Helgarpósturinn - 11.04.1996, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 11.04.1996, Blaðsíða 26
26 FlMIVmjDAGUR XX APRÍL1996 „Við vorum á Kaffibarnun fram að lokun en síðan endaði allt í allsherjar fylleríi og partíhaldi fram- undir morgun. Fyrst var farið í partí til Davíðs Magnússonar sem var í hljómsveitinni Bubble- flies. Damon fór ekki heim fyrr en sjö um morguninn." Þessi mynd er tekin í partiinu, með Damon á myndinni er Halidór Baldvins- son í Skífunni. landi og það kom mér á óvart hvað hann vissi mikið um land- ið, — eiginlega meira en maður sjálfur," sagði Halldór Bald- vinsson í Skífunni, sá sem fylgdi Damon mest eftir úti á lífinu. er poppstjarna her ems og í Bretlandi, hvort sem það hentar eður ei. Þegar þetta rann upp fyrir kauða og upprunalegur tilgangur ferðarinnar var runninn út í sandinn sagði hann: „Þá verð ég bara fullur það sem eftir er.“ Hér er hann á The Bar ásamt Davíð Magnússyni og Daða í OZ. Breski poppar- inn og hjarta- knúsarinn Damon Albarn úr hljómsveitinni Blur kom til Reykjavík- ur mánudaginn 1. apríl til að leita að friði og ró og sækja sér innblástur. Hann ætlaði að vera edrú allan tímann og tókst það fyrstu tvo dag- ana, meðan Reykvíking- ar voru að átta sig á hvaða hvalreki var kominn á Qörur þeirra. Síðan hrundi hann í poppstjörnurulluna og það með stæl og eyddi megninu af tímanum á Kaffibarnum, þar til hann kvaddi hótelið undir gráthljóðum ferm- ingartelpna og -stráka sem höfðu hreiðrað um sig í lobbíinu á Hótel Sögu, í von um að fá að beija goðið augum. í flugvélinni á leiðinni til landsins kvisaðist fljótlega út hver væri á ferð og síðan fór sagan eing og eldur í sinu um Reykjavík, en flestir héldu að um aprílgabb væri að ræða. Á mánudag var Damon rólegur eða Demón eins og argur faðir kallaði hann eftir að hafa þurft að draga litlu dóttur sína org- andi upp í bíl fyrir utan Hótel Sögu þar sem Damon hafðist við í herbergi 703. Hann vildi vera einn og ganga um göturnar og sækja sér innblástur í ljóð og texta. Skífumenn höfðu þó haft eitthvert veður af ferðum hans hérna og höfðu sam- band við hann á hótelinu og gerðu ráðstafanir til að sýna honum það besta af Reykjavík. „Fyrst í stað vildi hann bara lesa og skrifa, enda ætlaði hann að vera edrú allan tímann og taka það rólega," sagði Aðalsteinn Magnússon, einn af fylgdarmönnum Damons frá Skífunni, en Aðalsteinn sagði Damon vera mjög venjulegan ná- unga, lausan við alla stjörnustæla og sérlega áhugasaman um bók- menntir. „Hann fór snemma á þriðjudaginn í pakkaferð með rútu á Gullfoss og Geysi ásamt öðrum túristum, aðallega Japönum, sem honum Birgir Sigfusson i Skifunni og Damon i partii eftir lok- un The Bar. fannst vera mjög dæmigerðir ferða- menn. Þeir ferðast, að dómi Damons, einkum til að geta sagst hafa komið á staðinn en ekki til að njóta þess.“ Að- spurður sagðist Aðalsteinn halda að rútuferðin hefði verið hin afslappaðasta og hinir ferðamennirnir hafa víst ekki áttað sig á hvílík stórstjarna var hér á ferð. „Þegar hann kom úr ferðinni sýndum við honum Stúdío Sýrland en að því búnu fór Damon í göngu- ferð og endaði hana á Cafe au Lait, þar sem hann sat að snæðingi drjúga stund. Eftir að hann hafði borgað og var á leiðinni út þustu hins vegar nærliggjandi gestir að borðinu og tóku kaffibollann, undir- skálina og hnífapörin til að eiga til minningar. Þar með var friðurinn úti. Damon er popp- stjarna hér eins og í Bretlandi, hvort sem það hentar eður ei. Þegar þetta rann upp fyrir kauða og upprunalegur til- gangur ferðarinnar var runn- inn út í sandinn sagði hann: „Þá verð ég bara fullur það sem eftir er.“ „The Bar“ „Þegar við náðum í hann á miðvikudaginn var stelpna- An Ode to my boy Damon Albarn, shame on you For beeing so untrue you are so pretty, pristine Yet you hang out with Justine, Some might say, that she’s a babe but I say she looks like president Abe So you ’ll write, we must break the ice, So here is a little good advice When crased fans try to hire you to bed You canjust say, go drop dead You can go, shag Oasis But shagging me, no way sis Fjórtán ira stelpa úr Keflavík, sem ásamt vinkonu sinni hitti Damon á flugvellinum á leiðinni út, liefur ort um hann og alla hljómsvcitina Ijóðabálkinn Blurljóð en hún smeliti einnig af honum þessari mynd og gaf blaðinu leyfl til að birta hluta af kvæðinu með Því skilyrði að nafn hennar kæmi ekki fram. „Hann leyfði okkur að taka myndina og gaf okkur ciginhandarárit- un og við snertum meira að segja á honum bárið.“ Eftir að hann hafði borg- að og var á leiðinni út þustu hins vegar nærliggj- andi gestirað borðinuog tóku kaffibollann, undir- skálina og hnífapörin til að eiga til minningar. Þar með var friðurinn úti. Damon er poppstjarna hér eins og í Bretlandi, hvort sem það hentar eður ei. Þegar þetta rann upp fyrir kauða og upprunalegur tilgangur ferðarinnar var runn inn út í sandinn sagði hann: „Þá verð ég bara fullur það sem eftir er.“ hópur fyrir utan, eitthvað svona fjórtán ára, og þegar hann birt- ist þá grenjuðu þær og öskruðu. Eg hef aldrei séð annað eins,“ sagði Aðalsteinn Magnússon. „Það var síðan álíka stór hópur fyrir utan allan tímann meðan hann dvaldi hér. Meðan versta veðrið gekk yfir héldu þær til inni í lobbí- inu þar sem starfsmenn hótelsins hafa sjálfsagt aumkað sig yfir þær. Damon var hinn alúðleg? asti við krakkana þegar hann kom eða fór, gaf þeim eiginhandaráritan- ir og faðmaði þau að sér. Um kvöldið fóru Skífu- menn út að borða með Damon á veitingahúsið Argentínu, en valið á staðnum var svolítið óheppilegt í ljósi þess að hann er grænmetisæta. „Við kveiktum ekki á per- unni. Sem betur fer voru ágætis fiskréttir á mat- seðlinum, en hann borð- ar fisk, svo þetta kom ekki að sök,“ sagði Aðal- steinn og bætti við: „Eft- ir Argentínu kynntum við hann fyrir Kaffibarnum, en eftir þau kynni talaði Damon aldrei um Kaffibarinn nema sem „The Bar“. Við vorum síð- an á Kaffibarnun fram að lokun en síðan endaði allt í allsherjar fylleríi og partíhaldi framundir morgun. Fyrst var farið í partí til Davíðs Magnússonar sem var í hljómsveitinni Bubble- flies. Damon fór ekki heim fyrr en sjö um morguninn." Hundrað manna parfa' Á fimmtudaginn stóð til að fara og sjá úrslitaleikinn milli KA og Vals, en þegar Damon heyrði af leiknum var hann til í að fara með, enda hafði hann aldrei séð handbolta. Stöð tvö náði tali af kappanum í hádeg- inu og birti viðtal við hann um kvöldið en handboltaleiknum var hins vegar frestað vegna veðurs og hélt Damon til uppi á hótelherbergi allan daginn þar til hann fór á Kaffibarinn eða „The Bar“ klukkan átta og dvaldi þar i góðu yfirlæti til miðnættis en þá tók við risa- Halldór Baldvinsson, Dam- on og Aðalsteinn Magnús- son, hér staddir á Lauga- veginum á leið út á lífið. stórt hundrað manna partí í vesturbænum, nánar tiltekið á Ásvallagöt- unni. Hann kvaddi partíið klukkan tvö um nóttina í fylgd íslenskrar stúlku sem bauðst til að keyra hann heim á hótel. Hin annálaða gestrisni Reyk- víkinga og almenn vantrú á rat- vísi útlendinga virtist ná undir skinnið á Damon, því hann er að hugsa um að koma aftur í heimsókn í lok maí og einnig er verið að hugsa um tónleika- hald á íslandi jafnvel undir lok júní. Damon verður á Hró- arskelduhátíðinni í Danmörku og kemur einnig við í Svíþjóð um þetta sama leyti, svo ekki er loku fyrir það skotið að hægt verði að koma íslandi inn í þetta prógramm og Blur leiki fyrir okkur í lok júní eða byrjun júlí. Þá verður hljómsveitin Pulp einmitt á landinu svo vel gæti komið til greina að þær spiluðu saman. Þetta var þó ekki allt og sumt því Damon spurðist líka fyrir um fasteign- ir á íslandi og hefur jafnvel hug á að fjárfesta eitthvað, jafnvel kaupa sér hús eða sumarbú- stað. „Hann hreifst mjög af ís- „Þegar við náðum í hann á miðvikudaginn var stelpnahópur fyrir utan, eitthvað svona fjórtán ára, og þegar hann birtist þá grenj- uðu þær og öskruðu. Ég hef aldrei séð annað eins.“ Þrýstinn markmaður Á föstudagsmorguninn komu til landsins breskir blaðamenn frá popptímaritinu NME, en ^ þeir fóru í Bláa lónið með Damon ásamt Tómasi Tóm- assyni, markaðsstjóra Skífunn- ar. 1 lóninu voru aðallega ferða- menn sem báru ekki kennsl á stjörnuna, ófært var upp að sjálfu hótelinu svo að gestirnir þurftu að ösla snjó langar leiðir áður en þeir komust í búnings- klefann. Þegar komið var aftur í bæinn var farið á úrslitaleik KA og Vals þar sem fyrrnefnda lið- ið tapaði en Bretarnir höfðu mestan áhuga á markmanni KA, sem þeim fannst vera of feitur í markið, og Damon kallaði alltaf rámur í kór við hina Bretana: „You fat bastardj' þegar hann gat ekki varið. íslendingarnir höfðu hins vegar mestan áhuga á Damon og þyrptust að honum í hálfleik. Svo fór stjarnan upp á hótelherbergi um kvöldið og mætti á Kaffibarinn um mið- nætti, áberandi þyrstur, enda búinn að vera að skjóta á sig með blaðamönnunum allt kvöldið. Eftir að Kaffibarnum var lokað bauðst íslensk stúlka til að fylgja Damon heim að hót- elinu. Morguninn eftir flaug hann heim til sín, kvaddur af grátandi barnaskara fyrir utan Sögu og öðrum eins sem beið hans þegar komið var í Flug- stöðina. pinglingarnir í frumskóginum Breska stjórstjarnan Damon Albarn úr hljómsveitinni Blur lenti í ótal ævintýrum á íslandi þegar hann birtist hér öllum að óvörum, eins og næs aprílgabb, og settist upp á „The Bar“. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir frétti af feröum hans. Damon á Islandi

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.