Helgarpósturinn - 28.03.1996, Síða 28
28
RMMTUDAGUR 28. MARS1996
heitt
Nostradamus. Með reglulegu
millibill dúkkar hann upp sem
magnaöur spðmaöur á milli þe$s
sem vísindamennirnir rífa hanri í
sig. Hann er sagöur hafa séö fyrir
helför Hitlers (en kallaöi hann
víst Hister), blokkamyndun aust-
urs og vesturs og hvenær og
með hvaða hætti kalda stríöinu
lyki og þar fram eftir götunum. Nú
á tímum heræfinga Kína viö Tæ-
van eru sérfræðingarnir farnir aö
rifja það upp aö Nostradamus
hafi haft orö á því aö nákvæm-
lega áriö 1996 (þegar tunglstað-
an væri svona og svona...)
myndu þessir fyrrum kaldastriös-
fjendur sameinast í stríöi gegn
Kínverjum sem ekki heföi tekist
að losa sig undan hlekkjum for-
tíðarinnar, eða eitthvað í þð veru.
En þessu eiga sjálfsagt vísinda-
mennirnir eftir aö andmæla meö
látum.
kalt
^_____________________
Kjötát. Maöur er hreinlega
meö upp í kok eftir fréttirnar af
breska beljusmitinu. Jafnvel þótt
ekki takist að sanna tengslin á
milli Creutzfeldt-Jakob-heilahrörn-
unar og riöukjötsins þarf mikiö aö
gerast til aö maður leggi sér
nautakjöt til munns á næstunni.
Þaö tók mann langan tíma að
jafna sig á kjúklingasalmonell-
unni og næsta bolludag mun
maöur hugsa sig tvisvar um áöur
en maöur tekur svo mikiö sem
einn bita af rjómabollu. Mitt í
þessu öllu er best aö venda sínu
kvæöi í kross og gerast græn-
metisæta, svo maöur veröi hrein-
lega ekki bara heiladauður meö
króniska magakveisu fyrir fertugt.
tri &
... aö fólk gerist grænmetia-
ætur
það þarf ekkert aö skýra þaö
frekar. Oj.
... Reiri vatnshönum út um
borg og bý
þaö er löngu tímabært aö
maöur fái til dæmis tækifæri til
aö sprauta upp í sig vatni í Aust-
urstræti.
... gosbrunnl ð Ingólfstorg
þetta er reyndar gömul tugga,
en stendur alltaf fyrir sínu meö
hækkandi sól
... stuttu hári
fyrst Súsanna Svavars, sem
frá ómunatíð hefur sveiflaö síö-
um makka, lét veröa af því þá
getur þetta hvaða kvenmaöur
sem er.
1. Pólitískt hreingerningafólk sem
þrífur fullkomlega sjélfviljugt upp
skítinn eftir leiötoga þjóöarinnar.
2. Pólitískir baktjaldamakkarar á
launaskrá sem lymskufullir sötra öl
fyrir blóöpeningana á börunum.
3. Pólitfskir metnaöarhundar sem
einskis svífast í framapotlnu til aö
ná fram markmiöum sínum.
4. Pólítlskar ambisjónir sem teygja
anga sína Inn í frjáls félagasamtök,
menningu, fyrirtæki og stofnanlr.
5. Pólitiskar skemmtanir þar sem
hver listamaöurinn á fætur öðrum
játar hundtrygga hollustu sína.
6. Pólitísk mðlgögn sem sjá heim-
inn gegnum flokksgleraugu sem
virka jafn vel og þrívíddargleraugu í
sundl.
7. Pólitiskir leiötogar sem tekið
hafa aö sér aö kenna þúsundum
ungmenna i ungliöahreyfingum sín-
um klæki og svik.
8. Pólitískar ástarjátningar sem
enj jafn einlægar og margbrotnar og
þversumkruss-svikin kosningaloforö-
In.
9. Pólltískur hugsunarháttur þar
sem menn eru flokkaöir eftir pólitísk-
um lit frekar en nokkurn tímann verö-
leikum.
10. Pólitík yfirhöfuö.
flott fólk
Sveinn Speight, stórsöngvarasonur og Ijósmyndari,
er að verða kunnur af mjög svo skemmtilegri
myndasmíð sinni, en í samvinnu við þá Jökul Tómas-
son og Jónas Ámason hefur hann að undanförnu unn-
ið að gerð auglýsinga um OLW- kartöfluflögur, sem lýsa
mætti sem skemmtilega hallærislegum og hafa vakiö
mikla athygi. Þegar því verkefni er lokið er næsta skref
Svenna að sinna fastakúnnunum, meðal annars Pósti
og síma. Að því loknu tekur annað og ekki síður
skemmtilegt verkefni við. „Við Jökull erum nú í þriðja
sinn að fara að hanna umslagið utan um Party Zone-
diskinn," segir Sveinn, sem fyrir fyrsta diskinn fékk
verðlaun fyrir besta hönnun og heildarútlit disks. Þess
er jafnan beðið með eftirvæntingu hvað þeim félögum
dettur í hug. „Við leggjum enn og aftur sama metnaðinn
í Party Zone-diskinn.“
Nú varstu kominn á kaf í tímaritaljósmyndun, af
hverju sneriröu þér alfariö aö auglýsingum og hönnun
geisladiska?
„Einfaldlega af því að það er meira upþ úr auglýsing-
um og geisladiskum að hafa! Tímaritabransinn er svo
óstöðugur að maður veit aldrei hvaðan á sig stendur
veðriö," segir Svenni, en viðurkennir þó að hann sakni
pínulítið spennunnar í kringum tímaritaljósmyndun.
Svakalega eru þetta annars fín sóigieraugu sem þú
ert meö!
„Já, finnst þér það ekki? Ég fer ekkert án sólgler-
augna þessa dagana. Þessi eru líka svo góð. Auk þess
að vera frá Jean-Paul Gaultier eru þau með bláum
glerjum, sem draga í senn úr birtunni og gera heiminn
fegurri."
Þú ert eiginlega klæddur eins og versiunarmanna-
helgin sé framundan; sólgleraugu, þykk peysa, íþrótta-
skór...
„Þetta eru nú fyrstu íþróttaskórnir sem ég eignast í
fjögur eða fimm ár. Ég bara mundi ekki eftir því að það
væri svona rosalega gott að hlaupa (ganga) á þeim.
Svo eru þeir líka rosalega röff, finnst þér ekki?" -gk
Gríska veislu gjöra skal
að má endalaust halda góð
grísk matarboð, enda af
nógu að taka í þarlendri matar-
gerð. Svo gengur það fjöllunum
hærra að jafnvel örgustu reyk-
inga- og drykkjuhrútar í Grikk-
landi, komnir á gamals aidur, séu
ailir meira og minna við hesta-
heilsu. Svo hollt sé fæði Grikkja
að ekki einu sinni baneitrað tób-
akið nái að vinna þeim mein.
Helsti lífselexír Grikkja eru ólífur
og ólífuolía. Maður rýnir vart svo
í gríska uppskrift að rekast þar
ekki á annað hvort, en í ólífunum
er einmitt hinn mikli lækninga-
máttur talinn fólginn.
Á forsíðu Morgunblaðsins fyrir
helgi birtist greinarstúfur undir
fyrirsögninni „E-vítamín dregur
úr hjartaáföllum", en mikið af E-
vítamíni er einmitt að finna f olíu-
ríkri fæðu eins og ólífum, sem
eru meginuppistaðan í fæði
flestra Miðjarðarhafsþjóða. Þar
hefur líka komið á daginn að þar
er miklu minna um hjartasjúk-
dóma en norðar í Evrópu.
Það er því ekki fyrr en núna,
eftir öll þessi ár, að maður sér
eftir að hafa fúlsað við olíukjúk-
lingnum sem maður fékk úti á
Spáni í gamla daga. Á íslandi var
maður nefnilega alinn upp við að
löðrandi olía væri lítið annað en
kransæðastíflandi og fitandi.
Með tíð og tíma komst maður að
því að ólífuolía, einkum jómfrú-
arolían, og „fita“ eru tvennt ólíkt.
Hér að neðan birtast tvær upp-
skriftir, báðar grískar. Og eins og
er við hæfi þegar vorilmur er
kominn í loftið er kjötrétturinn
ætlaður til þess að grilla úti.
Kartöflukökurnar verður hins
vegar að möndla við í eldhúsinu.
Kartöflukökur
500 g kartöflur
2 tómatar, flysjaðir
3 tsk. ólífuolía
salt og pipar
1 msk. söxuð steinselja
4 vorlaukar, fínsaxaðir
55 g hveiti
hveiti til að strá
olía til steikingar
hringir af grænum hluta vor-
lauksins og dillgreinar til
skrauts.
Sjóðið kartöflurnar og flysjið.
Flysjið einnig tómatana og fræ-
hreinsið eftir kúnstarinnar regl-
um, saxið síðan aldinkjötið
smátt. Blandið tómötum, ólífuol-
íu, salti og pipar, steinselju, söx-
uðum vorlauk og hveiti saman
við kartöflurnar og blandið. Má
skella í blandara.
Fletjið blönduna út í um það
bil eins sentimetra lengju á mjöl-
bornum fleti og skerið út í átta
kringlóttar kökur. Hitið olíu á
steikarpönnu. Steikið kartöflurn-
ar í 6 til 7 mínútur á hvorri hlið.
Þær eiga að verða gullnar og
stökkar. Berið fram skreyttar
dilli og vorlauk.
Áppelsínumarínerað
svínakjöt
500 g magurt svínakjöt
1 laukur
2 grænar paprikur
8 kirsuberjatómatar
salatræmur, appelsínusneiðar
og tímíangreinar til skrauts.
Kryddlögur
safi úr 1/2 appelsínu
2 msk. ólífuolía
1 hvítlauksgeiri, kraminn
1 tsk. saxað ferskt tímían
1 tsk. kóríanderfræ, mulin
salt og pipar
Blandið öllu sem á að vera í
kryddleginum. Skerið kjötið í
um það bil 2 sentímetra teninga
og leggið í löginn. Blandið ræki-
lega saman, breiðið yfir og látið
marínerast á köldum stað í að
minnsta kosti tvær klukkustund-
ir. Skerið laukinn í fjórðunga og
skiljið lögin í sundur. Skerið
paprikuna í ferninga og fjarlægið
fræin.
Þræðið kjötbita, lauk, papriku
og tómata upp á átta teina. Grill-
ið á útigrilli og snúið öðru hvoru
í 10 til 15 mínútur, eða þar
til kjötið er orðið meyrt. Ber-
ið kjötið fram á saltatræm-
um og skreytið með appel-
sínusneiðum og tímían.
Þessa máltíð bauð ég síð-
ast upp á á kosninganótt við
góðar undirtektir.
Skál!
- Guðrún Kristjánsdóttir
Hunt’s - ekki
bara tómatsósa
Allt siðmenntaö fólk (sem ekki á
viö drykkjuvandamál að stríöa)
ætti ávallt aö eiga eins og einn púrtara
í stofuskápnum. Fátt er nefnilega bet-
ur til þess fallið að krydda tilveruna
þegar óvænta gesti ber að garði en
að bera fram stofuhéitt púrtvín meö
smákökunum. Þá er púrtvín einnig til-
valið fyrir þá sem vilja byrja snemma
að hita upp fyrir skemmtun kvölds-
ins án þess að eiga á hættu að vera
orðnir ofurölvi þegar þeir ætla út úr
húsi. Það á enda bara að dreypa á
púrtvíni, ekki skella því í'sig.
Hunt’s Ruby er ágætis púrtvín á
verði sem er alveg þolanlegt, tæp-
ar fimmtán hundruö krónur. Þó aö
það virki fremur hrátt í fyrstu hefur
eftirbragðið eitthvaö alveg sér-
stakt við sig...