Helgarpósturinn - 26.10.1995, Side 8

Helgarpósturinn - 26.10.1995, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER1995 ■^s: Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna arfleitt aö öllum eignum Sigurbjargar Sighvatsdóttur, sem metnar eru á allt aö 70 milljónir króna „Þetta er risavaxin gjöf" - „sem styrkir starf styrktarfélagsins gríðarlega mikið," segir fram- kvæmdastjóri þess Þorsteinn Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna: Gjöf Sigurbjargar Sighvats- dóttur gjörbreytir öllu okkar starfi. Meö þessu er félaginu skapaður höfuðstóll sem við munum ávaxta af kostgæfni og á eftir að efla starf okkar til mikilla muna. Mynd: Jim Smart. Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna fékk fyrir skemmstu höfðinglega gjöf þegar félagið var arfleitt að eignum sem metnar eru á allt að sjötíu milljónir króna. For- saga málsins er sú að þegar Sig- urbjörg Sighvatsdóttir lést í júnímánuði árið 1994 arfleiddi hún styrktarfélagið að öllum eigum sínum, ef frá er talið inn- bú sem hún arfleiddi tvær vin- konur sínar að. Þær hafa þegar ráðstafað innbúinu og létu meðal annars hluta þess renna til styrktarfélagsins, sem notaði húsgögnin í íbúð sína á Flóka- götu 62 í Reykjavík. Sigurbjörg átti enga lögerfingja. Skiptaráðandi hefur ekki lok- ið við að gera dánarbú Sigur- bjargar upp, en fyrir áramót ætti því verki að vera lokið. Tal- ið er að enn séu ekki allar eignir Sigurbjargar komnar í ljós og til dæmis mun vera í athugun hvort hún hafi átt eignir á er- lendri grundu. „Þetta er risavaxin gjöf sem styrkir starf styrktarfélagsins gríðarlega mikið og við vorum orðlaus af gleði þegar við heyrðum þessar fregnir. Gjöf Sigurbjargar Sighvatsdóttur gjörbreytir öllu okkar starfi. Með þessu er félaginu skapað- ur höfuðstóll sem við munum ávaxta af kostgæfni og á eftir að efla starf okkar til mikilla muna,“ sagði Þorsteinn Ólafs- son, framkvæmdastjóri Styrkt- arfélags krabbameinssjúkra barna, í samtali við HP. Sigurbjörg Sighvatsdóttir mun hafa fengið þessar miklu eignir eftir föður sinn, sem byggði upp lítið byggingafyrir- tæki og arfleiddi dóttur sína að eignunum. I stórum arfsmálum sem þessu þarf síðan oft lítið til að óánægjuraddir spretti upp og hefur HP þannig heimildir fyrir því að meðal ættingja Sigur- bjargar hafi komið upp nokkur kurr varðandi erfðaskrána, ekki sökum þess hvert arfurinn rann, heldur í sambandi við skiptingu innbúsins. Þorsteinn segist hinsvegar ekki hafa heyrt af því máli. „Eg kannast ekki við annað en að ættingjar Sigur- bjargar séu hæstánægðir með ráðstafanir hennar í erfða- skránni. f öllu falli hafa mér eng- ar fregnir borist um væringar eða óánægju meðal ættingja hennar.“ Ein nákomin vinkona Sigur- bjargar mun þó hafa sett sig í samband við Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og tjáð forsvarsmanni þar að hún væri ósátt við að þessari stór- gjöf hefðu ekki verið gerð al- mennileg skil í fjölmiðlum. Þor- steinn var spurður hvort ástæða þess að styrktarfélagið hefur lítið hampað arfinum væri sú að félagið teldi það skaða aðra fjáröflun sína. „Nei. Það er alrangt. Alrangt. Síðan við fréttum að styrktarfélagið ætti von á þessum arfi höfum við ekki farið út í neina stóra fjáröflun og hyggjumst alls ekki gera það. Slíkt myndi flokkast undir yfirgang og frekju. Félagið hefur starfað fyrir opnum tjöld- um frá upphafi og aldrei reynt að leyna nokkrum hlut. Ástæða þess að við höfum enn ekki til- kynnt um arfinn á áberandi hátt er einfaldlega sú að það er ekki búið að ljúka skiptum á búinu. Við höfum aftur á móti sam- mælt okkur um það við lög- fræðing Sigurbjargar að hann afhendi okkur gjöfina á frétta- mannafundi þegar þar að kem- ur og skiptingu búsins er lokið. Einnig munum við heiðra minn- ingu Sigurbjargar með öðru móti.“ Styrktarfélagið á fjölmarga trausta styrktaraðila meðal ein- staklinga og fyrirtækja og Þor- steinn segir að ekki sé á dag- skránni að pakka saman og slá á útrétta hjálparhönd. „Við stöndum fyrir kostnaðarsömu starfi í þágu krabbameinssjúkra barna og fjölskyldna þeirra. Ennfremur styrkjum við barna- deildir og kostum lækna og hjúkrunarfólk til menntunar og fræðslu í þessum efnum.“ Þor- steinn segir styrktarfélagið sjá fram á langa baráttu fyrir fram- gangi baráttumála sinna og því megi ekki láta deigan síga. Að lokum má geta þess að Þorsteinn Ólafsson er faðir stúlku sem veiktist úr krabba- meini á sínum tíma, en hefur nú náð bata. í baráttu sinni gegn sjúkdómnum og fyrir velferð dóttur sinnar var hann einn af þeim sem hleyptu styrktarfé- laginu af stokkunum og starfar nú sem framkvæmdastjóri þess. Vegfarendur í stórhættu á Laugavegi Grétar vill hjólin burt Grétar Norðqörð, lög- regluvarðstjóri í Reykja- vík og yfirmaður grenndarsveitar miðborgar- svæðisins, sendi nýverið bréf til borgarráðs þar sem hann kvartaði yfir umferð hjólreiða- manna um Laugaveg. Málið er þannig vaxið, að hjólreiða- menn mega samkvæmt lögum nota gangstíga og gangstéttir svo framarlega sem það er ekki til óþæginda eða hættu fyrir gangandi vegfarendur, en nokkur misbrestur hefur orðið þar á — sérstaklega á Lauga- vegi. Hins vegar skortir skýrari ákvæði í lög þannig að lög- reglumönnum sé ótvírætt heimilt að vísa hjólreiðamönn- um af gangstéttum þegar það á við. „Hjólreiðamenn virðast ekki taka tillit til laganna og eru sumir hverjir að hjóla á gang- stéttum innan um gangandi fólk og valda því óþægindum og jafnvel hættu,“ sagði Margr- ét Sæmundsdóttir, formaður Umferðarnefndar sem fékk málið til meðferðar, í samtali við HP. í sama streng tóku full- trúar kaupmanna sem HP ræddi við vegna málsins og bentu á að viðskiptamenn þeirra ættu stundum fótum fjör að launa þegar þeir stigju út úr verslunum og' hjólreiða- menn kæmu á fullri ferð fram- hjá. „Við erum búin að benda á þetta í nefndinni og höfum gert þar að lútandi bókun. Lögin eru alveg undantekningarlaus í þessu sambandi. Hjólreiða- menn mega þetta ekki og það er lögreglunnar að framfylgja því,“ sagði Margrét. Hún sagði það ákveðið vandamál að eng- ar sektir fylgdu þessum um- ferðarlagabrotum, en hún hefði trú á því að lögreglan reyndi að stugga við þeim eftir mætti. í samtali HP við Grétar Norð- fjörð kom fram að hann vildi með bréfinu vekja athygli á því að ótækt væri að gangandi vegfarendur væru í stórhættu vegna umferðar hjólreiða- manna um gangstéttir Lauga- vegar. Það sem Grétar æskir er að umferð hjólreiðamannanna um Laugaveg verði formlega bönnuð, en nokkur ágreining- ur er um hvort heimild sé til þess, þar sem í lögum segir að hjólreiðamenn megi nota gang- stéttir nema það valdi óþæg- indum. Sjálfur sagðist Grétar hafa séð nokkur dæmi þess að fólk væri í stórhættu vegna hjólreiðamannanna. Samkvæmt heimildum HP vilja borgaryfirvöld forðast það í lengstu lög að ganga á svig við landslög á ofangreind- an hátt, en sérstaklega þykir varasamt að egna hjólreiða- menn til reiði með því að leggja blátt bann við umferð þeirra um mestu verslunar- götu landsins. Hugsanleg lausn á málinu — sem árum saman hefur verið í umræðunni — er að setja upp skilti við Lauga- veg þar sem fram kæmu vin- samleg en þó ákveðin tilmæli til hjólreiðamanna um að hjóla ekki á gangstéttum á háanna- tíma, frá klukkan 10.00 til 19.00. Grétar Norðfjörð: Fólk hefur verið í stórhættu.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.