Helgarpósturinn - 26.10.1995, Blaðsíða 5
FIMIVmJDAGUR 26. OKTOBER1995
Fjölmargir hafa haft sam-
band við HPvegna frétt-
ar sem birtist fyrir viku
um að verkum nemenda MHÍ
hefði verið hent í kjölfar bruna
sem varð í gamla Sláturfélags-
húsinu. Meðal annars hefur
ritstjórninni verið tjáð að það
sé ekkert nýtt að slíkt eigi sér
stað þar á bæ. Fyrrverandi
nemandi við Myndlista- og
handíðaskólann tjáði blaðinu
að á ofanverðum sjöunda ára-
tugnum hefði sú stefna verið
mörkuð í skólanum að halda
eftir úrvali verka nemenda,
nokkuð sem þótti sjálfsagt þá.
Síðan gerðist það í skóla-
stjórnartíð Hildar Hákonar-
dóttur að ákveðið var að
henda þessum verkum og bor-
ið við plássleysi. Ekki mun
hafa verið haft fyrir því að láta
umrædda nemendur vita,
heldur var verkunum troðið í
ruslatunnur skólans. Þaðan
fóru víst einhver verkanna á
flæking og haft er fyrir satt að
þau hafi jafnvel orðið mark-
aðsvara...
Innan Ríkisútvarpsins er
mikil ólga og óánægja
með niðurskurð og önnur
vinnubrögð séra Heimis
Steinssonar. Annars staðar í
blaðinu segir frá fádæma
dræmri mætingu í veislu sem
útvarpsstjóri hélt starfsfóiki
sínu, en kvöldið áður var
nokkur fjöldi fjölmiðlamanna
saman kominn í útgáfuveislu
hjá Súsönnu Svavarsdóttur á
Astró. Meðal þeirra var hátt-
settur útvarpsmaður, sem
sagði stundarhátt þegar séra
Heimi bar á góma: „Ég er orð-
inn svo þreyttur á þessu að ég
gæti myrt prestinn.“ Heldur
ófagrar kveðjurnar þar...
Einn fornfrægasti
skemmtistaður lands-
byggðarinnar er H-100
á Akureyri, sem raunar lagði
upp laupana fyrir allnokkrum
árum eftir tímabil hálfámát-
legra tilrauna til nafnbreytinga
(Bleiki fíllinn, Sebra og svo
framvegis...). H-ið var upp á
sitt allra besta í kringum
diskótímabilið og var þá stolt
Akureyringa af yngri kynslóð-
inni. Höfuðborgarfólkið lagði
jafnvel á sig sérstaka ferð
norður til að upplifa fjörið. Nú
virðast allar vonir um að H-100
verði gert upp — og starfrækt
á nýjan leik sem musteri dans-
menntar á landsbyggðinni —
fyrir bí. Nýverið hófust nefni-
lega miklar framkvæmdir í
húsnæðinu í Hafnarstræti 100
og er áætlað að þar verði tólf
tveggja herbergja íbúðir í nán-
ustu framtíð. Það eru tveir
Reykvíkingar, Björn og Óskar
Einarssynir, sem standa fyrir
herlegheitunum, en þeir
keyptu húsið fyrir slikk í lok
síðasta árs. Húsnæðið hefur
staðið autt undanfarin ár og
var mjög illa farið samkvæmt
fréttum Akureyrarblaðsins
Dags, en samt sem áður er
stefnt að því að íbúðirnar
verði tilbúnar upp úr áramót-
um...
A nd
/\ Eh
J IlSOI
ndrés Magnússon,
Einar Öm Benedikts-
an og Þór Eldon gera
það ekki endasleppt í net-
bransanum um þessar mundir
og ganga nú meðal nethausa
undir viðurnefninu „hin heil-
aga netþrenning“. Ekki einasta
hafa þeir félagar staðið í stór-
ræðum með Hagkaupsveldinu
við smíði á Netkaupum þeirra
heldur hafa þeir sömuleiðis
startað heimasíðu-smíða-fyrir-
tækinu Kjarnorku og gera út á
ört vaxandi fyrirtækjamarkað
netsins. Fleiri verkefni munu í
bígerð og inn á milli hafa þeir
fundið sér tíma til að hanna
netbarinn Síberíu upp á nýtt
og opnuðu hann síðastliðinn
miðvikudag eftir umfangsmikl-
ar endurbætur...
Nú fara í hönd ánægju-
legir tímar hjá Friðriki
Erlingssyni skrifara
og viðbúið að hann fari lítið úr
sparifötunum á næstunni. Eins
og fram kemur annars staðar í
blaðinu, í viðtali við Gísla Snæ
Erlingsson, verður kvik-
myndin Benjamín dúfa
frumsýnd 2. nóvember.
Þar er Friðrik einmitt
handritshöfundur, en
myndin byggist á sam-
nefndri verðlaunabók
hans. Nú fyrr í vikunni
var hann að skila af sér
handriti til prentunar og
kemur skáldsaga hans
Liljan út hjá Vöku-Helga-
felli um miðjan nóv-
embermánuð. Sam-
kvæmt heimildum HP er :
um ástarsögu að ræða
og kemur hún meðal
annars inn á blekkinga-
leiki ástarinnar. Og rú- I
sínan í pylsuendanum er
sú að gellurnar í Borgar-
dætrum eru að vinna
plötu og af þrettán lög-
um sem á henni eru er
Friðrik skrifaður fyrir níu
þeirra sem textahöfund-
ur...
Undanfarin rúm tvö
ár hefur Eimskip
árlega flutt inn til
landsins yfir tvö þúsund
tonn af olíu í aukatönk-
um sem skip þeirra Lax-
foss býr yfir. Þegar heim
kemur er olíunni dælt yf-
ir í strandferðaskip fyrir-
tækisins, Múlafoss og
Reykjafoss, og dugar
hún til um það bil 90
prósenta af árlegri olíu-
notkun þeirra. Alla aðra
olíu á skip sín kaupir Eimskip
á erlendri grundu. Þrátt fyrir
að borga af þessum olíuinn-
flutningi alla tilskilda tolla og
gjöld hefur Eimskip reiknað
sér nokkurn hagnað af fyrir-
tækinu því að öðrum kosti
væru þessir aukatankar Lax-
foss ónýttir og þar með dauð
eign. Ljóst þykir að með þess-
um sniðuga Eimskipskróki á
móti bragðvondu olíuverðinu
hér uppi á klakanum verði ol-
íufélögin íslensku af gríðarleg-
um viðskiptum...
Nú eru tuttugu ár síðan
kvikmyndin Rocky Horr-
or var gerð en eins og
kunnugt er standa yfir sýning-
ar á söngleiknum í Loftkastal-
anum. Þeir Lofts-menn Ingvar
Þórðarson, Hallur Helgason
og Baltasar Kormákur eru nú
að skipuleggja sérstaka afmæl-
issýningu, en þá skipta leikar-
arnir um hlutverk. Til dæmis
víxla þeir Helgi Bjömsson og
Magnús Ólafsson og verður
fróðlegt að sjá Magnús í hlut-
verki pervertsins Franks
N’Furter. Einnig gæti verið at-
hyglisvert að sjá grínistann
vörpulega Davíð Þór í hlut-
verki vöðvabúntsins Rockys.
Rúsínan í pylsuendanum er
svo sú að höfundur verksins,
Richard O’Brien, hefur boðað
komu sína til landsins og mun
fótum troða íslenska jörð áður
en árið 1995 rennur skeið sitt
á enda...
Borgarnes fer að verða
mestur bruggbær á ís-
landi og það raunar með
löglegu móti. í hinu margfræga
og lengstum galtóma mjólkur-
búi þeirra Borgnesinga ætlar
fyrirtækið Arctic Trading að
koma upp umsvifamikilli fram-
leiðslu á íslensku brennivíni,
Eldís- vodka, Dillonsgini,
Tindavodka og Kláravíni. Fyrir
þremur árum keypti Eldhaka,
fyrirtæki Halldórs Kristjáns-
sonar, þessa framleiðslu af
Áfengis- og tóbaksverslun rík-
isins, en nú hefur hann semsé
selt hana Arctic Trading, sem
er að stórum hluta í eigu
Kaupfélags Borgfirðinga. Fyrir
er í Borgarnesi framleiðsla á
Icy-vodka og mun því láta
nærri að öll framleiðsla
sterkra vína á íslandi sé í
kaupstaðnum...
4 sambandsstjórnarfundi
/\ sem Samband ungra
J Xjafnaðarmanna heldur í
næstu viku mun Jón Þór
Sturluson, formaður SUJ,
segja af sér embætti vegna
persónulegra aðstæðna. Vitað
er um einn hugsanlegan fram-
bjóðanda í formannsstöðuna,
en það er Gestur G. Gestsson
stjórnmálafræðingur sem und-
anfarið ár hefur gegnt embætti
1. varaforseta SUJ. Gestur
mun ekki fráhverfur hugmynd-
inni. Hann kemur úr Hafnar-
fjarðararmi Alþýðuflokksins
og hefur hingað til verið talinn
til stuðningsmanna Guðmund-
ar Árna Stefánssonar. Hafn-
firskir jafnaðarmenn hugsa sér
gott til glóðarinnar, því þrátt
fyrir tiltölulega sterka stöðu
þeirra í flokknum hefur for-
maður SUJ ekki komið úr
þeirra röðum undanfarinn ára-
tug. Ungir jafnaðarmenn hafa
þannig kvartað óspart yfir rýr-
um hlut sínum innan yfir-
stjórnar SUJ en ekki haft erindi
sem erfiði. Líklegt þykir að
Reykjavíkurveldið innan SUJ
muni gera hvað það getur til
að koma í veg fyrir valdatöku
hafnfirsku jafnaðarmannanna
og hefur nafn Ingvars Sverris-
sonar, varaborgarfulltrúa
Reykjavíkurlistans og varafor-
manns ÍTR, verið nefnt í því
sambandi...
Undanfarin ár hefur
neysla svonefndra
„stuðsveppa" farið mjög
vaxandi, en þeir spretta eink-
um á túnum hér í Reykjavík á
haustin. Sveppir þessir valda
léttum ofskynjunum, einatt
hefur þeim líka verið blandað í
landa og úr orðið drykkurinn
„sveppalandi", og getur fólk
orðið heiftarlega veikt af
neyslunni. Þeir sem til þekkja
hafa líka talið sig merkja að
þegar sveppatíminn stendur
sem hæst sé mikill titringur í
bænum og vænta megi ofbeld-
isverka þegar margir eru undir
áhrifum þeirra. Nú ber hins
vegar svo við að nær algjör
uppskerubrestur virðist hafa
orðið á sveppunum í haust,
neytendur hafa án árangurs
leitað að sveppum í görðum
borgarinnar en sama og ekkert
fundið. Foreldrar, lögregla og
heilbrigðisyfirvöld þurfa sem-
sé ekki að hafa áhyggjur af
sveppunum þetta árið...
DAINICALL
© radiomidun
Grandagaröi 9 • 101 Reykjavík
Sími 511 1010