Helgarpósturinn - 11.04.1996, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 11.04.1996, Blaðsíða 7
7 FIMMTUDAGUR ±L APRIL1996 \ Dönsk fatafella lét stækka á sér brjóstin á íslandi Vildi líkjast Dolly Parton Rétt fyrir jól birti HP viðtal við dönsku fatafelluna Angel, sem dansað hafði um nokkurra mánaða skeið á veitingastaðnum Bóhem, en var öðrum þræði stödd á íslandi í þeim tilgangi að láta stækka á sér brjóstin. Það hefur enda komið í ljós að í augum útlendra kvenna er ísland sannkölluð brjóstastækkunarparad- ís. í tilefni umfjöllunar HP um aðgerð- ir sem þessar rifjum við upp kafla úr viðtalinu við Angel. í annað sinn á ævinni gekkst hún undir lýtaaðgerð og nú á íslandi. Þá fyrstu hafði hún gengist undir í Dan- mörku nokkrum árum áður en var ekki par ánægð með hana, enda komst hún að því að það hafði verið skottulæknir sem fór um hana hönd- um, ekki lærður lýtalæknir. Með þessa bitru reynslu í farteskinu skoð- aði hún sig vandlega um á íslandi áð- ur en hún tók ákvörðun. Eftir að hafa náð góðu sambandi við Sigurð Þor- valdsson lýtalækni varð hann fyrir valinu og segir hún hann hafa reynst sér frábærlega. Reyndar voru þau Sigurður ekki á einu máli um hversu stór brjóstin ættu að vera. Angel sagðist vilja líkj- ast Dolly Parton og meinti það á meðan Sigurður kvað það fullmikla byrði fyrir svo unga konu. Afráðið var því að í hana yrðu sett samtals 700'grömm af sílikoni, 350 grömm í hvort brjóst. Hefði hún hins hins veg- ar fengið brjóst á stærð þau sem Dolly Parton ber hefði hún fengið heilt kíló framan á sig. Aðgerðin heppnaðist það vel J að mánuði síðar var ekki hægt að sjá á brjóstum Angels að þau hefðu farið undir hnífinn. Aðspurð um ástæðu þess að hún fór í sílikonaðgerð: „Ef ekki væri fyrir þetta starf hefði ég aldrei látið bæta á mig sílikoni,“ sagði hún orðrétt. Aður en hún fór í fegrunarað- gerðirnar tvær segir hún brjóst sín hafa litið út eins og „te- poka,“ sem hafi komið til af því að hún hafði eitt sinn barn á brjósti. 25 ára flugfreyja sem lét laga á sér eyrun „Dauðfegin að hafa drifið mig“ Eg hafði verið að kafna úr komp- lexum yfir útstæðum eyrum frá því ég var barn. Þau voru svo út- stæð, sérstaklega annað eyrað, að mér fannst ég alltaf þurfa að hafa hárið fyrir eyrunum," segir ung flug- freyja sem Iét draum sinn um „eðli- Ieg“ eyru rætast fyrir nokkrum árum. Þrátt fyrir að hún sjái síður en svo eftir að hafa farið í aðgerðina fannst henni hún „ógeðsleg“. „Ég var látin liggja vakandi á bekk meðan á aðgerðinni stóð, en var auð- vitað deyfð. í fyrsta lagi er það, að vera deyfður við eyrað, eitthvað það versta sem ég hef upplifað um dag- ana og ekki bætti úr skák þegar byrj- að var að skera. Þetta eru jú eyrun, þannig að maður heyrði sérhvert þrusk. Þar að auki blæddi alveg ro- salega. Maður bókstaflega lá í heitum blóðpolli." Að aðgerð lokinni var hún vafin um höfuðið eins og múmía og látin hafa þær um- búðir í tvær vikur. „Ég man, þegar þetta var að gróa, hvað mig klæjaði viðbjóðslega, — ég var viðþolslaus." Hún segist enn vera með hnúða á bak við eyrun eftir aðgerðina. „Þátt fyrir allt er ég þó meira en dauðfegin að hafa drifið mig.“ Pamela Anderson Frægt fólk sem hefur látið stækka á sér brjóstin (eða kassann) Cher Iman Loni Anderson Melanie Griffith Ungur karlmaður sem hvatti kærustu sina til þess að fara í brjóstastækkun: Brjóstin breyttu sambandinu Eg hef alltaf verið veikur fyrir konubrjóstum og lét gjarnan þá skoðun mína í ljós við kærustu mína. Ég býst við að þrýstingurinn frá mér hafi haft mikil áhrif á að hún fór í brjóstastækkun," segir karlmaður innan við þrítugt sem á kærustu á svipuðum aldri. Fyrir tveimur árum, þegar kærastan var 23 ára, ákvað hún að fara í umrædda aðgerð, en síðan er mikið vatn runnið til sjávar í sambandi þeirra. Þótt hann hafi haft mikil áhrif á að hún færi í aðgerðina segir hann samt að ákvörðunin hafi á endanum verið hennar. „Ég var nú bara yfirleitt að grínast með þetta, en öllu gríni fylgir nokkur alvara. Svo einn góðan veð- urdag segist hún ákveðin í að láta stækka verulega á sér brjóstin." Hann segir kærustuna ekki hafa þurft að bíða lengi eftir að komast að hjá lýtalækni. Þannig hefði tíminn til þess að hugsa þessa stóru ákvörðun með henni til enda ekki verið langur. „Ekkert fékk haggað henni. Hún sagð- ist engu að síður líka vera að fara í aðgerðina fyrir mig. Ég reyndi ekkert að draga úr þessari ákvörðun hennar og var satt að segja nokkuð upp með mér af að verðskulda þann heiður að hún ætlaði að leggjast undir hnífinn fyrir mig.“ Hvernig leið þér meðan á bið- inni stóð? „Þar til stóri dagurinn rann upp var ég í senn kvíðinn og spenntur. Ég neita því ekki að það hvarflaði stund- um að mér að allt myndi mistakast; að brjóst hennar yrðu svo ljót að ég gæti ekki horft á þau aftur. Jafnframt skaut þeirri hugsun niður að jafnvel þótt brjóst hennar yrðu undurfögur yrðu þau svo gervileg viðkomu að þau myndu aldrei ná öðru marki en að verða bara eins og hvert annað leikfang.“ Kærastinn segir aðgerðina hafa gengið eins og í sögu; í einni svipan hafi barmur unnustunnar stækkað úr 38 A í 38 C. „Eftir mánuð hefði mátt ætla að hún hefði aldrei farið í að- gerð, svo vel voru nýju brjóstin úr garði gerð.“ Það var einmitt Knútur Björnsson lýtalæknir, sem viðtalið er við hér á síðunni, sem gerði aðgerðina á stúlk- unni. Hafði brjóstastœkkunin mikil áhrif á lífhennar? „Já, til að byrja með. Hún varð mjög ánægð með lífið og tilveruna og viídi stöðugt vera úti á lífinu með sperrtan kassann í flegnum kjól.“ En hvað með áhrif á samlíf ykk- ar? „Ég ætla ekki lýsa því hvað var gaman hjá okkur fyrstu mánuðina," segir hann kíminn. „Já, satt að segja voru þessu nýju brjóst hennar ansi mikið krydd í tilveruna. Það sem kom mér eiginlega mest á óvart var hversu eðlileg þau voru viðkomu. Ég átti von á að þau yrðu fremur óeðli- leg og hörð. Þau voru þvert á móti mjúk og gullfalleg." Eftir um það bil „ársfjör", eins og hann orðar það sjálfur, komst kær- asta hans aftur niður á jörðina á meðan hann var enn á flugi. „Ég var áfram jafnupptekinn af þessum fagra og ferska líkamshluta hennar. En allt í einu hljóp snurða á þráðinn í sam- bandi okkar. í stað þess að njóta þess að hafa þetta framan á sér fór henni að sárna það hve upptekinn ég var af barmi hennar. Hún hafði það meira að segja á orði að ég væri ekk- ert lengur hrifinn af sér heldur bara af þessum brjóstum. Henni var farið að líða eins og einhverju bimbói.“ Maðurinn segir að þessi orð henn- ar hafi verið fyrsta merki þess að krísa væri komin í sambandið. I stað þess að njóta hins langþráða barms voru sílikonbrjóstin farin að skemma út frá sér. „Stuttu eftir að þessi rifr- ildatörn byrjaði fór ég líka að veita því athygli að hvar sem við komum var það ekki bara ég sem góndi á barm hennar heldur líka aðrir karl- menn. í fyrstu var mér sama, en nú, þegar krísan er í hámarki, er ég stundum að farast úr afbrýðisemi. Stúlkan, sem ég var áður einhvern veginn alltaf öruggur með, er nú orð- in miðpunktur alheimsins. Ég veit ekki hvort samband okkar þolir það.“ - GK

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.