Helgarpósturinn - 28.03.1996, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 28. MARS1996
Önnu Margréti Magnúsdóttur var vikiö
tyrirvaralaust úr íslenska liðinu sem tek-
ur þátt í keppninni Kontrapunkti.
„Freklega vaðið
Svakalega sæt...
Ikvöld verður í þriðja sinn a
vegum Módel ‘79 efnt til úr-
slita í keppninni um „Unglinga-
módel ársins", en þar keppa til
úrslita 26 stúlkur og 10 strákar
á aldrinum 14 til 17 ára.
Að sögn Jónu Lárusdóttur,
framkvæmdastjóra Módel ‘79,
hefur eftirsóknin í að taka þátt í
keppninni aldrei verið eins og
nú. Hátt í tvö hundruð ábend-
ingar bárust, ýmist frá ungling-
unum sjálfum ellegar fólki sem
til þeirra þekkti.
Nokkur undirbúningur hefur
verið fyrir keppnina og er þegar
búið að samstilla krakkana að
nokkru með því að fara með
þau út að borða og í líkams-
rækt.
Fyrir sjálf úrslitin hafa þau
þegar æft tískusýningu sem Jó-
hann G. Jóhannsson (yngsti)
kynnir, en auk þess mun DJ
Margeir sýna listir sínar og Em-
ilíana Torrini fremja söngva-
seið. Hápunktur kvöldsins
verður svo þegar tilkjmnt verð-
ur hverjir hljóta fyrsta, annað
og þriðja sæti hjá báðum kynj-
um.
Til nokkurs er að vinna því
svo getur farið að einhverjir
eigi þess kost að fara utan til
fyrirsætustarfa. Meðal annarra
verðlauna eru módelsamning-
ur, fataúttektir, ljósakort, kort í
líkamsrækt, ilmvötn og svo
mætti áfram telja.
Samkvæmt heimildum HPeru
ófáar stúlkurnar sem þátt taka í
keppninni 180 sentimetrar á
hæð — eða meira. Með öðrum
orðum: Heimur hækkandi fer!
Rannsóknarlögregla ríkisins beinir rannsókn biskupsmála aö fjórum konum sem
saksóknari telur aö hafi haft uppi meiöyrði og rangar sakargiftir á hendur biskupi.
Fjöldi vitna yfirheyrour
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur kappsamlega að
rannsókn svonefndra biskups-
mála. Yfirheyrslur hófust á
fimmtudaginn í síðustu viku og
í þessari viku hefur fjöldi vitna
verið kallaður fyrir. Af hálfu
RLR eru engar upplýsingar
gefnar um rannsóknina, en
samkvæmt heimildum blaðsins
var upphaflega stefnt að því að
ljúka rannsókninni fyrir páska.
Ekki er ljóst hvort það tekst.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem HP hefur aflað sér
beinist rannsóknin að fjórum
konum. Það eru Sigrún Pálína
Ingvarsdóttir, Stefanía Þor-
grímsdóttir, Guðrún Jónsdótt-
ir hjá Stígamótum og konan
sem sakaði biskup um kynferð-
islega áreitni í Kaupmannahöfn
en afréð síðan að draga sig í
hlé. Rannsóknin beinist að því
að kanna hvort konurnar hafi
haft uppi rangar sakargiftir og
meiðyrði í garð biskups. Sumar
af konunum sem sæta rann-
sókn hafa bent á ýmsa sem
vitni. Þær hafi sagt þeim frá því
á sínum tíma ér þær urðu fyrir
meintu kynferðislegu áreiti
biskups. Vart verður komist
hjá því að RLR kalli biskup fyrir
þar sem rannsóknin er gerð
vegna greinargerðar sem hann
ósið...
... fær Kristján Ragnarsson, formaöur
Liú, fýrir aö hóta þvi aö hunsa kvótalögin
ef Þorsteinn Pálsson
lætur ekki af dekri sínu
viö trillukarlana. Þaö
var kominn timi til aö
stórútgerðarmenn
settu hnefann í borö-
iö og geröu ráöa-
mönnum Ijóst hverjir
eiga fiskinn í sjónum
og hverjir eigi aö hafa
forgang um aðgang aö
miðunum. Auövitaö
eiga togarar fyrst og
fremst aö sjá um veiðarnar,
því þetta eru skiþ sem kosta um einn
milljarð stykkiö og veitir ekki af aö veita
þeim allar tiltækar aflaheimildir. Þessir
trillukarlar sem eru aö skaka hringinn í
kringum landið á skektum slnum hafa sí-
fellt gerst aögangsharöari og heimtað
stærri hlut af heildarveiöinni. Þeir hafa
fjölmennt viö þinghúsiö og haft uppi hót-
anir og stóryröi ef ekki veröi gengiö aö
kröfum þeirra. Og nú viröist Þorsteinn
ætla aö lúffa fyrir þessum körlum. Út-
geröarmenn togara hafa jafnan lapiö
dauöann úr skel eins og allir vita en
haldiö áfram útgeröinni af hugsjón einni
saman. Þeir hafa þaö fyrst og fremst aö
markmiöi að skapa þjóöinni gjaldeyri svo
hægt sé aö lifa í þessu landi. Trillukarl-
arnir eru hins vegar græðgin uppmáluð
og hugsa um þaö eitt aö maka krókinn,
eins og þeir vita sem hafa kynnst mönn-
um úr þeirri voöalegu stétt. Vonandi gerir
Kristján Ragnarsson sjávarútvegsráöherr-
anum þaö Ijóst I eitt skipti fyrir öll aö
þaö veröur ekki fariö lengur eftir kvóta-
kerfinu ef ætlunin er aö halda áfram aö
hlaöa undir trillukarlana. Þá veröur bara
barist á miöunum og togararnir fara létt
meö aö kafsigla trillurnar...
íslenskur braut-
ryðjandi í vídeólist
sendi ríkissaksóknara.
Það var 11. mars sem herra
Ólafur Skúlason biskup sendi
Hallvarði Einvarðssyni ríkis-
saksóknara erindi og bar fram
þá kröfu að fram færi opinber
rannsókn vegna rangs sakar-
burðar og ærðumeiðandi að-
dróttana í sinn garð. Greinar-
gerð biskups var löng og itar-
leg ásamt fylgiskjöjum. Þann
14. mars fól Hallvarður Rann-
sóknarlögreglu ííkisins að ann-
ast ranrisókn málsins. Helgar-
pósturinn reyndi ítrekað að ná
tali af Hallvarði Einvarðssyni í
gær en hann var jafnan sagður
„ekki við“. Ætlunin var að
spyrja ríkissaksóknara að
hvaða atriðum og persónum
rannsóknin ætti sérstaklega að
beinast. Fulltrúar embættis rík-
issaksóknara vildu ekki ræða
þetta mál og vísuðu á Hallvarð
sem var „ekki við“ í allan gær-
dag. - SG
yfir mig“
Það er vitaskuld vaðið frek-
lega yfir mig í þessu máli.
Ég opna munninn tvisvar og
segi eitthvað sem þeim líkar
ekki og þá er ég hreinlega beðin
að fara án frekari útskýringa —
hvað þá að rætt sé við
mig,“ sagði Anna Margrét
Magnúsdóttir tónlistarmað-
ur í samtali við Helgar-
póstinn.
Anna Margrét var í keppnis-
liði Islands í norrænu sjón-
varpskeppninni Kontrapunkti
ásamt þeim Valdimar Pálssyni
og Gylfa Baldurssyni. Fyrir
skömmu hringdi Sveinbjöm I.
Baldvinsson, dagskrárstjóri
Sjónvarpsins, í Önnu Margréti
og tilkynnti að hún yrði ekki
með í undanúrslitum keppninn-
ar. Ástæðuna kvað hann vera
þá, að Valdimar, sém er fyrirliði
íslenska liðsins, hefði tilkynnt
sér að liðið væri óstarfhæft
vegna samskiptaörðugleika við
Önnu Margréti.
Anna Margrét sagði að eftir
að tveir fyrstu þættirnir voru
teknir upp í Malmö í janúar
hefði íslenska liðið sest niður
við spjall. Þá hefði hún sagt að
hún teldi liðið geta bætt árang-
ur sinn með því að vanda betur
til samskipta þeirra í milli í
keppninni sjálfri — sem og við
stjórnanda keppninnar. Ábend-
ingum sínum hefði hvorki verið
tekið vel né illa. í næsta þætti
hafi samskiptin verið góð og
unnist sigur á Dönum. I fjórða
og síðasta þættinum í bili hafi
síðan gengið miður. Nú eru
undanúrslit framundan í
keppninni og fyrir nokkrum vik-
um .hittust þremenningarnir
heima hjá Önnu Margréti á
fundi. Þar kvaðst hún hafa vak-
ið máls á því, að hún væri ekki
nógu ánægð með frammistöðu
liðsins, en ástæðan væri ekki
þekkingarskortur í tónlist held-
ur skorti betri samskipti þeirra
á milli í keppninni.
„Gylfi tók þessu ágætlega en
það sem gerði iíklega útslagið
Kontrapunktslandslið ísiands áður
en þau slitu samvistir...
gagnvart Valdimar var að ég
benti á að í keppninni hefði ég
verið með tillögu að svari sem
hann hefði hafnað mjög ein-
dregið en mín tillaga hafi síðan
reynst rétt. Ég tók þetta sem
dæmi um samskiptavandamál
okkar. Valdimar varð afskap-
lega reiður og daginn eftir
hringdi hann í mig og sagði að
ég hefði ekkert leyfi til að segja
honum sem fyrirliða liðsins
hvernig hann ætti að haga sér í
keppninni. Næsta sem gerist er
svo að Sveinbjörn I. Baldvins-
son hringir til mín og segir að
Valdimar geti ekki unnið með
mér og þar sem Valdimar sé
fyrirliðinn verði ég að víkja úr
liðinu," sagði Anna Margrét.
Sveinbjörn I. Baldvinsson var
spurður hvort ekki hefði verið
hægt að halda fund og freista
þess að ná sáttum í liðinu.
„Liðsstjórinn kom til mín og
sagði að liðið væri óstarfhæft.
Það var enginn tími til þess að
ég færi að setja á einhverja
samningafundi og hlýða á
vitnaleiðslur sem dómari. Það
varð að grípa til björgunarað-
gerða strax og því var Ríkharð-
ur Örn Pálsson fenginn í liðið í
stað Önnu Margrétar. Það er
hins vegar mjög leiðinlegt að
svona skyldi fara,“ sagði Svein-
björn. _sg
Turnhúsið viö Tryggvagötu, þar
sem um tíma var rekin knæpa
sem ekki stóðst samkeppnina,
gengur brátt I endurnýjun lífdaga.
Akveöiö hefur veriö aö innan fárra
vikna verði I þessu fyrrum húsnæði
Karls Steingrímssonar í Pelsinum
opnaöur mexíkóskur veitingastaö-
ur. Samkvæmt heimildum HP verö-
ur þar boöið upp á ekta mexíkósk-
an Tex-mex-mat og tilheyrandi kurl-
aöa Margarítu og tequila. Þá veröur
heitiö, eftir því sem næst veröur
komist, aö hætti þarlendra; Ami-
gos. Karl í Pelsinum seldi á sínum
tíma Kristmanni Árnasyni I Mæni
húsnæöiö, en hqnn mun þó ekki
sjá um aö reka þar veitingahús
heldur Árni nokkur Björgvins-
son...
A!
XJL.tugum hefur
myndbandið eða
vídeóið öðlast
viðurkenningu
sem listrænn
miðill til jafns
við aðrar grein-
ar, Steinunn
Vasulka, sem
búsett er í Santa
Fe í Nýju-Mexíkó
í Bandaríkjun-
um, er einn
helsti frumkvöð-
ull vídeólistar í
heimi og nú er
verið að setja
upp fyrsta verkið eftir hana af
þremur sem sýnd verða á Kjar-
valsstöðum. En hvernig sýning
er þetta?
„Þetta er vídeósýning á sex
skermum sem kastað er frá
þremur myndvörpum, þannig
að hverri mynd er varpað
tvisvar. Þetta er kallað leiftur-
únir og efninu er safnað á járn-
smíðaverkstæði. Hljóðið er
svo sent i gegnum tölvuræna
hljóðgerfla, þannig að þetta er
bæði tónverk og myndverk.“
Nú ert þú einn
af frumkvöðlum
þessarar list-
greinar. Hvern-
ig kom það til?
„Ég var svo
heppin að detta
inn í þetta strax á
byrjunarskeiði
greinarinnar.
Maðurinn minn
er kvikmynda-
gerðarmaður og
ég var tónlistar-
maður og þegar
þessi tæki urðu
færanleg um
1969 fórum við
að ieika okkur með þetta. Þetta
átti nú ekki að verða að ævi-
starfi, en annað hefur komið á
daginn."
Eru íslendingar móttœki-
legir fyrir þessari listgrein?
„Þetta er náttúrulega meiri
nýjung hér en í Bandaríkjun-
um. Þegar ég sýndi hérna árið
1984 varð fólk annaðhvort
mjög hrifið eða skildi bara ekki
neitt. Ég held að fólk sé nú orð-
ið mun móttækilegra fyrir
þessu listformi." - ebe
Unnendur sakamálasagna fá loks eitthvað fyrir sinn snúð þeg-
ar frumsýnt verður leikverkið Páskahret eftir Árna Hjartarson
— þar sem allir eru grunaðir um morð.
Ámi í anda Agötu Christie
Pd.
le
ískahret nefnist nýtt ís-
lenskt leikrit sem leikfélagið
Hugleikur frumsýnir í Tjarnar-
bíói á föstudag. Leikrit þetta er
annað verk Áma Hjartarsonar,
jarðfræðings hjá Orkustofnun,
sem einnig hefur sent frá sér
einþáttung. Sagt er að verkið sé
bráðfyndinn gamanleikur með
sakamálaívafi, en einmitt aðdá-
endur sakamálasagna eru á
einu máli um að sárlega hafi
vantað íslensk verk i anda Ag-
ötu Christie.
„Ég hef að vísu aldrei lesið
Agötu Christie, en þetta er
formúlan, eða ég ímynda mér
það að minnsta kosti,“ segir
Árni. Fyrir þá sem ekki vita má
geta þess að Árni er bróðir hins
afkastamikla leikskálds Ingi-
bjargar Hjartardóttur, sem
mikið hefur einmitt samið fyrir
Hugleik. „Það er
rétt að það hefur
ekki verið mikið
samið af leikritum
í þessum anda, en
mitt leikrit er samt
ekki frumsmíð af
þessari tegund
hér á landi. Það
var einmitt Ingi-
björg systir mín
sem samdi út-
varpsleikrit um
stóra kókaínmálið
fyrir tveimur ár-
u
um.
í leikriti Árna segir af fólki
sem er á ferð frá Þórsmörk yfir í
Landmannalaugar; er statt á
Laugaveginum. I grenjandi
páskahreti lokast hópurinn af í
Hrafntinnuskeri, þar sem morð
er framið. Og allir eru grunaðir.
Sem jarðfrœð-
ingur þekkirðu
vœntanlega vel
til. Skiptir til
dœmis múli við
úrlausn múlsins
hvaða bergteg-
und finnst undir
hvaða skóm?
„Nei, ég fór nú
ekki út í þá sálma
og ég held að það
muni ekki mikið
bera á jarðfræði-
þekkingu minni í
verkinu.“
Ertu kannski að skapa ís-
lenska Agötu Christie með
Páskahreti?
„Áttu við að það komi Páska-
hret II eftir ár? Nei, ég held nú
ekki. Ég hafði það að minnsta
kosti aldrei í huga.“ -GK