fræðin, hluti af okkar menningar- arfi, og það væri fráleitt að ræna komandi kynslóðum þeim arfi.“ Bih „Taktu þetta ekkert persónuleaa, þetta erbarao sagði Magnús við aðstoðarmann sinn á heims- meistaramótinu íJapan, rétt eftirað hann hafði sagt í viðtali heim að hann væri einn og þyrfti að sjá um allt sjálfur. „Ég veit ekki hvað vakir fyrir manninum. Hann veður bara áfram í blindni og traðkar á þeim sem á vegi hans verða. Hann hefur staðið sig mjög vel en það veitir honum engan rétt til að vaða yfir aðra,“ segir Ágústa Johnson, líkamsræktar- kennari og eigandi Stúdíós Ágústu og Hrafns, um Magnús Scheving íþróttamann ársins á fslandi. Deilur hans og Bjöms Leifssonar, eiganda World Class og umboðsmanns Al- þjóða þolfimisambandsins (AIF) hafa vakið mikla athygli og í kjölfarið hafa ýmsar spurningar vaknað. Fengu að keppa á síðustu stundu Sem kunnugt er varði Magnús Evrópumeistaratitil sinn í þolfimi á móti sem fram fór í Búlgaríu á laug- ardag. Fyrir tilstilli Fimleikasam- bands Islands og Ellerts B. Schram, forseta ISl, gaf umboðs- maðurinn leyfi fyrir þátttöku Magn- úsar og systkinanna Önnu og Karls Sigurðarbarna á elleftu stundu, en lengi leit út íyrir að íslensku kepp- endurnir fengju ekki að keppa. Ástæður þess voru þær að keppend- urnir sóttu aldrei um þátttökurétt til umboðsmannsins hér heima og sigr- uðu ekki á viðurkenndu IAF-lands- móti, heldur nýstofnuðu þolfimi- móti Fimleikasambands Islands. Þorsteinn Guðjónsson hefur töluvert unnið fýrir IAF hér á landi. Hann segir að á aðalfundi í Japan á síðasta ári hafi þeir tilkynnt að IAF- mót yrði haldið hér á landi í janúar. „Síðan nokkru seinna sjáum við að Fimleikasambandið og Magnús Scheving eru farin að auglýsa sitt landsmót á sama tíma,“ segir hann. „Þá föxuðum við út og sögðurn ffá þessu fýrirhugaða móti og sögðumst vera tilbúnir til að segja af okkur og afhenda Fimleikasambandinu og Magnúsi umboðið. Við fengum svar um hæl þar sem boðið var afþakkað og síðan var það ekki nefht meir.“ Þorsteinn segir að þetta hafi orðið Þorsteinn Guðjónsson var að- stoðarmaður Magnúsar á HM í Japan. Þrátt fyrir það segist Magnús alltaf hafa verið einn. Magnús Scheving Er hann bara í bisness? þess valdandi að þeir frestuðu sínu móti og verður það haldið nú seinna í þessum mánuði. Það mót er viður- kennt af IAF og sigurvegari á því hef- ur rétt til þátttöku á heims- og Evr- ópumótum. Aðrir hafa ekki þann rétt nema umboðsmaður tilnefni þá sérstaklega og það mun einmitt hafa gerst í þessu tilviki undir lokin. Var ekki einn í Japan I blaðaviðtölum efitir keppnina hefur Magnús margoft látið hafa það eftir sér að það hafi ekki verið fýrir tilstilli þessara bréfaskrifa að þau fengu að keppa, heldur hafi þau sjálf bjargað málunum á fimmtudags- kvöldinu fýrir keppni. Þetta kemur illa heim og saman við þá staðreynd að daginn effir, á föstudeginum, báðu formaður Fimleikasambandins og ISl Björn að skrifa út og bjarga málunum. Ellert B. Schram segist vera sann- færður um að þessi bréfaskrif hafi bjargað málunum og MORGUN- PÓSTURINN hefur undir höndum bréf frá AIF sem staðfestir það. Ellert segist vera undrandi á þessum um- mælum Magnúsar. „Ég skil þennan málflutning ekki almennilega,“ segir hann. „Þátttaka keppenda á alþjóð- legum mótum er háð samþykki við- komandi landssambanda, í þessu til- felli Björns Leifssonar. Þetta hlýtur bara að vera einhver misskilningur hjá honum Magnúsi." Þetta er ekki einu ummælin sem koma illa heim og saman hjá þol- fimimeistaranum. Hann hefur til dæmis oft sagt frá því hvernig það var að keppa einn á heimsmeistara- mótinu í fýrra þrátt fýrir að hann hafi í raun haft aðstoðarmann og því ekki verið einn. Þorsteinn Guðjóns- son var með Magnúsi á mótinu og segist hafa verið undrandi á þessu hjá Magnúsi. „Hann sat við hliðina á mér og talaði í símann heim og sagði ffá því hvernig það væri að vera einn þarna úti. Ég varð náttúrlega eitt spurningamerki og spurði hann eftir á hvað hann væri eiginlega að meina. Hann sagði orðrétt: „Taktu þetta ekkert persónulega — þetta er bara bisness.“ „Hefur vaðið uppi með blammermgar“ Ágústa Johnson rekur líkams- ræktarstöð og er því í beinni sam- keppni við þá félaga, en eins og fram kom í MORGUNPÓSTINUM á mánu- dag, er Björn eigandi World Class og Magnús eigandi Aerobic Sport. Hún segir að Björn hafi staðið sig vel sem umboðsmaður IAF hér á landi. „Hann er aðeins að gæta þeirra hags- muna IAF að aðeins þeir sem hafa á því rétt fái að keppa á þessum mót- urn. Þetta eru bara reglur og þeim verður að ffamfýlgja rétt eins og í öll- um öðrum íþróttum.“ Áttu von á því að deilurnar leysist á nœstunni? „Ég sé ekki hvernig það ætti að vera. Magnús er allur í klögumálun- um og í sínum vælutón er hann allt- af að finna einhvern blóraböggul. Framkoma hans er oft mjög barna- leg og minnir mig meira á leikskóla- krakka en íþróttamann. Ég er líka mjög undrandi á því hvernig hann hefúr fengið að vaða uppi í fjölmiðl- um með þessar blammeringar sín- ar,“ segir hún. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanns tókst ekki að ná tali af Magnúsi við vinnslu þessarar fréttar, þrátt fyrir að lögð hafi verið fýrir hann skilaboð.“ Bih Ágústa Johnson „Björn hefur staðið sig vel.“ Ellert B. Schram „Þetta hlýtur bara að vera einhver misskilning- ur hjá honum Magnúsi." Júlíus Eggertsson viðurkennir fjármögnun á innflutningi ffkniefna. Flutti inn 380 grömm af spftti til að fjármagna innflutning á 4 kílóum af hassi, hálfu kílói af am- fetamfni og 50 grömmum af kóki Tuttuguföld hagnaðarvon Innkaupsverðið rúm milljón - söluverðmætið 20 milljónir. Júlíus Kristófer Eggertsson hefur viðurkennt að hafa fjármagn- að innflutning á rúmlega 4 kílóum af hassi, 535 grömmum af amfetam- íni og um 50 grömmum af kókaíni, auk 380 gramma innflutning á am- fetamíni í nóvember. Það var hundur Tollgæslunnar sem fann efnin þriðjudaginn 14. febrúar. Þau voru falin í fragt sem kom með Brúarfossi á sunnudags- kvöldið en það skip fer á Hamborg, Rotterdam og Inningham sem er rétt hjá Grimsby og Hull. Efnin voru send til Hafnarfjarðar þar sem þau voru tollafgreidd. Þeim sem náði í efnin var fýlgt eftir, brotist var inn á heimili hans og í kjölfarið voru þrír 22 ára gamlir piltar úr- skurðaðir í gæsluvarðhald í hádeg- inu á fimmtudag til tveggja vikna, Júlíus, Guðni Magnússon og Hörður Lýðsson. Strax um helgina voru þeir allir látnir lausir þar sem játningar lágu fyrir. Júlíus játaði á sig fjármögnun á innflutningnum og að þremenn- ingarnir hefðu í lok nóvember flutt inn 380 grömm af amfetamíni. Samkvæmt traustum heimildum blaðsins taldi fíkniefnadeildin að aðrir og stærri aðilar stæðu á bak við strákana en þeim tókst ekki að hafa hendur í hári slíkra rnanna, enda lágu játningar fyrir. Algengt kaupverð á fjórum kíló- um af hassi í Hollandi er um 800 þúsund krónur. Söluverð á götunni er hins vegar 1500-2000 krónur og sé miðað við 1800 krónur væri söluverðmætið því 7,2 milljónir króna. 815 grömm af amfetamíni má kaupa á 250-300 þúsund krón- ur í Hollandi en sé það þrefaldað með aukaefnum og selt á götunni fýrir 5000 krónur grammið er sölu- verðmætið orðið 12,2 milljónir króna. Söluverðmæti á 50 grömm- um af kókaíni, drýgt til helminga, er um ein milljón króna. Sam- kvæmt upplýsingum blaðsins var hvíta efnið mjög gott í þessu tilviki. Innkaupsverð á efnunum hefur því varla verið meira en rétt rúm millj- ón króna en söluverð á götunni yfir 20 milljónir króna. -pj

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.