Helgarpósturinn - 27.07.1995, Page 7

Helgarpósturinn - 27.07.1995, Page 7
Skrifstofur Félags starfsfólks í veitingahúsum eru við Ing- ólfsstræti 5 en formaður félagsins býr í einbýlishúsi í eigu félagsins við Ingólfsstræti 7 og borgar, samkvæmt heimild- um blaðsins, mjög væga leigu. Reikningar Félags starfsfólks í veitingahúsum Hár ósundur- liðaður kostnaður í síðustu viku fór fram fyrsti aðalfundur í Félagi starfsfólks í veitingahúsum í tvö ár. Á fundin- um voru lagðir fram endurskoð- aðir reikningar félagsins fyrir ár- ið 1994 en síðasta aðalfundi, sem fram fór í október 1993, lauk án þess að endurskoðaðir reikning- ar væru lagðir fram þrátt fyrir að óskað væri eftir þeim. Margt þykir einkennilegt í reikningun- um og þörf á nánari sundurliðun. Liðurinn „annar rekstrarkostn- aður“ þykir til að mynda mjög hár en hann hljóðar upp á ríflega 4,2 milljónir króna. Eins og kom fram í PÓSTINUM í síðustu viku ríkir mikil óánægja í félaginu með vinnubrögð Sigurð- ar Guðmundssonar, formanns þess, en hann er jafnframt fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsfólks í veitingahúsum. Sig- urður hefur setið í formannssæt- inu í meira en áratug og þykir vera mjög einráður og hafa lítið samráð við stjórn félagsins. HÁR LAUIUA- KOSTIUAÐUR í rekstrarreikningi ársins 1994 kemur fram að félagið greiddi 13,4 milljónir í laun og launa- tengd gjöld í fyrra. Þykir heimild- armönnum blaðsins sem þekkja til starfsemi félagsins það há upphæð. Þess má geta að Sigurð- ur hefur farið algjörlega sínar eigin leiðir þegar kemur að því að ráða starfsfólk til félagsins og ákveða kjör þess. Þannig hafa til að mynda öll þrjú börn Sigurðar verið á launaskrá hjá félaginu og lífeyrisjóðnum um lengri eða skemmri tíma. Samkvæmt heimildum blaðs- ins hefur Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, einn stjórnarmanna í félaginu, meðal annars af þessum sökum ítrekað óskað eftir því að sjá samninga sem hafa verið gerðir við starfsfólk. Sigurður hefur hins vegar alltaf neitað og sagt samningana sitt mál. FORiyiÁÐUJRIIUIU OFT I UTLOIUDUM Það eru hins vegar ekki aðeins launakjör starfsfóiks sem hafa verið til umræðu á stjórnarfund- um heldur hefur Sigurður einnig verið inntur eftir því hversu há laun hann sjálfur er með. Mun hann samkvæmt upplýsingum blaðsins hafa svarað þeirri spurningu á þann veg að það væri ekki alveg ljóst og sagt hann þyrfti að spyrja gjaldkerann til þess að geta gefið nákvæma tölu. Einn heimildarmanna blaðsins fullyrðir á hinn bóginn að Sigurð- ur sé með hátt í 400.000 krónur á mánuði í laun og hafi einnig frían síma og ýmis fríðindi. Auk þessa býr Sigurður í litlu einbýlishúsi í eigu félagsins og halda heimilda- menn blaðsins því fram að hann borgi þar mjög væga leigu. Eins og áður er sagt hefur lið- urinn „annar rekstrarkostnaður" vakið nokkra athygli fyrir það hversu hár hann er. Meðal skýr- inga sem hefur verið velt upp á þessum kostnaði er að hann megi rekja til tíðra ferðalaga for- mannsins til útlanda á vegum fé- lagsins en hamm hefur verið mjög iðinn við að rækta erlend samskipti, samkvæmt heimildum blaðsins. Þess má geta að Sigurður vildi ekkert láta hafa eftir sér þegar samband var haft við hann við vinnslu þessarar fréttar. ■ Umfang tónlist- arhátíðarinn- ar á Kirkju- bæjarklaustri, Uxa, virðist ætla að verða gífurlegt. Nú hefur kvikmyndafyrirtækið Kelvin-myndir, sem samanstendur af Arn- ari Knútssyni, Erni M. Arnarssyni og Kristófer D. Péturssyni, ákveðið að gera heimildar- mynd um hátíðina. Myndin á að vera um 95 mínútur að lengd og verður að öllum líkindum sýnd á Stöð 2 í októberlok. Kelv- in-menn hafa einnig átt í viðræðum við tónlistarstöðina MTV og er enn óvíst hvort af samstarfi við stöð- ina verður en vissu- lega væri það lyfti- stöng fyrir landkynn- ingarátakið... KENWOOD FM/LB/MB. 24 stööva minni meö sjálfvirkri stöövainnsetningu . Útgangur fyrir kraftmagnara. Þjófavörn. Hárnákvæmur geislaspilari sem þolir vel íslenska vegi og vegleysur. Verð kr. 44.900,- stgr. þar setti gœðin heyrast Ármúla 17, Reykjavík, sími 568 8840 KDC-5030L ► Geislaspilari með útvarpi og 4 x 25W magnara.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.