Helgarpósturinn - 27.07.1995, Page 2

Helgarpósturinn - 27.07.1995, Page 2
2 ■ Pósturínn Útgefandl: Miðill hf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Framkvæmdastjóri: Kristinn Albertsson Auglýsingastjóri: Örn Isleifsson Setning og umbrot: Morgunpósturinn Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi hf. Leiðari PASSIÐ YKKUR I Póstinum í dag eru rifjaðar upp nokkrar sög- uraf mönnum sem halda sig til á'því svæði við- skiptalífsins sem nær frá gráu ofan í svart. Margír af þessum mönnum eru góðkunningjar lesenda Póstsins og forvera hans. Það sem vekur hins vegaralltaf furðu þegar þessir menn birtast á síð- um blaðsins er að alltaf fyrirfinnst fólk sem huns- ar varnaðarorð blaðsins og lætur blekkjast út í viðskipti við þessa menn. Af sumum hafa verið sagðar fréttir af vafasöm- um viðskiptum oftsinnis. Eftir sem áður virðast þeir æ ofan í æ finna sér ný og trúgjörn fórnarlömb. (sjálfu sér er svo sem ekki hægt að sýta þetta. Ef fólk vill láta blekkjast þá lætur það blekkjast. Það er hins vegar rétt að benda öðrum á að lesa Póstinn af gaumgæfni því á sama tíma og önnur blöð veita þessum mönn- um nafnleynd þá hefur Pósturinn reynt að segja skilmerkilega frá hverjir þeireru. Pósturínn Vesturgötu 2, Reykjavik sími 552-2211 fax 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666 símbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4777 Auglýsingadeild: 552-4888 símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577 HelgarPósturinn kostar 199 kr. MánudagsPósturinn kostar 99 kr. Áskrift er 999 kr. á mánuði ef greitt er með greiðslukorti en 1.100 kr. annars. Uppleið/niðurieið A UPPLEIÐ Þorvaldur Skúlason skattgreiðandi Þetta er hans árstími. Þó að Þorvaldur vilji sjálfsagt 1áta minnast sín fyrir listaverkaáhug- ann þá verður hans líklega minnst fyrir skatta & beikon. Þorvaldur er einfaldlega alvörumaður sem geldur keisarans þess sem keisarans er. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra. Það hlýtur að vera gleðilegt að sjá hvers maður er megnugur og geta barið I gegn nokkrar hjartaaðgerðir mitt I lokanaflæðinu I heilbrigðiskerfinu. Það er ekki að spvria að hiartaæslunni. Einar Karl Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Allaballa. Það er Ijóst að hann hefur I hendi sér hver verður næsti formaður Alþýðubandalagsins. A IUIÐURLEIÐ Friðrik Sophusson skattmann. Þetta er ekki vinnsæll árstími fyrir fjármálaráðherra því nú fá allir landsmenn per- sónulegt bréf sem gefur þeim ástæðu til að hata hann. Sigurður Geirdal bæjar- stjóri. Það er hálf aumt að útskýra rekstrarhallann með því að það vanti fleiri skattgreiðendur. Davíð Odds- son trillubáta- ráðherra. Það er frekar klént að hleypa kvörtun- ardeild trillukarla inn I ráðuneyti upp á kaffi og kökur bara af því að Þorsteinn er í útlöndum. Átakið „Stöðvum unglingadrykkju11 með varnaðarboðskap „ Passið Eyj u m r- a Átakið „Stöðvum unglinga- drykkju" hefur nýlega sent frá sér bréf með yfirskriftinni „Pass- ið ykkur á Eyjum og Klaustri". Þar er skorað á foreldra unglinga að senda þá ekki eftirlitslausa á útihátíðir um verslunarmanna- helgina. í bréfinu er sérstaklega varað við tónleikahátíðinni á Kirkjubæjarklaustri og þjóðhá- tíðinni í Vestmannaeyjum. í bréfinu segir meðal annars: „Nokkrar af þeim erlendu hljóm- sveitum sem fram koma á Klaustri eru taldar ýta undir dýrkun á eiturefnum, sérstaklega alsælu. Hætt er því við að þar geti skapast andrúmsloft vinveitt vímuefnaneyslu." í framhaldi er þess getið að fíkniefnalögreglan verði með sér- stakan viðbúnað á svæðinu því búist sé við að flestir fíkniefna- salar landsins muni hraða sér til Klausturs í tilefni hátíðarinnar. Rétt er að geta þess að móts- haldarar Klausturhátíðarinnar auglýsa þar áfengisbann og ald- urstakmark innan sextán ára nema unglingar séu í fylgd með fullorðnum. Þegar haft var samband við tónleikahaldara hátíðarinnar og þeir inntir álits á efni bréfsins sögðu þeir bréfið lýsa „sorglegu viðhorfi til æsku landsins.“ „Petta brét er ekkert annað en æsingabrét," segír Arni Johnsen um varnaðarboðskap átaksins „Stöðvum unglinga- drykkju". í áðurnefndu bréfi eru foreldr- ar einnig varaðir við að senda börn sín eftirlitslaus til Eyja, og segir: „Þjóðhátíðinni hefur fylgt mikil drykkja, sem hefur valdið hörmungum, slysum, dauðsföll- um og nauðgunum... Almennt virðist að drykkja á Þjóðhátið hafi unnið sér „hefðarrétt" og er því enginn vettvangur fyrir ung- menni innan tvítugs." Hinn vaski Vestmannaeyingur Árni Johnsen hefur ýmislegt við þetta að athuga og segir: „Það virðist vera að sá sem hafi skrif- að þetta hafi einhvers staðar, hvort sem það er á útihátíð í Eyj- um eða annars staðar, lent í drykkju en ekki verið áhorfandi sem bindindismaður, því þetta er ósköp mikill þvættingur." Árni bendir á að um tíu þús- und manns komi á þjóðhátíð og í heildina fari hún mjög vel fram, þó auðvitað megi finna þar mis- jafna sauði eins og annars stað- Svarthöfði Atómsprengjan í lífi þeirra Starfandi stjórnmálasamtök í landinu geta ekki á heilum sér tekið nema að staðfest sé að at- ómsprenjgur hafi verið geymdar á Keflavíkurflugvelli og séu jafn- vel enn þar, en málið hefur vak- ist upp að álitið er í þriðja sinn núna eftir að upplýst var að Bandaríkjamenn voru með atóm- sprengju á Thule á Grænlandi samkvæmt leyfi H. C. Hansen, forsætisráðherra Dana. Við höf- um ekki hýst atómsprengjur, enda hefur flugvélategund sem flutti sprengjurnar ekki lent hér á landi fyrr en núna í sambandi við heræfingu. En svona pólitískt moð eins og að reyna að koma atómsprengju inn í landið í þykj- ustunni er sömu ættar og þekkt skáldsaga sem bar nafnið Átóm- stöðin. Hugmyndafræðilega séð er ekki fjarri lagi að menn hér hafi það eftir hugmyndabræðrum sínum í öðrum löndum að þeir einir hafi eitthvað um atóm- sprengjur að segja af viti. þessir sömu aðilar stálu atómsprengj- unni frá Bandaríkjamönnum og nutu við það meðreiðarsveina, sem Bandaríkjamenn höfðu sett yfir þá vísindalegu framkvæmd að búa til atómsprengju. Hér er átt við þrenninguna Oppenjeim- er, Fermi og Szilard. Niels Bohr kom að þessum málum með sér- kennilegum hætti, en hann ræddi bæði við Roosevelt og Churchill á stríðsárunum um að láta Sovétmenn fylgjast með gerð sprengjunnar. Eftir þessi til- mæli leit Churchill á Niels Bohr sem sérstaklega hættulegan mann og lét fylgjast með honum. í framhaldi af þessu var Bohr boðið til Sovétríkjanna en hann þáði ekki boðið. í stríðslok höfðu Sovétmenn búið til kjarnaofn en komu honum ekki í gang. Var þá leitað til Martins Andersen Nexö og hann kom í kring fundi Bohrs og tveggja KGB-manna. Skýrði Bohr fyrir þeim á hverju strand- aði. Eftir það höfðu Sovétmenn ráð á kjarnorkunni, enda nutu þeir górðra sambanda í USA. Séu menn í einhverjum vafa um vinnubrögðin á þessum tíma ættu þeir að lesa bók Sovét- njósnarans Pavel Sudoplatov, sem var eins konar James Bond þeirra Rússanna á árunum 1936-1986. að er svo sem ekki að undra að til skuli hér á landi aðilar sem eru enn á kalda stríðs stigi þegar umræðan beinist að atómvopn- um. Enn eru þeir í pólitísku skyni að spyrja ríkisstjórnina hvort hér séu eða hafi verið kjarnorku- vopn. Þessi gamla tugga verkar ekki lengur. á bak við hana eru ekki lengur ógnir einræðisríkis og engu hægt að hóta. Að vísu er reynt að halda athyglinni vak- andi á samtökunum vegna for- mannskjörs, en athyglin skerpist ekki út af atómsprengjunni. Þá er reynt að vekja upp óánægju vegna heræfinga en þar er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að hér skuli menn æfa sig nokkra daga á tveggja ára fresti. Sagt er að lág- flug flugvéla trufli mófugla, griðkur og landverði. En það er lítilsvert í hörðum heimi og varla getum við ætlast til þess að hér á Hvert ætJar þú aö fara um versiunar- mannaheígina? Eitthvert sem VaJdi viJÍ ekki aö ég fari. VaJdi veit hvar víman verður! Valdimar Jóhannesson, formaður átaksins „Stöðvum unglingadrykkju" varar sérstaklega við tveimur útihátíðum um verslunarmannahelgina. ar. Þegar hann er spurður hvort unglingadrykkja sé áberandi á þjóðhátíð segir hann: „Það að unglingar hafi í áberandi mæli farið illa á þjóðhátíð á Eyjum er beinlínis rangt. Ég hef verið í stjórn þjóðhátíðarinnar um tveggja áratuga skeið og yfirleitt hafa unglingarnir komið mjög vel fram, þótt auðvitað séu undan- tekningar frá því, eins og gengur og gerist alls staðar á landinu. Þjóðhátíð er með vel skipu- lagða fjölskylduhátíð. Þar er ströng gæsla, aðhald og eftirlit. Þetta bréf er ekkert annað en æs- ingabréf." landi fáum við lifað eins og ung- ar umvafðir æðardúni. Kveinin undan lágfluginu eru að mestu leyti búin til, enda gætum við þá alveg eins óttast háværa bílaum- ferð, eða rokkmúsík þegar hún verður vitlausust. Það er sorglegt að engin atóm- sprengja skuli fyrirfinnast í lífi þeirra sem æstastir eru út af ímyndaðri tilvist hennar hér á landi. Annars umgöngumst við orðin atómstöð og atómsprengja af nokkurri léttúð. Skáldsaga kom hér út nokkru eftir stríðið og hét Atómstöðin. Málsvæðið var lítið og útlendingar, aðrir en Norðurlandamenn, héldu að bók sem héti „The Atomic Station" væri eitthvert reyfaraslúður eftir mann á borð við Alastair McLe- an eða úttekt á atómstöð fram- tíðarinnar. Löngu seinna var sag- an kvikmynduð. Þá loks urðu út- lendingar svo steinhissa að Le Monde í París hafði orð á því í umsögn um myndina sem sýnd var í Cannes með fríum morgun- verði, að myndin væri ekki um atómstöð, heldur bæri þar mest á beinaflutningi úr einum garði í annan. Eftir slíkar atómkynning- ar Islendinga var almennt álitið að við ættum að leggja allt tala um leikföng heimsveldanna nið- ur í bili. Atómsprengjur og vetni- sprengjur voru upp úr miðri öld- inni hluti af daglegum orðaforða stórs hóps fólks í landinu. Fyrr eða síðar hlaut að koma að því að einhverjir færu að nota orðið atómsprengja í pólitískri um- ræðu og þá var ekki nema snertuspölur í það að einhverjir bölvaðir dónar flyttu atóm- sprengjuna inn í landið og geymdu hana í steyptum bog- hýsum sem reist voru yfir þotur. Allar þessar umræður voru svona pólitískt háloftasnakk sem hafði sama eiginleika og þegar rýkur dauft úr skorsteini í logni. Og enn á að fara að tala um at- ómsprengjur á íslandi. Væri ekki jafnvel skárra að hverfa aftur fyr- ir atómsprengjuna og fara að tala um fasismann hans Stalíns. SVARTHÖFÐI

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.