Helgarpósturinn - 25.05.1995, Síða 22

Helgarpósturinn - 25.05.1995, Síða 22
22 FlmMTUDAGu R25 MIÐVIKUDAGUR 13.30 Alþingi 17.30 Fréttaskeyti 17.35 Leiðarljós 18.20 Táknmálsfréttir 18.30 Völundur 19.00 Nonni 20.00 Fréttir & veður 20.35 Víkingalottó 20.40 Fögnuður frelsis 21.10 Bráðavaktin 21.55 Gefðumér svolitla ást Donovan spilar og syngur og spjallar við Krumma í stofu þess síðarnefnda. 23.00 Ellefufréttir 23.15 Einn-X-Tveir 23.30 Heiðursmenn James Garner í hlutverki dóm- FIMMTUDAGUR 17.15 Einn-X-Tveir (e) 17.30 Fréttaskeyti 17.35 Leiðarljós 18.20 Táknmálsfréttir 18.30 Karlsson á þakinu 19.00 Ferðaleiðir 19.30 Gabbgengið 20.00 Fréttir & veður 20.35 Jón Sigurðsson, maður og foringi Ekta hátíðarþáttur hjá RÚV. 21.35 Frá sköpun til syndaflóðs 23.10 Söngkeppni framhaldsskólanna FÖSTUDAGUR 17.30 Fréttaskeyti 17.35 Leiðarljós 18.20 Táknmálsfréttir 18.30 Draumasteinninn 19.00 Væntingar og vonbrigði 20.00 Fréttir & veður 20.40 Sækjast sér um líkir 21.10 Ráðgátur 22.00 Makleg málagjöld Einhver vesalings bankaræningi á eftirlaunum neyðist til að byrja að vinna aftur. 23.20 Söngkeppni framhaldsskólanna LAUGARDAGUR 09.00 Morgunsjónvarp barnanna 10.45 Hlé 15.00 Hvíta tjaldið (e) 15.30 Mótorsport (e) 16.00 HM í badminton 18.20 Táknmálsfréttir 18.30 Flauel 19.00 StarTrek Klassíker kominn á skjáinn! 20.00 Fréttir & veður 20.35 Lottó 20.45 Simpson 21.15 Kotkarlar „Kanadískur vestri í léttum dúr" 22.55 Lili Marleen Fassbinder og Schygulla í með- algóðu formi. SUMNUDAGUR 09.00 Morgunsjónvarp barnanna 10.25 Hlé 11.00 HMíbadminton 17.30 Belfast - borg úr umsátri (e) 18.10 Hugvekja 18.20 Táknmálsfréttir 18.30 I bænum býr engill Sænsk mynd um barn og bolta. 19.00 Úr ríki náttúrunnar 19.30 Sjálfbjarga systkin 20.00 Fréttir og veður 20.40 Ódáðahraun Síðasti þátturinn. Bömmer. 21.10 Jalna 22.00 Helgarsportið 22.30 Óðal móður minnar Sæmileg frönsk biómynd, alls óskyld Öðali feðranna. Listmálararnir Húbert Nói, Georg Guðni og Tumi fyrir framan hina bráðsmitandi Lappa sína. Þeir Húbert Nói Jóhannesson, Tumi Magnússon og Georg Guðni Hauksson eru allir listmálarar. Þeir eru allir með vinnustofu að Suðurlandsbraut 12 (á fimmtu og sjöttu hæð og engin lyfta pú- ha). Þeir eiga líka allir mág sem heitir Magnús (en eiga eftir að komast að því hvort þetta sé sami Magnúsinn í öllum tilfell- um). Og þeir eiga allir Lappland- er ‘81. Það ku vera Khomeini að kenna. Húbert Nói: „Þeir voru upp- haflega framleiddir fyrir keisar- ann í íran. En á meðan Svíarnir voru að smíða þá kom Khomeini og steypti honum og þá mátti ekki lengur selja hernaðartæki til íran. Þá vildi Gaddhafi kaupa 40 stykki eða eitthvað álíka en þeir þorðu ekki að selja honum þá heldur. Svo þeir voru sendir hingað — í eyðimerkurfelulitum og með olíukæli útaf hitanum og öllu tilheyrandi.“ En þetta eru forljót ferlíki. Ljót- ustu bílar í heimi. Fyrir utan Ford- ana tuo, Zephyr og Pinto að sjdlf- sögðu. Hvert er þó listrœnt gildi Lapplanders? Tumi: „Er það nokkuð? Ég held að þeir hafi fyrst og fremst prakt- ískt gildi.“ Georg Guðni: „Maður getur flutt allt í þeim og sofið í þeim líka.“ Húbert Nói: „Þeir eru líka mik- il túristaattraksjón. Maður vakn- ar stundum um miðja nótt og heldur að það sé komið eldinga- veður en þá eru þetta einhverjir túristar sem hafa læðst að bíln- um í skjóli nætur til að taka rnyndir." Georg Guðni: Svo hrekkur maður líka upp stundum og heldur að það sé kominn jarð- skjálfti, en þá er það fólk að ganga hringinn og sparka í dekk- in.“ Tumi: „Svo hafa þeir auðvitað eitthvað fagurfræðilegt gildi. En Húbert er sá eini sem hefur not- að Lappann sem mótíf.“ Húbert: „Ég var að mála cover- versjón af Þingvallamynd eftir Þórarin B. Þorláksson. Hann setti hestinn sem hann kom á til Þing- valla inn á sína mynd og mér fannst ekki nema eðlilegt að setja Lappann inn á mína.“ LAPPIIUIU OG LISTA- MEIUIUIRIUIR Listamenn virðast sækja í þessi skrímsli einsog flugur í volga mykju. Páll á Húsafelli og Gunnar Orn eiga til dæmis báðir Lapplander. Þeir ku meira að segja mála inní þeim. Þeir búa hins vegar báðir sex dagleiðir (á Lapplander) frá ljósmyndaran- um svo þeir fengu ekki að vera með. Gísli Snær á einn pluss- klæddan, en hann er í hreyfi- myndunum, svo hann fékk held- ur ekki að vera með. Aðrir mynd- listarmenn hafa átt Lappa um lengri eða skemmri tíma. Og systkini Tuma voru að kaupa sér einn um daginn. Tumi: „Þetta er bráðsmitandi." Húbert Nói: „Samt ekki jafn smitandi og að eiga Land Rover. En þetta getur orðið hættulegt. Annars er ég í rauninni fórnar- lamb frábærrar markaðssetning- ar hjá Volvo. Níu ára gamall sett- ist ég uppí Lapplander hjá ná- granna mínum sem var sölumað- ur hjá þeim, og þá tók ég þessa ákvörðun." Tumi: „Mér fannst Lapplander alveg rosalega flottur þegar ég var strákur en ég lét mig aldrei dreyma um að ég gæti eignast eintak sjálfur. Nú eru þeir hins vegar svo ódýrir, bæði af því þeir eru orðnir gamlir og eins af því að „alvöru“ jeppafrikin líta ekki við þeim, finnst þeir of kraftlitlir. En maður kemst allt á þessu.“ Húbert Nói: „Bændur kölluðu þá jaðrakan, því það var hægt að keyra þá útum allar mýrar án þess að sökkva. Þetta voru líka einu bílarnir á sínum tíma, uppúr ‘63, sem voru á svona stórum dekkjum. Maður var alveg heill- aður.“ LISTIIU AÐ HALDA LAPPAIUUM VK> Húbert Nói: „Það besta við þessa bíla er að maður getur misboðið þeim endalaust. Mað- ur fer allt á þessu og þarf ekkert að hugsa um lakkið og svona aukaatriði.“ Georg Guðni: „Maður á bara dollu með litnum heima og penslar yfir - nú eða rúllar.“ Tumi: „Og svo þarf maður að eiga góðan hamar til að lemja út beyglurnar. Maður gerir svo að segja allt sjálfur.“ Húbert Nói: „Þeir þurfa svo- litla hjúkrun greyin.“ Einhvern veginn finnst manni það d skjön við þd hugmynd sem maður gerir sér um listamenn að fmynda sér þú liggjandi undir bíl útataða íolíu ogdrullu... Georg Guðni: „Enda leiðist mér að gera við hann. En þegar maður á 15 ára Lapplander þá neyðist maður til þess, annars hættir þetta að vera ódýrt.“ Tumi: „Mér finnst ágætt að gera við Lappann. Það var einsog ég gleymdi alltaf öllu jafn- óðum sem ég lærði þegar ég var að gera við druslurnar sem ég átti áður og þurfti þess- vegna að byrja uppá nýtt í hvert skipti sem þeir biluðu. En með þennan bíl sá ég að það þýddi ekkert annað en að taka þetta hlutverk alvarlega.“ ■ á netinu Þegar þú ert orðinn ieiður á að fletta Mogganum á Internetinu og jafnvel heimasíðan hans Björns Bjarnasonar er hætt að heilla þig, þá væri kannski ekki úr vegi að fikra sig örlítið lengra eftir veraldarvefnum svokallaða og leita uppi hluti sem virkilega er varið í — til dæmis kviknaktar stórstjörnur af öllum stærðum og gerðum. Til að byrja með er ágætt að fletta upp á The Point of No Return (http://zoom.lm.com), For YourEyes Only (http://nyxl0- . csdu. edu:800/-mstone/home.ht ml) eða síðu sem heitirþví ágœta nafni Sex (http://www.wir- ed.com/Staff/justin/dox/sex.- html). Á öllum þessum síðum er að finna ágætis úrval af Evu- klæddum þokkadísum. Ef þig langar að leita að fæð- ingarblettum á ótrúlegustu stöð- um á þeim Cindy Crawford, Drew Barrymore eða sjá undramátt sili- konsins í sinni fegurstu mynd — það er að segja í bústnum barmi sjálfrar Parnelu Anderson, þá er ekki úr vegi að kíkja I Larry’s Virtual Gallery (http://deputy.- law.utexas.edu:3001/Html/Gall- ery.Html). Þeir sem hafa meiri áhuga — eða bara líka áhuga — á að renna augunum yfir helstu kennileiti á íðilfögr- u m kroppum þ e i r r a Teri Hatc- her, Kim Basinger og Jayne Mansfield svo að- eins örfá dæmi séu tekin, ættu hins vegar að hamra inn http://- web.cs.ubc.ca/grn- /virtual/alt.binaries.- pictures.celebri ties/- index.html og þá geta menn farið oní saum- ana á bibbanum á honum Bobbitt í leið- inni. Þeir sem eiga sér uppáhaldsstjörnu og eru æstir í að sjá hana í sinni eðlilegustu mynd ættu að leita uppi heimasíður kinkí aðdáenda þessarrar sömu stjörnu, þar sem þeir hafa hrúgað inn tug- um og hundruðum mynda af gyðjunni í misklæddu ástandi. Sherilyn Fenn's Secr- et Space heitir ein slík síða sem snýst öll um dö- muna sem meðal ann- ars lék í Twin Peaks og leikur El- izabeth Tayl- or í nýjum sjónvarps- þáttum. Til að komast inn á hana þarf að slá inn http://- www.vsi,- i s t. u c f. - edu/-ken- dall/fenn.- html og þá eru menn komnir í samband við öll hin Fennfríkin. Til að kíkja á konu að nafni Milla Jovovich, ef einhver hefur áhuga, þarf ekki annað en að pikka inn www.vsl.ist.ucf.edu/-kendall/- milla.html og þá er hægt að virða fyrir sér í rólegheitunum skógi vaxna laut og varðaðar heiðar og fleira í Jovovísku landslaginu. Það eru líklega öllu fleiri sem hafa áhuga á að sjá súperstjörn- una og ballarkveikjuna Sharon Stone í allri sinni nöktu dýrð. Þá er bara að kíkja í heimsókn á The Definitiue Sharon Stone home page (http://www.untantes.univ- nantes.fr./-violain/sharon- Eng.html). Með því að slá inn http://- www.direct.ca/~panand er líka hægt að kíkja á fullt af misnökt- um kroppum á öllum þrepum frœgðarstigans, þar á meðal afar sjaldgœfa mynd af Michelle Pfeif- fer topplausri. Ogþeim sem eru svona obbolít- ið kinkí skal bent á eitt netfang til viðbðtar svona í lokin — The Lo- ve Grid (http://desires.com/ud/- 1.2/art/docs/Iovegrid.html). Þar má sjá aldeilis kviknaktar Barbie- dúkkur gæla hver við aðra í mjög svo huggulegri myndaseríu. ■

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.