Helgarpósturinn - 11.04.1996, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR ±L APRIL1996
þfH
fííáttborðið
Kynórar í
NewYork
Það getur svo sem vel verið
aö kirkjan og sjálfskipaðir
siðapostular séu fullkomlega
ósammála því, en tvær mínútur
af athöfnum
í hinni ann-
ars ágætu
trúboöastell-
ingu á laug-
ardagskvöld-
um duga frá-
leitt til að full-
nægja kynlífs- og skemmtana-
þörf hverrar meðalmanneskju. Ef
menn tii dæmis skella sér yfir
Atlantshafiö og bregða sér á ein-
hvern af hinum sérstæðu drottn-
unar- og sadómasóstöðum sem
þar þrífast munu þeir fljó'tlega
uppgötva hversu miklu kröfu-
harðari íbúar þessarar fínu borg-
ar eru í leit sinni aö kynferöisleg-
um upplifunum. Sem betur fer
hefur
banda-
ríski Ijós-
myndar-
inn og
snilingur-
inn Dor-
is Klost-
tekiö
sig til og
_ . . sparað
a flengdu bara feröalöt-
Ijota strakinn... um f|ugjö
yfir pollinn meö útgáfu bókar
sem ber nafn höfundarins og
fjallar ítarlega um hversu öflugt
og líflegt hugmyndaflug New
York-búar hafa í þessum efnum.
Doris hefur nefnilega fest á lit-
filmu 160 brilljant Ijósmyndir
sem sýna viöskiptavini fýrr-
nefndra drottnunar- og sadóma-
sóstaða í aksjón; masóið viröist
að vísu vin-
sælast og
hlýtur því
mest pláss.
Myndirnar
sýna okkur
nánar tiltekið
karlkyns heið-
ursmenn sem
bundnir eru
með teppa-
límbandi,
klæddir í leö-
urbúninga,
rammlega
keflaðir,
vandlega Þú skalt ekki
flengdir, settir úirfast að setja út
í gullnu sturt- ámatinnminn.
una og látnir njóta til fulls lysti-
semda stólpípu og til dæmis öf-
uga endans á risavöxnum gervi-
getnaöarlimi. Ekkert sófaborö
eöa tímaritarekki á biöstofum
með sjálfsviröingu getur veriö án
þessarar bókar Doris Kloster og
þeir sem þola illa myndimar af
karl-
mönn-
unum
geta
skoöaö
hinn
helrning
mn af
þeim
þarsem
meintar
vinnu-
stúikur
stæra
sig af
háum
hælum.
svipu-
safni sínu, gasgrímum og pynt-
ingartólum ásamt leöurgöllum og
hugvitssamlegum búningum
hinna ýmsu starfsstétta. HPveit
ekki til þess að bókin fáist hér á
landi, en þó mætti reyna aö
spjalla við dökkhærðu stelpuna í
alternatívu kinký-deildinni hjá
Máli og menningu eða þá rauð-
hærðu þokkagyöjuna Bryndísi í
Eymundsson í Austurstræti um
möguleika á aö panta hana —
bókina semsagt...
Kannski maður fái
sér bara smók.
Nú stendur yfir áttugasta
málverkasýning Steingríms St.
Th. Sigurðssonar og er hún haldin
í Nönnukoti. Sæmundur Guðvinsson
geröi heiðarlega tilraun til aö ræöa
um sýninguna viö listamanninn.
Égmá
ekki segja
þetta...
að er alveg furðulegt hvað
ég er djöfull ungur ennþá.
Ég held áfram að elta stelpur,
ja, það getur verið að þær elti
mig. Ég held að ég verði reglu-
lega ástfanginn tvisvar á ári.
Að Vísu hef ég ekki viljað við-
urkenna það því maður
hræsnar á stundum, en þetta
bara skeður, rétt eins og hjá
dýrunum,“ sagði Steingrímur
St.Th. Sigurðsson, listmálari
og lífsnautnamaður, í spjalli
við Helgarpóstinn. Steingrímur
sýnir nú í Nönnukoti í Hafnar-
firði og þetta er hans áttug-
asta sýning á þrjátíu árum.
Það var ætlunin að ræða
sýninguna við listamanninn.
En Steingrímur er engum líkur
og æðir áfram eins og hún-
vetnskur foli sem ómögulegt
er að hemja. Þó er reynt að
fylgja honum á sprettinum og
ná niður nokkrum setningum.
í framhaldi af þessu með stelp-
urnar fór Steingrímur að tala
um reykingar og drykkjuskap.
„Þú veist að ég er á móti
tóbaki og reyki ekki. Eftir að
ég hætti að reykja þoli ég eld
ög brennistein. Ég vil frelsa
vini mína frá tóbaki. Mér er al-
veg sama þótt þeir drekki svo
fremi sem þeir meiða sig ekki
á því. Alkóhólismi er ekki sjúk-
dómur heldur andleg fötlun
meira og minna og taugaveikl-
un í skaphöfninni. Þú veist að
hraustustu menn hafa drukkið
vín með þokka en algjörir
bindindismenn eru leiðinlegir.
Ég má ekki segja þetta, því það
er lögð fæð á mann ef maður
segir sannleikann við Islend-
inga. Þá fara þeir að hata
mann, ófrægja og ljúga á
mann.“
Þú hefur undanfariö dval-
ist í Soho í New York að
mála, Steingrímur. Ertu ekki
innan um mafíumorðingja
þarna úti?
„Jú, en þeir hafa bara reynst
mér mjög vel. Það getur verið
að þeir taki mig eins og ég sé
einn af þeim. Eg fór einn um
Litlu-Ítalíu og mér fannst ég
vera miklu öruggari þar en í
miðbæ Reykjavíkur. Hér þarf
maðjur helst að vera vopnað-
ur. Ég fór á einhverja skugga-
lega staði hér með ungum
mönnum og hafði mexíkanska
kylfu innan klæða. En átti
þetta viðtal ekki að snúast
eitthvað um listina?"
„Ég vil bara segja
sannleikann, svona til
umhugsunar. Ég held að
það megi bæta hér allt
menntunarástand. Það má
bæta andlega lífið, það má
gefa fólki miklu meiri
andlega næringu og listin á
ekki aðvera snobberí. Hún
á að ekki að vera eitthvert
vald eins og lögreglumaður
sem heldur að það sé vald
að vera lögga... Maður
sannfærist alltaf meira og
meira um það að aðalatrið-
ið erbara að vera auð-
mjúkur gagnvart
viðfangsefninu.11
Jú, nú er komið að því.
Segðu mér...
...Ég tel mig hafa sigrað,
bara með orku. Það eina sem
dugar á óvildaröflin er afl á
móti afli. Þeir hlusta ekki á rök
og halda áfram að vera drullu-
sokkar. En það er rosalegt ef
maður er listhneigður á ís-
Iandi, hvort sem það er karl
eða kona, en þorir ekki að fara
út í listina vegna einhverrar
einokunar. Þetta er eins á rit-
höfundasviðinu og...“
... Segðu mér af sýning-
unni...
„Já, já. Hér eru 34 myndir.
Steingrímur St. Th. Sigurðsson: „Ég ætlaði að fara að heiman fimmtán ára gamall og gerast æsifréttamaður
við Chicago Herald Tribune. Ég held að ég sé ennþá í því fari og tek sýningarnar alltaf eins og liasar. Og ef ég
lendi í mótstöðu þá hressist ég. En ég umgengst ekki neikvætt fólk, því það drepur hraðar en sóttkveikjur."
Þær áttu að vera færri en það
bara bættist við. Ég hélt að ég
kæmi myndunum ekki fyrir en
það tókst. Það er líka rými í
kjallaranum, þar er kata-
komba. Heyrðu, það er kom-
inn þarna gestur sem ég verð
að...“
... Nei bíddu. Málaðirðu
mikið í New York?
„Þessar myndir eru með am-
erískum áhrifum sem ég fékk í
þessari skólun sem ég fékk í
þrígang í New York. Undanfar-
ið hálft annað ár hef ég dvalið
um hríð í New York bæði við
listnám og lífsnám. Ég bjó í
Greenwich Village í boði amer-
ísks listamanns sem ég kynnt-
ist úti í Frakklandi og við höf-
um haldið góðu sambandi.
Hann hefur örvað mig til dáða.
Þetta er maður sem er hátt
átorítet, ekki eins og fíflin
hérna. En svo kemur ævisaga
mín út fyrir jól. Það er aðal-
bomban. Þorsteinn Thoraren-
sen gefur hana út. Svo bað
manneskja mig, sem búið er
að leika mjög grátt, úr svona
yfirklassa, að skrifa lífsbók
sína hratt. Ég er búinn að
kaupa fjörutíu þúsund króna
tölvu, ferðatölvu sem kostar
hundrað og fimmtíu, en ég
fékk hana gegnum tengsl. Mér
finnst best að skrifa og mála
hvar sem ég er staddur, jafri-
vel í lestum og flugvélum. Ég
sem voðalega hratt eins og þú
veist. Heyrðu, en ég vil að við
komum að kjarna málsins.“
Gjörðu svo vel, Steingrímur.
„Ég vil bara segja sannleik-
ann, svona til umhugsunar. Ég
held að það megi bæta hér allt
menntunarástand. Það má
bæta andlega lífið, það má
gefa fólki miklu meiri andlega
næringu og listin á ekki að
vera snobberí. Hún á að ekki
að vera eitthvert vald eins og
lögreglumaður sem heldur að
það sé vald að vera lögga.
Listamaður sem heldur að það
sé fínt að vera listamaður,
blaðamaður sem heldur að
það sé stæll að vera blaða-
maður. Maður sannfærist allt-
af meira og meira um það að
aðalatriðið er bara að vera
auðmjúkur gagnvart viðfangs-
efninu. Ég ætlaði að fara að
heiman fimmtán ára gamall og
gerast æsifréttamaður við
Chicago Herald Tribune. Ég
held að ég sé ennþá í því fari
og tek sýningarnar alltaf eins
og hasar. Og ef ég lendi í mót-
stöðu þá hressist ég. En ég
umgengst ekki neikvætt fólk,
því það drepur hraðar en sótt-
kveikjur. Fyrirgefðu Sæmund-
ur, þarna kemur frú sem ég
þarf að tala við, en við skulum
ræða saman um listina við
fyrsta tækifæri..."
Utbrot er yfirskrift sýning-
ar sem Ijósmyndari
með hið kunnuglega nafn
Jónas Hallgrímsson
stendur fyrir í Gallerí Úmbru
við Amtmannsstíg. Þema
sýningarinnar er konan og
deila kynjanna um yfirráð
veraldarinnar. Þeirri spurningu er velt upp
hvort veikara kynið sé að ná yfirráðum í
heiminum og snúa þar meö leiknum sér í
hag eða hvort allt verði við það sama enn
um sinn. Leitað er svara, jafnframt því sem
listamaðurinn reynir aö leiða hug áhorfand-
ans inn á nýjar brautir með skemmtilegri og
jafnframt hæfilegri blöndu af myndum, mús-
ík og málsgreinum. Þessi blanda á að hæfa
vel umgjörð og áhrifamætti sýningarinnar.
Verkin eru öll í lit og vel studd af málsgrein-
unum, sem ásamt tónlistinni gefa heildar-
svip sýningarinnar sterkan og svipmikinn
blæ. Þetta er örinur sýning Jónasar, en þrátt
fyrir ungan aldur hefur hann áöur komiö við
sögu í listalífi borgarinnar. Fyrri sýning hans
nefndist Persónulegt portrett og var haldin á
Mokka í ársbyrjun 1995. Sú sýning vakti at-
hygli fyrir óvenjulega framsetningu. Jónas
Hallgrímsson er ekki búsettur í Kaupmanna-
höfn heldur stundar hann nám í Ijósmyndun
við Bournemouth & Poole College of Art and
Design í Bretlandi. Sýningin Útbrot stendur
til 24. apríl...
*
IGallerí Horninu í Hafnarstræti stendur nú
yfir málverkasýning Sigríðar Gísladóttur
sem nefnist Aflabrögð á djúpmiðum. Sýn-
ingin var opnuð á laugardaginn og er opin
alla daga klukkan 11 til 23.30 fram til 21.
apríl...
*
ICafé Karólínu á Akureyri hefur verið opn-
uð sýning á verkum Helgu Bjargar Jón-
asdóttur. Þetta erfyrsta einkasýning Helgu,
sem útskrifaðist úr Myndlistarskólanum á
Akureyri í fyrra. Hún hefur tekið þátt í Lista-
sumri á Akureyri og „framlengingarárátt-
unni“ á Sólon Islandus í október. Verkin á
sýningunni eru saumaðar myndir og mynd-
efnið fólk. Sýningin stendur út þennan mán-
uð...
TYTorræna húsið er með fjölbreytta dag-
JLM skrá þessa dagana. í kvöld, fimmtudag,
verða tónleikar á vegum Tónlistarskólans í
Reykjavík. Margrét Stefánsdóttir sópran
syngur og Gústaf Sigurðsson leikur á klarin-
ett. Allir eru velkomnir og geta skilið veskið
eftir heíma því aðgangur er ókeypis. Á morg-
un, föstudag, klukkan 16.30 heldur sænski
málvísindamaðurinn Lennart Elmevik pró-
fessor fyrirlestur sem nefnist „Hednisk gu-
dalara och nordiska ortnamn". Fyrirlesturinn
verður fluttur á sænsku og þess vegna ætl-
um við ekki að þýða heiti hans. Þeir sem
ekki skilja það hafa ekkert á fyrirlesturinn
að gera. En allir eru velkomnir og ókeypis
inn. Á laugardaginn klukkan 15 veröur opn-
uö sýningin Svalbarði — Lífog land í sýn-
ingarsal hússins. Um er að ræða sýningu á
vegum Norsk Polarinstitutt í samvinnu við
norska sendiráðið á Tslandi og Norræna
húsið. Vart þarf að minna á að íslendingar
og þá ekki sfst útgerðarmenn hafa mikinn
áhuga á Svalbarða og nú er tækifæri til að
fræðast meira. Síðdegis á laugardag, eða
klukkan 15, verður síðan fyrirlestur á vegum
Barnaverndarstofu. Fyrirlesari er Claudia
Black áfengissérfræöingur. Allir velkomnir
og aðgangur gratís sem fyrr. Dagskrá sunnu-
dagsins byrjar með norskri kvikmynd fyrir
börn og unglinga klukkan 14. Tveimurtím-
um síðar verða tónleikar þar sem koma
fram þau Guðríður St. Sigurðardóttir pí-
anóleikari og Tapani Yijöla fiðluleikari.
Klukkan 20.30 á sunnudagskvöldið eru tón-
leikar, einsöngvarapróf Helgu Rósar Ind-
riðadóttur mezzósópransöngkonu. Allir vel-
komnir á allt og kostar ekki krónu. Loks má
minna á að í anddyrri Norræna hússins eru
til sýnis verðlaunatillögur úr samkeppni arki-
tekta um byggingu sendiráðs Norðurlanda I
Berlín...