Helgarpósturinn - 02.03.1995, Side 20
20
MORGUNPÓSTURINN
FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995
hefur fyrir löngu unnið sér sess sem einn
besti blaðaljósmyndari landsins.
Hann á 20 ara starfsafmæli á þessu ári
oa af því tilefni dustaði hann rykið
af nokkrum myndum úr safninu sínu.
Litríkar Ijósmyndir í svait/hvftu
Ég var að vinna sem auglýsingateiknari hjá Dagblciðinu
og Vikunni þegar ég var spurður hvort ég kynni að taka
myndir. Ég sagði að ég gæti allavega reynt það og hef
starfað sem ljósmyndari síðan,“ segir Jim Smart ljós-
myndari MORGUNPÓSTSINS sem heldur upp á 20 ára
starfsafmælið sitt um þessar mundir. Dagblaðið var þá ný-
stofnað og deildi húsnæði með Vikunni í Síðumúlanum.
Engin aðstaða var fyrir ljósmyndara í húsinu og Jim fram-
kallaði fyrstu fílmurnar sínar inni á klósetti í kjallaranum.
„Ég hafði aðeins lært undirstöðuatriðin í ljósmyndun í
auglýsingateiknaraskóla í Englandi og fyrstu myndirnar
sem ég tók fyrir Vikuna voru hræðilegar. Eina myndavél-
in sem ég átti var gömul rússnesk Zenith-vél en engu að
síður var ég ráðinn."
Jim á sér skrautlegan feril bæði í lífi og starfi en hann
var atvinnudansari í Englandi þegar hann kynntist verð-
andi konu sinni og elti hana til Islands. Síðan hefur hann
unnið sér sess sem einn besti blaðaljósmyndari landsins
og fáir komast með tærnar þar sem hann hefur hælana í
portret-ljósmyndun. Eftir að hafa unnið í 5 ár á Vikunni lá
leið hans yfir á Helgarpóstinn, Þjóðviljann, Pressuna og
loks MORGUNPÓSTINN. „Ég syng á meðan ég er að taka
myndir af fólkinu sem situr fyrir og segi því brandara.
Þannig reyni ég að fá það til að vera ekki eins meðvitað
um sjálft sig og slappa af,“ segir Jim þegar hann reynir að
útskýra galdurinn á bakvið myndirnar sínar. „Ég held líka
að sumum finnist ég tala svo skrítna íslensku að þeir verði
hálf hissa. Ef sá sem situr fyrir er ekki afslappaður gagn-
vart þér þá verður myndin ekki góð sama hvað þú tekur
margar filmur. I’etta er eins og að slá golfbolta, annað
hvort hittir þú hann rétt eða ekki. Ég veit offast hvort
myndin virkar eða ekki um leið og ég tek hana.
Það er svo mikill hraði í blaðaljósmynduninni að yfír-
leitt gef ég mér ekki meira en korter í hverja myndatöku.
Ég vinn nær eingöngu með náttúrulegt ljós og undirlýsi ef
ekki býður betur við og yfirframkalla síðan í myrkraher-
berginu. Mér finnst flass taka allt líf úr myndum og mér er
sama þótt þær séu dökkar og grófkornaðar ef ljósið er
náttúrulegt. Það er meiri mystík í dökkum
myndum og stundum þarf bara að lýsa
upp brot af myndfletinum til að segja alla
söguna.“ Hér á opnunni rifjar Jim upp
nokkrar af myndunum frá ferli sínum sem
einn litríkasti blaðaljósmyndari á Islandi,
þótt hann taki allt í svart/hvítu.
Gunnar Huseby „Gunnar
Huseby gat ekki skilið af
hverju ég fór með hann,
gamla Ólympíumeistarann
inn í þvottahús til að
mynda hann en kanski eru
það andstæðurnar sem
gera myndina að því sem
hún er.“
Finnur Jónsson „Þetta er
enn ein af uþþáhalds mynd-
unum mínum en ég tók
hana þegar ég var enn að
vinna á Vikunni."
Módel „Mannslíkaminn
þýður upp á endalausa
möguleika við myndatökur.
Ég horfi á hann svipuðum
augum og landslag. Það er
ekkert snjókorn eins.“
Bjarni Guðmarsson og Hrafn Jökulsson „Það skemmtilega við að
taka þessa mynd var að ég vissi ekkert hvaða strákar þetta voru en stærð-
ar munurinn á þeim var svo áberandi."