Helgarpósturinn - 25.05.1995, Blaðsíða 28
Posturinn
eins og PÓSTURINN
hefur ítrekað greint
frá í vetur mun Guð-
MUNDUR IVlAGNÚSSON
fréttastjóri verða látinn
fara og hefur nú verið til-
kynnt að hann hætti um
næstu mánaðamót. Það
var Hörður Einarsson
sem beitti sér fyrir því að
Guðmundur var ráðinn
inn á blaðið og silkihúf-
um þannig fjölgað um eina.
Nú er Hörður búinn að selja
sinn hlut í DV og Guðmundur
er fokinn. Um helgina fóru yfir
menn DV að höfðingjasetri
R. Eyjólfsson
AR, aðaleiganda
DV, að Leirubakka til
að ráða ráðum sínum að frum-
kvæði sonar hans, EyjÓlfs Sveins-
SONAR, sem verður nýr fram-
kvæmdastjóri blaðsins. Guðmundi
var ekki boðið til fundarins en
þangað mætti hins vegar Ellert 6.
Schram, annar af ritstjórum blaðs-
ins. Fullyrt er að Ellert verði látinn
hætta á blaðinu en hann mun vera
á leið í launalaust leyfi frá blaðinu
til að byrja með. Hann flaug til Vín-
ar á mánudagsmorgun á vegum
UEFA en óvíst er með framhaldið.
Eyjólfur virðist ætla að fara geyst
sem framkvæmdastjóri því í bígerð
eru fleiri breytingar sem væntan-
lega verða tilkynntar í sumar. Eftir
eina umfjöllun PÓSTSINS um að
Guðmundur væri á förum frá DV og
orðróm um að hann ætlaði að
sækja um stöðu framkvæmdastjóra
Ríkisútvarpsins, sendi Guðmundur
bréf til blaðsins og sagði umfjöllun blaðsins illkvittna og
rætna „enda er ég nýkominn til starfa á DV“...
Töluverðar líkur eru á því að
Valur Magnússon taki við
stjórnartaumunum á Kaffi
Reykjavík innan tíðar. Það er þó
ekki svo að Valur sé að eignast
staðinn að nýju heldur hafa hinir
nýju eigendur hans, ÞÓRARINN
Ragnarsson og félagar, boðið Vali
að sjá um rekstur staðarins fyrir
svimandi há laun. Upplýsingar
blaðsins herma að Valur sé alvar-
lega að íhuga að ganga að þessu til-
boði en ef af því verður slá Þórarinn og félagar tvær flug-
ur í einu höggi: fá reyndan mann til þess að sjá um stað-
inn og koma í veg fyrir hugsanlega samkeppni af hendi
Vals...
Svo virðist sem stemmningin fyrir uppfærslu söng-
leiksins Rocky Horror Picture Show ætli ekki að
verða minni en þegar flugfélagið Loftur setti upp
[ hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur,
sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16.
Núerspurt:
Á að banna íslenskum
börnum yngri en 16 ára
ao vinna?
1. Já
2. Nei
símanúmer frá 3. júní 90-4-15-16
Hárið í fyrra. Þótt ekki hafi endanlega verið
ákveðið hvenaer söngleikurinn verður frum-
sýndur í Héðinshúsinu er aðstandendum
sýningarinnar þegar farið að berast pantanir
á frumsýninguna, þar á meðal mun 40
manna hópur, sem meira og minna tengist
verslununum 17, þegar hafa fengið inni á
frumsýningunni...
Það fór eins og PÓSTURINN greindi frá
fyrr á árinu að Margrét Sigfúsdóttir
seldi hlut sinn í Heklu. Þegar blaðið
sagði frá þessu hafði það samband við
Margréti sem vísaði hugsanlegri sölu algjör-
lega á bug, sagði engan fót fyrir henni og að
þessi hugmynd hefði •
MUNDUR SlGFÚSSON ,
FÚS SlGFÚSSON Og ...
Sverrir SlGFÚSSON orðnir einir eftir af börn-
um Sigfúsar Bjarnasonar og Rannveigar
Ingimundardóttur í Heklu...
Prátt fyrir að íslensk lög leyfi ekki fjár-
hættuspil hefur rekstur spilavíta lengi
þrifist ágætlega hérlendis. Um tíma
voru starfrækt tvö nokkuð vegleg spilavíti í
Reykjavík en nú er aðeins annað þeirra eftir:
spilavítið Súðavogi 7, og hefur það aldrei ver-
ið vinsælla. Húsfyllir er helgi eftir helgi og
skipta háar upphæðir um hendur. Hafa spila-
fífl haft á orði að starfsemi sú sem rekin er í
Súðavogi sé ólíkt heiðarlegri en spilakassar
Háskóla íslands og benda á að meðan vinn-
ingslíkur í spilakössunum eru hverfandi eiga
bankinn og spilarinn nánast jafnmiklar líkur á
sigri í Black Jack...
afé Ópera, einn af vinsælustu veitinga-
stöðum landsins til margra ára, er til
sölu. Gengi Óperu hefur legið hratt nið-
ur á við undanfarin misseri og nú er svo
komið, samkvæmt upplýsingum blaðsins, að
staðurinn skuldar um það bil 10 milljónir
króna í húsaleigu. Það er þó einungis þriðj-
ungur af heildarskuldum staðarins. Herluf
Clausen, sem úrskurðaður var gjaldþrota í
vetur, var lengi eigandi staðar’ins og er full-
yrt að hann sé það enn þrátt fyrir að pappír-
ar segi annað. Herluf
hefur haft veruleg af-
skipti af rekstri Óperu
frá því að Valur
MagnÚSSON hætti þar
störfum til þess að
opna Kaffi Reykjavík,
og er nú í forsvari fyrir
sölu staðarins. Herluf
mun vilja fá 40-50
milljónir króna fyrir
Óperu og er þá ein-
göngu um reksturinn
að ræða því húsnæðið
er í eigu Knúts Bruun.
Fáir eru hins vegar vilj-
ugir til þess að kaupa
á þessu verði og er tal-
ið hæpið að meira fáist
en 25 milljónir fyrir
staðinn, miðað við
hvernig reksturinn hef-
ur verið undanfarið.
Þess má geta að PÓST-
URINN hefur heimildir
fyrir því að ÞÓRARINN Ragnarsson, núverandi
eigandi Kaffi Reykjavíkur, hafi fyrir þremur
árum boðið Herluf 45 milljónir króna fyrir
Óperu á borðið en Herluf þá hafnað því...
Myyyr
y
(kr. 33,33 stk.)
blómauol