Helgarpósturinn - 28.03.1996, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 28.03.1996, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 28. MARS1996 Hell’s Angels-mótorhjólaklúbburinn er trúlega einn stærsti og frægasti mótorhjólaklúbbur heims og var nýverið í fréttunum vegna óhugnanlegra morðárása. Atli Bergmann. áfengisráðgjafi og meðlimur mótorhjólaklúbbsins Væringja, kynntist Hell’s Angels og öðrum mótorhjólagengjum náið á sínum yngri árum í Kaupmannahöfn. Guðbjartur Finnbjörnsson ræddi við hann um þá lífsreynslu og mótorhjólamennsku almennt... „Tilbúnir að drepa fyrir félagana“ „Sterkt bræðralag einkennir flesta þessa mótorhjólaklúbba og félagar eru venjulega tilbúnir að gera hvað sem er fyrir félaga sína, jafnvel drepa. Ég lenti eitt sinn í illdeilum við einn hættulegasta glæpamann Danmerkur á þessum tíma, KimTusindben var hann kallaður... Nokkrum mánuðum seinna var hann drepinn.“ Hell’s Angels-mótorhjóla- klúbburinn var nýverið í fréttum vegna óhugnan- legra morðárása sem áttu sér stað í tveimur flughöfnum í Skandinavíu. Hell’s Angels er trúlega einn stærsti og frægasti mótorhjólaklúbbur heims. Hann átti upptök sín í Banda- ríkjunum, en Hell’s Angels- klúbbar hafa síðan sprottið upp í mörgum löndum, meðal ann- ars á Norðurlöndum. AUi Berg- mann, áfengisráðgjafi hjá Krýsuvíkursamtökunum og meðlimur mótorhjólaklúbbsins Væringja, kynntist mótorhjóla- genginu Hell’s Angels á sínum yngri árum í Kaupmannahöfn. Atli bjó í Kaupmannahöfn á árunum 1980 til 1984 eða eins og hann sjálfur segir frá, á gleði- og sokkabandsárum sínum. „Þetta voru dagar víns og rósa,“ segir Atli og brosir. „Ég vann í byrjun sem sjúkraliði. Missti svo vinnuna og tók þá til við ljósfælnari iðju. Iðju sem tengdist Kristjaníu og öllu því hassi sem þar fer um. Á þeim tíma fannst mér hass hið besta mál og ekkert hættulegra en Tuborg-bjór, sem að vísu var þá bannaður á íslandi. En þá fannst mér það aðeins tíma- bundinn misskilningur hjá yfir- völdum að banna hass,“ segir Atli. Sem betur fer hef ég kom- ist á aðra skoðun í dag og er löngu hættur neyslu á hassi og öðrum vímuefnum." Tilbúnir að drepa fyrir féiagana Atli hefur alltaf verið mikið fyrir mótorhjól og í Kaup- mannahöfn keypti hann sér sitt fyrsta stóra hjól. Þá kynntist hann öðrum mótorhjólaáhuga- mönnum. Náungar sem voru í klúbbi sem kallaðist Black She- ep eða Svörtu sauðirnir. Black Sheep-klúbburinn var svokall- aður vinaklúbbur Hell’s Angels. „Þessi klúbbur hentaði mér ágætlega því ég hafði alltaf ver- ið svarti sauðurinn í fjölskyld- unni,“ segir Atli og hlær. „Strák- arnir í Black Sheep voru helvíti fínir náungar, traustir og stóðu við það sem þeir sögðu. Eigin- leiki sem var og er sjaldgæfur í nútímaþjóðfélagi. Mér líkaði því vel félagsskapurinn. Ég var ekki eiginlegur klúbbfélagi en það munaði minnstu að ég gengi í klúbbinn. Menn byrja á því að vera svokallaðir pro- spects eða líklegir, sem er nokk- urs konar reynslutími til að at- huga hvort maður sé hæfur í klúbbinn. Og það stóð til að ég gerðist líklegur. Ástæðan fyrir að ég hætti við var að ég þurfti á einhvern hátt að sanna mig fyrir þeim. Það þýddi að ég átti að vera tilbúinn að gera hvað sem var fyrir hópinn. Ég var ekki alveg tilbúinn til þess. Sterkt bræðralag einkennir flesta þessa mótorhjólaklúbba og félagar eru venjulega tilbún- ir að gera hvað sem er fyrir fé- laga sína. Jafnvel drepa. Ég lenti eitt sinn í illdeilum við einn hættulegasta glæpamann Danmerkur á þessum tíma, Kim Tusindben var hann kallaður. Málið var að hjólið mitt var skráð á stelpu sem ég þekkti og hún lét Kim plata sig til að af- sala sér hjólinu til hans. Þegar ég bankaði upp hjá honum þungbúinn og vildi fá hjólið mitt aftur beindi hann byssu að höfði mínu og var til alls vís. Heimsókn mín stóð því stutt og ég var nokkuð ánægður með að sleppa þaðan lifandi. Ég flutti heim stuttu seinna en lét félaga mína í Black Sheep vita hvað hefði gerst. Nokkrum mánuð- um seinna var hann drepinn. Trúlega verið búinn að svíkja of marga, meðal annars mig. Black Sheep voru síðan nokkr- um árum seinna teknir inn í Hell’s Angels." Lét mig hverfa á meðan vinkonur mínar lumbruðu á stráknum „Bull Shits-mótorhjólagengið var á þessum árum mjög stórt' og öflugt í Kaupmannahöfn. Bull Shit-arar héldu sig mest í Amagerhverfi Kaupmannahafn- ar og réðu meira og minna lög- um og lofum í Kristjaníu. í aug- um mínum var Bull Shits ekkert annað en glæpagengi og ég átti erfitt með að þola þá,“ segir Atli. „Þeir voru þekktir fyrir til- efnislaust ofbeldi, berjandi á minni máttar og stjórnuðu í krafti óttans. Ég lenti sem betur fer aðeins einu sinni í þeim. Þá sat ég í rólegheitum inni á bar í Kristjaníu ásamt þremur ís- lenskum vinkonum mínum. Þar inni var stór hópur Bull Shit- ara, nokkrir fullir Grænlending- ar og svo við. Einn Bull Shit-ar- anna var með einhver læti og leitaði að einhverjum til að berja á. Hann var búinn að berja tvo eða þrjá Grænlend- inga og ætlaði svo í mig. Mér leist ekki alls kostar á aðstæð- ur,“ segir Atli og glottir. „Ef ég hefði hann undir, hvað myndu félagar hans gera? Og eins ef hann hefði mig undir. Okkur báðum til háðungar og skamm- ar endaði þetta þannig að vin- konur mínar lumbruðu á hon- um á meðan ég lét mig hverfa.” Hell’s Angels afgreiðir sín mál með skoti í hausinn „Það leið ekki á löngu uns Nautakúkamir lentu upp á kant við hinn stóra mótorhjólahóp- inn, Hell’s Angels, og þá kynnt- ust þeir ofjarli sínum. Það varð hreinlega opinbert stríð og margir drepnir. Hell’s Angels brugðu á það ráð, til að enda stríðið, að drepa foringja Bull Shits, sem kallaður var Makríll- inn. Sá sem tók við var bara kallaður Höfðinginn. Stór, mik- 111, illúðlegur með sítt skegg, all- ur húðflúraður og líkastur vík- ingi tii forna. Að minnsta kosti eins og maður ímyndar sér þá. Höfðinginn gekk jafnan um með apa á öxlinni. Hell’s Angels af- greiddu hann líka með skoti í hausinn,” segir Atli. „Eftir það lögðu Bull Shit-arar niður merk- in og létu sig hverfa. Þeir voru hreinlega upprættir. Hell’s Ang- els hafa síðan ráðið því sem þeir vilja ráða. Allt þar til Band- idos fóru að láta á sér kræla fyr- ir nokkrum árum. Bandidos er einn stærsti mótorhjólaklúbb- ur heims og þeir einu sem ógna eitthvað veldi Hell’s Angels. Svo virðist sem Hell’s Angels ætli að nota sömu aðferð og þeir notuðu á Bull Shits til að Íosa sig við Bandidos, drepa foringjana. Það er ótrúlegt að þeir skuli fara með hríðskota- byssu á Kastrup-flugvöll og hreinlega taka foringja Bandid- os af lífi. En svona er nú líf þess- ara manna. Þess má geta að þegar Bull Shits lagði upp laup- ana þá fundust nokkur lík undir gólffjölum í húsi þeirra. Það er ekki gott að vera óvinur svona manna. Það er engum manni hollt.“ Ég er í besta mótorhjólaklúbbi landsins Mótorhjólaklúbbar eru til um allan heim, einnig hér á íslandi, en að sögn Atla fer það ávallt eftir þjóðfélagsaðstæðum hvernig þessir klúbbar haga sér. „Hell’s Angels-gengi í Bandaríkjunum eru trúlega mun hættulegri en í Danmörku og hér á íslandi. í okkar fína litla velferðarþjóðfélagi er engin for- senda fyrir svona skipulögðum glæpaklúbbum,” segir Atli. „Þeir íslendingar sem vilja kom- ast í svona klúbb þurfa að fara til útlanda til þess. Það voru nokkrir íslendingar í Bull Shits og meira að segja var einn af stofnendum klúbbsins íslend- ingur. Hér á landi voru bara stofnuð Bifhjólasamtök lýð- veldisins, Sniglamir, sem er eins hættulaust fyrirbæri og Fé- lag íslenskra bifreiðaeigenda. Svo eru til nokkrir litlir klúbbar eins og Saxar, Óskaböm Óð- ins, Hrafnar, Hvítabimir og Riddarar Lúsífers — en það nafn finnst mér reyndar alveg á mörkunum. Ég meina, hvað eru þeir að segja með þessu nafni, þessir annars mætu og góðu drengir? En síðast en ekki síst má ekki gleyma aðalklúbbnum, klúbbnum mínum, Væringjum. Ég er svo stálheppinn að vera í þessum besta mótorhjóla- klúbbi íslands. í honum eru ein- ungis fullorðnir, edrú og ábyrg- ir einstaklingar, flestir með margra ára edrúmennsku að baki og allir með ólæknandi mótorhjólabakteríu. Hinir upp- runalegu Væringjar voru góðu gæjarnir á víkingatímum. Vík- ingar fóru um rænandi, rupl- andi, drepandi og nauðgandi. Væringjar aftur á móti voru bræðralag góðra manna sem stunduðu viðskipti. Þeir voru víðfrægir fyrir heiðarleika og nutu mikils trausts alls staðar í heiminum, voru til dæmis líf- verðir keisarans í Miklagarði í mörg hundruð ár. Við Væringj- ar mótorhjólanna erum af- sprengi þeirra. Við virðumst líka njóta mikils trausts, því ef á að vera einhver meiri háttar samkoma, stórtónleikar og því um líkt, þá er oftar en ekki kall- að á okkur og við beðnir að sjá um gæslu á svæðinu. Við höf- um til að mynda séð um gæslu á Uxanum, þegar Björk hélt hljómleika hér, á Prodigy- hljómleikunum og meira að segja Sniglarnir hafa beðið okk- ur að sjá um gæslu á landsmóti þeirra. Eins munum við sjá um gæslu á öllum stórtónleikum sumarsins auk þess að halda sjálfir veglegt fjölskyldumót í Aratungu í Biskupstungum í sumar, en það er orðið árlegur viðburður. Þetta segir margt um þá virðingu og traust sem við njótum. Þetta er góður fé- lagsskapur og passar mér betur en að vera í Lions-hreyfingunni eða Rotary." íslenskir mótorhjólaklúbbar eiga ekkert sameiginlegt með Bandidos eða Hell’s Angels „Meðlimir íslensku klúbb- anna eru upp til hópa hið besta fólk sem hefur gaman af að þeysast um á mótorhjólum og líkar vel við leður. Þar fyrir ut- an eigum við ekkert sameigin- legt með Hell’s Angels, Bull Shits og Bandidos. Það má heldur ekki gleyma því að með- limir þessara illræmdu erlendu klúbba eru aðeins fámennur hópur miðað við þann fjölda sem keyrir um á mótorhjólum í heiminum. í Bandaríkjunum kynntist ég til að mynda góð- um hópi sem kallaði sig Ex win- os, það er að segja fyrrverandi drykkjumenn. Þar í hópnum voru fyrrverandi meðlimir Hell’s Angels. Menn sem höfðu farið í meðferð, snúið við blað- inu en ekki misst áhugann á mótorhjólum. Snúið sér til sól- arinnar. Foringi þeirra er dag- skrárstjóri einnar stærstu meðferðarstofnunar Minnes- ota fyrir unglinga, þannig að ekki eru öll erlend mótorhjóla- gengi byggð á ofbeldi og eitur- lyfjum. En munið það að ef þið, á ferðalagi erlendis, rekist á leðurklædda menn merkta Bandidos, Hell’s Angels eða menn merkta í bak og fyrir með hauskúpum og því um líku, látið þá í friði og sniðgang- ið þá. Þetta eru ekki menn sem friðsæll íslendingur ætti að abbast upp á,“ segir Atli Berg- mann að lokum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.