Helgarpósturinn - 26.10.1995, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 26.10.1995, Blaðsíða 10
HMMTUOAGUR 26. OKTÓBER1995 10 Útgefandi: Miðill hf. Framkvæmdastjóri: Þorbjörn Tjörvi Stefánsson Ritstjóri: Karl Th. Birgisson Ritstjórnarfulltrúar: Guðrún Kristjánsdóttir Stefán Hrafn Hagalín Auglýsingastjóri: Örn ísleifsson Setning og umbrot: Helgarpósturinn Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi hf. Farsinn um leikhússtjórann Ráðning leikhússtjóra til Leikfélags Reykjavíkur er orðin að farsa. í starfið var ráðinn tiltölulega ungur maður sem hefur að beztu manna yfirsýn staðið sig vel sem leikhússtjóri norðan heiða. Einn umsækjenda um starfið, kona komin yfir miðjan aldur, sættir sig ekki við þetta og hyggst kæra ráðning- una til jafnréttisráðs, á þeim forsendum að hún hafi meiri menntun og reynslu en karlinn sem ráðinn var. Það er nánast sjálfgefið að þessi kona hafi meiri reynslu en karlinn, þótt ekki væri nema vegna aldurs- munar. Hvaða merkingu hefur það í praxís? Á að setja einhvers konar aldursmörk á starf leikhússtjóra, að þangað megi einungis ráða þá sem starfað hafa í leik- húsi í tiltekinn árafjölda? Er reynslan trygging fyrir gæð- um? í annan stað: Hvaða menntun annarri fremur gerir fólk hæft í starf leikhússtjóra? Leikaramenntun? Leik- húsfræði? Bókmenntafræði? Svarið er vitanlega: Ekkert af ofangreindu. Vinnuveitendur, hvort heldur er í einkafyrirtækjum eða hjá hinu opinbera, verða að fá frelsi til að ráða þá til vinnu sem þeir vilja og treysta bezt fyrir starfinu. Sér- staklega á þetta við um störf í vitundariðnaðinum sem leikhúsið er hiuti af. Þar á ekki að spyrja um kyn, ekki um starfsaldur og ekki um formlega menntun. Þar á að spyrja: Hverjum er bezt treystandi til að Ieysa þetta verkefni vel af hendi? Þeir sem ekki lenda efst á þeim lista eiga að sjá sóma sinn í að sætta sig við þá niðurstöðu, en leita ekki lið- sinnis löggjafar sem stundum þjónar tilgangi sínum, en er æ oftar ekki í neinum tengslum við raunveruleikann. Stœrstu kapítalistarnir Tímabærar hugmyndir viðskiptaráðherra um aukna samkeppni um lífeyri landsmanna hafa enn einu sinni minnt á hvers konar risaeðla lífeyriskerfið er — og í hvers höndum það er. Það er of sjaldan minnt á hvernig hagsmunir leiðtoga launþega rekast á þegar þeir stjórna jafnframt stærstu lífeyrissjóðunum. í öðru orðinu segjast þeir gæta hags- muna launþega, heimta að vextir lækki og hóta aðgerð- um ella. í hinu orðinu eru þeir fulltrúar stærstu fjár- magnseigenda landsins og ber skylda til, sem gæzlu- mönnum fjármuna lífeyrissjóðanna, að ávaxta þá sem mest, sem sagt að hafa vextina sem hæsta. Hvernig tekst mönnum að samrýma þetta tvennt? Það tekst auðvitað ekki, en ítrekað komast þeir upp með að svara úr og í þegar á þessa árekstra er minnzt. Staðreyndin er sú að þeir, sem eru kjörnir fulltrúar til að reka kjarabaráttu alþýðunnar, sitja samtímis á sjóð- um sem miklu ráða um kjör fólksins í landinu. Stærstu kapítalistarnir á íslandi eru nefnilega Magnús L. Sveins- son, Benedikt Davíðsson og kollegar þeirra. Helgarpósturinn Vesturgötu 2 101 Reykjavík Sími: 552-2211 Bréfasími: 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243, fréttaskotið: 552-1900, tæknideild: 552-4777, auglýsingadeild: 5524888, símboði: 84-63332, símbréf: 552-2241, dreifing: 5524999. Áskrift kostar kr. 800 á mánuði ef greitt er með greiðslukorti, en kr. 900 annars. Framsóknarkvennabankinn að er kannske ljótt að segja það, en ég skellti upp úr þegar ég las ályktanir sem samþykktar voru á Landsþingi Landssambands framsóknar- kvenna. Já, það var haldið um síðustu helgi, ef þið skylduð hafa Punktar Karl Th. Birgisson misst af því. Ályktanirnar voru, eins og á svo mörgum öðrum vel skipulögðum og mannmörgum ráðstefnum, vel meintar, en um leið þægilega lausar við nokkur tengsl við raunveruleikann. Dæmi: Þingið hvatti þingflokk framsóknarmanna til að hafa for- ystu um að sunnudagar verði virkir fjölskyldudagar í þjóðfélag- inu. Ekki veit ég hvað „óvirkur fjölskyldudagur" myndi vera og ekki fylgdu útskýringar á því hvernig Guðni, Siv og félagar áttu að fara að því að gera sunnu- dagana „virka fjölskyldudaga", en væntanlega með einhvers konar löggjöf (það gera nefnilega þingmenn, setja lög) sem tak- marki hvað fólk má gera á sunnu- dögum annað en vera með fjöl- skyldunni. Hvernig er hægt að neyða fjölskyldur til að eyða sunnudögunum saman? Ég veit það ekki. Kannske með því að banna fólki að vinna um helgar til að eiga í sig og á, loka verzlunum og öðrum þjónustufyrirtækjum, o.s.frv. Kannske með því að banna virðulegum frúm að halda þing sín um helgar, þegar þær gætu verið að sinna fjölskyld- unni, til að samþykkja svona ályktanir. Annað dæmi: Þingið beindi því til Flnns Ingólfssonar að koma á fót „sérstökum kvennabanka“. Ekki fylgdu skýringar frekar en í fyrra dæminu, en væntanlega er átt við ríkisbanka sem sinni kon- um og þörfum þeirra sérstaklega og betur en aðrir bankar í land- inu gera. Ekki veit ég hverjar þær þarfir eru nákvæmlega, en ég saknaði þess að framsóknarkon- ur skyldu ekki skora á Finn að selja einhvern af þessum bölv- uðu kallabönkum í ríkiseign sem „Afhuerju erkröfu um bættan hlut kvenna innan „félagskerfis bœnda“ beint til Guðmundar Bjarnasonar? Er ekki Ari Teitsson formaður Bœndasamtakanna?“ vilja ekkert með konur hafa. Það væri örugglega stórt skref í jafn- réttisbaráttunni. En ekki er allt búið enn. Enn ályktuðu framsóknarkonur og skoruðu nú á Guðmund Bjarna- son landbúnaðarráðherra að bæta hlut kvenna innan félags- kerfis bænda. Enn og aftur vant- ar mig útskýringar á því hvað er átt við, en „að bæta hlut kvenna innan félagskerfis bænda“ hljóm- ar eins og snyrtilegt orðalag yfir að heimta meiri peninga af skatt- fé til bændakvenna en nú er eða a.m.k. til jafns við karlana. Það er sjálfsögð krafa, úr því verið er að moka stórfé í þetta kerfi á annað borð, en eitt þykir mér þó óljóst: af hverju er þessu beint til Guð- mundar Bjarnasonar? Er ekki Ari Teitsson formaður Bændasam- takanna og þar með yfirmaður „félagskerfis bænda“? Nema nátt- úrlega framsóknarkonurnar hafi eins og misst út úr sér þessa við- urkenningu á því sem andstæð- ingar landbúnaðarvelferðarkerf- isins hafa lengi haldið fram: að öllu batteríinu, félagasamtökun- um jafnt sem framleiðslunni, sé haldið uppi af skattgreiðendum. Meira en sjálfsagt að konur fái sinn skammt af þeim smáaurum. Að minnsta kosti þangað til Finn- ur stofnar Kvennabankann. Palladómur Er einhver að hlusta? Finnur Ingólfsson hafði varla setið nema tvo daga á ráð- herrastóli þegar hann opn- aði munninn og vildi lækka vexti. Svo lokaði hann munnin- um aftur, en vextirnir létu ein- sog þeir hefðu ekki heyrt í hon- um. Þá reyndi Sverrir Her- mannsson bankastjóri að kenna Finni eina sjálfsagða reglu: að það skipti engu máli hve oft flón einsog hann opnuðu munninn eða hvað þau segðu, það tæki enginn mark á þeim. Eftir það þagði Finnur lengi vel. En betur hefði Sverrir mátt kenna. í síðustu viku opnaði Finnur munninn aftur og sagðist ætla að stækka álverið í Straumsvík. Um sama leyti fregnaðist að ál- verð hefði lækkað útí löndum og Finnur fékk skömm í hattinn fyr- ir lausmælgi frá eigendum þess sama álvers. í nokkra daga hélt Finnur að máski hefði einhver tekið mark á honum og hann væri orðinn alvöruráðherra, en svo uppdagaðist að enginn vissi hvort álverið yrði stækkað og aukinheldur að álverðið hefði byrjað að lækka á meðan Finnur var ennþá með lokaðan munn- inn og steinhélt sér saman. Bet- ur hefði Sverrir mátt kenna. Enn og aftur opnar Finnur þó munninn, í þetta sinn á Akur- eyri, og tilkynnir nú kátum sparisjóðsstjórum að hann vilji afnema einokun lífeyrissjóða á lífeyri. Stjórarnir klöppuðu vel og lengi og aftur hélt Finnur að nú hefði einhver hlustað og hann væri orðinn alvöruráð- herra með alvöruvöld. En varla var Finnur þagnaður og stjór- arnir hættir að klappa þegar fregnin hafði borist suðrí Neðra- Breiðholt. Þar sat brúnaþungur utanríkisráðherra sem lagði piltinn á kné sér og áminnti um að áfram skyldu lífeyrissjóðir eiga kapítalið í landinu, það væri kapítal-ismi einsog Stein- grímur hefði kennt. Betur hefði Sverrir mátt kenna. Áfram mun Finnur opna munninn í veikri von um að ein- hver heyri. Áfram mun hann tala niður vextina, áfram mun hann stækka álverið með tungu- lipurð einni og áfram mun hann tala kapítalið frá þeim sem eiga til þeirra sem vilja. Og áfram mun hann loka munninum og áfram mun lífið halda sinn fasta vanagang. Enn mætti Sverrir kenna. Svelnn „ Utanríkisráðherra lagði piltinn á kné sér og áminnti um að áfram skyldu líf- eyrissjóðir eiga kapítalið í landinu, það vœri kapít- alismi einsog Stein- grímur hefði kennt. “ Á uppleið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Alit snýst í höndunum á Árna Sigfússyni sem heimtar skýring- ar á j)ví af hverju Solla kaupir snyrtivörur fyrir einhvern skit- inn 21 þúsund kall. Kommon. Gott hjá borgarstjóranum að vilja vera fín og fiott og viður- kenna f leiðinni að hún sé kona. Way to go. Heimir Steinsson Langþráð uppsveifla. Nú dynur yfir hann skæðadrífa lesenda- bréfa einhverra forpokaðra ís- lendinga sem kvarta undan klámi í RUV. Hann stendur þetta af sér eins og sannur foringi. Nú á það einmitt við að veita engin svör. Svo ætti að hafa nett klám- fengna kalla í hávegum — (ekki endilega að Heimir sé einn slíkur). Jón Baldvin Hannibalsson Það er stöðugur uppgangur hjá Jóni. Nú er Úffe vinur hans Elle- mann líklegur kandídat sem að- al hjá NATO. Það ætti því að vera iýðum Ijóst að séu menn krataforingjar með yfirskegg þá eru þeim allir vegir færir í Evrópu. Á niðurleið Ingibjörg Pálmadóttir Þessi fyrrverandi hjúkka sem varð óvænt heilbrigðisráðherra er ekki líklegur kostur til að setja sérfræðingum stólinn fyrir dyrnar. Henni finnst vænlegra að belna spjótum sfnum að reykingamönnum og nú vill hún herða lög um tóbaksvarnir. Hún er forsjárhyggjan holdi klædd. Ólafur Jóhann Ólafsson Fyrir skömmu birtust flennifyr- irsagnir þess eínis að hann hefði verið hækkaður í tign hjá Sony. Fagnaðarlátunum hafði ekki enn linnt þegar heyrðist að Japaninn hefði vikið honum úr starfi. Það er varhugavert að treysta þeim. Munið Peari Harbour. Þórhildur Þorleifsdóttir Klagar í Jafnréttisráð af því að Borgarleikhúsið vildi hana ekki. Og í leiðinni fær hún vinkonu sína, hana Maríu Kristjánsdótt- ur, til að skrifa í Moggann um það hvað hún sé fær og flink en Viddi Eggerts, þessi góði dreng- ur, sé algjör labbakútur í leik- húsi. Dudududu.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.