Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 26.10.1995, Qupperneq 18

Helgarpósturinn - 26.10.1995, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 19í Netscape-fyrirtækið hefur árum saman státað af langbesta netreklinum (browser) og nýjasta útgáfan, Netscape 2.0, er mætt á mark- aðinn. Meðal athyglisverð- ustu nýjunganna er að net- hausar geta nú skoðað margar heimasíður samtímis á skján- um. Netscape 2.0 montar sig sömuleiðis af myndrænasta tölvupóstinum því nú geta menn sent myndir sem sjást samstundis hjá sendanda og viðtakanda. Þessa nýju útgáfu er hægt að náígast á ftp://ftp.netscape.com/... — Árlega Iandsfundarumræðu breska Verkamannaflokksins gefur nú á að líta á heimasíð- unni http:// www.popt- el.org.uk/labour-party/ þar- sem menn geta kynnt sér froð- usnakkið í Tony Blair og tjáð sig um þau málefni sem til um- fjöllunar eru: fjölskyldugildin, Thatcher- ismann og allt það... — Webodex Organizer nefnist handhægt skipulagn- ingartæki sem fílófax-röð-og- reglu-fríkin ættu að næla sér í gegnum http:// nova- web.com/webodex. Webo- dexinn virkar einna best með IForsetafram bjóðandi vikunnar Dr. Bjami Leitin aðtorsetaframbjóð- andanum heldur sínu striki. Þó að Steingrímur J. sé heitur þá er einn sem gæti velgt honum verulega undir uggum. Nefnilega sjálfur fjöl- listamaðurinn dr. Bjarni eða Kokkur Kiijan Kvæsir eins og hann kallar sig stundum. Dr. Bjarni yrði þjóðlegur leiðtogi eins og Steingrímur en myndi aukinheldur leggja til ákveðin frumlegheit. Ætli það færi nú ekki um þjóð- höfðingjana ýmsa þegar Bjarni legði fyrir þá Sjón- háttinn sinn: „Oss í té, Iék í bé...“ og svo framvegis. Og það er alveg öruggt mál að hann væri ekkert í einhverju snobberíi eins og viðgengist hefur alltalltof lengi. Hver þarf á slíku að halda nú á tímum? Nú er bara að fara að vinna í lýðhyllinni, Bjarni, sem er hreint ekki öf- undsvert hlutskipti meðal þjóðar sem ávallt hefur van- metið sina helstu snillinga. HP vill stytta Hj tijóðinni biðina eftir B forsetaframbjóðendum I með tillogum um I ákjósanleg ■ forsetaefni. 9 Skrifað hjá háttvirtum kjósendum „ L í f 1 e g u r umræðuþátt- ur var í sjón- varpi sl. þ r i ð j u d a g sem nefndist Háttvirtir kjósendur. Meðal þeirra sem fram komu í þættinum var dr. Gylfi Þ. Gíslason. Þegar dr. Gylfi var mættur í upp- tökuna spurði hann stjórn- anda þáttarins, Jón Baldvin Hannibalsson, hvort ekki væri hægt að fá kaffisopa á staðnum. í upptökusalnum var ekkert kaffi, svo Jón Baldvin fór upp á efstu hæð- ina í sjónvarpshúsinu þar sem mötuneytið er. Þar er elskuleg kona við afgreiðslu og ekkert mál að fá kaffi á brúsa til að fara með niður í stúdíó. „Hjá hverjum á að skrifa þetta?“ spyr svo kon- an. „Tja, það veit ég ekki,“ segir Jón Baldvin, „hjá þætt- inum, býst ég við.“ „Hvaða þætti?“ spyr þá konan. „Hátt- virtum kjósendum," svarar Jón Baldvin. „Já,“ segir kon- an. „Það er einmitt það. Það nú búið að skrifa svo margt hjá þeim...“ 24. okt. 1980 Hégómleiki fræga fólksins Issur Danielovitch heitir nú Kirk Dpugfm Reglubundið er frægu fólki í skemmtana- bransanum á er- lendri grundu gerður sá óleikur að upphaf- leg nöfn þess eru grafin upp og birt og almenningur þannig áminntur um magn- aðan hégómleika fólksins sem baðar sig í sviðsljósi upp á hvern dag. Það virð- ist ófært annað fyrir HP en að taka þátt í þessum hráskinna- leik. Við vonum bara að stórleikarinn Mi- chael Keaton fyrir- gefi okkur þótt við upplýsum að hann var skírður Michael Douglas, að Stevie Wonder láti sér í léttu rúmi liggja þótt íslendingar viti að hann heitir í raun- inni Steveland Mor- ris og að heiður- skrúttið Wynona Ryder kippi sér ekki upp við að við segjum frá hinu tilkomumikla ættarnafni henn- ar, Horowitz... Lítum á nokkra til viðbótar: Alan Alda: Alphonso D’- Abruzzo; Albert Brooks: Al- bert Einstein; Bela Lugosi: Bela Ferenc Blasko; Ben Kingsley: Krishna Banji; Bo Derek: Cathieen Collins; Boy George: George Alan O’Dowd; Brigitte Bardot: Camille Ja- val; Bruce Lee: Lee Yuen Kam; Cher: Cherilyn Sarkisian; Chuck Norris: Carlos Ray; Danny DeVito: Daniei Micha- eli; Demi Moore: Demi Guy- nes; Diane Keaton: Diane Stórleikarínn Michael Keaton: Vissuð þið að þessi heiðursmaður ber í rauninni ættar- nafnið Douglas og svaraði því nafni fram á fullorðinsár?... Hall; Elvis Costello: Declan Patrick McManus; Engelbert Humperdinck: Arnold Dors- ey; Huey Lewis: Hugh Cregg; Jack Palance: Walter Pal- anuik; Jane Seymour: Joyce Frankenberg; Jane Wyman: Sarah Jane Fulks; Joan Craw- ford: Lucille Le Sueur; John Denver: Henry John Deut- schendorf yngri; John Ford: Sean O’Fearna; Joni Mitchell: Roberta Joan Anderson; Judy Garland: Frances Gumm; Julie Andrews: Julia Wells; Kirk Douglas: Issur Danielovitch; Michael Caine: Maurice Micklewhite; Mickey Rooney: Joe Yule yngri; Nastassjí Kinski: Nastassj; Naksyznyski; Pee-Wee Her man: Paul Rubenfeld; Rodnej Dangerfield: Jacob Cohen Roy Rogers: Leonard Slye Rudolph Valentino: Rudolp ho D’Antonguoila; Shirlej McLaine: Shirley Beatty; Stai Laurel: Arthur Jefferson Tom Jones: Thomas Wood ward; Tom Cruise: Thoma: Mapother; Tony Bennett: Ant hony Benedetto; Tony Curtis Bernard Schwartz; Victoi Borge: Borge Rosenbaum Whoopi Goldberg: Caryr Johnson. SiggiHall & hatturinn hans Netscape-forritunum og auð- velt sýnist að gleyma sér þar um aldur og ævi við skipu- lagningu: hverjum glymur klukkan núna?... — Hvítlauk- ur hefur gegnum árþúsundin verið notaður í matargerð ásamt því að hjálpa mönnum að verjast vampírum. Egyptar gengu hinsvegar svo langt að dýrka hvítlauk sem guðlega afurð meðan Grikkir á Ólymp- íuleikum til forna létu sér nægja að tyggja hann til styrk- ingar. Allt um hvítlaukinn er að finna á http://www.mistr- al.co.uk:80/garlic/ en til- gangsleitarmaðurinn Jón Er- lendsson yfirverkfræðingur ætti að haida sig þar víðs fjarri... — Hið framúrskarandi tölvufyrirtæki Delphi er nú að þróa illyrmislegan netleik sem nefnist Netropolis og er þegar til reiðu á netinu gegnum net- fangið http://www.delp- hi.co.uk/netropolis/ alveg ókeypis. Leikurinn gengur útá að menn byrja með ákveðna fjárhæð (1 milljón) og eiga með það kapítal í höndunum að byggja upp eigið viðskipta- stórveldi og tryggja tortím- ingu annarra (60 þúsund kost- ar að rústa bar og fyrir 100 þúsund geta menn fengið veit- ingastað sprengdan í tætiur). Ef allt gengur síðan á þverveg- inn og viðskiptaveldið er að hruni komið geta menn ein- faldlega teygt sig í skrifborðs- skúffutetrið, náð þar í byssu og skotið úr sér sýndarveru- leikaheilann: heillandi tilhugs- un atarna fyrir komandi kyn- slóðir sýndarveruleikavið- skiptajöfra... Leitin að hattamönnunum góðu heldur áfram, enda telur HP skömm að því hversu vanmetin fyrirbæri höf- uðföt eru hér á landi. Einkum eru hattar höfuðprýði. Síðast var Guðlaugur Tryggvi hatta- maður vikunnar og það vill svo skemmtilega til að Siggi Hall, meistarakokkur og dagskrár- gerðarmaður, keypti samskon- ar hatt á dögunum og einmitt á Heathrow eins og forveri hans hér. Eins og Guðlaugur bendir Siggi á að bandið geri gæfu- muninn og passi vel við ís- Ienskar að- stæður. „Þetta er praktískur hattur og eng- ir stælar/ segir Siggi. „Eg átti heima í Noregi í tíu ár og þá var mað- ur alltaf með lopahúfu þegar vont var veður. Hér nota menn sjaldnast höfuð- fat og er alltaf skítkalt á hausn- um í slyddunni og rigningunni — ojjjí. Nú bara smelli ég á mig þessum líka fína hatti þegar þannig viðrar. Kem þurr- höfða inn á staðina, þarf aðeins að greiða úr hárinu og er „fit for fight“.“ Siggi vill taka fram að hann eigi líka þennan fína sólarstrandahatt, sem hann setur upp þegar mikil sól er. „Einu sinni var ég næstum búinn að fá sólsting úti á Flórída, brann á skallablettin- um, og þá rann það upp fyrir mér að hattur var málið. Enda töff.“ - shh

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.