Helgarpósturinn - 26.10.1995, Side 21

Helgarpósturinn - 26.10.1995, Side 21
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1995- Frumsýningin á Benjamín dúfu, kvikmynd Gísla Snæs Erlingssonar, er á næsta leiti. Jakob Bjarnar Grétarsson hitti leikstjórann og ræddi við hann um ferilinn, skaupið fræga, Swiss Miss-stúlkur, franska homma og það að gera sér upp geggjun. „Þú ert búinn að vinna í þrjá inánuði, gersamlega út- spíttaður með adrenalínið egar þetta birtist er kvik- myndaleikstjórinn Gísli Snær Erlingsson staddur úti í London ásamt Sigurði Sverri Pálssyni tökumanni. Þeir eru að litgreina kvikmynd- ina Benjamín dúfu sem verður frumsýnd 2. nóvember. Benj- amín dúfa er byggð á sam- nefndri verðlaunasögu Frið- riks Erlingssonar, en hann er einnig handritshöfundur myndarinnar. Blaðamaður HP fékk Gísla til að setjast með sér við arininn á Astró eitt hroll- kalt mánudagskvöld. Stromp- urinn er reyndar bilaður og yf- irþjónninn sagði að það væri ekki hægt að kveikja upp. En það stendur víst allt til bóta. Ekki dónalegir bakhjarlar Gísli er frekar tjúnuð týpa og talar hratt. Það er erfitt að halda í við hann. „Kvikmynda- heimurinn hefur þessi áhrif á mann,“ segir hann. „Enda eru kvikmyndaleikstjórar upp til hópa alkóhólíseraðir furðu- fuglar og einfarar." Hann lýsir því í löngu máli út á hvað lit- greining gengur. Kvikmynd samanstendur af ótal tökum sem fara fram á mismunandi tímum. Þetta verður að sam- ræma. Að auki er sérstök lit- apæling í myndinni. Myndin er þroskasaga og til samræmis við það fer hún úr því að vera heit yfir í kulda. Birta — myrk- ur. Barn — fullorðinn... „Það verður ákveðinn atburður sem veldur því að strákarnir hætta að leika sér.“ Ferill Gísla í kvikmyndagerð er orðinn langur. Hann byrjaði að gera stuttmyndir í FB og þaðan fór hann út í að gera poppvídeóþáttinn Poppkorn ásamt Ævari Emi Jósepssyni. Hann var hjá Sjónvarpinu í fimm ár sem skrifta og dag- skrárgerðarmaður. Hann tók þátt í gerð Skyttanna með Frið- riki Þór. Þar var hann „tea- boy“ á handritstímanum og framkvæmdastjóri og aðstoð- armaður við klippingu. Hrafn Gunnlaugsson fékk hann sem annan aðstoðar- leikstjóra í / skugga hrafns- ins. Friðrik og Hrafn eru ekki dónalegir bak- hjarlar í kvik- myndagerð á ís- landi. Það var eiginlega skylda að spyrja Gísla hvort hann væri einhver augna- karl hjá Hrafni? „Krummi hef- ur alltaf verið mér innan hand- ar og gefið mér góð ráð. Hann sat til dæmis tvívegis með mér yfir Benjamín og gaf komment á klippinguna. Nokkrir punktar frá honum komu að góðum notum.“ Skaupið dægilegur aukapeningur Þetta leiðir hugann að ára- mótaskaupinu fræga 1990-’91, sem Gísli stjórnaði. Þá var Hrafn dagskrárstjóri innlendr- ar dagskrárdeildar. „Ég var nýkominn frá Sví- þjóð þar sem ég hafði verið á þriggja mánaða námskeiði hjá sænska sjónvarpinu. Þetta námskeið gekk konsentrerað út á leikið skemmtiefni. Eini ís- lendingurinn sem hafði sótt þetta námskeið var Egill Eð- varðsson. Krummi vildi setja mig í skaupið og ég, sem hans undirmaður, var ekkert að segja: Neinei, ég hef engan áhuga á því. Þar fyrir utan var þetta spennandi verkefni. Ekki það að ég líti á mig sem ein- hvern „funny guy“. Fólk mis- skildi mig algerlega einmitt út af Poppkorninu.” Þremur dögum áður en tök- ur hefjast fær Gísli tilkynningu frá Leikarafélagingu um að þeir séu komnir í verkfall. Þá eru æfingar hafnar og búið að skrifa handritið. „Leikstjórafélagið hélt því fram að ég væri ófaglærður, væri ekki félagi í Leikstjórafé- laginu og hefði þar af leiðandi engan rétt á að „leikstýra“ ára- m ó t a - skaupinu. Og Leikstjórafé- lagið eiginlega þvingaði Leik- arafélagið til að taka þátt í þessu með sér. Þetta var stál í stál. Krummi hélt því fram að ég væri fullkom- lega hæfur til að gera þetta, nýbúinn að ljúka námi í að búa til einmitt svona þætti. Það reynir kannski ekki svo mikið á leikstjórann að gera svona þætti. Leiklega mæðir meira á leikurunum sjálfum, þeirra karakterum og því sem þeir einfaldlega geta. Eg var í sjálfu sér ekkert hræddur við að gera ára- mótaskaupið með góðu fólki.“ En Hjálmar Hjálmarsson stóð með þér einn leikara? „Hjalli var búinn að skrifa handritið með mér og var of djúpt sokkinn í verkefnið til að draga sig út. Ég met hann mik- ils fyrir að standa með mér í þessu og okkar vinabönd eiga örugglega eftir að halda lengi. En ég varð alveg rosalega fúll og reiður og gerðist mikill hat- ursmaður Leikarafélagsins og allra þeirra sem hétu leikarar. Ég beit það í mig að komast í gegnum þetta og hafði þessa þrjá sólarhringa til að skipa í hlutverk. Þá var ekkert sofið heldur hringt og hringt og menn fundnir. Svo fór þetta í gegn.“ Það leikur enginn vafi í huga Gísla á því hver var undirrótin að uppistandinu og telur hana af kómískum toga. Þar hafi ekki fagleg sjónarmið ráðið ferðinni. „Áramótaskaupið var, síðast þegar ég vissi, mjög góður aukapeningur fyrir sviðsleik- stjóra. Þetta var lítil vinna, sem þeir fengu mjög gott kaup fyrir. Þeir gátu einfaldlega ekki sætt sig við að einhver dreng- stauli kæmi þarna inn og tæki af þeim alla peningana. Hver hefur faglegan metnað í ára- mótaskaupi? Ég ætla bara að biðja þann sviðsleikstjóra sem hefur faglegan metnað í ára- mótaskaupi að stíga fram og segja ég! Þá skal ég verðlauna hann... með einum kaffibolla." Rándýrt nám og fronsk víf Skömmu eftir þetta kemst Gísli í mjög dýrt og eftirsótt kvikmyndanám í Frakklandi. Hann hefur Jacques Mer, fyrr- verandi sendiherra og mikinn íslandsvin, grunaðan um að hafa kippt í spottana. Mer hringdi í Gísla og sagði honum að Friðrik Þór hefði bent sér á hann. Mer hafði fundið styrk fyrir eitt stykki íslending í rík- isskólann. Og engan smástyrk. Þetta er næstdýrasta nám í Frakklandi á eftir orustuflug- manninum. „Þeir alveg spæna í þetta peningum. Eina vandamálið var að komast inn í skólann. Það eru 5 þúsund manns á ári sem sækja um 39 pláss. Af þessum 5 þúsund eru svona 2.000 útlendingar sem sækja um 3 pláss. Eg þurfti að fá plássið til að fá styrkinn. Og til að fá styrkinn þurfti ég að fá plássið. Þetta er mjög flókið og ég hef aldrei komist til botns í því hvernig þetta gekk upp, en hef Mer grunaðan um að hafa togað í spotta. Eftir 5 mánaða inntökupróf fæ ég þær fréttir að ég sé kominn inn í skólann í fjögurra ára nám. Ég dríf mig út. í skólanum lærði ég meðal annars meir og meir að ára- „Aramótaskaupið var, síðast þegar ég vissi, mjög góður aukapeningur fyrir sviðsleikstjóra. Þetta var lítil vinna sem þeir fengu mjög gott kaup fyrir. Þeirgátu einfaldlega ekki sœttsig við að einhver drengstauli kœmi þarna inn og tœki afþeim alla peningana. “

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.