Helgarpósturinn - 26.10.1995, Síða 6
Enn komast mannaráöningar utanríkisráöuneytisins í sviðsljósið og nú eru þaö framsóknarmenn og Halldór
Ásgrímsson sem eiga í hlut
Utanríkisráðherra
raðar kringum sig
flokksbræðrum
Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra hefur gengið
rösklega fram í mannaráðning-
um frá því að hann tók við
embætti og vekur athygli að
nokkrir dyggir framsóknar- og
samvinnuhreyfingarmenn hafa
bæst í starfsmannahóp ráðu-
neytisins. Meðal þeirra eru
Þórður Ingvi Guðmundsson
sérverkefnamaður og Atli Ás-
mundsson blaðafulltrúi. Þórð-
ur er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Lindar sem Sam-
vinnubankinn setti á laggirnar
og Atli er fyrrverandi blaða-
maður Tímans. Framsóknar-
maðurinn Hilmar Hilmarsson,
fyrrverandi hagfræðingur hjá
Álþjóðabankanum í Washing-
ton, gegnir síðan stöðu aðstoð-
armanns ráðherra.
Skömmu eftir að nýr utanrík-
isráðherra tók við var einnig
ráðin þangað til skrifstofu-
starfa Ánna Ósk Kolbeinsdótt-
ir, en hún hefur um árabil
gegnt stjórnarstörfum fyrir
framsóknarmenn í Reykjanes-
bæ.
Gamalreyndur embættis-
maður í Stjórnarráðinu segir
það gamla sögu og nýja að ráð-
herrar séu duglegir við að ráða
flokksbræður sína í æðstu
stöðurnar kringum sig og fjöl-
mörg mál því tengd hafa komið
upp á síðustu árum. „Það þykir
hinsvegar gegna nokkurri
furðu að framsóknarmenn,
sem manna harðast gagn-
rýndu til dæmis mannaráðn-
ingar Alþýðuflokksins á síð-
asta kjörtímabili, skuli svo op-
inskátt raða fjöldanum öllum
af skoðanabræðrum sínum á
jötuna," sagði embættismaður-
inn í samtali við HP.
Sú ráðning Halldórs Ás-
grímssonar sem hvað mesta
athygli hefur vakið er þegar
hann fékk til sín Þórð Ingva
Guðmundsson í sérverkefni.
í samtali HP við Þórð Ingva
kom fram að hann hefði verið
ráðinn 1. júlí síðastliðinn til að
vinna nokkur sérverkefni á
vegum ráðuneytisins. Þórður
Ingvi kvað það rétt að hann
væri meðal annars að vinna að
úttekt á skipulagningu og
rekstri Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar, en að öðru leyti
vildi hann ekki tjá sig um verk-
efni sín.
Nokkur kurr er kominn upp
innan embættismannakerfis-
ins vegna jjeirrar ráðstöfunar
að setja Þórð Ingva í þessi
verkefni, þarsem hann var á
sínum tíma framkvæmdastjóri
fjármögnunarfyrirtækisins
Lindar, sem Samvinnubankinn
og Samvinnusjóðurinn komu á
laggirnar, og stýrði hann fyrir-
tækinu í gjaldþrot eftir átta ára
rekstur.
Gjaldþrot Lindar nam 700
milljónum króna og í blaða-
skrifum um málið var gengið
svo langt að líkja Þórði Ingva
við Nick Leeson, sem gerði
hinn fornfræga Baringsbanka
gjaldþrota með ævintýralegri
spákaupmennsku.
„Það orkar mjög tvímælis að
maður með svona fortíð skuli
fara beint í vinnu í Stjórnarráði
íslands — hvort sem hann
höndlar þar með peninga eða
ekki,“ sagði háttsettur embætt-
ismaður í samtali við HP.
í svipaðan streng tók heim-
ildamaður HP í umfjöllun
blaðsins um málefni Lindar
siðastliðið vor og dró í efa
4 . í
Þórður Ingvi Guðmundsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Lindar: Var ráðinn af utanríkis-
ráðherra í sérverkefni. Það þykir
orka tvímælis að setja mann,
sem stýrt hefur fyrirtæki í 700
milljóna króna gjaldþrot, meðal
annars í að rannsaka rekstur og
skipulag Flugstöðvar Leifs Eiríks
sonar.
stjórnunar- og fjármálahæfi-
leika manns sem kemur fyrir-
tæki í svo stórt gjaldþrot:
„Sjálfstraust mannsins var svo
mikið að fæturnir snertu varla
jörðina þegar hann gekk. Það
jók þó ekki á hæfileika hans til
að stjórna fyrirtækinu."
Samkvæmt öðrum heimild-
um blaðsins má rekja örlög
Lindar beint til þess að Þórður
Ingvi Guðmundsson hafi ekki
ráðið við starf sitt og tilfinnan-
lega hafi skort á eftirlit með
vinnu hans og athöfnum. —
Sömu sögu var að segja af Nick
Leeson þegar ævintýra-
mennska hans komst upp fyrir
rest.
Að lokum má geta þess að
Axel Nikulásson var ráðinn í
sumar sem deildarsérfræðing-
ur á viðskiptaskrifstofu ráðu-
neytisins, en hann var valinn
úr hópi fjölmargra umsækj-
enda sem sóttu um stöðuna í
mars síðastliðnum. Ekki er vit-
að til þess að Axel hafi nokkur
tengsl inní Framsóknarflokk-
inn.
embætti og þar hefur sérstaklega ein ráöning vakið kurr innan kerfisins: ráöning hans á Þórði Ingva Guðmundssyni í sérverkefni.