Helgarpósturinn - 11.04.1996, Page 23
FIMMTUDAGUR UL APRÍL1996
23
„Við höfum virkilega trú á
því sem við erum að gera
og erum ekki að þessu ein
göngu peninganna vegna
heldur frekar til að reyna
að bæta mannlífið eins og
okkur er unnt,“ segja þeir
félagar Axel Guðmunds-
son, Ólafur Grétar Gunn
arsson og Hallur
Hallsson.
Karlar eru frá Mars, konur frá
Venus, eftir John Gray, var
langsöluhæsta bókin fyrir síðustu
jól. Á næstunni kemur út ný bók eftir sama
höfund og ber vinnutitill bókarinnar heitið
Mars þráir Venus. Eins og nafnið
gefur til kynna er enn fjallað um samskipti
kynjanna og í þetta skiptið um kynlífið.
Guðbjartur Finnbjörnsson ræddi við útgef-
endur bókarinnar, þá Axel Guðmundsson.
Ólaf Grétar Gunnarsson og Hall Hallsson.
Hann vill
hún vill
Bókin Mars þráir Venus er
fordómalaus umfjöllun
um kynlíf og þær tiifinningar
sem brjótast um í fólki, bæði
körlum og konum, meðan á
samlífi stendur," segja Ólafur
Grétar Gunnarsson, Axel
Guðmundsson og Hallur
Hallsson í samtali við blaða-
mann HP þar sem við sitjum
inni á Hótel Borg í hugguleg-
heitum og sötrum kaffi og te.
Þeir félagar stóðu að útgáfu
bókarinnar Karlar eru frá
Mars, konurfrá Venus fyrir síð-
ustu jól. Bókin, sem John
Gray skrifaði, var langsölu-
hæsta bókin á þeirri vertíð og
á næstunni kemur út ný bók
eftir sama höfund. Vinnutitill
hennar er Mars þráir Venus.
Eins og nafnið gefur til kynna
er enn fjallað um samskipti
kynjanna og í þetta skiptið um
kynlífið.
„Hún gengur út frá sama
meginþema og fjallað er um í
fyrri bók Johns Grays, það er
að kynin eru í grundvallarat-
riðum ólík. í bókinni er karl-
manninum líkt við sólina sem
rís hratt hátt á loft. Hann vill
gjarnan flýta sér og vaða beint
í mark. Karlmaður þráir kyn-
lífið kynlífsins vegna og finnst
að ef kynlífið er gott þá sé ást-
in heit. Konan hins vegar er
eins og tunglið í viðleitni sinni
til ástar; ýmist vaxandi eða
minnkandi og vill ekki flýta
sér. Konan þráir kynlífið til að
fá staðfestingu á ást sinni. Það
er ekki fyrr en hún upplifir
ástina að kynlífið verður
gott,“ segja þeir.
Hvað þráir
konan kynferðislega?
„John Gray bendir á í bók-
inni að þegar við viljum gefa
af okkur gefum við venjulega
það sem við sjálf viljum fá,“
segir Axel. „Þarna verða að
hans mati stærstu árekstrarn-
ir í samskiptum kynjanna.
Karlmenn gefa konum það
sem karlmenn vilja fá og öf-
ugt. Þessi bók bendir á pytt-
ina sem hægt er að detta í
hvað varðar kynlíf og hvernig
við getum forðast þá. Við er-
um ólík og okkur ber að
þekkja og virða þennan mun.
Þannig fáum við meira út úr
kynlífinu og njótum þess út í
ystu æsar. Mars og Venus í
svefnherberginu fjallar ekki
um mismunandi kynlífsstell-
ingar sem hægt er að fram-
kvæma heldur fyrst og fremst
um tilfinningar í kynlífinu. í
bókinni gerir John Gray körl-
„Konum hættir almennt til að álíta að karlmenn séu aðeins á höttun-
um eftir einu: sexi. Sannleikurinn er samt sem áður sá að karlmenn
vilja ást. Þeir þrá ást jafn mikið og konur, en áður en þeir geta opnað
hjarta sitt og veitt ást rekkjunautarins viðtöku þarf kynlíf að koma til.
Rétt eins og konan þarfnast ástar til að opnast gagnvart sexi
þarf karlmaðurinn á kynlífi að halda til að
opnast gagnvart ástinni.11
um grein fyrir hvað það er
sem konan þráir kynferðis-
lega, eins gerir hann konum
grein fyrir því hvað það er
sem karlmenn þrá.“
Ellefu þúsund
eintök af fyrri bókinni
Mars þráir Venus. er líkt og
fyrri bókin efst á metsölulist-
um hvarvetna í hinum vest-
ræna heimi og eru þeir félagar
sannfærðir um að Islendingar
taki henni eins vel og fyrir-
rennara sínum. „Bókin Karlar
eru frá Mars, konur frá Venus
fékk frábærar viðtökur núna
um jólin. Hún hefur nú selst í
um ellefu þúsund eintökum og
er enn að seljast,“ segja þeir.
„Það má til gamans geta að
allt upp í 30-40 prósent sölu-
hæstu bókanna er skilað eftir
jólin, því margir hafa jafnvel
fengið tvær eða þrjár í jóla-
gjöf,“ segir Ólafur. „Bókin okk-
ar var með innan við 5 pró-
sent skil og það hafði aldrei
gerst áður í sögu bókaútgáfu á
Islandi. Á einum stað seldum
við til að mynda um tvö þús-
und bækur og aðeins sjö bók-
um var skilað. Við vorum að
vísu sannfærðir um að þessi
bók yrði vinsæl hér á landi en
við bjuggumst ekki við svona
miklum vinsældum."
„Það má segja að við höfum
brotið blað í bókaútgáfu á ís-
landi þegar við gáfum út Karl-
ar eru frá Mars, konur frá Ven-
us, því bókaútgefendur og
bóksalar voru vissir um að
bók um svona málefni yrði
ekki í toppbaráttunni," segir
Axel. „Við erum búin að setja
heimsmet hér á íslandi miðað
við höfðatöluna frægu," segir
Hallur. „Bókin Karlar eru frá
Mars, konur frá Venus hefur
selst í um fimm milljónum ein-
taka í Bandaríkjunum og sam-
svarandi tala á íslandi hefði
verið um fimm þúsund eintök.
„Karlmaðurinn hefur tilhneigingu til að meta velgengni sína í kynlíf-
inu eftir fullnægingu konunnar sem hann samrekkir. Ef hún fær ekki
fullnægingu getur hann farið í fýlu sem endist klukkustundum saman
... Þar eð karlmaðurinn þráir kynlíf í ríkara mæli en konan upplifir
hann djúpstæða höfnun þegar hann fær ekki notið þess.“
Nú hefur hún selst í ellefu
þúsund eintökum. Það er
ótrúlegt hve íslendingar hafa
tekið þessari bók vel og sýnir
hversu áhugasamir þeir eru
um að bæta samskiptin kynja
í milli.“
Mannleg samskipti
ekki ofarlega á blaði
„Mars þráir Venus er ekki
nein vandamálabók sem laga
á allt sem miður fer í sam-
skiptum milli kynjanna,“ segja
þeir. „Hún hjáípar öllum,
hvort sem þeir eiga í einhverj-
um vandræðum með kynlíf
sitt eða ekki. Það er alltaf
hægt að bæta samskiptin við
annað fólk.“
„Það þykir sjálfsagt að ein-
staklingur fari í Háskóla ís-
lands til að læra verkfræði,“
segir Hallur, „nú eða í Iðnskól-
ann að læra trésmíði. Það er
sjálfsagt að iæra eitthvað til
að starfa við í framtíðinni. Það
á að vera jafnsjálfsagt að læra
að þekkja hvort annað. Góð
samskipti við annað fólk er
leiðin til árangurs í lífinu og í
raun mikilvægasta lífsstarfið.
Og það er varla til dýpri og
persónulegri samskipti en
það að elskast og njóta hvort
annars í góðu kynlífi. Þetta er
hlutur sem menn hafa alger-
lega vanmetið. Það finnst mér
með ólíkindum þegar ég
hugsa út í það.“
Ég vil ríða þér
„íslenskan er frekar fátæk að
orðum um kynlífsathöfnina og
við lentum í vandræðum við
þýðingu á bókinni um hvað
væri hentugast þegar átti að
þýða to haue sex," segir Axel.
Við eigum stofnanakennd,
þurr, fræðileg orð eins og sam-
farir. „Það er hálfasnalegt að
segja Ég vil hafa samfarir við
þig. Við eigum niðrandi
skammarorð eins og að ríða,
en persónulega tel ég það orð
nokkuð gott og vil sjá skömm-
ina og hina niðrandi merkingu
hverfa af því. Síðan eru til
feimnisleg orð sem fara eins
og köttur í kringum heitan
graut. Til dæmis að gera það.
Gera hvað? Eða að sofa saman.
Kynlíf snýst ekki um að sofa
saman. Það er ekki hefð kynj-
anna á milli að vera opinskár
um kynlíf eins og sést gjörla á
orðafátæktinni. Við skömm-
umst okkar fyrir þann stór-
kostlega hlut sem okkur var
gefinn; kynlíf, og viljum helst
sem minnst um það ræða.“
„Tungumálið er spegill sál-
arinnar og orðafátæktin segir
mikið úm hvert viðhorf íslend-
inga er til kynlífs,“ segir Hallur.
„Stundum finnst mér að það
megi bara alls ekki tala um
kynlíf, — það sé eitthvað
slæmt ef það er gert. Því vilj-
um við breyta. Við viljum fá
fordómalausa umræðu í sam-
félagið um kynlíf og þessi bók
er kjörið tækifæri til þess. Kyn-
líf er það snar þáttur í lífi okk-
ar flestra að ef við getum rætt
um það án þess að skammast
okkar verður samfélagið
betra. Á því er enginn vafi.
Kynlíf er einn mikilvægasti
þáttur mannlegra samskipta
og hornsteinninn í hverju
hjónabandi. Því eigum svo
mikið undir því að kynlífið sé
gott og fallegt.“
Ræddu kynlífið
og pældu í því
„Ein af hindrununum fyrir
því að fólk vilji ræða opinskátt
um kynlíf sitt er að það heldur
að ef farið er að ræða um kyn-
líf og taka það út úr skuggan-
um fari rómantíkin og dulúðin
af því,“ segir Axel. „Það er
misskilningur. Kynlífið verður
aftur á móti mun rómantísk-
ara, dýpra og skemmtilegra ef
maður þekkir sjálfan sig, lang-
anir sínar og þrár og ekki síst
ef maður þekkir langanir og
þrár elskhuga síns.“ „Ræddu
um kynlíf og pældu í því, þá
verðurðu færari og betri í ást-
aratlotunum," bætir Ólafur
við. „Svæðin á líkamanum
sem tengjast kynlífi eru engin
skammarsvæði sem ekki má
tala um. Kynlíf er ekkert sem
þarf að skammast sín fyrir.“
Stefnt er að því að gefa út
Mars þráir Venus á sumardag-
inn fyrsta og að sögn þeirra
félaga vonast þeir til að bókin
verði sumargjöfin í ár. Gefðu
þér og þínum gleðilegt og gott
kynlífssumar.
Pöntunarsími allan sólarhringinn:
Sími 462-5588
Póstsendum vörulista
hvert á land sem er!
Fatalisti, kr. 600
Blaðalisti, kr. 900
Vídeólisti, kr. 900
Tækjalisti, kr. 900
Sendingarkostnaður
innifalinn
HUGSKOT
Ljósmyndastofa
Nethyl 2 Simi 587-8044
NÝ ÞJÓNUSTA
Framköllun og kópering á
35mm litfilmum.
Kynningarverð:
24 mynda kr. 1000
36 mynda kr. 1360
Ný 24 mynda Fuji-
litfilma innifalin