Helgarpósturinn - 11.04.1996, Blaðsíða 20
20
F1MMTUDAGUR ±L APRÍL1396
Straumhvörf í kvikmyndalist
Toy Story
Sýnd í Bíóhöllinni
Leikfangastjóri: John Lasseter
Aðalhlutverk: Woody (Tom Hanks) og Buzz
Lightyear (Tim Allen)
★★★★
Með myndinni Toy Story
hefur blað verið brotið í
sögu kvikmyndanna. Árangur
fyrirtækisins Pixar í samvinnu
við Disney-veldið er ótrúlegur
og skýtur hefðbundnum teikni-
myndum rækilega ref fyrir rass
hvað tækni og frásögn varðar.
Toy Story er búin til í tölvum,
sem eins og sögupersónurnar
eru leikföng í höndum forritara
og grafískra hönnuða sem
standa að gerð myndarinnar.
Toy Story var um fjögur ár í
framleiðslu og eftir að hafa séð
afraksturinn er greinilegt í
hvað öllum þessum tíma var
varið. Hverju einasta smáatriði
Kvikmyndir
pistófer
Dignus
Pétursson
(og þau eru óteljandi) er gef-
inn gaumur og útkoman er
eins og nýr heimur háþróaðs
sýndarveruleika. Áhorfandinn
gleymir fljótt að um er að ræða
tölvugrafík og sekkur inn í
skemmtilega atburðarás sem
uppfull er af frábærum persón-
um og kostulegum uppákom-
um.
Söguþráður myndarinnar er
afar ólíkur því sem gerist í öðr-
um myndum í teiknimynda-
geiranum eða barnamynda-
flórunni og fer til dæmis bless-
unarlega lítið fyrir skinhelgum
og svarthvítum formúluboð-
skap. Woody er kúrekabrúða
sem er í uppáhaldi hjá eiganda
sínum. Hann er því öruggur
kvennaráð
„Kvikmyndin To Die For er ákaflega vel heppnuð og bleksvört kómedía
með ádeiluívafi sem undirstrikar hæfileika hins framsækna leikstjóra
Gus Van Sant og einnig — mér til mikillar ánægju og undrunar —
gamanleikaraefnið sem í Nicole Kidinan býr ... To Die For er frumleg
mynd þar sem gamlir og nýir talentar fá að njóta sín í skemmtilegri
satíru um grafalvarleg málefni."
Köld eru
To Die For
Sýnd I Bíóborginni
Leikstjóri: Gus Van Sant
Aðalhlutverk: Nicole Kidman,
Joaquin Phoenix og Matt Dillon
★ ★★
Kvikmyndin To Die For er
ákaflega vel heppnuð og
bleksvört kómedía með ádeilu-
ívafi sem undirstrikar hæfi-
leika hins framsækna leik-
stjóra Gus Van Sant og einnig
— mér til mikillar ánægju og
undrunar — gamanleikaraefn-
ið sem í Nicole Kidman býr.
Kidman leikur hér Suzanne,
metnaðarfulla ljósku er gerir
allt í sínu valdi til að öðlast
frægð og frama á öldum ljós-
vakans. Gallinn er bara sá að
Suzanne býr í Little Hope (þýð-
ið bæjarnafnið á íslensku...) í
New Hampshire og er gift
ítalskættuðum arftaka veit-
ingahúss sem vill ólmur fara
að búa til fjölskyldu með sinni
heittelskuðu. Með hlutverk
ítalans fer hinn ágæti en sorg:
lega mistæki Matt Dillon. í
anda annarra „femme fatale“-
kvenna hvíta tjaldsins fer Suz-
anne sem sagt áður en langt
um líður að skipuleggja andlát
eiginmannsins og dregur þrjá
táninga inn í ráðabruggið.
Myndin er sett saman í nokk-
urs konar fréttaþátta- eða
heimildamyndarstíl þar sem
atburðarásin fæðist gegnum
samtöl eða viðtöl persónanna
við myndavélina (les: áhorf-
endur). Fyrst og fremst er ein-
tal Suzanne, þar sem hún fræð-
ir okkur um heimsmynd sína
og skoðanir (allar stolnar frá
öðrum fjölmiðlastjörnum) og
er augljóst að hér er á ferð
stórhættulegur einstaklingur:
sykursætur að utan en súr og
beiskur að innan. í þessu ein-
tali sést ljómandi vel hversu
fín leikkona Nicole Kidman er í
.raun og veru og persónusköp-
unin mjög trúverðug. Það var
orðið tímabært að leikhæfileik-
ar Kidman fengju að njóta sín,
því eftir að hafa brillerað í ástr-
ölsku myndinni Dead Calm ár-
ið 1989 hefur hlutverkaval
hennar verið misheppnað og
myndirnar að sama skapi
slappar. Einna hörmulegust
var Kidman í Days of Thunder
árið 1990 þar sem mannsefnið
verðandi, naggurinn Tom Cru-
ise, spreytti sig á kappakstri.
Leikstjórinn Gus Van Sant er
þekktur fyrir tilraunastarfsemi
í kvikmyndagerð og einnig það
nána samband sem hann
myndar við leikarana. Aðferðir
hans í frásögn og klippingu eru
einstakar og hefur hann skap-
að sinn eigin stíl með myndum
eins og Drug Store Cowboy
(1989) með „eiturlyfjasjúkling-
unum“ Kelly Lynch og Matt
Dillon á hraðri leið til helvítis
og My Own Private Idaho
(1991) þar sem River Phoenix
heitinn vann leiksigur. Bróðir
River, Joaquin, virðist hafa
erft leikhæfileikana og er frá-
bær í hlutverki hins naut-
heimska og yfir sig ástfangna
Jimmys, eins táningsins sem
Suzanne vefur um fingur sér.
Matt Dillon veldur vonbrigð-
um sem eiginmaðurinn og er
samband þeirra hjónanna
óljóst miðað við hina ríkjandi
stefnufestu í myndinni. Það er
hins vegar auðvelt að falla í
skuggann af Nicole og táning-
unum þremur (allir nýgræð-
ingar), [tví persónusköpunin
er sterk og hlutverkin bita-
stæð.
Ádeilunni í myndinni er
beint að hinni vaxandi rabb-
og fréttaþáttaáráttu sem nú
ríkir vestanhafs (og hefur
teygt krumlur sínar hingað til
lands), þar sem innantómar
fjölmiðlastjörnur eru orðnar
að átrúnaðargoðum almenn-
ings. Suzanne er tákn nýrrar
og heilaþveginnar kynslóðar
sem hefur að leiðarljósi að ef
eitthvað sé þess virði að gera
þá skuli það fara fram í sjón-
varpinu. Ádeila To Die For nær
samt ekki mörgum stigum á
Oliver Stone-mælikvarðanum,
enda háð og húmor verkfærin
sem Van Sant vinnur best með.
Tónlistin, eftir Danny „Simp-
sons og Batman" Elfman, er lit-
rík og sérkennilega öðruvísi,
líkt og búningar Suzanne, sem
eru eins og settir saman af lit-
blindum flóamarkaðssérfræð-
ingi.
To Die For er frumleg mynd
þar sem gamlir og nýir talentar
fá að njóta sín í skemmtilegri
satíru um grafalvarleg málefni.
- KDP
(myndbandið
Súrrealískt stríð
Apocalypse Now
★★★★
pocalypse Now var gerö áriö
1979 og er ein umdeildasta
kvikmynd allra tíma. Leikstjórinn
Francis Ford Coppola sér þar um
aö færa hina stórkostlegu Víet-
namsögu Heart of Darkness eftir
Joshep Conrad f kvikmyndarbún-
ing. Leikaraval myndarinnar er
meö eindæmum gott og fara þar
fremstir í flokki þeir Martin Sheen,
Marlon Brando, Robert Duvall, Fre-
deric Forrest, Dennis Hopper,
Harrison Ford og margir góökunn-
ingjar hvíta tjaldsins. Frá lokum VI-
etnamstríösins hefur þaö veriö
kvikmyndaö frá öllum hliöum, fram
og til baka. Sem betur fer viröast
draumasmiöjurnar vestanhafs vera
aö missa áhugann á þessu tíma-
bili og því vert aö líta til baka og
skoöa afraksturinn. í flestum til-
fellum er hann fremur slappur, I
mörgum tllfellum sæmilegur og
einstaka sinnum góöur. Hins vegar
er Apocalypse Now án nokkurs
vafa besta myndin.
Slegist er í för meö hermanni sem
á aö finna og myröa amerískan of-
ursta sem haföi klikkast og haldiö
meö herdeild sína á afskekktan
staö í nágrannaríkinu Kampútseu.
Myndin lýsir undanbragöalaust
þeirri fulikomnu geöveiki og súrre-
alísku hugsefjun sem bandarískir
hermenn þessa stríös þjáöust af.
Sýnt er hvernig venjulegir smábæj-
arstrákar reyna aö lifa eölilegu llfi
á snaróöum staö; hvernig hefö-
bundnar athafnir á borö viö brim-
brettabrun veröa aö hreinni bilun
þegar þær eru framkvæmdar viö
þessar kringumstæður. Eín her-
deildin fer þannig á brimbretti í
miöju strlöi undir stööugri skothríð
og Víetnamarnir eru — til aö losna
við þann ama — hreinsaðir á
braut meö napalmi — allt fyrir
seglbrettamennina bandarísku.
Myndinni tekst þó furðutega vel aö
foröast aö taka afstööu meö öör-
um hvorum stríösaöilanum og er
framar ööru ádeila á stríö yfirleitt.
Umgjöröin er annars öll eins og
best verður á kosiö og hlaut Apoc-
alypse Now til dæmis Óskarsverö-
laun fyrir hreint út sagt frábæra
myndatöku. Hér er um safngrip aö
ræöa og skal áhugasömum bent á
aö myndin fæst meöal annars
leigö I myndbandaleigunni Ríkinu
viö Snorrabraut. - EBE
um tilveru sína og sjálfkjörinn
leiðtogi hinna leikfanganna í
herberginu. Tom Hanks ljær
Woody rödd sína og hjálpar
mikið við að skapa skemmti-
lega kokhraustan karakter. Eft-
ir því sem á líður myndina fer
Woody að líkjast meir og meir
Hanks í útliti og hreyfingum;
glöggt merki um snilldarhæfi-
Ieika þessa ágæta leikara. Leik-
fangaeigandinn á svo afmæli
og fær að gjöf geimfaraleik-
fangið Buzz Lightyear. Þessi
fígúra er hönnuð eftir vinsælli
sjónvarpshetju og fer strax
efst á vinsældalistann hjá eig-
andanum. Buzz er hins vegar
sannfærður um að hann sé
ekki leikfang heldur geimfari
strandaður á skrítinni plánetu.
Það er hin handlagni heimilis-
faðir Tim Allen sem gefur
Buzz djúpan og sjálfsöruggan
róm. Samkeppnin um vinsæld-
ir eigandans leiðir aðazlhetj-
urnar tvær, Woody og Buzz,
auðvitað í hinar mestu ógöng-
ur þar sem þeir þurfa að
standa saman til að komast af.
Hin leikföngin eru margvís-
leg og mismunandi að eðlis-
fari. Má þar til dæmis nefna
Mister Potate Head (talsettan
af skemmtikraftinum Don
Rickles) og sparigrísinn
Hamm (talsettan af John Ratz-
enberg — póstberanum Cliff
Clavin í Staupasteini), en öll
eiga þau sameiginlegt að vera
líkt og lifandi persónur sem
áhorfandinn trúir heilshugar á.
Leikarar mega yfirhöfuð fara
að vara sig, enda túlkunarhæfi-
leikar og líkamsburðir tölvu-
leikaranna eins og þeir birtast
í þessári mögnuðu mynd ótak-
markaðir — í orðsins fyllstu
merkingu.
Tónlist Randys Newman er
létt og skemmtileg og ólíkt öðr-
um nýlegum Disney-myndum
fer engin persóna skyndilega
að syngja væmið ástarlag á
viðkvæmri stundu.
Ég skemmti mér konunglega
á Toy Story og verkjaði í bros-
vöðvana þegar ég kom út úr
salnum. Ekki sló á vellíðan
mína sú fullvissa að ég hefði
þarna upplifað straumhvörf í
kvikmyndagerðarlistinni.
Framtíðin í þessum geira er
björt, um það er ég sannfærð-
ur.
- KDP
„Hverju einasta smáatriði (og
þau eru óteljandi) er gefinn
gaumur og útkoman er eins og
nýr heimur Itáþróaðs sýndar-
veruleika. Áhorfandinn gleymir
fljótt að um er að ræða tölvu-
grafík og sekkur inn í skemmti-
lega atburðarás sem uppfull er
af frábærum persónum og
kostulegum uppákomum ... [Ég
upplifði) straumhvörf í kvik-
myndagerðarlistinni. Framtíðin í
þessum geira er björt, um það
er ég sannfærður."
Slöpp klisja
sem stólar á trúgimi bama
„Eitthvað hefur þó klikkað í sköpunargleðinni að þessu sinni og þegar
upp er staðið er Babe fölsk, slælega gerð og innantóm mynd sem stól-
ar á trúgirni barna og slappar klisjur sem áður hafa „gengið upp“. Vin
samleg ummælin, Óskarstilnefningarnar og góð aðsóknin gera þannig
litið annað en endurspegla lítilmótlegar kröfur sumra kvikmyndafram-
leiðenda og kvikmyndahúsagesta."
Sýnd í Sambíóunum
Leikstjóri: Chrís Noonan
Aðahlutverk: James Cromwell og ýmsar
skepnur
★
urtséð frá fallegu landslagi,
yndislegri birtu og ágætum
leik James Cromwell í hlut-
verki bóndans góðhjartaða er
kvikmyndin Babe úrkynjuð til-
raun til að betrumbæta aðrar
jafnleiðinlegar „dýramyndir".
Að þessu sinni er reynt að ná
betrumbót.unum fram með
notkun tölvutækni svo dýrin
virðist tala á mannamáli: skolt-
ar spendýranna og goggar fugl-
anna sem „leika“ í Babe eru
látnir hreyfast og vafalaust
þurft óteljandi „megabæt" til.
Þessi tækni er hins vegar svo
fráhrindandi, að engin leið er
að lifa sig inn í annars ágæta
sögu um lítið svín sem sleppur
undan saxinu sökum smala-
hæfileika sinna. Dýratemjarar
spila að sjálfsögðu stóran þátt
við gerð myndar sem þessarar,
en eiga hér augljóslega slæma
daga, því atferli dýranna er oft
áberandi þvingað og meðvitað.
Þegar tölvur og tamning eru
síðan ekki fyrir hendi þá
stjórna tæknimenn frá vinnu-
stofu Jims heitins Henson vél-
um og brúðum sem líkjast dýr-
unum. Það er hins vegar áber-
andi munur á fyrirmyndunum
og vélrænum eftirlíkingum
þeirra og útkoman á köflum
grátbroslega klén. Niðurstað-
an: Allar þessar aðferðir fjar-
lægja áhorfandann frá efninu
og þeim boðskap sem þar fyrir-
finnst.
Það hefur tíðkast undanfarið
hjá fyrirtækjum eins og Disney
að framleiða húsdýraævintýri
sem eru nógu fáránleg í sjálfum
sér án þess að talsetja þurfi
myndirnar einnig. Þetta var
einnig tilfellið í myndinni
Homeward Bound (1993) þar
sem stjörnur á borð við Micha-
el J. Fox og Sally Field léðu
dýrunum raddir sínar. Talsetn-
ingin í Babe er að vissu leyti
nokkuð góð, sérstaklega í til-
felli andarinnar Ferdinands þar
sem Danny Mann sér um gagg-
ið, en það nægir því miður ekki
til að fá mann til að líta framhjá
ónáttúrulegum munnhreyfing-
um vesalings dýranna.
Babe er öll tekin í Ástralíu og
er birtan frá sólinni þar gulln-
ari en á flestum 'öðrum stöðum
heimskringlunnar. Sólin lýsir
upp græna dali, hæðir og hóla
á einkar sérstakan hátt og með
smátilfæringum virkar sveita-
bærinn sem Babe býr á eins og
beint út úr teiknimynd. Leik-
myndin er í raun öll frumleg og
skemmtileg.
Hogget bóndi í meðförum
Cromwells segir fátt, enda yfir-
gnæfir tal dýranna um áttatíu
prósent myndarinnar. Crom-
well er yfirvegaður og tilfinn-
ingaríkur í senn, að hætti fram-
sóknarmanna sem ekkert
þekkja nema dreifbýlið, og góð-
mennskan skín úr augum hans
gegnum alla myndina.
Aðalaðstandendur Babe eru
Ástralir og sú þjóð hefur fram
til þessa ekki verið beinlínis
þekkt fyrir smekkvísi. Skortur-
inn á henni kemur hins vegar
skemmtilega út í oft absúrd
kvikmyndum þeirra. Sem dæmi
má nefna að framleiðandi Ba-
be, George Miller, leikstýrði
Mad A/ax-myndunum, þar sem
úrkynjun og ósmekklegheit
virkuðu vel og sköpuðu eftir-
minnilega samsuðu af húmor
og hasar.
Eitthvað hefur þó klikkað í
sköpunargleðinni að þessu
sinni og þegar upp er staðið er
Babe fölsk, slælega gerð og inn-
antóm mynd sem stólar á trú-
girni barna og slappar klisjur
sem áður hafa „gengið upp“.
Vinsamleg ummælin, Oskarstil-
nefningarnar og góð aðsóknin
gera þannig lítið annað en end-
urspegla lítilmótlegar kröfur
sumra kvikmyndaframleiðenda
og kvikmyndahúsagesta.
- KDP