Helgarpósturinn - 02.03.1995, Page 15
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
15
Miklar deilur hafa veriö um jörðina Flatey á Mýrum í Austur-
Skaftafellssýslum og hafa héraðshöfðingjar haft afskipti af málinu
Talin hafa fengið
þriðjung sveitar-
innará
Miklar bréfaskriftir hafa að und-
anförnu gengið á milli landbúnað-
arráðuneytisins, hreppsnefnd
Mýrahrepps og núverandi bæjar-
stjórnar Hafnarbæjar, og ábúenda
jarðarinnar Fitja í Mýrum í Austur-
Skaftafellssýslu. Eru hörð átök um
jörðina sem er ein af stærstu jörð-
um landsins. Telja heimamenn að
nýr ábúandi sé að fá jörðina á gjaf-
verði með fúlltingi pólitískra sam-
verkamanna á meðan réttmætum
ábúendum sé úthýst.
Upphaf málsins má rekja allt aft-
ur til þess er ríkissjóður keypti jörð-
ina árið 1973 en Flatey er skipt upp í
býli merkt I. II. og III. Harðindi
höfðu verið þar á undan og ábú-
endur teknir að reskjast og því
hafði þótt góð lausn að selja jörðina
að fengum tryggingum fyrir lífstíð-
arábúendarétt. Jörðin var seld gegn
vægu gjaldi en jörðin og býli út úr
henni jafngilda um þriðjungi af
hreppnum. Þar er þó um að ræða
mikið fjalllendi og mýrar.
Frá og með 1987 hefur Óli Þ.
Óskarsson haft nytjar af jörðinni
og rekið þar graskögglaverksmiðju
um leið og hann hefur reynt fyrir
sér með íiskeldi. Hvorugt hefur
gengið vel enda botninn dottið úr
graskögglaframleiðslu á síðustu ár-
um. Sagðist Óli hafa framleitt þegar
mest var 1250 tonn í verksmiðjunni
en framleiðslan í fyrra hefði verið
100 tonn. „Þetta er ekki beysinn
rekstur núna.“
hins vegar samningnum og leit Páll
þá svo á að hann væri úr sögunni
enda mjög ósáttur við hann.
Landbúnaðarráðuneytið sendi
hins vegar samninginn á ný til
sveitarstjórnar 30. nóvember síð-
astliðinn, án nokkurs samráðs við
Pál. Að sögn Jóns Höskuldssonar
í landbúnaðarráðuneytinu þá var
það gert eftir að ákvæðum samn-
ingsins hafði verið breytt og því
þótti ekki óeðlilegt að bera hann á
ný undir viðkomandi sveitarstjórn.
í janúar 1992 hafði hins vegar land-
búnaðarráðherra og Óli gert leigu-
samning um not afþeim hluta jarð-
arinnar sem Páll hafði áður haft til
nota. Páll fékk að halda eftir húsun-
um og 5 hektara heimatúni.
Töldu samninginn
fallinn úr gildi
I bréfi lögmanns Páls til Iand-
búnaðarráðuneytisins frá 29. des-
ember síðastliðnum kemur fram
það álit lögmannsins, Vilhjálms
Árnasonar hæstaréttarlögmanns,
að samningurinn hafi aldrei fengið
gildi. Segir þar í bréfinu: „Það er og
álit umbjóðanda okkar, að ráðuneyt-
ið geti ekki upp á sitt einsdœmi og án
samráðs við hann ákveðið að láta á
það reyna hvort sú ráðstöfun jarðar-
innar, sem samningurinn frá 1991
kvað á um, fáist nú samþykkt af
sveitarstjórn hins nýja sveitarfélags.
Umbjóðandi okkar bendir á, að utn
þrjú ár hafa liðiðfrá því að satnning-
Héraðshöfðingjar takast
Egill Jónsson. Héraðshöfðingi
sem er talinn styðja sjálfstæðis-
manninn.
Með þeim sölusamningi sem
gerður var árið 1973 við Landnám
ríkisins áttu þeir Guðjón Jónsson
og Páll Ingvarsson að hafa lífstíð-
arafnot af jörðinni. Nytjar þeirra
voru hins vegar litlar og síðar kom
Óli til sögunnar en hann hefur, eins
og áður segir, haft jörðina til nytja.
Guðjón hefur-samþykkt að Óli taki
yfir hans hluta jarðarinnar en Páll
flutti af jörðinni ög 18. desember
árið 1991 kom fulltrúi landbúnaðar-
ráðuneytisins til hans á vinnustað á
Höfn í Hornafirði og fékk hann til
að undirrita nýjan leigusamning,
sem hann telur mun óhagstæðari.
Þessi leigusamningur var sendur
hreppsnefnd Mýrahrepps til stað-
festingar. Hreppsnefndin hafnaði
Halldór Asgrímsson, héraðshöfð-
ingi. „Þeir höfðu aila möguleika til
að skapa frið þarna en hefur ein-
faldlega ekki tekist það.“
urinn var gerður og frá því að hott-
um var hafnað af sveitarstjórn með
þeim rökum að efni hatts væri and-
stœtt hagsmuttum sveitarféiagsins."
Til að flækja málið er á jörðinni
um 100 hektara spilda sem hefur
verið ræktuð upp í félagi bænda í
sveitinni og vilja þeir fá að nýta
hana áfram.
Aðspurður sagðist Jón Hösk1
uldsson hafna því að vinnubrögð
ráðuneytisins í þessu máli væru-
óeðlileg á einhvern máta. Hann
sagði að Óli hefði sóst eftir að fá að
nýta jörðina og í Ijósi þess að hon-
um hefði verið seld þarna gras-
kögglaverksmiðja á sínum tíma
hefði ekki verið óeðlilegt að gefa
honum kost á að auka not sín af
Jörðin Fitjar er mikil kostajörð og rúmlega þriðjungur Mýrahrepps sem
áður var.
jörðinni, það væri liður í að halda
henni í byggð.
Samkvæmt leigusamningi leigir
Óli stóra hluta jarðarinnar Flatey I,
Flatey II og III, ásamt Eskey og
Heiðnabergi og fyrir þetta greiðir
hann 82.770 krónur á ári en vana-
lega er miðað við 3 prósent af fast-
eignaverði í tilvikum sem þessum.
Mikil samkeppni var um jörðina og
verksmiðjuna á sínum tíma. Óli var
hæstbjóðandi en samkvæmt heim-
ildum MORGUNPÓSTSINS þá
hefur hann aðeins hluta
kaupverðsins og fjármála-
ráðuneytið afskrifað háar
upphæðir vegna kaupanna.
Óli sagðist hafa borgað allt í
allt um 20 milljónir króna en
staðfesti að ráðuneytið hefði
fellt niður nokkuð af verðbót-
unum.
Héraðshöfðingjar
koma að málmu
En eins og áður segir
blandast pólitík inn í málið.
Óli var í 10. sæti á lista sjálf-
stæðismanna í sveitarstjórn-
arkosningum á Hornafirði í
fyrra og segja heimamenn að
hann njóti aðstoðar Egils
Jónssonar á Seljavöllum, al-
þingismanns og héraðshöfð-
ingja.
Hinir aðilar málsins, sem
sækja frændsemi til Páls, hafa
leitað til Halldórs Ásgríms-
sonar. Hann sagðist lítið hafa
skipt sér af málinu en að-
spurður um álit á afskiptum
ráðuneytisins sagði hann.
„Ráðuneytið og þá sérstaklega
fjármálaráðuneytið á sínum
tíma stóðu ekki rétt að mál-
um á sínum tíma. Eitt er víst
að þeim hefur ekki tekist að
skapa frið í málinu. Þeir
höfðu alla moguleika til að
skapa frið þarná en hefur ein-
faldlega ekki tekist það,“ sagði
Halldór.
En Óli telur.sjálfur að und-
irrótin að erjunum séu við-
brögð við aðkomumanni.
„Fólk úr síðustu hreppsnefnd
virðist sjá ofsjónir yfir því sem
ég hef verið að gera þarna. Ef
maður kemur úr Garðabæn-
um á að setja manni stólinn fyrir
dyrnar." Óli sagðist hafa gefið eftir
á ýmsum sviðum til að liðka fýrir
svo sem að leyfa beit í landinu eins
og kæmi fram í viðaukasamningi.
Og aðspurður um það hvort hann
fengi jörðina á gjafverði sagði hann
að mikið af þessu landi væri örfoka
sandar sem enginn gæti nýtt. Það
væri því skrýtið hvað viðleitni til að
nýta landið undir fiskeldi kallaði á
harkaleg viðbrögð.
SMJ
Lendar elskhuqans
Kjartan Ragnarsson leikstjóri er
að gera leikgerð að Grandavegi 7,
skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur
sem kom út fyrir jólin við fádæma
góðar viðtökur og hreppti íslensku
bókmenntaverðlaunin. Ekki er ýkja
langt síðan Hávar Sigurjónsson
leikstjóri gerði leikgerð upp úr
skáldsögu hennar um ísbjörgu og
lengi hefur verið í bígerð að gera
kvikmynd upp úr Kaldaljósi, fyrstu
skáldsögu hennar en það er Hilm-
ar Oddsson sem stjórnar þeirri
framkvæmd. Hins vegar verður
Ijóðabók hennar, Lendar elskhug-
ans, færð á svið nú í mars og þar
spreyta sig leikkonurnar, Steinunn
Ólína ÞorsteinsdóttirJngrid
Jónsdóttir og sennilega Guðrún
Gísladóttir en hún á eftir að gefa
Sólrún úti í kuldanum
endanlegt svar. ÁsdIs Þórhalls-
dóttir leikstýrir verkinu en hún út-
bjó leikgerðina ásamt Kristínu
Ómarsdóttur.
Sýning (slensku óperunnar á La Traviata hefur
fengið feiknagóðar viðtökur enda eru það
engir aukvisar sem koma að þeirri sýn-
ingu, Það vekur hins vegar athygli að
skipt er út reglulega í aðalhlutverkum
karlsöngvara meðan Diddú situr ein að
aðal kvenhlutverkinu. Diddú er vissu-
lega ein okkar besta söngkona en
önnur góð söngkona sem er Sólrún
Bragadóttir gerir það gott í óperu-
húsum í Evrópu en fær aldrei tilboð um
að syngja í íslensku óperunni hér
heima. Hún hefur einu sinni orðið svo
fræg að syngja þar og þá í þremur sýning-
um á Rigoletto, af einhverjum ástæðum var
nafns hennar sjaldan eða aldrei getið í umfjöllun
um sýninguna. Kjaftasagan segir að þetta sé vegna
þess að hún sé í ónáð hjá aðalsöngkonunni frá upphafi, sem gegnir nú
hlutverki óperustjóra, það er Ólafar Kolbrúnar Harðardóttúr.
Af Kvaranklettinum óhagganlega
Þegar Samband ís-
lenskra myndlistar-
manna gerði athuga-
semd við að Menn-
ingarmálanefnd
Reykjavíkurborgar
hugðist endurráða
Gunnar Kvaran án
þess að staða for-
stöðumanns Kjarvals-
staða væri auglýst,
var tekin sú ákvörðun
hjá borginni að aug-
lýsa eftir fleiri um-
sækjendum. Það var
gert en sú auglýsing
birtist aðeins einu
sinni og að afloknum
umsóknarfresti voru
aðeins tveir umsækj-
endur í pottinum, Hannes Sigurðs-
son og Gunnar. Þá komu umsókn-
irnar inn á borð hjá
sömu nefndinni og
áður var búin að lýsa
yfir vilja sínum til að
endurráða Gunnar og
lauk hún verkinu. For-
stöðumaður Kjarvals-
staða skyidi vera
Gunnar Kvaran. Það
sem mönnum þykir
þó athyglisverðast er
að ekki nema tveir
ágirntust þessa stöðu
en til samanburðar þá
sóttu fjölmargir um
starf framkvæmda-
stjóra Útvarps. Þar
kemur örugglega
tvennt til. Staðan var
illa auglýstog Kvaran-
veldið er svo að segja óhagganlegt
í myndlistinni.
Lesið
Morgunpóstinn
tvi s va r!
mmMorgun A \
Posiurmn