Helgarpósturinn - 26.10.1995, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 26.10.1995, Blaðsíða 26
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995 26 M leikhús Þrek og tár — Þjóöleikhús, fim. og lau. (Uppselt) Enn eitt samstarfsverkefni Óla Hauks sem skrifar og Þórhalls ' Sigurðssonar sem leikstýrir. Taktu lagið, Lóa — Þjóöleikhús, Smíöaverkstæöi, lau. (Uppselt) Sýning sem naut fádæma vinsælda á síðasta leikári. Ólafía Hrönn Jónsdótt- ir fer á kostum. Stakkaskipti — Þjóöleikhús, fös. Guðmundur Steinsson tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið í Stundarfriði. Sýning frá síðasta leikári í leikstjórn leikhússtjórans Stefáns Baldurssonar. Kardemommubærinn — Þjóöleikhús, sun. (Uppselt) „Ég er þess fullviss að þessi drengur [Bergur Þór Ingólfsson] verður einn af þeim stóóru, nóta bene; ef ekki hendir slys „þarna uppi", hverju guð forði." (EE) Sannur karlmaöur — Þjóöleikhús, Litla sviö, fim. og sun. „Kúgun konunnar hafa troðið sér inn í þessa sýningu ófyrirsynju ásamt með tilhneigingu til að deila á yfir- gang karlrembusvínsins Fernandos Krapp." (EE) Súperstar — Borgarleikhús, fös. og lau. Söngleikurinn frægi sem hefur farið mjög vel í landsmenn og flest bendir til að ætli að standa uppi sem sigur- vegari í söngleikjakeppninni miklu. Lína langsokkur — Borgarleikhús, lau. og sun. Klassískt barnaleikrit með Margréti Vilhjálmsdóttur í hlutverki rauð- hærða grallarans með flétturnar. Tvískinnungsóperan — Borgarleikhús, fim. og sun. „Fjörið verður minna en skyldi. Hin háttvísu, bundnu fagmannstök hand- anna í sviðsetningunni fella nokkurn fjötur á hið glettna óstýrilæti andans í höfundarverkinu. Leikstjórinn hefur sem sagt ekki skilið höfundinn rétt!" (EE) Viö borgum ekki, viö borgum ekkl — Borgarleikhús, lau. Farsi eftir Dario Fo í leikstjórn Þrast- ar Leós. Hvaö dreymdi þig, Valentina? — Borgarleikhúsiö, fim. (uppsett) og lau. „Leikritið er rangtúlkað. Persónurnar á sviðinu eru ekki þær sem höfundur reynir að lýsa í leikritinu. Þar eru þær — í sem stystu máli — miklu vitiaus- ari og allt sem þær iðka falskara." (EE) Bar-par — Borgarleikhús, fös. og lau. (Uppselt) „Þetta er sýningin." (EE) Drakúla — Leikfélag Akureyrar, fös. og lau. Leikhússtjórinn Viðar Eggertsson í hlutverki vampírunnar frægu. Rocky Horror — Loftkastalinn, fös. plús miönætur- sýning á lau. (Miönætursýning) Söngleikur úr smiðju Flugfélagsins Lofts. Baltasar Kormákur leikstýrir og Helgi Björnsson fer á kostum sem pervertinn Frank N’Furter. Trójudætur — lönó, fös. „Smásmugulegar hugmyndir okkar rislitlu tíma um fánýti stríðs, jafnrétti kynja, jöfnuð og réttlæti yfirleitt, — eiga ekkert erindi við hina stóru trag- edíu og síst við Evripídes." (EE) Himnariki — Gamla bæjarútgeröin í Hafnarfiröi, fös. (uppselt), lau. (uppselt), lau. miö- nætursýning og sun. Nýr gamanleikur eftir Árna Ibsen í uppfærslu Hafnarfjarðarleikhússins þar sem leikstjórinn Hilmar Jónsson fer fremstur í flokki. Sýning sem hlot- ið hefur frábæra dóma enda Ibsen eitt okkar fremsta leikskáid. Ævlntýrabókln — Möguleikhúsiö viö Hlemm, lau. „Alveg frá upphafi skapaðist eitthvert það trúnaðartraust milli ieikaranna allra — og áhorfenda — sem gerir það að verkum að ekkert annað skipt- ir verulegu máli." (EE) Carmina Burana — íslenska óperan, lau. „Það er einfaldlega svo mikið fjör og lífsþróttur í sýningunni að taugaveikl- uðustu menn gleyma hvað þeir eiga oft erfitt." (EH) Sápa þrjú og hálft — Hlaövarpinn, sun. Frumsýning á farsa eftir Eddu Björg- vinsdóttur. Hlýtur að vera fyndið! Hallgrímur Helgason, rithöfundur, myndlistar- ■naður, standgrínisti og nú poppari — rappari: „hey! hvað segiði eigum við ekki að reyna að kíkja eitthvað annað maður þú veist. hundfúlt að hanga hér eins og refur í búri maður þú veist, eigum við ekki að láta einhvern beila okkur útúr þessu pleisi hérna maður ha?“ Hallgrímur Helgason, einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar, fær gamlan popparadraum sinn uppfylltan og rappar inná nýjustu plötu Ásgeirs Sæmundssonar og Styrmis Sigurðssonar, dúettsins Lassý Rithöfundur rappar um barflugur Anæstu dögum munu heyrast á öldum ljós- vakans lög af fyrstu plötu dúettsins Lassý sem Ásgeir Sæmundsson og Styrmir Sigurðsson skipa. Þeir félagar spiluðu áður með gæðasveitunum Pax Vobis og Hunangstunglinu, en hafa ekki komið opinber- lega fram síðustu ár heldur legið í hljóðvershíði og með- al annars unnið efni á þessa plötu sem kemur útí næsta mánuði. Það óvenjulegasta við gripinn er sennilega að einn ástsælasti skáldjöfur þjóðarinnar bregður þar yf- ir sig popparaham í einu laganna og rappar „frum- saminn texta eftir sjálfan sig“. Það er rithöfundurinn Hallgrímur Helgason sem rappið fremur og fær þannig gamlan draum sinn uppfyllt- an. Styrmir segist hafa kynnst Hallgrími útí París fyrir nokkrum árum. „Ég og Hallgrímur vorum þarna í ákveðnu samstarfi sem gekk mjög vel og okkur Ásgeiri hefur síðan alltaf fallið vel við það sem hann hefur sent frá sér. Hugmyndin með Hallgríms-rappið kviknaði síðan þegar við uppgötvuðum að þetta hafði lengi verið draumur hans. Við erum mjög sáttir við útkomuna.“ -ihh NEIHÆ! (prólóg:) hey! hvad segiði eigum við ekki að reyna að kikja eitthvað annað maðurþú veist. hundfúlt að hanga héreins og refúr i búri maðurþú veist, eigum við ekki að lóta einhvem beila okkur útúr þessu pleisi héma maður ha? er það ekki? jú er það ekki múlið bara, þú veist héma, bila okkur eitthvað burt, bam niðrí bœ eða eitthvað maður? ha? ókei? ókei þú ert algjört nei ég nenni ekki að reyna við þig. alltofeasy lay ég vil bar þar sem hverjir vom hvar spes og góðan grúvístað, en þar sem maður kemst shxix inn — samt inn — fíjót við förum fremst éééééééég dyravörð inn kyssi ú kinn með ameriskum hreim og segist heila Benny Hinn vœti kverk geri kraftaverk þessi, þessi og þessi með húrið hér nei þessi hann er ömurlegur, ekta lúsertœp og tregur, ekkert skyldur mér hérséguð stuð heib og gellukmð mér er múl skúl þú ertalgjörnúI mig langar að þrœða mínum tvinna íþína súl ogsegja einmitt einmitt segja ekki orð bara fömm uppd borð fyrir þig ég gœti framið gjöming eða morð engefmérsopa annun sopa tíu litla viskýdropa (viðlag.) nei hœ! og takkfyrirsíðastþetta varmeirihúttargeim, ogþú... nei hœ! ég hélt þú vœrir úti eða varstu að koma heim? ogþú... nei hœ! I met you at the party but / didn 't get your name, ogþú.. nei hœ! og þú ert héma líka varstu að koma inn með þeim? ha ég? ja ég bara þú veist bara i góðum fil sko þú ert liot shot hottintott ekki meira mina, ég fœ eym klœr og skott og fer að þefa slefa ég hef svo msa mikið þér að gefa dœmis blóð Ijóð í sígarettu glóð þú ert algjör linda engin hófi og örugglega kúl og bóli gróf í ha? einmitt einmitt fúum okkur flog innó klói og bílum okkur eftir barinn inn í Súðarvog en gef mér sopa annansopa kaffíbarinn lítinn dmpa nei hœ! ogtakkfyrirsiðast j>etta varmeirihúttargeim, ogþú... nei hœ! ég hélt þú vœrir úti eða varstu að koma heim? og þú... nei hœ! / met you at the party but l didn 't get your name, ogþú.. nei hœ! og þú ert héma líka varstu að koma inn með jreim? ha ég? ja bara þú veist égbara jd...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.