Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 27

Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 27
íiœSí'; FIMMTuDaGuR 25~MaI 1995 V Arkitektinn sem hefur hannað nýjan veitingastað úr rústum Berlínar í Austurstræti er sá sami og náði að draga fram sálina í Hótel Borg. Eftir hann liggja einnig veitingastaðir í Japan og New York að ví^Íandn afkl'teltt: að^rnýr S®m ' ífaf maðUr enH '"‘•'SKK&ílglkl ##**>»* Santalt hú ,rra H*lls oa H* föstuc,la“S Vefður Hægt að ... orna sérivið sama Jorunaur hundadagakonun Flestir eru sammála um að Páll fólki líði vel,“ sagði Páll í samtali strætið Hjaltason arkitekt hafi náð undra- verðum árangri þegar hann end- urhannaði Hótel Borg í nánast upprunalegri mynd. Það var ein- mitt af þeim ástæðum sem þeir Hallur Helgason, Helgi Björnsson og Þórarinn Ragnarsson ákváðu að nýta hæfileika hans við hönnun nýs veitingastaðar í Austur- stræti, en á föstudag - eftir þriggja vikna drátt - verður dyr- unum lokið upp. „Þegar maður endurhannar gamalt hús verður maður að virkja andann sem í því býr svo við póstinn. „Það sem hins vegar er ólíkt með þessu húsi og Hótel Borg er að aðeins tvennt er upp- runalegt í Austurstrætinu; arinn frá 1801, sem er reyndar elsta óbreytta mannvirkið í Reykjavík, og skarsúð í þaki sem er undir þakklæðningunni.“ Þess má geta að Jörundur hundadagakonungur ornaði sér við þennan arin þegar hann ríkti hér rigningasumarið 1809, en húsið var þá í eigu Trampe greifa. Síðan þá er búið að stækka húsið í allar áttir nema út í Austur- Hönnun veitingastaðarins var mun umfangsmeiri en upphaf- lega var áætlað. Það sem bættist við tengist aðallega burðarþoli hússins, enda kom í ljós að það var mun verr farið en menn gerðu ráð fyrir. „Svona vinna hnikast alltaf eitthvað til, en þó má segja að fyrstu drættir stand- ist alveg,“ segir Páll, en auk þess að hafa hannað þessa tvo veit- ingastaði á íslandi liggja eftir hann veitingastaðir í Japan og í New York, sem hann byggði upp frá grunni. En hvernig mun svo nýi veit- ingastaðurínn líta út? „Hann verður tiltölulega ein- faldur. Það er mikið notað af náttúruefnum eins og tré og steini sem fá að njóta sín í sínum eigin náttúrulegu Iitum. Annars finnst mér erfitt að tala um verk mín fyrr en ég er búinn að horfa á þau í svona einn til tvo mánuði. Nú er maður svo upptekinn við að koma þessu frá sér að maður hefur varla tíma til að koma frá sér vitrænum hugsunum.11 Ertu stoltur af Borginni? „Já, ég verð að viðurkenna að ég er mjög ánægður með hvernig til tókst og held og vona að Hótel Borg fái að vera með okkur í óbreyttri mynd að minnsta kosti næstu 60 árin.“ GK Höndin sem hélt um sverðið, fingurinn sem tók í gikkinn og fæturnir sem báru menn á flóttanum - þessum líkamshlutum öllum eru gerð rækileg skil í mannkynssögunni. Hjörtu, augu, búkar og afturendar fá líka að fljóta með. Meira að segja nef manna hafa verið gerð ódauðleg á spjöldum sögunnar. Tennur manna hafa hins vegar orðið nánast algjörlega útundan í sögunni þótt þær eigi sannarlega betra skilið. pósturinn bætir úr því. annanna 300 fyrir Krist: Fyrsta rótfyllingin framkvæmd svo vitað sé, þegar rómverskur tannlæknir rekur 2.5 millimott-a HKr>n<5þ)-áð tönn á il að aólgu Iraga úr *-**• ~v tann- pínu. 250 eftir Krist: Tenn- urnar dregnar úr Appolóníu af Alexandríu, all- ar með tölu þar sem hún neitar að af- neita kristinni trú. Hún var síðar tekin í dýrlingatölu og er verndardýr- lingur tannlækna. 950: Egill Skallagrímsson stendur í deilum vegna föðurarfs konu sinnar Ásgerðar og gengur á hólm við Atla hinn skamma og bítur hann á barkann. Skömmu áður hafði hann bitið stykki úr drykkjarhorni þegar hann fór í fýlu af því honum var borin • mjólk í stað mjaðar. 1011: Gunnar Lambason hlakkar yfir óförum Skarphéöins Njálsson- ar í miðri brennunni og Skarp- héðinn kastar jaxli úr Þráni Sig- fússyni í augað á honum með þeim afleiðingum að augað ligg- ur úti og Gunnar dettur. Jcixlinn hafði Skarphéðinn hirt þegar hann klauf Þráin í herðar niður á ísilögðu Markarfljóti og tennurn- ar úr Þráni drituðust útum allt. 1100: Rabbínar deila harkalega um það hvort leyfa eigi konum með gull í tönnum að fara út fyr- ir hússins dyr á laugardögum. 1500: Spænskir og portú- galskir sjóarar flytja sykur til Evrópu í tonna- tali og Evrópu- búar fara að hakka sig góðgætið. Tann- skemmdir breiðast út sem aldrei fyrr. 1700: Pétur mikli Rússakeisari heldur sig vera liðtækan tannlækni og skoðar uppí kjaftinn á hirðmönnum sínum. Hann finn- ur þar fjölda tanna sem hann tel- ur vera ónýtar og skemmtir sér við að rífa þær úr, hvort sem menn kærðu sig um það eður ei. 1775: Fyrsta þekkta dæmið um að tennur hafi verið notaðar til að bera kennsl á mann. Paul Re- vere, tannlæknir í hlutastarfi, ber kennsl á dauðan hermann með hjálp tannbrúar sem hann smíðaði uppí dátann úr silfri og 1300: Rakarar nota frítíma sinn til að dútla við tennur manna. Þeir bera saltpétursýru á tennur til að gera þær hvítari og eyða þarmeð glerungnum og valda stórfelldum tannskemmdum í leiðinni. I # 7J. VJCUI yc Washington situr fyrir hjá málara með falskar tennur gerðar úr flóðhestatönn. Listamaðurinn óttast að gómarnir detti út úr forsetanum ef hann brosir og skipar honum að taka þær út úr sér. Treður bómull uppí hann í staðinn og málar mynd af grafal- varlegum Gogga með harðlok- aðan munn. 1844: Horace Wells uppgötv- ar deyfingarmátt hlátur- gassins og ætlar að sýna öðrum fram á ágæti uppgötvunar sinnar. Hann er hins vegar óþolinmóð- ur og lætur tannlæknana byrja að bora áður en gasið fer að virka almennilega. Sjúklingurinn öskrar ótæpilega og Wells yfir- gefur sjúkrahúsið með skömm og drepur sig nokkru síðar. 1890: Fyrsti raf- magnstannburstinn settur á markað. Hann hristist hins vegar hvorki né skekst, heldur gefur rafstuð sem „virkar strax á taugar og vefi, kemur í veg fyrir skemmdir og kallar fram náttúrulegan hvítan lit á tenn- urnar.“ 1900: Tann- læknirinn William James Morrison í Nashville finnur upp sykurfrauðið, eða candy- floss. 1928: Halldór Laxness setur fram kenningu sína um samhengið á milli illa hirtra tanna, fúl- mennsku og slæms munnsöfn- uðar í Alþýðubókinni. 1967: Björgvin Halldórsson brýtur framtönn. Skömmu síðar verður hann súperstjarna og fjöldi ung- linga brýtur framtennur sínar til að líkjast goðinu. 1971 MickJag- ger lætur fjar- lægja grænan eðalstein sem hann hafði lát- ið koma fyrir í framtönn þar sem fólk var alltaf að benda honum á að hann væri með spínat á tönnunum. 1976 Laurence Olivier leikur sad- istískan tannlækni og nasista sem borar í tennurnar á sakleys- ingjanum Dustin Hoffman - án deyfingar að sjálfsögðu. 1986 Vísindamenn komast að þeirri niðurstöðu að tennur barna sem alin eru á pelamjólk hættir frekar til að skekkjast en tennur þeirra sem höfð eru á brjósti eitthvað fram eftir aldri. 1993 Knattspyrnuhetjan Guöjón Þórðarson bítur í nefið á Einari Kárasyni rithöf- undi á lokahófi knattspyrnu- manna. bíó BIOBORGIN Strákar til vara Boys on the Side ★★ Ó-óó stelpur. Pólitískt rétt útgáfa af Thelma & Louise. I bráðri hættu Outbreak ★★★ Spennandi, en ekki fyrir sótthrædda. BÍÓHÖLLIIU Fjör í Flórída Miami Rhapsody ★★ Eins og spar-útgáfa af Woody Al- len. Fólkið er samt fallegt. Algjör bömmer A Low Down Dirty Shame O Töf- farinn Shame gerir þetta allt — illa. Táldreginn The Last Seduction *** Linda Fior- entino er æðislegt kven- dýr. Banvænn leikur Just Ca- use ★★★ Óvæntur loka- kaflinn reddar þessu. HÁSKÓLABÍÓ Star Trek: Generations ★★ Sérfræðingar sjá ep- ■ ískan sagnabálk, hætt við að öðrum leiðist. Höfuð upp úr vatni ★★★ Sagan heldur máski ekki vatni en mynd- in er stílhrein, kvikmynda- takan afbragð og konan sæt budda. Dauðataflið ©Uncovered Svo vont að það vekur gleði. Ein stór fjölskylda ★★ Reykjavíkurrealismi, oft fyndinn. Forrest Gump ★★★★★ Gump er vinalegur vitleys- ingur. Nell ★ Jodie Foster leikur fágaða villistelpu. LAUGARÁSBÍÓ Heimskur, heimskari Dumb, Dumber ★ Ef maður hlær, þá hefur maður bara þannig smekk. REGIUBOGIIUni Kúlnahríð á Broadway Builets over Broadway ★★★★★ Gómsæt kó- medía. Leiðin til Wellville The Road to Wellville 0 Mikil læti, lítið vit. Austurleiðin Wagons East ★ John Candy fer fyr- ir lítið. Shawshank fangelsið The Shawshank Redempti- on ★★★★ Grátklökk mynd en líka fyndin. SAGABÍÓ í bráðri hættu Outbreak ★★★ Spennandi, en ekki fyrir sótthrædda. Rikki ríki Richie Rich ★ Culkin er kominn á aldur. STJORIUUBIO Litlar konur Little Wo- men ★ Fólk sem er jafn gott hvern einasta dag og okkur hinum tekst stund- um aðveraájólunum. Ódauðleg ást Immortal Beloved ★★ Brokkgengur Beetnoven. Vindar fortíðar Legends of the Fall ★ Ofmetin kvik- myndataka en lítilfjörlegur Pitt.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.