Helgarpósturinn - 28.03.1996, Side 20

Helgarpósturinn - 28.03.1996, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 28. MARS1996 Rótlausar Reykjavíkurdætur Draumadísir Sýnd í Stjörnubíói ^ Leikstjóri: Ásdis Thoroddsen Aðalhlutverk: Silja Hauksdóttir, Baltasar Kormákur, Ragnheiður Axel, Bergþóra Aradóttir, Ragnhildur Rúriksdóttir, Margrét Ákadóttir, Magnús Ólafsson ★ ★★ Loksins, loksins fáum við að berja augum mynd um tvær stelpur á strákaveiðum. Ekki svo að skilja að Drauma- dísir sé einhver „stelpumynd" (enda er það hugtak bara not- að af gamaldags guttum sem eru fastir í viðjum félagsmót- unar), heldur er hún eins og vin í eyðimörk óteljandi bíó- mynda um stráka í stelpuleit. Það er engu líkara en að ís- lenski kvikmyndaiðnaðurinn í heild sinni hafi ekki áttað sig á því að konur eru helmingur mannkyns — og að þær hafa líka kynhvöt. rikmyndir ialheiður rsteinsdóttir Vinkonurnar Steina og Styrja eru tvítugar Reykjavíkurpíur, rótlausar og ráðvilltar og eiga sér ekkert markmið í lífinu. Þær dreymir um að finna hinn fullkomna karlmann sem lykt- ar af leðri, vískíi og vindlum, en svoleiðis folar eru víst ekki á hverju strái. Draumórakennt viðhorfið til ástarinnar er harla fjarri frostköldum hvers- dagsleikanum og dapurlegu heimilislífi. Móðir Steinu er drykkjusjúk og Gugga litla systir hennar slæpist sjálfala um bæinn í kompaníi við álfa og huldufólk. Þegar myndar- legur ungur heildsali, Gunnar, verður á vegi vinkvennanna telja þær sig báðar vera búnar Hraði og spenna á grynningunum Strange Days Sýnd í Háskólabíói Leikstjóri: Kathryn Bigelow Aðalhlutveriu Ralph Fiennes, Angela Bassett, Juliette Lewis, Tom Sizemore ★ ★ Kvikmyndin Strange Days er fyrst og fremst töff. Per- sónur, tæknivinna, hönnun og tónlist bera öll þau kennileiti sem áhorfendur þyrstir í að sjá; spennu, kynlíf, eiturlyf, rokk og ról. Það gegnir aftur á móti öðru máli með handritið: Áhorfendur sem sækja í vand- aðan vísindaskálskap (með söguþræði sem er aðeins meira krefjandi en hefðbund- inn Derrick- þáttur) ættu að leita annað. Kathryn Bigelow er án efa aðalhasarleikstýran í bransan- um í dag og hefur mikla tilfinn- ingu fyrir uppbyggingu og út- færslu á spennu í kvikmynd- um. Hún er framsækinn stílisti sem notar neón- og flúorljós stórborganna óspart til að undirstrika harðneskjuna og miskunnarleysið í þjóðfélag- inu. Myndavélin er sjaldnast kyrr og klippingin hröð og árásargjörn eins og í þunga- rokksmyndbandi. Vampírumynd fröken Big- elow, Near Dark (1987), er ein sú blóðugasta og frumlegasta er fram hefur komið í þeim geira og sýnir vel sjónræna hæfileika leikstjórans. Það sem hrjáir hins vegar myndir Kat- hryn Bigelow — sérstaklega Strange Days — eru takmark- anir og ódýrar formúlur í handriti, sem gera að verkum að persónur ná aldrei dýpt og verða einungis grunnar eða yf- irborðskenndar fígúrur sem berast ósjálfbjarga um í hröð- um straumi ofbeldis og spennu. Strange Days gerist um næstu aldamót (bókstaflega) og segir frá fyrrverandi fíkni- efnalöggu, Ralph Fiennes (Schindler’s List, 1994), sem selur nú sjálfur nýjustu fíknina. Þessi fíkn felst í þeim mögu- leika að upplifa kynferðislegar, hættulegar, afbrigðilegar eða jafnvel hversdagslegar athafn- ir annars fólks án þess að lyfta fingri sjálfur eða þurfa að vesenast með myndavélar og þess háttar. Upptökutækið er heilinn og endurminningarnar eru geymdar á litlum geisla- plötum sem hægt er að spila aftur og aftur hvenær sem löngunin er fyrir hendi. Ef þú vilt uppiifa það að vera átján ára stúlka í sturtu án þess að þurfa að skipta um kyn eða fá adrenalínkikk við að ræna sjoppu án þess að eiga það á hættu að vera gripinn, þá er þetta tæknin fyrir þig — mögu- leikarnir óendanlegir. Svarta- markaðsbraskið með þennan varning er blómlegt, eins og fmyndbandið Mr. Bean: Málningarsprengjur og bamapössun ★★★★ Rowan Atkinson er óumdeil- anlega einn albesti grínleik- ari Bretlands ef ekki heimsins alls. í „The Perllous Pursuits of Mr. Bean“ eru tvær frábærar sögur. Mr. Bean-myndirnar byggj- ast allar á látbragöi þar sem mikil áhersla er lögö á svipbrigöi og Rowan Atkinson er melstari svipbrigðanna. Vfirleitt er ekkert tal í þessum myndum, eöa þá þaö er f algeru lágmarki. Fyrri sagan er nýárspartí sem Mr. Be- an heldur. Hann býöur tveimur félögum sínum, sem hann hitti í strætó, í heimsókn á gamlárs- kvöld. Þegar þeir koma kemst hann aö því aö hann hefur ekk- ert til aö bjóöa upp á. Nú eru góö ráö dýr. Hann fer inn í eld- hús, opnar gluggann og nær í nokkrar trjágreinar og sneiöir þær niöur i lengjur, dýfir í marm- elaöi og ber fram sem einhvers konar saltstangir. Þar sem hvft- víniö er búiö nær hann I flösku af ediki og bætir út f þaö sykri og nokkrum sítrónudropum. Ánægöur með útsjónarsemina býöur hann félögum sfnum stolt- ur í glas. Þeir eru hins vegar ekki eins ánægöir heldur foröa sér út við fyrsta tækifæri og lauma sér f partf í næstu íbúö. Morguninn eftir þarf Mr. Bean aö mála íbúö- ina sína. Þaö gengur eitthvaö erfiðlega svo hann bregöur á þaö snjalla ráð aö setja sprengi- efni ofan f máiningarfötuna og dreifa málningunni þannig um alla veggi. Afleiöingarnar veröa lesendur sjálfir aö sjá. í selnni sögunni verður Mr. Bean fyrir því óláni aö barnavagn fest- ist óvart viö bílinn hans þegar hann er á leiöinni í tívolí og hann uppgötvar þaö ekki fyrr en þang- aö er komiö. Hann þarf því aö dröslast meö barniö um allt tívolíiö og fer hreinlega á kostum viö að reyna aö hafa ofan af fyrir ungbarninu. Undirritaöur hló sig máttlausan aö myndinni, sem fæst til aö mynda leigö hjá Myndbandaleigunni Ríkinu á Snorrabraut. - EBE gefur að skilja, en fylgikvillarn- ir enn óþekkt stærð. Hér er vís- indaskáldskapurinn á góðu róli og hefði mátt vinna meira með þessa frumlegu hugmynd. Tæknileg útfærsia á þessum endurminningatrippum er þó vel af hendi leyst hjá kvik- myndagerðarfólkinu og skap- ast sannfærandi tilfinning fyrir sjónarhorni þeirra sem eru að taka upp gerðir sínar. Upphafs- atriði myndarinnar er sérstak- lega áhrifamikið hvað þetta varðar og bætist vafalítið í rað- ir frumlegustu og best útfærðu upphafsatriða í kvikmyndum. Strange Days fer aftur á móti eftir það hefðbundnari leiðir og fellur vísindaskáidskapur- inn í skuggann af hasarmynda- formúlunni sígildu. Það er samt sterkur keimur af film no- ir í myndinni — þar sem öll spjót beinast að aðalpersón- unni og engum er hægt að treysta — en í öllum töffaralát- unum nýtur þetta stílbragð í frásögn og útiiti sín ekki nægi- lega. Ralph Fiennes leikur nokk- urs konar and-hetju sem er iaminn sundur og saman með jöfnu millibili og tekst að ná samúð áhorfandans strax í byrjun. Angela Bassett og Juli- ette Lewis leika konurnar í lífi hans og eru persónur þeirra líkt og svart og hvítt. Bassett er vinkonan dygga sem starfar sem lífvörður og passar upp á Fiennes í hjáverkum. Hún er sannfærandi buff og slær karl- kyns hasartröllum auðveld- lega við. Lewis fer með hlut- verk fyrrverandi kærustu Fien- nes, sem hann er enn heltek- inn af. Hún er orðin söngkona í rokkbandi og stendur í ástar- sambandi við umboðsmann sinn (vonda karlinn). Með þessu hlutverki hefur Lewis endanlega losað sig við gelgju- stimpilinn úr Cape Fear (1991) og sýnir að hún er orðin full- orðin og sjálfráða með meiru. Lewis syngur auk þess tvö lög í myndinni og virðist sem í henni blundi efnileg söngkona með áhugaverða sviðsfram- komu. Tom Sizemore (mót- leikari og fjandmaður Lewis í Natural Born Killers, 1994) er í hlutverki sem sniðið er að hæfileikum hans. Sizemore virkar einstaklega vel sem hinn tætingslegi og rykfallni fé- lagi Fiennes. Markhópur Strange Days er augljós, enda allir sem leika í myndinni á bilinu 20 til 35 ára (að þúsund statistum meðtöld- um). Tónlistin í myndinni er hröð, rokkuð og framsækin, í rauninni eitthvert besta sam- ansafn hljómsveita í kvikmynd lengi (takið einkum eftir Skunk Anise með lagið Selling Jesus). Þegar hinar ákaflega til- komumiklu umbúðir Strange Days hafa verið teknar burt er ósköp ómerkileg spennumynd það sem eftir situr. Að nefna meistaraverk Ridleys Scott, Blade Runner (1984), í sömu andrá jaðrar við guðlast og ætti vel upplýst kvikmynda- áhugafólk að vita betur. - kdp að finna draumaprinsinn. Hann er þó ekki allur þar sem hann er séður, viðskiptahættir hans eru nokkuð vafasamir, auk þess sem hann heldur við metnaðargjarna bókhaldarann sinn, hana Völu. Vinkonurnar takast á um hylli Gunnars, Gunnar sér gróðavon í Steinu, Steina gerir mistök og úr verð- ur hin mesta flækja. Silja Hauksdóttir fer prýði- lega með hlutverk Steinu. Hún er eðliieg og sannfærandi á tjaldinu, en hefði mátt vera skýrmæltari. Eins er Ragn- heiður Axel ágæt í hlutverki Styrju, en þeirri persónu hefði þó mátt ljá meiri dýpt í hand- riti. Þær stöllur eru að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndaleik og vissulega má sjá þess nokkur merki, en í heild standa þær sig bara vel. Baltasar Kormák- ur hefur fyrir löngu sannað sig sem leikari, en líður fyrir það hér að persóna Gunnars er frekar óljós. Bókhaldarinn Vala er þokkalega leikin af Ragnhildi Rúriksdóttur. Hún er frekar hvimleið persóna og samband þeirra Gunnars virk- ar í meira lagi ósannfærandi. Margrét Ákadóttir er góð í hlutverki hinnar drykkfelldu móður, sem þrátt fyrir eymd- ina er ennþá stolt og bregður fyrir sig ljóðlínum á erfiðum augnablikum. Einnig er Magn- ús Ólafsson kostulegur í litlu hlutverki viðskiptafélaga Gunnars. Stjarna myndarinnar er hins vegar hin unga Berg- þóra Aradóttir sem leikur litlu systur Steinu. Hún er sannkall- að náttúrutalent og heillaði undirritaða algjörlega upp úr skónum. Myndin líður áfram eins og draumórakenndur farsi, með aivarlegum undirtóni þó. Snjórinn, kuldinn og skamm- degið skapa raunverulega ís- lenska stemmningu sem í bland við ágætan húmor og seiðandi tóniist gefur mynd- inni svolítið ljóðrænt yfir- bragð. Helsti ókostur myndar- innar felst í handritinu sjálfu: Hugmyndin um Steinu og Styrju er góð en söguþráður- inn er einhvern veginn of fjar- stæðukenndur til að vera sannfærandi og of jarðbundinn til að vera ekta farsi. Til dæmis er hið margnotaða íslenska minni um huldufólk frekar klúðurslegt og einnig má nefna „Þrátt fyrir þessa vankanta eru Draumadísir ágæt skemmtun og alveg þess virði að eyða í tima og peningum ef maður er að sækjast eftir afþreyingu. Það ríkir iðulega nokkur eftirvænting þegar íslenskar kvikmyndir eru frumsýndar og Draumadísir valda ekki vonbrigðum þótt flugið verði ekki sérlega hátt.“ nánast fáránlegt atriði sem gerist á snyrtivörukynningu í hringsnúandi matsölu hér í borg. Áhorfandinn er mataður einum of mikið með því að stilla bágum heimilisaðstæð- um Steinu upp sem augljósri ástæðu þess að hún er stefnu- laus í lífinu. fslensk ungmenni í dag þurfa svo sem ekki að eiga alkóhólista fyrir foreldra til að vera ráðvillt, kærulaus og klaufsk í listinni að lifa. Text- inn er nokkuð tilgerðarlegur á köflum, helst þegar vinkonurn- ar eru látnar mæla í hálfgerð- um símskeytastíl. Þrátt fyrir þessa vankanta eru Draumadísir ágæt skemmt- un og alveg þess virði að eyða í tíma og peningum ef maður er að sækjast eftir afþreyingu. Það ríkir iðulega nokkur eftir- vænting þegar íslenskar kvik- myndir eru frumsýndar og Draumadísir valda ekki von- brigðum þótt flugið verði ekki sérlegahátt. -ajþ Athueasemd rltstl.: Þar sem Krlstófer Dlgnus Pétursson, kvlkmyndagagnrýnandl HP, starfaðl meö Ásdísl Thoroddsen og félögum að gerð Draumadísa var brugðlö á það ráð að kalla tll Aðalhelðl Ingu Þorstelns- dóttur svo myndln yröl gagnrýnd af hlut- lausum aðlla. Fyrlr utan að vera eldhelt- ur unnandl kvlkmyndallstarlnnar leggur Aðalhelður Inga stund á nám í helm- spekl og sögu vlð Háskóla íslands og starfar að blaðamennsku í hjáverkum. Enn brillerar Travolta... Get Shorty Sýnd í Laugarásbíói Leikstjóri: Bany Sonnenfeld Aðalhlutverk: John Travolta, René Russo, Gene Hackman ★★★ Mikið af svölum samræð- um, persónum og and- rúmslofti bókar Elmores Leon- ard, Get Shorty, kemst til skila í kvikmyndaútgáfunni, en ekki allt. Ritstíll Leonards er látlaus og beinskeyttur. Hann notar lítið af lýsingarorðum og kýs frekar að koma andrúmslofti og söguþræði til skila gegnum persónur bóka sinna. Þessar persónur eru hins vegar litrík- ar, óútreiknanlegar og uppfull- ar af lúmskum húmor. Ein af betri persónum rithöfundarins er einmitt Chili Palmer úr sög- unni Get Shorty og leikarinn John Travolta án nokkurs vafa besti kosturinn til að gæða persónuna kvikmyndalegu lífi. Hægt er að segja svipað um leikarahópinn allan í þessari ágætu gamanmynd og eru valdir menn og konur í hverju rúmi. Travolta ber þó höfuð og herðar yfir aðra í hlutverki handrukkara frá Miami sem ákveður að gerast kvikmynda- framleiðandi í Hollywood. Tra- volta er fæddur í þetta hiut- verk og nær að skapa skemmti- Iega persónu sem er svöl og fyndin í senn án þess að fara út í ofleik (algengur fylgifiskur gamanmynda) á neinn hátt. Yf- irvegaður og útpældur líkt og Vincent Vega í Pulp Fiction (1994). Ástríðufullur og töff eins og Danny Zucco í Grease (1978). Gene Hackman leikur út- brunninn hryllingsmyndafram- Ieiðanda sem enn hefur hug- sjón og ástríðu en veit ekki hvernig á að beita henni þar til Chili sýnir honum það. René Russo leikur smástirni er heill- ast af mjúkri hörku handrukk- arans. Danny DeVito leikur gullna kálfinn sem allir fram- leiðendur eru á höttunum eft- kantur á myndinni; endirinn, þar sem allir lausir þræðir i sögunni eru snögglega hnýttir til að geta gengið frá öllu sem fyrst. Hér hefði gjarnan mátt teygja lopann — ólíkt mörgum öðrum myndum — enda frábærar per- sónur og rétt umgjörð til staðar; efniviður sem gæti léttilega bor- ið annan hálftíma eða svo.“ klædd stórstjarna. Gullkálfur- inn heillast af Chili, eins og flestir aðrir, og fær þá flugu í hausinn að leika hann í bíó- mynd. Það er meinfyndin sena þegar Travolta sýnir DeVito hvernig á að ná augnaráði rukkarans og greinilega verið að skjóta góðlátlega í áttina að frægum „method“-leikurum í Hollywood. Hollywood-háðið í Get Shorty er skemmtilegt, en kemst þó ekki með tærnar þar sem mynd Roberts Altman, The Player (1992), hefur hæl- ana, enda varla ætlunin. Engin Elmore Leonard-saga er heil án glæpamanna af sérvitra tag- inu og eru þeir á sínum stað í myndinni. Besti krimminn er yfirmaður Chilis, Harry Bones, ítalskættaður veðmangari sem er eins og klipptur út úr mafíu- myndum Scorseses. Leíkarinn Dennis Farina er kostulegur í þessu hlutverki og allir stælar og taktar smákrimmans (með risavaxið egóið) teknir í gegn. Sagan er margslungin og lag- lega af hendi leyst undir ör- uggri stjórn Barrys Sonnen- feld. Hann gerði Addams-fjöl- skyldu-myndirnar ágætu og var þar áður tökumaður númer eitt hjá Cohen-bræðrum. Kvik- myndatökubakgrunnurinn nýt- ur sín vel í Get Shorty og ýmsir skemmtilegir vinklar og töku- útfærslur notuð á réttum stöð- um til að undirstrika húmor- inn. Því miður er einn stór van- kantur á myndinni; endirinn, þar sem allir lausir þræðir í sögunni eru snögglega hnýttir til að geta gengið frá öllu sem fyrst. Hér hefði gjarnan mátt teygja lopann — ólíkt mörgum öðrum myndum — enda frá- bærar persónur og rétt um- gjörð til staðar; efniviður sem gæti léttilega borið annan hálf- tíma eða svo. Það þarf þó ekki að örvænta, því fleiri kvik- myndir byggðar á bókum El- mores Leonard eru vafalítið í bígerð, ef ég þekki þá Drauma- verksmiðjumenn rétt. - KDP

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.