Helgarpósturinn - 02.03.1995, Blaðsíða 22
22
MORGUNPÓSTURINN
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995
Allar götur síðan bandarískir
hermenn settust að hér á landi og
buðu fslendingum upp á jórtur-
gúmí má segja að íslendingar hafi
komist á bragð bandarískrar mat-
armcnningar. Jafnvel þótt amer-
iskra áhrifa hafi farið að gæta á fs-
landi nokkru fyrir komu hersins,
til að mynda með sveiflunni, hefur
amerísk matarmenning smátt og
smátt verið að seytlast inn í vitund
landsmanna. Jórturgúmíið sló
fyrst í gegn. En síðan þá má segja
að fslendingar hafi orðið mettir af
amerískum mat (langtímajórtur
vekur nefnilega upp svengd).
Burtséð frá skyndibitastöðunum
sem buðu upp á hamborgara og
franskar, djúpsteiktan fisk og
fleira til, fór nautasteikin sigurför
um veitingahús bæjarins í bland
við franska matargerðarlist.
Nú er hins vegar svo komið að
heilt þorp amerískra veitingastaða
innfluttra, svo að segja í heilu lagi,
til fslands er að finna við Grensás-
veginn og í námunda við hann.
Fyrsti ameríski veitingastaðurinn
sem fluttur var inn til fslands í heilu
lagi er Kentucky Fried Chicken,
fyrir tilstilli Helga í Góu og Jóns í
Skalla. Upphaflega var honum
plantað niður
árið HjXo í lilln J§|
luisnæði við
WjBmj
vegiiiii i I l.iln I
arlirði, en B
nokkru siðar I
sinn uFjXgsmBUjjlh
lilut og llclgi WAH
tok \ ið. I hans I
lúmdiim cix I
veitingastaðn-
um fiskur um hrygg og fjórum ár-
um síðar færði hann sig um set í
enn stærra húsnæði við Hjalla-
hraun í Hafnarfirði, en er auk þess
nú að finna Kentucky Fried í Faxa-
feni 2, og á Selfossi var Kentucky
opnað fyrir tveimur árum. Tómas
A. Tómasson varð næstur í röð-
inni að brydda upp á amerískri nýj-
ung, en þó ekki hreinræktaðri, þeg-
ar hann opnaði Tomma-hamborg-
ara. Engu að síður fundu íslending-
ar amerískt bragð af hamborgaran-
um og veitingastaðir hans slógu í
gegn svo um munaði. Fjölmörg af-
kvæmi fyrsta Tomma-hamborga-
rastaðarins sem opnaði fyrst við
Grensásveginn opnuðu um allt
Stór- Reykjavíkursvæðið og víðar.
Það var þó ekki fyrr en 1987 að
Tómas Andri flutti hingað til lands
Hard Rock Café í heilu lagi. í milli-
tíðinni kom pizzan til landsins.
Þótt margir viti ekki betur en að
hún sé ítölsk að uppruna er raunin
sú að ekkert er amerískara en pizz-
an. Veitingastaðurinn Pizza-Hut
eftir amerískri forskrift opnaði hér-
lendis árið 1988. En þrátt fyrir fjöl-
marga pizzustaði eru nú starfandi
aðeins tveir amerískir pizzustaðir
ættaðir frá ameríku. Hinn, Dom-
ino’s Pizza, opnaði fyrir tveimur
árum. Hann er finna í hringiðu
amerískrar matarmenningar á
Grensásveginum 11. Aðeins nokkr-
um húsröðum lengra opnaði fyrr-
um framkvæmdastjóri Domino’s,
Bjarni Kristjánsson, BK- kjúk-
linga sem einnig ganga undir Bost-
on-kjúklingar og koma beinustu
leið frá Ameríku. Þá má ekki
ð verðlaunabó
0 f I 0 f u
Leena Lander:
Heimili dökku fiðrildanna
Forlagið 1995
★
Skáldsaga Leenu Lander hlaut að
minnsta kosti tvenn meiriháttar
verðlaun í heimalandi sínu og var
framlag Finna til Bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs 1993, en
hlaut ekki verðlaunin. Bókin er bók
marsmánaðar hjá Forlaginu og í
byrjun þess mánaðar frumsýnir
Borgarleikhúsið leikgerð sögunnar.
Einnig má geta þess að kvikmynda-
fýrirtæki í Hollywood mun ætla sér
að kvikmynda söguna enda er næg-
ur dramatískur efniviður í boði.
Aðalpersóna bókarinnar er Ju-
hani Johansson verkfræðingur sem
minnist æsku sinnar og þess tíma er
hann var tekinn ffá foreldrum sín-
um og sendur á upptökuheimili.
Hann býr þar í nokkur ár á eyju þar
sem forstöðumaðurinn Sebaót
ræktar silkifiðrildi sem bera svarta
vængi þegar þau koma úr púpun-
um. Eins og fiðrildin komast dreng-
irnir ekki óskaddaðir frá veru sinni á
eyjunni þar sem menn svíkja, pynta
og myrða.
Ég fæ ekki neitað því að mér þyk-
ir bók Leenu Lander nokkuð oflof-
uð. Það gerist að vísu margt átakan-
legt í sögu þar sem allir þjást af ást-
leysi, missi eða einmanakennd.
Þetta er allt grimmt og hart eins og
heimurinn er víst. Svo má víða þefa
upp symbólisma sem vísast á að
gera söguna flotta og verðlaunalega.
Einhvern veginn er það nú svo að
allt þetta verður aldrei nægilega
áhugavert. Það vantar allan kraft í
persónusköpun og reyndar eru per-
sónurnar yfirleitt sérlega klisju-
kenndar og þrátt fyrir allan djöfúl-
ganginn sem þær ganga í gegnum er
ósköp erfitt að láta sig þær nokkru
varða. 1 reynd fannst mér þetta sam-
tíningur héðan og þaðan, meðal
annars frá Oliver Twist, Flugna-
höfðingjanum og Frídags frú Larson
(ef einhver man eftir henni). Höf-
undur bindur þetta innihald sitt í
skandinaviskan vandamálapakka
sem mörgum okkar hefur fyrir
löngu hætt að þykja fengur að.
Nú hafa norrænir gagnrýnendur
fallið fyrir bókinni og ég geri ráð
fyrir að hið sama gerist hér á landi.
Ég tel einnig víst að mörgum al-
k
mennum lesendum muni falla þessi
bók vel í geð. Þeir munu telja hana
grimmt og áleitið verk sem fjalli um
baráttu góðs og ills og varpi fram
þýðingarmiklum spurningum um
sekt og ábyrgð manneskjunnar bæði
gagnvart öðrum manneskjum og
umhverfi sínu. Vissulega er verið að
fjalla um þessa hluti en að mínu
mati er það ekki gert af nægilegum
hæfileikum og stíll höfundár dregur
enn frekar úr áhuga mínum; er
þunglamalegur og oft tilgerðarleg-
ur.
Þetta er bók sem ég myndi gefa
Dagnýju Kristjánsdóttur og Soff-
íu Auði Birgisdóttur í afmælis-
gjöf í fullvissu þess að þeim
þætti þetta grimmt, áleitið og
sterkt verk. Eins og svo oft áður
fiðrildanna
munu skoðanir okkar ekki fara
saman. Þetta er ein af oflofuðu
verðlaunabókunum.
gleyma Southern Fried Chicken í
Hafnarstræti sem einnig er nokkuð
vinsæl veitingahúsakeðja í Banda-
ríkjunum. Sú keðja náði hingað um
það bil tveimur árum eftir að kjúk-
lingastaðurinn í Hafnarfirði varð
að veruleika. 1 veitingahúsahverf-
inu við Suðurlandsbraut, skammt
frá Faxafeninu og Grensásveginum
er að finna tvo ameríska veitinga-
staði til viðbótar, og kannski þá
allra amerísku; annars vegar
McDonalds, sem íslendingar hafa
þar til hann opnaði á Islandi, þegar
belgt sig út af hvar sem þeir hafa
komið við í heiminum, og hins
vegar veitingastaðurinn Subway,
samlokustaðurinn heimsfrægi sem
opnaði nánar tiltekið 11. september
1994. Þegar síðast fréttist, og það
var bara núna í vikunni, var búið að
opna 10.071 Subway-veitingastað í
heiminum. Að undanförnu hefur
nýr verið að opna á fimm klukku-
stunda fresti. Til gamans má geta
að uppselt er á ameríska söngleik-
inn West Side Story langt fram í
tímann. GK