Helgarpósturinn - 28.03.1996, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 28.03.1996, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 28. MARS1996 7 Ingibjörg Sólrún: „Það er kannski hugmynd sem er á kreiki innan Leikfélagsins að vinátta okkar Þórhildar hafi þama einhverja þýðingu fyrir samstarf borgarínnar við Leikfélagið." skoðanir á aðkomu hennar að leikhúsinu. Hún var óneitan- lega einn umsækjenda þegar Viðar var ráðinn, en hún kem- ur einkennilega að starfinu, þegar horft er á atburðarás síðustu vikna.“ Þórhildur Þorleifsdóttir hóf feril sinn sem ballettdansari og danshöfundur og þjálfari. Hún starfaði um miðjan sjötta ára- tuginn með leikfélaginu Grímu sem leikari og dansari og var einn af stofnendum Leiksmiðj- unnar, sem var einn fyrsti frjálsi leikhópurinn. Árin 1969 til ‘71 starfaði Þórhildur hjá Leikfélagi Akureyrar og leik- stýrði þá sinni fyrstu sýningu, Dimmalimm, þar sem Viðar Eggertsson fór með hlutverk. Þórhildur var fastráðin leik- kona hjá Leikfélagi Akureyrar eftir að það varð atvinnuleik- hús árið 1973 og lék í flestum sýningum LA á því tímabili, leikstýrði og samdi dansa. Þór- hildur var einn af frumkvöðl- um Alþýðuleikhússins, bæði á Akureyri og síðar í Reykjavík. Hún hefur leikstýrt fjölda leik- sýninga hjá Leikfélagi Reykja- víkur, Þjóðleikhúsinu, Leikfé- lagi Akureyrar og á fleiri stöð- um og auk alls þessa leikstýrt fjölmörgum óperum og einni kvikmynd. Klúður aldarinnar „Það var rætt í smáum hóp- um hvernig væri hægt að sýna Viðari stuðning en stuðnings- mennirnir voru ekki mjög margir," sagði Hanna María Karlsdóttir, einn leikara Borg- arleikhússins. „Hann átti ekki fleiri stuðningsmenn en svo innan hússins að það hefði ekki komið vel út fyrir hann. Ég hefði samt haldið að þeim hefði fjölgað frekar en hitt. Mér finnst þetta mál afskaplega leiðinlegt og miður að það skyldi koma upp á hundrað ára afmæli Leikfélagsins. Ég held þó að þetta hafi verið besta lausnin miðað við þetta klúður aldarinnar, sem ég kalla svo. Þórhildur er ekki síður frambærileg en Viðar til að stjórna þessu húsi og ég hef unnið með henni nokkrum sinnum, fyrst í Nemendaleik- húsinu og síðast við uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur á Ótemjunni. Ég varð ekki vör við annað á þessum fundi, þar sem ráðning hennar var til- kynnt, en að það væri almenn ánægja með að fá hana til starfa. Hún hefur ekki starfað við Borgarleikhúsið síðan það var stofnað, en ég hlakka til að vinna með henni.“ Aðspurð um hvort hún héldi að hið óstýriláta félag myndi láta Þórhildi segja sér fyrir verkum sagði Hanna: „Ég vissi ekki að þetta félag væri óstýri- látt, en annað kom nú reyndar á daginn. Ég held að fólk komi til með að sjá eftir því þegar frá líður og gera sér grein fyrir að þetta voru mistök sem ekki mega endurtaka sig.“ Stefán Baldursson: „Þetta er búið að vera mjög einkennileg atburða- rás og það hefur komið mér ger- samlega í opna skjöldu hvernig hlutirnir hafa þróast." af að eiga erfitt með að starfa við slíkt fyrirkomulag." Þegar HP forvitnaðist um af- stöðu Stefáns til þess úrskurð- ar Jafnréttisráðs að bæði Brynja Benediktsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir væru hæfari til starfans en Viðar sagði hann að þar sem hann hefði ekki lesið úrskurðinn vildi hann ekki tjá sig um hann. „Mér finnst þó sérkennilegt að ráðið skuli geta kveðið upp úr- skurð um listræna hæfni ein- staklingsins. Þeir virðast fyrst og fremst byggja á menntun og kannski örlítið á reynslu, en málið er ekki svo einfalt." Sá umsækjandi sem sam- kvæmt heimildum blaðsins hafði mesta menntun er Sig- rún Valbergsdóttir, en þótt hún óskaði eftir því gæti hún ekki stefnt ráðningu Þórhildar fyrir Jafnréttisráð þar sem þær eru báðar konur, en Jafnréttis- ráð hefur ekki vald til að kveða upp úrskurði í slíkum málum. Þórhildur hefur sterkari stöðu „Það er ekkert sem borgin getur gert til að breyta fram- vindu þessara mála hvað varð- ar uppsögn Viðars Eggertsson- ar,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. „Það er afturámóti örugglega eitt- hvað sem hann gæti gert í stöðunni en hann verður að reka það eftir hefðbundnum leiðum. Hann var, líkt og Þór- hildur, ráðinn til fjögurra ára og þetta er því ekki útkljáð." Nú spyr fólk sig hvort þarna sé verið að klekkja á borgar- stjóra og hvort afstaða borgar- innar myndi mildast með ráðn- ingu Þórhildar Þorleifsdóttur, en einhverjar Reykjavíkurlis- takonur mótmæltu ráðningu Viðars í blaðagreinum og töldu að hún bryti í bága við jafnrétt- islög. „Það er kannski hugmynd sem er á kreiki innan leikfé- lagsins að vinátta okkar Þór- hildar hafi þarna einhverja þýðingu fyrir samstarf borgar- innar við leikfélagið, en þrátt fyrir að hún sé hin ágætasta leikhúsmanneskja hefði ég kosið að ráðningu hennar hefði borið að með öðrum hætti,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Staðreyndin er sú að ég verð að horfa á þetta mál, sem önn- ur, óháð persónum og þarna koma að margar manneskjur sem ég tel til vina minna, til dæmis Viðar Eggertsson og Guðjón Petersen í hópi um- sækjenda og Sigurður Karls- son. Ég get þó ekki sagt að ég sé hissa á því að Þórhildur taki starfinu. Hún hefur nú á marg- an hátt sterkari stöðu en Viðar Eggertsson, því menn endur- taka þennan leik varla.“ „Ég hef ekkert heyrt frá leik- húsráði hvað það hyggst fyrir með mín mál, en ef eitthvað verður á mig hallað mun ég leita réttar míns í því sam- bandi,“ sagði Viðar Eggertsson ingunni sem Þórhildur Þorleifs- dóttir leikstýrði, Dimmalimm hjá Leikfélagi Akureyrar árið 1970. Birgir Sigurðsson leikskáld skrifaði grein í DV15. mars síð- astliðinn þar sem hann segir meðal annars að ef samtrygg- ingin ætlaði að ráða næsta leik- hússtjóra væri best að orða auglýsingu svona: „Leikhús- stjóri þarf að vera með rófu.“ Birgir hélt því fram í samtali við HP að í leikfélaginu hefði grafið um sig doði og stöðnun og hann, ásamt mörgum öðr- um, hefði alið þá von í brjósti að Viðar Eggertsson gæti breytt hlutunum til hins betra og reist leikhúsið úr ösku- stónni. Það hefði hins vegar komið á daginn að leikhúsráð, sem væri ekki annað en leppur almennra félagsmanna, hefði sýnt að það hefði ekki í hyggju að taka á þessum erfiðu mál- um. Aðspurður um hvort það væri ekki dálítið langsótt að Þórhildur Þorleifsdóttir hefði umbeðna rófu svaraði Birgir: „Hún væri vís til að geta stjórn- að prýðisvel ef hún fær að gera það, en það ber ýmislegt vott um að þetta sé orðið það mikið samfélag samtryggingar að það þurfi að gera breytingar á lögum félagsins til að gera leik- hússtjóra kleift að stjórna. En ég vona að þetta gangi vel, bæði hennar vegna og leikfé- lagsins. Ég hefði þó talið eðli- legra, eins og málin standa núna, að ráðið hefði verið í stöðuna til eins árs eða þá að hún hefði verið auglýst.“ Leikfélagið þarf að endurskoða reglurnar Þegar Stefán Baldursson kom til starfa sem Þjóðleikhús- stjóri á sínum tíma varð mikill styr meðal leikara vegna upp- sagna hans á starfsfólki við Þjóðleikhúsið. Leikhúsfólk efndi þá til mikillar undir- skriftasöfnunar til stuðnings Stefáni, þar sem fjölmargir rit- uðu nafn sitt undir. Stefán hafði þá, öfugt við Viðar, leik- húsráð á bak við sig, en svo virðist sem það hafi gert gæfu- muninn. Það vekur spurningar um sjálfstæði leikara þegar annars vegar er vald og hins vegar listrænn metnaður. Að- spurður sagði Stefán Baldurs- son að það hefði komið sér á óvart að leikarar innan Leikfé- lags Reykjavíkur skyldu ekki sýna Viðari meiri stuðning en raun bar vitni. „Þetta er búið að vera mjög einkennileg at- burðarás og það hefur komið mér gersamlega í opna skjöldu hvernig hlutirnir hafa þróast,“ sagði Stefán. „Brottvikning Viðars Eggertssonar var und- arleg í alla staði og furðulegt að hann skyldi ekki fá tækifæri til að sanna sig. Þetta sýnir, svo ekki verður um villst, að Leikfélagið þarf að endurskoða sín lög. Annars vegar getur leikhússtjórinn tekið ákvarð- anir í samráði við leikhúsráð og hins vegar getur félagsfund- ur ieikara kollvarpað þeim! Ég held að leikhússtjóri hljóti allt- í samtali við HP, en Viðar gekk sem kunnugt er frá leikhús- stjórastöðu á Akureyri til að taka við Borgarleikhúsinu og hefur verið ráðið í starfið á Ak- ureyri. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur verið þrýst á aðstoðarfólk Viðars, þau Bjarna Jónsson og Sigrúnu Valbergsdóttur, að koma aftur til starfa. Þau hafa gefið þau svör að með brottrekstri Við- ars sé grundvöllur ráðningar þeirra brostinn, en eftir öllum sólarmerkjum að dæma eiga þau sex mánaða uppsagnar- frest hjá leikhúsinu hvort um sig og vilja fá hann greiddan. Það er því ljóst að leikhúsið mun bera mikinn kostnað af þessum brottrekstri, en tylli- ástæðan fyrir uppsögn Viðars var of ríflegir starfslokasamn- ingar við leikara. Aukið vald stjórans Meginniðurstöður skýrslu nefndar um starfsemi Borgar- leikhúss sem lögð var fram undir heitinu Málefni Borgar- leikhúss 28. apríl 1995 voru þær að öll starfsemi í Borgar- leikhúsinu yrði undir stjórn leikhúsráðsins: ■ Að árlegt framlag borgar- innar verði aukið auk þess sem borgin veiti félaginu aukafjár- veitingu vegna taps síðustu ára. ■ Að sérstök fjárveiting verði til Leikfélagsins til að standa fyrir og styrkja aðra leiklistarstarfsemi og verður hún á föstum fjárlögum borg- arinnar. ■ Að lögum LR verði breytt. ■ Að leikhúsráð ráði leik- hússtjóra í stað stjórnar leikfé- iagsins og að ekki þurfi sam- þykki aðalfundar félagsins fyr- ir ráðningu hans. í skýrslunni kom jafnframt fram að leikárið 1993 til 1994 voru rekstrargjöld hússins 228,4 milljónir og nam styrkur borgarinnar rúmlega helmingi þeirrar fjárhæðar. Með skýrslu viðræðunefndarinnar fylgdu þeir samningar sem borgin og leikfélagið gerðu upphaflega um starfsemi Borgarleikhúss árið 1992, en í þeim er ekki að finna nein ákvæði um fjárfram- lög borgarinnar til starfsem- innar. Af stofnskránni frá 1975 má einnig ráða að gert hafi ver- ið ráð fyrir að leikfélagið myndi starfa án styrkja, því gert er ráð fyrir að borgarráð geti gert leikfélaginu að greiða leigu fyrir afnot hússins. Styrk- veiting er því háð ákvörðun borgarinnar hverju sinni og með uppsögn Viðars Eggerts- sonar var gengið í berhögg við vilja viðræðunefndarinnar. Forsendur fyrir samstarfi þess- ara tveggja aðila hafa því breyst, ekki síst í ljósi þess að ef niðurstöðum nefndarinnar hefði verið fylgt eftir hefði að- alfundur leikfélagsins ekki haft umboð til að segja Viðari upp störfum. Auk þess hafði komið til tals innan nefndarinnar að borgin ætti að eiga tvo fulltrúa í leikhúsráði í stað eins áður, það væri meira í samræmi við fjárframlög til hússins. Þórhildur Þorleifsdóttir hef- ur þegar lýst því yfir að hún telji að ekki eigi að auka vald- svið borgarinnar um innra starf leikhússins, hins vegar kemur að hennar mati til greina að auka valdsvið borg- arinnar um fjármálastjórn. Að- spurð sagðist Ingibjörg Sólrún vera sammála þessu. „Við höf- um hins vegar alltaf lýst því yf- ir að við viljum koma að því að ráða stjórnandann og að hann hafi aukna ábyrgð og stjórn á listrænni starfsemi hússins,*1 sagði hún. „Þegar farið var að gera úttekt á samningi borgar- innar við Leikfélagið var ákveðið að hún yrði grundvöll- ur nýs samstarfssamnings. Þegar skýrslan lá fyrir óskaði ég eftir að endurskoðaður yrði samsstarfsamningur við leikfé- lagið þar sem tekið yrði tillit til skýrslu viðræðunefndarinnar, en sá samningur liggur ekki fyrir.“ Um þá staðreynd að það var það ekki sama leikhúsráðið sem réð Viðar og tók ákvörðun um að víkja honum úr starfi sagði Ingibjörg að það skipti hana engu máli hvaða einstak- lingar sætu í ráðinu. Kostnaður ekki Ijós Aðspurð um endanlegan kostnað við brottvikningu Við- ars sagði Ingibjörg Sólrún að þær upplýsingar lægju ekki fyrir. „Við óskuðum eftir svari við því á fundi viðræðunefndar borgarinnar og leikfélagsins 21. mars, en þar var jafnframt lögð fram greinargerð okkar. Það svar hefur ekki borist.“ Fulltrúi borgarinnar í leikhús- ráði, Ömólfur Thorsson, hefur ítrekað lýst því yfir að mál þetta kunni að hafa áhrif á samstarf borgarinnar og leik- hússins í framtíðinni. „Eins og ég sagði þá vildum við að út- tekt á leikhúsinu yrði undir- staðan að nýjum starfssamn- ingi, en í úttektinni kom fram vilji okkar til að auka valdsvið og sjálfstæði leikhússtjóra," sagði Ingibjörg Sólrún. „Þessi síðasta uppákoma sýnir að sjálfstæði leikhússtjóra er ekki nema orðin tóm og því munum við endurskoða samstarfs- samninginn með tilliti til þess. Auðvitað verður sá stuðningur við Borgarleikhús- ið, sem ákveðinn var á fjárlög- um, ekki dreginn til baka, en þær hugmyndir að leikhúsið fari á föst fjárlög verða ekki að veruleika eins og málin eru í dag.“ Pöntunarsími allan sólarhringinn: Sími 462-5588 Póstsendum vörulista hvert á land sem er! Fatalisti, kr. 600 Blaðalisti, kr. 900 Vídeólisti, kr. 900 Tækjalisti, kr. 900 Sendingarkostnaður innifalinn HUGSKOT Ljósmyndastofa Nethyl 2 Sími 587-8044 NÝ ÞJÓNUSTA Framköllun og kópering á 35mm litfilmum. Kynningarverð: 24myndakr. 1000 36 mynda kr. 1360 Ný 24 mynda Fuji- litfilma innifalin

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.