Helgarpósturinn - 02.03.1995, Blaðsíða 32
Jóhann risi á Internetið
Intemetið er kjörinn vettvangur til að lauma alls kyns upp-
lýsingum inn á fólk sem það mundi annars ekki bera sig
eftir. Daivíkingurinn Júuus Júlíusson fékk snjalla hug-
mynd til að koma heimabæ sínum á kortið og tók saman
allar upplýsingar sem hann gat komið höndum yfir um
Jóhann risa Pétursson. Jóhann var stærsti maður í heimi
á sínum tíma en hann var búsettur í Dalvík. Pær 30 millj-
ónir sem hafa aðgang að Internetinu og vilja kynna sér
sögu stærsta manns í heimi fá því nú óvæntan glaðning
um Dalvík í leiðinni...
Valur Magnússon Séður í viðskiptunum. Guðmundur Stein-
grímsson Hermannssonar er formannsefni Röskvu í stúdentaráði
Var boðið 5. sætið
rétt áður en listinn
var kynntur
Flokksforysta Þjóðvaka gerir það
ekki endasleppt þegar kemur að því
að manna framboðslista hreyfmg-
arinnar fyrir komandi alþingis-
kosningar. Síðasta laugardag var
kynnt hverjir skipa efstu sæti hjá
Þjóðvaka í Reykjavík. Eitthvað hef-
ur gengið brösuglega að finna væn-
lega kandídata á listann því aðeins
tveimur klukkustund-
um áður en hann
var tilkynntur
hringdi Ásta
Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, sem
skipar 2. sæti listans, í
ungan sálfræðinema að
nafni Helena Jónsdóttir
og bauð henni að taka 5. sæti list-
ans. MORGUNPÓSTURINN hafði
samband við Helenu sem staðfesti
að þetta væri rétt en vildi ekki segja
annað um málið en að hún hefði
aldrei komið nálægt starfi Þjóðvaka
og að hún hefði hafnað tilboðinu
nánast samstundis. Helena hefur
ekki komið nálægt stjórnmálum
svo teljandi sé, utan það að hún sit-
ur sem fulltrúi óháðra í stúdenta-
ráði. Þess má geta að Lára V. Júlí-
usdóttir lögfræðingur tók sætið
sem Helena hafnaði.
Sonur Steingríms Her-
mannssonar heitastur
í formannsembættið
Eftir glæsilegan sigur Röskvu í
Háskólakosningunum er ljóst að
maður úr þeirra röðum mun áfram
gegna embætti formanns Stúdenta-
ráðs. Dagur B. Eggertsson hefur
sinnt starfinu af mikilli röggsemi í
vetur og mun sitja í sæti formanns-
ins út þetta skólaár eins og lög gera
ráð fyrir. Menn eru hins vegar þeg-
ar farnir að velta fyrir sér hver muni
taka við honum og þykja þrír koma
helst til greina. Þeir eru: Kamilla
Rún Jóhannsdóttir sálfræðinemi,
Kjartan Örn Ólafsson heimspeki-
nemi, og sonur Ólafs Ragnars-
sonar í Vöku-Helgafelli, og Guð-
mundur Steingrímsson sagn-
fræðinemi og sonur Steingríms
Hermannssonar Seðlabankastjóra
og fyrrverandi forsætisráðherra, en
Guðmundur er sjálfsagt best þekkt-
ur sem harmonikkuleikarinn úr
kaffihúsahljómsveitinni Skárr’n
ekkert. Af þessum þremur þykir
Guðmundur heitastur í formanns-
stólinn enda af mikilli forystuætt.
Vaiur skaut öðrum
veitingamönnum ref
fyrir rass
Þessa viku hefur verið lengur
opið fram eftir nóttu á Kaffi
Reykjavík en öðrum stöðum, eða
til þrjú eftir miðnætti þegar aðrir
hafa þurft að skella í lás klukkan
eitt. Valur Magnússon, vert á
Kaffi Reykjavík, þykir þarna hafa
skotið kollegum sínum aldeilis ref
fyrir rass en hann var einn nógu
séður til þess að átta sig á því að yf-
irvöld myndu pottþétt bráðna fyrir
því að gefa grænt ljós fyrir rýmri
opnunartíma ef beiðnin yrði rök-
studd með því að þessa viku fer
fram þing Norðurlandaráðs. Ekki
fer miklum sögum af mætingu
Norðurlandaþingmannanna en
hins vegar hafa blaðamenn og aðrar
aukapersónur sem þinginu fylgja
mætt vel.
Bankastjórar
Flugleiða
Á árshátíð Flug-
leiða um síðustu
helgi var boðið upp
á skemmtiatriði
starfsmanna. Að
venju var nokkur broddur í þeim
sumum eins og þegar gert var grín
að jeppakaupum háborðsins en þó
ekki síst „bankastjórum" Flugleiða.
Þetta er uppnefni sem flugstjórarn-
ir mega búa við og kemur til af
framferði þeirra sumra á ferðum
erlendis. Er sagt að þeir eigi til að
banka hressilega á dyr veikara kyns-
ins þegar gleðskapurinn fer að
nálgast hámark.
Hótel Island var yfirfullt af Norðurlandabúum f gærkvöld. Nálægt
þúsund manns í kjól og hvftt var boðið upp á drykk og með’f á Soka-
hófi Norðurlandaþings sem fram fór á Hótel íslandi.J.eiða má Ifkum
að þvf að flestir þeir sem strengdu þess heit að f
áramótin hafi fallið á kúrnum í gærkvöld
di.leh
aréín,
egrun um
Hetja Norðurlandaþingsins er án vafa Einar Már Guðmundsson rithöf-
undur sem tók við bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs í tengslum
við þingið. Geta má sér til að á þessari stundu sé Einar að reyna að
lesa í matinn. íslendingar lásu fyrr á öldum gjarnan í garnir.
Er það ef til vill Olafur G. Einarsson menntamálaráðherra sem tekur að
sér að falla á megrunarkúrnum í stað Davíðs? Gro sá um að falla fyrir
samanskri svínafitu á dögunum.
lendinga í Norðurlandasamstarfi
hlýtur þó að teljast vera sú stað-
reynd að á meðan að íslendingar
leggja til aðeins 1 prósent, eða inn-
an við það, til Norðurlandasam-
starfsins fá þeir á milli 4 til 7 pró-
sent af kökunni til baka. Heildar-
fjárlög til Norðurlandasamstarfsins
í ár eru um 7,5 milljarðar, þar af
greiða Islendingar 73 milljónir en fá
til baka á milli 280 til jafnvel 500
milljónir með einum eða öðrum
hætti. Þá má ekki gleyma því að ís-
lendingar hafa dágóðar tekjur af
komu 700 ferðamanna til Islands,
svona á miðjum dauðyflistímum.
Það er margt sem íslendingar
eiga sameiginlegt með norrænum
frændum sínum. Flestum yfirsést
hið augljósa sem er auðvitað það að
bæði forsætisráðherra íslands og
Noregs hafa verið í ströngum
megrunarkúr frá því eftir jól. Þegar
Gro Harlem Brundtland sprakk á
sínum kúr í síðustu viku voru fjöl-
miðlar ekki lengi á bragðið. Sam-
stundis var það á allra vitorði um
gervöll Norðurlöndin er Gro
snæddi svínfeita Samamáltíð í
heimsókn sinni til Samahéraða
Noregs. Ekki hefur fjölmiðlum enn
tekist að góma Davíð Oddsson á
sams konar narti. Vonandi er hann
þó sterkari á svellinu en sú norska í
ölium veisluhöldunum sem fylgt
hafa Norðurlandaþinginu undan-
farna daga.
Annars fór lokahóf Norður-
landaþingsins, sem slitið er í dag,
fram á Hótel Islandi í gærkvöld í
boði norrænu sendiherranna. Til
veislunnar var boðið þúsund
manns sem með einum eða öðrum
hætti hafa tengst Norðurlanda-
þinginu í drykk og pinnamat. En
þess má geta að 700 manns sóttu Is-
land eingöngu í tilefni þingsins.
Ekki er vitað hvernig hlutfall þeirra
skiptist á milli Norðurlandaþjóð-
Forseti Norðurlandaráðs, Gelr H.
Harde, lítur virðulegur yfir farinn
veg. Þarna er hann meðal annars
í félagsskap Guðmundar Bene-
diktssonar, fyrrverandi ráðuneyt-
isstjóra í forsætisráðuneytinu.
anna. Þó er vitað að fæstir komu frá
Finnlandi vegna þess einfaldlega að
öll orka Finna fer í kosningabarátt-
una sem þar er komin á fuilt skrið.
Þótt ekki komi það beint Norð-
urlandaþinginu við, og þó, þegar
grannt má benda á það að fjöl-
margir hálf-Danir búa á íslandi.
Það kom enda í ljós á dögunum að
íslendingar þiggja ekki bara danskt
sæði úr dönskum sæðisbönkum,
danska peninga heldur og danskar
augnhimnur til ígræðslu úr dönsk-
um augnbönkum. Mestur akkur Is-
Veðrið
Horfur á föstudag: Hæg breyti-
leg átt og léttskýjað um vestan-
vert landið en hæg norðlæg átt
um austanvert landlð, él norðan-
lands en léttskýjað suðaustan-
lands. Frost 5-15 stig.
Horfur á sunnudag: Norðaustan
kaldi eða stinningskaldi en all-
hvasst við austurströndina. Élja-
gangur um norðan- og austanvert
landið en þurrt og víðast léttskýj-
að suðvestan- og vestanlands.
Frost 2-12 stig.
Kul Kaldi Stormur Hiti Frost
Bjart Hélfskýjað Skýjað Rigning Snjór
Horfur á laugardag: Austlæg átt,
allhvöss eða hvöss við suður-
ströndina en annars heldur hæg-
ari. Þurrt að mestu um vestanvert
landið en annars víða snjókoma
eða éljagangur. Frost 1-10 stig.
SPURT ER:
Heldurðu að löggan ráði við
að leysa ránið í Lœkjargötu?
99 19 19
39,90 krónur mínútan